Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 Jóhanrt G. Jóhannsson um fyrirhugaöa SATT-daga í veitingahúsunum um helgina: „Við förum aðeins fram á að fá tæki- færi til að koma undir okkur fótunum“ „Vid erum aðeins aö fara fram á aö fá tækifæri til aö koma undir okkur fótunum," sagði Jóhann G. Jóhannsson, aöalbar- áttumaður SATT, er Járnsíöan ræddi viö hann í vikunni. „Viö viljum undirstrika, aö viö getum hjálpaö okkur sjálf, en til þess þurfum viö tækifæri til aö sanna getu okkar. Þaö eru bara svo óskaplega margir blóötappar í æðum stjórnsýslukerfisins hér á landi og þaö hefur haft sitt að segia. Popptónlistarmenn búa viö fé- lagslega mismunun. Hvaða sanngirni er t.d. í því, aö þeir þurfi aö borga 10% skemmtana- skatt á sama tíma og þeir, sem flytja svokallaöa „æöri“ tónlist þurfa þaö ekki? Ef dansaö er viö tónlist popphljómsveita hækkar skemmtanaskatturinn upp í 23% og söluskattur bætist þar ofan á.“ Ef alit fer aö óskum mun SATT efna til einstæös tónlistarviö- burðar hérlendis um helgina, en þá er ætlunin aö efna til sér- stakra SATT-daga í veitingahús- um borgarinnar og munu hljóm- sveitir koma alls staöar fram, bæöi í kvöld og annaö kvöld. Er þetta liður í aö reyna aö skapa atvinnutækifæri fyrir stéttina, sem segja má, aö búi viö mikiö atvinnuleysi. Stór þáttur í því er aö diskótek hafa leyst lifandi tónlist af hólmi. Miöast þessi til- raun viö aö breyta þessari þróun og jafnframt aö reyna aö bjarga byggingarhappdrætti samtak- anna frá glötun. Eins og staöan er í dag veröur happdrættiö ein- ungis enn einn fjárhagsbagginn á heröum SATT ef fram fer sem horfir. „Samtök veitinga- og gisti- húsaeigenda hafa sýnt okkur verulegan velvilja og skilning,“ sagði Jóhann ennfremur. „Þaö, sem þessi samtök eru að gera meö því aö koma til móts viö okkur er ómetanlegt og sýnir kannski, aö þau virðast skilja stööu dægurtónlistarmanna bet- ur en aörir, enda er hér um sam- eiginlega hagsmuni aö ræöa. Hnífurinn stendur nú á hinn bóginn í kúnni því þessir aöilar geta ekki eftirlátiö okkur hús sín til aö halda skemmtanir í nafni SATT ef þaö hefur í för meö sér fjárhagslegt tap fyrir þá. Því veröur aö tryggja þeim svipaöa innkomu og annars heföi orðiö á venjulegri helgi. Viö sjáum ekki aö þaö sé yfirleitt mögulegt nema til komi undanþága frá hinu opinbera.“ — Hvaöa stuöningur er þaö nákvæmlega, sem þiö viljiö fá frá ríkinu í þessu tilviki? „Þaö er kannski rétt aö benda á þaö í upphafi, aö SATT hefur aldrei sótt um styrk af einu eöa neinu tagi til ríkisins og viö viljum helst ekki kalla þetta styrk heldur tilraun til aö bæta úr atvinnu- leysi. Viö erum aöeins aö fara fram á, aö skemmtana- og sölu- skattur veröi endurgreiddur eöa felldur niöur af þessum skemmt- unum bara þessa einu helgi. Veröi þaö gert er ég þess von- góður aö nýr starfsgrundvöllur opnist fyrir tónlistarmenn til aö koma fram meö diskótekum og happdrættiö skili hagnaöi svo húsakaupum SATT veröi þar meö bjargaö. Núna (aö kvöldi þriöjudags þegar þetta viötal var tekiö) er þetta