Morgunblaðið - 23.02.1983, Side 7

Morgunblaðið - 23.02.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983 39 Villandi samanburður — eftir Þorvald Búason Föstudaginn 4. febrúar flutti sjónvarpið frétt sem gaf yfirlit um það, hvernig ástatt er um vægi at- kvæða eftir búsetu við kosningar í nágrannalöndum, þ.e. í nokkrum þeim lýðræðisríkjum, sem helst eru höfð til fyrirmyndar. Sjón- varpið benti réttilega á, að jafn kosningaréttur er lögfest megin- regla á öllum Norðurlöndum og í Þýskalandi. Þessi lönd virða regl- una í framkvæmd með einni und- antekningu: Finnmörk í Noregi hefur nokkra sérstöðu. Þá benti sjónvarpið á, að samkvæmt fræg- um hæstaréttardómi, sem féll árið 1965 í Bandaríkjunum, skuli kosn- ingaréttur til fulltrúadeildar al- ríkisþingsins vera óháður búsetu. Þetta merkir, að þingmönnum er fjölgað í einu ríki á kostnað ann- ars, ef hlutfallsleg breyting verður á íbúafjölda ríkjanna. Yfirlit sjónvarpsins var ekki tæmandi, og mætti bæta mörgum löndum við lista þess. Þau lönd sem e.t.v. komast næst fullkomn- un í jöfnuði atkvæða eru Holland, Belgía og Irland, svo og ísrael, ef lengra er leitað um samanburð. Á Bretlandi eru kjördæmin í Skot- landi og Wales yfirleitt fámennari en kjördæmin á Englandi. Kjör- dæmin á Norður-írlandi eru hins vegar ívið fjölmennari. í höfuð- dráttum má þó segja, að vægi at- kvæða í Bretlandi sé jafnt, og mis- vægi þar er ekkert í líkingu við það sem viðgengst hér á landi, enda leiðréttingar gerðar reglu- lega. í Sviss er vægi atkvæða jafnt (óháð búsetu) við kosningar til fulltrúadeildar. Óhætt er að segja að misvægi atkvæða milli kjör- dæma á íslandi sé í hrópandi ósamræmi við meginregluna í öðr- um lýðræðisríkjum. Huldumenn gera athugasemd Sjónvarpsfréttin, sem fyrr var nefnd, mun hafa komið ýmsum á óvart og vakið óskipta athygli landsmanna. Ekki virðast þó allir hafa verið jafn ánægðir yfir þess- um upplýsingum, því að fimm dög- um síðar birti sjónvarpið athuga- semd við fréttina. Ekki var þess getið, hvaðan athugasemdin væri komin, og verða hlustendur að geta sér til um það. I athugasemd- inni var vakin athygli á, að önnur deild Bandaríkjaþings, öldunga- deildin, væri skipuð tveimur mönnum úr hverju ríki, án tillits til fólksfjölda. Þannig kæmi fram misvægi atkvæða allt að einum á móti 50 ef borin væru saman ríki eins og Alaska og New York. Þar að auki hefðu íbúar höfuðborgar- innar, Washington, alls ekki kosn- ingarétt til öldungadeildarinnar. Ofangreind athugasemd hefur sennilega átt að sannfæra menn um, að misvægi atkvæða á íslandi ætti sér þarna hliðstæðu. En at- hugasemdin er villandi, því að þarna er ekki un neina hliðstæðu að ræða. Bandaríkin eru, eins og nafnið bendir til, samband margra ríkja, sem hafa sjálfstæði í ýms- um málum. Flest ríkin eru miklu stærri en ísland og hvert þeirra kýs eigið þing. Washington (Distr- ict of Columbia) er ekki ríki og kýs því hvorki eigið þing né öldunga- deildarþingmenn. Skipan öldunga- deildarinnar endurspeglar þá staðreynd að um sambandsríki sé að ræða. Engin hliðstæða fyrir- finnst hér á landi, og því ekki unnt Þorvaldur Búason „Óhætt er að segja, að misvægi atkvæða milli kjördæma á íslandi er í hrópandi ósamræmi við meginregluna í öðrum lýð- ræðisríkjum.