Morgunblaðið - 19.02.1983, Page 13

Morgunblaðið - 19.02.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 61 í Árnessýslu, en á Haukadalsá og þverám hennar er jafnan nokkuð af straumönd. Svo er einnig á Hólaá í Laugardál, þar er yfirleitt talsvert af straum- öndum, auk þess sem þær verpa einnig við hinar straumhörðu bergvatnsár sem til Laugarvatns renna. Á Brúará er yfirleitt víða talsvert af straumöndum og Sog- ið gekk einu sinni næst Laxá í S-Þing. sem straumandaá. Eftir virkjunarframkvæmdirnar og allt það rask sem þeim fylgdi hefur það gerbreyst. Þó er enn slæðingur af straumöndum á Soginu, auk þess sem fuglar á leið til Öxarár og lækja í Grafn- ingnum leita upp með ánni. Finnur getur þess að upplýs- ingar þessar séu vart tæmandi, víða annars staðar kunni að votta fyrir smásambýli. Finnur getur þess i grein sinni, að mest sé hér á landi af straumönd efst á ám, þar sem þær falla úr vötn- um sem hafa neðanjarðarað- rennsli af þurrum svæðum. Við slík skilyrði dafnar gróskumikill botngróður og dýralíf. Þéttbýl- iskjarnar staumanda geta einnig verið efst á dragám þar sem þær falla úr stöðuvötnum ef á annað borð dafnar gróskumikið líf í vatninu. En til slíkra vatna falla jafnan dragár með miklu ofan- jarðarrennsli og því er gróður- og dýralíf slíkra vatna ekki eins fjölskrúðugt og fyrst nefndu vatnanna. Hér á landi er því mest af straumöndum á hinu unga og þurra jarðeldasvæði í Þingeyjarsýslum, á Miðhálend- inu, og svo á Suður- og Suðvest- urlandi. Strjáll varpfugl er hún hins vegar á hinum fornu bas- altsvæðum Vest- og Austfjarða. Efst á Laxá telur Finnur að um 100 pör straumanda hafi orpið árlega um 1940. Mjög mikið er þar enn um straumönd, en talið er að henni hafi fækkað dálítið, eða að hún hafi fært sig til vegna ágangs manna og minka. Stofn- inn er lítill og straumandaregg hafa verið eftirsótt hjá söfnur- um. Mikið var tekið af eggjum straumanda áður fyrr, en það minnkaði mjög eftir að tegundin var friðlýst. Enn eru þó brögð að því eins og fréttir herma að aðilar taki mikið magn af eggj- um straumanda til útflutnings. Straumöndin er út af fyrir sig ekki eina tegundin sem fær slíka meðferð bíræfinna eggjasafnara, húsöndin, gulöndin, hrafnsöndin og aðrar sjaldgæfar eða merki- legar andartegundir verða einn- ig fyrir barðinu á söfnurum. Stærð straumandarstofnsins íslenska í tölum er ókunn. í fyrrgreindri grein Finns Guð- mundssonar í Náttúrufræðingn- um, sem út kom árið 1971, getur hann þess að fjöldi varppara skipti ekki hundruðum, heldur þúsundum. Hve mörg pör yrpu hér árlega væri hins vegar allt annar handleggur. Hann ætlaði þó að sú tala færi vart yfir 5.000 varppör á ári. Litadýrðin á sinn uppruna Þá hefur verið drepið á eitt og annað varðandi útlit, lifnaðar- hætti og útbreiðslu þessa merki- lega fugls hér á landi. Ýmislegt sem snýr að straumöndinni er hins vegar ekki einungis komið úr vísindaritum og byggt á at- hugunum fróðra manna. Þjóð- trúin á í pokahorninu skýringu á óvenjulegri fegurð straumandar- blikans. I þessum greinarflokk- um um íslenska fugla hafa slíkar sagnir oftlega verið sóttar í rit Björns J. Blöndal frá Stafholts- ey, en bækur hans eru hreinustu gullnámur fyrir þá sem unna ís- lenskri náttúru. Og sagan um hvernig straumandarblikanum áskotnaðist skrúði sinn er skráð í bók Björns, „Daggardropar". Hér kemur sagan: Á meðan jörðin var enn ung og áður en dýrin höfðu breiðst um alla jörðina eins og nú, var ljós- álfur einn á ferð og var hann í mikilvægum erindagjörðum. Hann kom að straumhörðu fljóti og komst fyrir engan mun yfir. Hann fann lengi vel engan sem gat hjálpað utan straumandar- kollu sem lá á eggjum. En þetta var um lágnættið og straumand- arkonan svaf öruggum og vær- um svefni, enda lágnættið friðartími fuglanna. Refurinn og uglan, sem ein höfðu þá rétt til veiða um nóttina, voru ekki kom- in svona langt norður er þetta gerðist. Ljósálfurinn ofurlitli átti ekki annarra kosta völ en að ónáöa straumandarkonuna, verkefni hans var brýnt og hann gat hvergi annað snúið sér. Hann snerti því höfuð straum- andarinnar með fingrum sínum og vakti hana af blundinum. Hann sagði svo við hana: „Móðir góð, fyrirgefðu, að ég raska næt- urró þinni. Faðir okkar beggja sendi mig í langa ferð, og ég átti að flýta mér. Getur þú hjálpað mér yfir þessa straumhörðu og breiðu á?“ Straumöndin tók ljósálfinum vel og kallaði á bónda sinn sem svaf á steini úti á fljótinu. Með- an blikinn synti að bakkanum sagði straumandarkonan ljósálf- inum ekkert vera sjálfsagðara en að flytja hann yfir, það væri eitt af hlutverkum straumandar- innar, auk þess sem hún sagði að bóndi sinn væri straumsækinn og „þætti mest gaman að svamla þar, sem mestur straumur er“. Síðan lögðu blikinn og ljósálfur- inn af stað og kollan bauð þeim góða ferð. En ferðin var miður góð, þar sem straumurinn var stríðastur, réðist að þeim hin gullita og baneitraða vatnagedda. Beit hinn illi fiskur straumöndina illa og brann hamur hennar svo af eitrinu að ekki var sjón að sjá hana. Hins vegar slapp hún við illan leik úr geddukjaftinum og skilaði ljósálfinum yfir á hinn bakkann. Ljósálfurinn slapp óskrámaður, en sagði við blikann er á land kom: „Hörmulega ert þú leikinn, bróðir, en ég get bætt úr því. Skalt þú verða miklu fag- urbúnari en áður var. Mun það og fylgja, að fjaðurhamur þinn og konu þinnar skal vera vörn við öllu illu.“ Ljósálfurinn sneið svo pjötlu úr híalíni og lagði yfir blikann. Síðan er straumand- arsteggurinn einn litprúðasti fugl í norðurheimi og þótt víðar væri leitað. Mábióöabérsæti Viö kynnum m.a. frönsku sófasettin frá ro á húsgagnasýningunni í dag kl. 2—5. flV ILJI Bláskógar Armúla 8, sími 86080. Vorum að taka upp THOMSON ísskápa á kynningarverdi 330 lítra ABS klæöning aö innan. Tvær dyr. Tvö hitastig. Frystir 75 I. Fjórar stillanlegar hillur. Sjálfvirk afþíöing. Verð kr. 12.870.- greiðslukjör

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.