Morgunblaðið - 23.02.1983, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 23.02.1983, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1983 49 fclk í fréttum David Bowie fær hlutverk Abraham Lincolns. 24 tíma ópera + David Bowie ásamt fjölda ann- arra tónlistarmanna er nú sem óóast að undirbúa 24 tíma óperu, sem á að flytja í tengslum við opnun Ólympíu- leikana í Los Angeles á na sta ári. Óperan verður í fimm hlutum og flutt samtímis í jafnmörgum löndum. Bowie á að fara með hlut- verk Abraham Lincolns og eru það Japanir, sem standa að þeim hluta óperunnar. Meðal annarra tónlist- armanna eru Philip Class og Jessye Norman en höfuðpaurinn er hinn velþekkti Robert Wilson. Stenmark og Ulvhagen. Skattarnir neyða Stenmark í hjónaband -t- Ingemar Stenmark er í giftingarhugleiðingum og er festarmaer hans flugfreyjan Ann Ulvhagen. Giftingin hefur haft nokkuð langan og erfíöan aðdraganda og er haft eftir nábúa þeirra, að Stenmark og Ann rífist stöðugt svo undir taki í húsinu. Hvar giftingarathöfnin fer fram eða hvenær hefur ekki verið látið uppi en hjónaleysin búa nú í Mónakó. Ingemar segist gera það vegna skattkúgunarinnar í Svíþjóð en það er hins vegar ekki nóg að búa bara í Mónakó til að fara vel út úr sköttunum. Menn verða líka að hafa atvinnu þar eða það, sem jafngildir því í augum Mónakó- búa: Að vera giftur og eiga börn og buru. -I- Tuttugu danskir froskkafarar brugðu i leik á öskudaginn en í stað þess að slá kött úr tunnu, slóu þeir sfld úr tunnu. Atburðurinn átti sér stað við Friðrikshólm og fylgdust margt manna með leiknum. Kalt var í veðri þennan dag og mátti heyra tannaglamrið frá áhorfendum en kafararnir létu sér hvergi bregða. COSPER Slæmar fréttir, það er komin stórbygging á staðinn þar sem þú grófst peningana. „Óskemmti- legur maður“ + Eins og við sögðum frá fyrir nokkr- um dögum eru þau nú skilin, Dave Allen og kona hans, en Dave hefur lcngi þénað vel á því að vera skemmti- legur, á skjánum a.m.k. Konan hans fyrrverandi hefur þó sína skoðun á því: „Hann er ömur- legur. Hann hélt, að svarið við öllum erfiðleikum væru peningar," lét hún hafa eftir sér nýlega og hún ætti að vita hvað hún syngur eftir 19 ára hjónaband. UTSALA Karlmannaföt frá kr. 1.175,00, terylenebuxur frá kr. 200,00, flauelsbuxur frá kr. 235,00, flauelsbuxur kvenna kr. 265,00, gallabuxur karlmanna frá kr. 245,00, gallabuxur kvensniö kr. 235,00, frakkar kr. 475,00, úlpur frá kr. 350,00, trimmgallar kr. 310,00, peysur frá kr. 95,00 o.m.fl. ódýrt. Andrés herradeild, Skólavörðustíg 22, sími 18250. Prófkjör Sjálfstæöisflokksins í Reykjaneskjördæmi 26.—27. febrúar 1983 Stuðningsmenn Ólafs G. Einarssonar hafa opnað skrifstofu aö Skeiöarási 3, Garöabæ (húsi Rafboða hf.). Skrifstofan verður opin kl. 17—22 virka daga og kl. 13—19 um helgar. Sími 54555 Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi 26.-27. febrúar 1983. Kjósum KRISTJÖNU MILLU THORSTEINSSON — Fjölgum konum á þingi. Muniö kosningaskrifstofuna Haukanesi 28, sími 41530. Komið í kosningakaffi. Stuðningsmenn Megrunarnámskeið Nýtt námskeið hefst 28. febrúar. Námskeiöið veitir alhliða fræðslu um hollar lífsvenjur og vel samsett mataræöi, sem getur samrýmst vel skipulögöu, venjulegu heimilismataræöi. NÁMSKEIÐIÐ ER FYRIR ÞA: • Sem vilja grennast og koma í veg fyrir aö vandamáliö endur- taki sig. • Sem vilja foröast offitu og þaö sem henni fylgir. • Sem vilja fræöast um hollar lífsvenjur og vel samsett matar- æði. NÁMSKEIÐIÐ FJALLAR MEDAL ANNARS UM EFTIRFARANDI ATRIDI: • Grundvallaratriði næringarfræöi. • Fæöuval, gerð matseöla, uppskriftir. • Þætti sem hafa áhrif á fæðuval, matarvenjur og matarlyst. • Leiðir til aö meta eigið mataræði og lífsvenjur. Upplýsingar og innritun í síma 74204 í dag og næstu daga. Kristrún Jóhannsdóttir, manneldisfræöingur. Bladburðarfólk óskast! Úthverfi Hjallavegur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.