Morgunblaðið - 19.02.1983, Side 18
66
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983
Bara venjulegur
íslendingur og
latur að skrifa
Viðtal við Jóhann Pétursson, verkfræðing
Jóhann Pétursson, kominn í frí frá Egyptalandi í vetrarveórió á tslandi.
Jóhann Pétursson, rafmagnsverk-
fræðingur, var hér á ferðinni. Skrapp
hingað að þessu sinni frá Kgypta-
landi, þar sem hann er ráðunautur
við byggingu nýrra jarðgasstöðva og
fær hálfs mánaðar frí á tveggja mán-
aða fresti. Þetta leyfi hafði hann not-
að til að koma til heimahaganna og
hitta gamla vini og ættingja. Annars
fluttist Jóhann til Bandaríkjanna
fyrir 21 ári og hefur lengst af búið í
llouston í Texas. Vinnur að verk-
fræðistörfum við efnaverksmiðjur og
olíustöðvar. Þegar Jóhann leit inn á
ritstjórn Mbl. til að heilsa upp á Ólaf
K. Magnússon Ijósmyndara og tala
við hann um báta og siglingar, aðal-
áhugamál beggja, notuðum við tæki-
færið til að spjalla við hann.
Eftir að Jóhann hafði lokið
námi í rafmagnsverkfræði í Kaup-
mannahöfn 1954, starfaði hann
um skeið hjá rafmagnseftirlitinu
á íslandi. En hélt svo vestur. Af
hverju? — Það er ekki gott að
segja af hverju maður fer og af
hverju maður kemur, svaraði Jó-
hann. Hef líklega verið að leita að
einhverju.
— Houston er góður staður að
búa á, bætir hann við. Þar er mik-
ið um að vera. Olíuiðnaðartæknin
hefur þróast mest á þremur stöð-
um, í Texas, Oklahoma og Louisi-
ana, og Houston er stærsta tækni-
borg heims fyrir olíuiðnaðinn.
Þótt sá iðnaður hafi heldur dreg-
ist saman í olíukreppunni, þá hef-
ur Houston haldið sínum hlut.
Sjálfur starfa ég hjá einu af
stærstu fyrirtækjunum þarna,
Brown Root Inc., sem líka er verk-
takafyrirtæki víða um heim. Og
var því til dæmis í Noregi og í
Skotlandi á árunum 1977 og 1979.
Á báðum þessum stöðum stjórn-
uðum við byggingu á olíupöllum.
Og í Egyptalandi erum við að
ljúka byggingu á stöðvum til að
safna jarðgasi og koma þeim í
gagnið. Egyptar hafa mikið jarð-
gas, sem þeir hafa hingað til
brennt. En nú á að nýta það í
verksmiðjum í Cairo og við Sues-
skurðinn. Það á eftir að breyta
miklu hjá þeim. Gas er svo mikil
undirstaða fyrir efnaiðnað, áburð-
arframleiðslu og brennslu í ýms-
um iðnaði. Og Egyptar þurfa til
dæmis að flytja svo mikið inn af
tilbúnum áburði.
— Hvernig er að vera í Egypta-
landi?
— Við erum að vinna í Austur-
Sahara-eyðimörkinni við
svonefndan Sues-flóa sem gengur
inn úr Rauðahafinu. Ég er búinn
að vera þarna síðan í april í fyrra.
Þarna er ekkert nema eyðimörkin,
nokkur smáþorp á víð og dreif, og
ekkert við að vera nema starfið við
mannvirkin.
— Það er líklega dálítill munur á
veðráttunni á þessum þremur
stöðum, vetrarveðrinu á íslandi
núna, eyðimerkurhitanum í Eg-
yptalandi og staðviðrunum heima
hjá þér í Houston. Hvernig er þar?
— Já þetta eru mjög ólíkir staðir.
En maður þarf að hafa einhverja
tilbreytingu. í Houston er eilíft
sumarveður. Veðráttan mjög góð.
Á sumrin er hitinn í júlí og ágúst
35—40 stig, um 5 gráðum lægri en
inni í landinu, í Dallas til dæmis.
Það er gott að vera þarna við sjó-
inn og Texas er allt þakið vötnum.
Mikil fiskirækt í ám og vötnum.
Ódýrt að veiða þar á stöng. Veiði-
leyfin fyrir árið um 4 dollara og 15
cent, og féð notað til að fylgjast
með fiskistofnunum í þessum
vötnum og vinna að fiskirækt, ef
með þarf. Þetta er því frábær
staður fyrir þá sem unna útivist.
— Stundar þú útivist í tóm-
stundunum?