“ að nota þetta sem rök fyrir mis- jöfnum kosningarétti. Til fróðleiks má geta þess, að þótt öldungadeild Bandaríkja- þings sé valdamikil stofnun, er vald hennar einkum fólgið í neit- unarvaldi gagnvart forseta og fulltrúadeild. Óldungadeildin get- ur t.d. ekki átt frumkvæði að neinni lagasetningu, er felur í sér skattlagningu á borgarana. Það frumkvæði er í höndum fulltrúa- deildarinnar. Hvað höfuðborgina Washington snertir, má benda á, að óánægja íbúanna með stöðu sína utan ríkja hefur leitt til þess, að ýmsar leið- réttingar hefa verið gerðar á þeirri stöðu á seinni árum. Þannig fengu íbúarnir rétt til þátttöku í forsetakosningum 1961, og kosn- ingarétt til fulltrúadeildarinnar 1970. Er Alþingi öldungadeild? Eins og þegar hefur verið sagt, er samanburður á atkvæðavægi á íslandi og atkvæðavægi við kjör til öldungadeildar Bandaríkja- þings út í hött. Vilji menn líta á kjördæmin hér á landi sem eining- ar i líkingu við ríki í Bandaríkjun- um blasir við sú staðreynd, að Al- þingi allt verður hliðstæða öld- ungadeildarinnar, en fulltrúa- deildina vantar. Með öðrum orð- um, hér vantar þá deild, sem endurspeglar vilja allra borgara jafnt og tryggir jöfn áhrif þeirra. Ef til vill má þakka fyrir, að þeir ónefndu heiðursmenn sem stóðu að athugasemdinni í sjón- varpinu, skyldu taka öldungadeild Bandaríkjaþings sem dæmi. Hví nefndu þeir ekki lávarðadeildina bresku, sem ekki er kosið til, en hefur þó enn umtalsverð völd? Með slíku dæmi og álíka skýrri hugsun hefði kannski mátt rétt- læta það, að kosningarétturinn yrði afnuminn með öllu! Sérstaða Finnmerkur Eins og fram kom í sjónvarps- fréttinni 4. febrúar, hefur héraðið Finnmörk í Noregi nokkra sér- stöðu þar í landi, því að vægi at- kvæða er þar miklu meira en í öðr- um landshlutum. I fljótu bragði mætti ætla, að þarna væri fundið dæmi til stuðnings þeirri skoðun, að kosningaréttur á Islandi eigi að vera misjafn eftir byggðarlögum. Þarna er þó ólíku saman að jafna. f Noregi býr yfirgnæfandi meiri- hluti íbúanna við jafnan kosn- ingarétt. Þessi meirihluti hefur fallist á að veita íbúum fámenn- asta og strjálbýlasta fylkisins meira atkvæðavægi en öðrum. Á íslandi er það minnihluti þjóðar- innar (40%) sem í skjóli ranglátr- ar kjördæmaskipunar kýs yfir- gnæfandi meirihluta þingmanna (60%). Þessir þingmenn neita síð- an meirihluta kjósenda um þann rétt sem telst til grundvallar- mannréttinda í öllum lýðræðis- ríkjum. Fundur um friðarmál STEFNT er að því að síðasti sam- ráðsfundur norrænu friðarhreyf- inganna um samræmingu hugmynda verði haldinn hér á landi í vor, sam- kvæmt fréttatilkynningu frá Hópi áhugafólks um friðar- og afovpnun- armál. Þess er vænst, að eftir þann fund liggi fyrir samræmd stefnu- yfirlýsing um baráttuna fyrir kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum og nákvæmar skil- greiningar á eðli svæðisins, stærð þess, pólitískri stöðu og hlutverki í alþjóðlegri friðarbaráttu, eins og segir í fréttatilkynningunni. Reyðarfjörður: 11.000 sfldar- tunnum skipað út Reyðarfjörður, 11. febrúar. HÉÐAN eru farnar ellefu þúsund tunnur af saltsíld, 2.000 tunnur til Svíþjóðar og 9.000 á Rússamarkað. Þá eru eftir 3.000 tunnur af síld hjá GSR, 4.000 tunnur hjá Verk: tökum hf. og 2.340 tunnur hjá Kóp sf. — Gréta Með drifi á öllum hjólum! TOYOTA P. SAMÚELSSON & CO. HF. UMBOÐIÐ NÝBÝLAVEGI8 KÓPAVOGI SIMI44144

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.