allt undir viökomandi ráö- herrum komiö. Bréf veröur lagt fyrir þá í fyrramáliö. Segi þeir nei er ég hræddur um aö erfitt veröi aö spá í framtíö SATT. Mistakist þetta ætlunarverk okkar höfum viö þar meö misst verulegan meðbyr úr seglunum og þaö get- ur oröiö erfitt aö ná honum upp þegar merkið hefur einu sinni falliö." — Ertu vongóður um aö ráö- herrar leggi blessun sína yfir þetta? „Sannast sagna er ákaflega erfitt að gera sér grein fyrir því viö hverju er aö búast. í bréfinu, sem við leggjum fyrir þessa ágætu menn er hins vegar skýrt í einu og öllu frá stofnun og til- gangi SATT ásamt stööu félags- ins í dag og við leggjum á þaö áherslu, að meö þessum skemmtunum erum viö aö skapa atvinnu í stéttarfélagi, sem býr viö mikiö atvinnuleysi. Sjáöu til, þetta er aö vísu eng- an veginn samanburðarhæft dæmi en tekið samt. Bæjarút- gerö Hafnarfjaröar sagöi fyrir nokkru upp miklum fjölda fólks og hvaö gerist? Þá er hlaupið undir bagga til aö reyna aö bjarga rekstri, sem margir virð- ast sammála um aö eigi enga framtíö fyrir sér, aöeins tll aö koma í veg fyrir atvinnuleysi Við teljum hins vegar, aö dægurtón- list búi yfir miklum möguleikum. Dægurtónlistarmenn geta skapaö þjóöarbúinu tekjur. Þetta er hlutur, sem ætíö hefur verið litiö framhjá og möguleikinn ekki einu sinni viðurkenndur. Islenskir tónlistarmenn hafa í síauknum mæli vakiö athygli á sér, sér í lagi j Bretlandi, og þó engir eins og Mezzoforte að undanförnu. Dægurtónlist nýtur einskis stuðnings, en við erum aöeins aö fara fram á tilraun, sem vonandi veröur til þess aö koma undir okkur fótunum." Meatloaf og Carla de Vito eru frsegur dúett þótt ekki sé um þau fjallaö í greininni. Nú er vinsælt aö syngja saman dúett — en kynþáttahatur er sagt hafa áhrif á plötusölu McCartneys Jam slagar upp i Presley í tilefni af endalokum ferils bresku sveitarinnar The Jam með Paul Weller í broddi fylkingar voru allar smáskífur sveitarinnar, 18 að tölu, endurútgefnar fyrir skömmu. Þegar fariö er yfir breska vin- sældalistann yfir 100 vinsælustu smáskífurnar frá því 5. febrúar kemur í Ijós, að 16 af plötum Jam eru þar á meöal. Plötur Jam voru þessa vikuna í sætum nr. 21, 30, 41, 42, 43, 47, 53, 54, 57, 59, 60, 62, 73, 82, 83 og 87! Síöast þegar ósköp af þessu tagi áttu sér stað í Bretlandi var er Elvis Presley hrökk upp af. Viö dauða hans komust 20 smáskífur hans á lista í Bretlandi. Nú oröið viröist það vera í tísku á meðal stórstirnanna aö syngja saman dúett. Hafa mörg þekkt nöfn verið viöriöin þessa iðju aö undanförnu. Af nógu er aó taka. Undanfariö hefur sést til eflirtal- inna viö hin og þessi hljóöver víðs vegar um heim: Diönu Ross og Jul- io Iglesias, Paul McCartney og Michael Jackson, Diönu Ross (já aftur) og Lionel Richie, Phil Everley og Cliff Richard, Kenny Rogers og Barry Gibb, Barry Manilow og Dionne Warwick, Donnu Summer og James Ingram, Diönu Ross (jamm, þriöja sinni) og Paul McCartney, Michael Jackson og Barbra Streisand, Glenn Campbell og Crystal Gayle og loks Kenny Rogers og Sheenu