Morgunblaðið - 27.02.1983, Page 1
Sunnudagur 27. febrúar - Bls. 49-96
F.v. Þórunn Sveinsdóttir,
Jóna Sveinsdóttir,
Sveina Sveinsdóttir og
Arnheiður Sveinsdóttir.
Þessi mynd var tekin í
fjörunni við Vatnagarða
þar sem þær systurnar
æfðu oft fyrir sund-
keppnirnar í Örfirisey. Á
myndinni eru Arnheiður,
Jóna og Sveina Sveins-
dætur.
Ljósmynd: Emilia B. Björnsdóltir.
„Upphafiö aö þessum sundáhuga okkar má rekja til þess er
foreldrar okkar fluttust hingaö til Reykjavfkur — þá settust
þau að í húsinu Bjargi, sem var skammt frá gömlu laugun-
um,“ sögöu þær systurnar Arnheiður, Jóna, Sveina og Þórunn
Sveinsdætur í spjalli við blm. Mbl. núna á dögunum. „Þar í
húsinu bjó einnig hinn frægi sundgarpur Erlingur Pálsson,
lögreglumaður. Viö stunduðum sund af svo miklum áhuga á
þessum árum að það má segja að ekki hafi þornað á okkur
flétturnar allan ársins hring.“
Hvernig var aðstaðan til
að iðka sund á þessum tíma?
„Hún var næsta bágborin,
nema gömlu laugarnar stóðu
auðvitað fyrir sínu, en þær
voru ekki nógu langar til að
hægt væri að keppa þar.
Reyndar voru vandkvæði
fyrir kvenfólk að fá aðgang
þar fyrst framanaf — en það
var fyrir okkar tíð. Þá var
það almenningsálitið að kon-
ur ættu eiginlega ekki að
stunda sund — og karlmenn-
irnir fóru skýlulausir í laug-
arnar. Svo var það að ein
kona byrjaði að stunda sund
þarna hvað sem hver sagði,
og þá voru karlmennirnir
skyldaðir til að vera í sund-
skýlum.
Sundkeppnirnar fóru hins
vegar fram úti við Örfirisey.
Þar var skáli þar sem ver-
búðirnar eru núna og var
synt í krikanum fyrir framan
— þar voru 50 og 100 metra
merki og bryggja til að
stinga sér af. Ef veður var
vont eða mikil alda varð ein-
faldlega að fresta sund-
keppni.
Við æfðum oft sund í sjón-
um inni við Vatnagarða. Þar
var aðstaðan engin — við
urðum að fara bak við steina
til að skipta um föt — strák-
arnir öðru megin en stelp-
urnar hinum megin og gekk
allt vandræðalaust."
Var ekki anzi kalt að fara í
sjóinn?
„Það var það auðvitað
fyrst en maður vandist því
alveg — en það var alltaf
ónotalegt að stinga sér beint
í ískaldan sjóinn eins og við
gerðum í Örfirisey. í Vatna-
görðum gátum við vaðið og
buslað í sjónum fyrst og þá
var ekki svo slæmt að fara
alveg ofaní. — Annars hefur
hún Sveina systir okkar ekki
sett kuldann fyrir sig um
ævina, hún var t.d. einn vetur
á Fáskrúðsfirði og stundaði
þar sjóböð reglulega allan
veturinn. Við höfum reyndar
allar stundað sund eftir
föngum, alla tíð og gerum
það enn — þegar allt kemur
til alls er fátt meiri hressing
og heilsubót en hressilegur
sundsprettur." — bó.
Myndin hér að ofan birtist í Lesbók Morgunbladsins
fyrir rúmlega 50 órum, hinn 11. septembor árið 1932,
ásamt þessum texta: „Hjer birtist mynd af þremur
systrum úr Sundfjelaginu „Ægi“ og hafa þær sigrað í
öllum kvensundum í sumar. — Jóna Sveinsdóttir (til
vinstri) vann fyrstu verðlaun 24. júní í 100 metra frjálsu
sundi, á einni mínútu, 41,1 sekúndu og var það nýtt
met. — Fyrstu verðlaun vann hún 27. júlí í 200 metra
bringusundi á 3 mín. 44,2 sek., ásamt meistarastigi í
báðum sundum. — Arnheiður Sveinsdóttir (í miöju)
vann fyrstu verðlaun 23. júní í 50 m frjálsu sundi á 43,4
sek. og var þaö nýtt met. — Sveina Sveinsdóttir (til
hægri) vann fyrstu verðlaun 23. júní í 100 metra
bringusundi á 1 mínútu 49,8 sek., og er þaö besti tími
sem náðst hefur í þessu sundi fyrir konur. (Metið í 100
stika sundi kvenna var sett í fyrra, en þá var sundað-
ferðin frjáls.) Sveina kepti einnig í 200 m bringusundí
og varð önnur í röðinni og í 100 m frjálsu sundi og varð
sú þriðja í röðinni. — Fjórða systirin, Þórunn Sveins-
dóttir (KR) var sunddrottning íslands 1930.
Sunddrottning islands — Myndin hér að ofan birtist
í Lesbók Morgunblaðsins 14. september 1930, og
fylgdi henni eftirfarandi fréttaklausa: „Þessi mynd
er af sunddrottningu íslands 1930. Hún heitír Þór-
unn Sveinsdóttir, og er aðeins 16 ára að aldri. Hún
hefur iökað sund frá barnæsku, en ekki tekið þátt í
kappsundi, fyr en í fyrrasumar. Mátti þá þegar sjá,
að hjer var á ferðinni mjög efnileg sundkona. í
sumar hefir hún tekið þátt í báöum þeim aðal-
sundmótum, sem háð eru fyrir konur. Var þar keppt
í 200 metra og 100 metra sundi, og í því tóku þátt
allar okkar núverandi fræknustu sundkonur. Þór-
unn vann bæði þessi sund frækilega, og setti um
leið nýtt met í 100 metra sundi. Synti hún það á 1
mínútu og 48,9 sek. Væntanlega heldur Þórunn
áfram að iðka sína hollu uppáhaldsíþrótt, bæði
sjálfri sjer til ánægju og til þess að verða sem bezt
fær um að verja þann heiður, sem hún hefur nú
hlotið."