— Aðallega siglingar. Ég á 43ja
feta bát og sigli mikið á Galvest-
on-flóa og Mexíkó-flóa. Báturinn
er mirin sumarbústaður. Ég er í
honum flestar helgar. Geymi bát-
inn í Kíma, sem er útborg frá
Houston og býð með mér einhverj-
um í siglingu um helgar. Þetta er
mjög skemmtilegt sport. Siglinga-
klúbbar skipuleggja hópferðir og
yfirleitt er notalegt að ferðast á
vatni í hitunum. Svo er líka hægt
að renna fyrir fisk úr bátnum.
Börnin mín hafa búið í Houston til
skamms tíma, en þau sigla ekki
lengur með mér nema þegar þau
koma í heimsókn. Þau fluttu of
langt í burtu sl. sumar. Dóttirin er
lögfræðingur og býr nú með
manni sínum í Philadelphiu og
sonurinn er vélaverkfræðingur og
er við stjórnunarstörf hjá fyrir-
tækinu Gordon Canadian Trust í
New York.
— Maður heyrir um þessa
miklu hvirfilvinda í Mexíkó-flóa
og lægðirnar okkar eru þaðan ætt-
aðar. Getur ekki orðið slæmt í sjó-
inn á litlum skútum?
— Það koma fárviðri. Ég hefi
aldrei lent í hvirfilvindum, þótt ég
hafi stundum beðið eftir að veðrið
færi hjá. Veðurfréttir eru mjög
góðar þarna, sendar út gegn um
útvarp á klukkutímafresti allan
sólarhringinn. Og þar koma að-
varanir, ef eitthvað er að veðri.
— Hittirðu íslendinga í Houst-
on?
— Við höfum efnt til þorra-
blóta undanfarin ár og þangað
koma venjulega um 70 manns. Um
helmingurinn íslendingar og hinn
helmingurinn Bandaríkjamenn.
Venjulega eru íslenzkir stúdentar
í háskólanum i Austin í Texas, og
maður hittir þá á þorrablótunum.
Annars eru þetta íslendingar, sem
fluttir eru heiman frá íslandi, eða
börn þeirra. Við höfum þann hátt
á að hver leggur eitthvað til af
íslenzkum mat. Ýmist býr fólk
hann til sjálft eða fær eitthvað
sent að heiman. Með þessu móti er
hægt að fá unga fólkið til að koma.
Þátttökugjaldið yrði alltof dýrt, ef
ætti að panta mat frá íslandi.
Hvort ég missi af þorrablótinu í
ár? Ætli það verði nokkurt þorra-
blót núna fyrst ég er ekki heima.
— Þú heldur alltaf samband við
ísland?
— Ég veit ekki hvort hægt er að
kalla það að halda sambandi. Ég
er bara venjulegur {slendingur og
latur að skrifa. Ég á hér systkini
og kem stundum á stúdentsafmæl-
um til að hitta skólasystkinin.
Hefi raunar líka farið til Dan-
merkur til að hitta skólabræðurna
úr verkfræðideild Hafnarháskóla
á hátíðlegum stundum. Það eru nú
orðin fjögur ár síðan ég kom síð-
ast til íslands. Oftar að maður
hitti fslendinga, sem koma til
Houston, eins og hann ólaf K.
Magnússon og fjölskyldu hans,
þegar hann var að sækja þangað
bátinn sinn. — E.Pá,
Undir stýri á bátnum sínum í Mexíkóflóa. Til hægri er Anna Lóa Ólafsdóttir.
I.jósm.: ÓI.K.Mag.
Bestubílakaupin ídag!
Mazda929 Hardtop Limited
Innifalinn búnaður:
Veltistýri • Rafdrifnar_ rúður og hurðarlæsingar • Vatns-
sprautur á aðalljós • „Cruise control" • Mælaborð með
snertirofum • Útispeglar beggja vegna • Aðvörunartölva •
Quarts klukka • Stokkur milli framsæta með geymsluhólfi •
Opnun á bensínloki og farangursgeymslu innan frá • Halo-
genframljós • Litað gler í rúðum • Innfelld rúllubelti á fram
og aftursætum • Hæðarstilling á ökumannssæti og fjölmargt
fleira.
VERÐ AÐEINS KR
248.500
gengisskr. 16.2.'83
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99
Bestubílakaupin ídag!
MAZDA 929 Limited 4 dyra meðöllu
Innifalinn búnaður:
Sjálfskipting - Vökvastýri - Álfelgur - Raf-
knúin sóllúga - Rafknúnar rúður - Rafknúnar
hurðarlæsingar - Veltistýri - Luxusinnrétting
og fjölmargt fleira
VERÐ MEÐ OLLU ÞESSU ADEINS KR.
276.500
gengisskr. 16.2.’83
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99