Easton. Hefur lag þeirra síöasttöldu þegar komiö út á smáskífu. Reyndar er taliö óvíst, að nýja lagiö sem Paul McCartney hljóörit- aöi meö Michael Jackson veröi gefiö út á smáskífu (bandarískar útvarpsstöövar leika nær einvörö- ungu af smáskífum). Þess í staö veröi látiö fara lítiö fyrir því á næstu breiöskífu McCartneys, sem væntanleg er í apríl. Ástæöan er sögö sú, aö aö- dáendur McCartneys i Bandaríkj- unum, sem eru aö mestum hluta hvítt miðstéttarfólk, hafi tekiö þaö illa upp þegar hann söng í fyrra meö Stevie Wonder og Michael Jackson og hafi þaö komið niöur á sölu á plötu hans, Tug Of War. Því er taliö, aö haldi McCartney fast viö sinn keip kunni þaö aö skaöa plötusölu hans enn frekar. Þaö er ekki að spyrja aö kyn- þáttamisréttinu eins ógeöfellt og þaö er nú. Allir Italir í fýlu nema Umberto Tossi Unglingarnir á Ítatíu eru held- ur betur óhressir þessa dagana. Þarlend stjórnvöld fóru nefni- lega að dæmi íslenskra fyrir nokkrum mánuöum, þótt ekki kæmust þeir í hálfkvisti viö snillingana hér, og smelltu 16% söluskatti á hljómplötur. Afleiöingin varö eölilega sú sama þar og hér; plötur hættu aö seljast. Svo rammt hefur kveöiö aö samdrættinum í plötusölunni, aö erlendar hljómsveitir, sem hugöu á tónleikaferöalag til stígvélalagaða landsins, hafa snarlega hætt viö þær ráöagerö- ir. Umberto Tossi (hálfgerur Julio Iglesias þeirra ítala?) þarf þó ekki að kvarta þessa dagana. Lag hans Gloria hefur selst í um 30 milljónum eintaka frá því þaö var fyrst gefiö út 1979. Hefur lagiö komist í efsta sæti vinsældalista í 13 löndum. Gífurlegar vinsældir Ástralanna Men At Work Business As Usual-platan meó Men At Work hefur nú setiö á toppi bandaríska vinsældalistans í 13 vikur samfleytt og eru mörg ár síöan nokkur plata hefur setiö þar svo lengi. Ástralirnir hafa þegar lokiö viö gerö nýrrar breiöskífu, sem þeir nefna Cargo, en óvíst er hvenær hún lítur dagsins Ijós á meöan ekk- ert lát er á vinsældum Business As Usual. Óhætt er aö segja, aö Men At Work hafi lagt heiminn aö fótum sér aö undanförnu og gárungarnir hjá andfætlingunum segja, aö meö plötusölu sinni hafi þeir rétt úr viöskiptahalla þjóöarinnar. Breski listinn kannaður létt Þannig leit listinn yfir 20 vinsælustu lögin í Bretlandi út í síðustu viku: 1(1) Down under/ MEN AT W0RK 2 ( 5) Too shy/ KAJAG00G00 3 ( 4) Sign of the Times/ BELLE STARS 4 ( 2) Electric Avenue/ EDDY GRANT 5(10) Change/ TEARS F0R FEARS 6 ( 6) Gloria/ LAURA BRANIGAN 7(12) Up Where We Belong/ J0E COCKER/JENNIFER WARNES 8 ( 3) You can’t Hurry Love/ PHIL C0LLINS 9(11) Whamrap/WHAM 10(16) Oh Diane/ FLEETW00D MAC 11 ( 8) The Cutter/ ECH0 AND THEBUNNYMEN 12 ( 7) Story of the Blues/ WAH! 13(10) New Years Day/ U2 14(15) Last Night a D.J. Saved My Life/ INDEEP 15(14) Twisting by thepool/ DIRE STRAITS 16 ( 9) Steppin’ Out/ JOE JACK- SON 17 (20) Billie Jean/ MICHAEL JACKSON 18 (-) Christian/ CHINA CRISIS 19 (—) Africa/ TOTO 20 (17) Hold Me Tighter in the Rain/ BILLY GRIFFIN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.