Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 55 Med ykkar hjálp reisir SÁÁ nýja sjúkrastðd Á hvert heimili. Þessa dagana berst hjálparbeiðni frá SÁÁ inn á flest heimili í landinu. Móttakendur eru allir karlmenn á aldrinum 30 - 70 ára. Til hvers? Tilgangurinn er sá að safna fé til að Ijúka nýrri sjúkrastöð SÁÁ við Grafarvog í Reykjavík. í fyrsta áfangann rann fé sem safnað var í happdrætti sem íslenskar konur báru uppi. Þessi sjúkrastöð á að þjóna öllu landinu. Þar mun fara fram markviss aðstoð og meðferð þeirra sem eru að hverfa frá ofneyslu áfengis og fíkniefna — stíga fyrstu skrefin á braut til nýs lífs. Hvers vegna? Áfengissýki eyðileggur líf og lífshamingju svo ótrúlega margra. Auk þess tíunda hluta fólks, sem talið er að lendi beinlínis í klóm sjúk- dómsins, hvílir fargið á aðstandendum þeirra - þúsundum heimila og vinnustaða. Hér er í raun um að ræða stærsta vandamál á vettvangi heilbrigðis- og félagsmála þjóðarinnar. Hvað snýr að þér? Allir sem hafa fengið sendingu frá SÁÁ hafa undir höndum ýtar- legri upplýsingar í bæklingnum sem fylgir gjafabréfinu, sem nafn viðkomandi er skráð á. í því er beðið um fjárstuðning í fimm áföng- um frá 5. júní í ártil 5. júní næsta ár - 360 kr. í hvert sinn. Engir vextir eða verðtrygging hvílir á upphæðinni. Fyrsta skrefið er að undirrita gjafabréfið og senda það aftur til SÁÁ í hjálögðu umslagi. Taktu ákvörðun strax. Þetta er sameiginlegt átak okkar allra til að bjarga lífi — breyta lífi — bæta líf. Til verðlauna að vinna. Á hverjum gjalddaga verða dregin út 10 gjafabréf og eigendum þeirra afhentar 100.000 kr. í verðlaun fyrir þátttökuna. Þannig opnast hverjum skilvísum greiðanda fimm sinnum mögu- leikar á stórum vinningi. Ij ?I 11 Frekari upplýsingar hjá: Söfnunarstjórn sími: 91-82300 og á skrifstofu SÁÁsími: 91-82399 r* A A samtök \ZAZA ÁHUCAFÓLKS UM SZTV \ ÁFENCISVANDAMÁLÐ Átak íslendinga gegn áfengísvandanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.