Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983
59
SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800
megin hryggjar er
hentugt aö nudda
bæði langs- og
þversum ásamt aö
nota hringhreyfingar.
CLAIROL
nuddtæki
12.
Kálfavöövarnir eru
oft mjög stífir, þá er
sérlega gott aö
nudda.
10. og 11.
Fram og afturvöövar
læris eru notaöir á
hjóli, skíöum og viö
gang.
Nuddaöu alla lengdina
meö hringhreyflngum.
Vöövar á sitjandanum
rýrna oft hjá þeim sem
sitja mikiö. Reglulegt
nudd örvar vöövana.
Til þess aö losna viö
aukakíló um mjaömir,
sitjanda og læri þá er
best aö stunda æfingar
ásamt nuddi auk lettr
ar fæöu.
Djúpu hálsvöövana er
ekki hægt aö sjá né finna
meö höndunum, en
Clairol nuddtækiö nær
til þeirra og mýkir þá.
Þessir vöövar tengj-
ast undir hendina og
geta veriö þraut
þreyttum þeim sem
hafa krampa eöa lítiö
notaöa vööva, einnig
geta þeir veriö aumir
eftir stífa megrun.
Nuddiö hressir þá
heldur betur viö.
Hjá þeim sem sitja mikiö
eru axla- og hálsvöðvarnir
oft aumir. Þessir vöövar eru
oft þandir eins og fiðlu-
strengir. Nudd á þessa
vöðva fjarlægir þreytu og
verki á skammri stund.
13.
Svæöanudd á iljunum
gerir öllum líkamanum
gott, best er þá aö nota
Clairol fótanuddbaöiö
fyrir iljarnar.
Voövar tengdir
heröablaöinu veröa
oft aumir ef iþróttir
eru stundaöar
óreglulega.
6.
Best er aö nudda
axlavöövana meö
hringhreyfingu.
8. \
Best er aö renna nudd-N
♦ ækinu hér i sveiqjur
eftir mittinu og minnk
ar þaö fitu.
Reyknesingar!
Ólaf G. Einarsson
í öruggt sæti!
Sjálfstæðismenn í Reykjaneskjördæmi ganga til prófkjörs vegna komandi
alþingiskosninga nú laugardaginn 26. febrúar, kl. 13—19, og sunnudaginn
27. febrúar, kl. 10—20.
Stuðningsmenn ÓJafs G. Einarssonar vilja hér með vekja athygli á stað-
reyndum, sem þú, kjósandi góður, ættir að hugleiða áður en þú greiðir
atkvæði í prófkjörinu.
Ólafur G. Einarsson hefur verið formaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins síðasta kjörtímabil. Eins og allir vita, hefur þetta kjörtíma-
bil verið í hæsta máta óeðlilegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ólafur hefur
því oft verið í þeirri erfiðu stöðu, að þurfa að mæla fyrir einarðri
afstöðu þingflokks Sjálfstæðisflokksins gegn forvera Ólafs í embætti
þingflokksformanns. Ólafi hefur farist þetta vandasama starf vel úr
hendi, og teljum við það eitt næga ástæðu til áframhaldandi setu Ólafs
G. Einarssonar á Alþingi.
Ólafur G. Einarsson hefur einnig staðið í eldlínunni í því samninga-
þófi, sem hefur átt sér stað um kjördæmamálið, og hefur þar staðfast-
lega haldið fram hlut okkar Reyknesinga. ólafur hefur átt sinn stóra
þátt í því að sú lausn, sem nú er fundin á þessu stóra vandamáli, er um
það bil að verða að veruleika. Engum er þó ljósara en Ólafi, að þessi
lausn er aðeins áfangi á leiðinni að því sjálfsagða réttlæti, að atkvæð-
isréttur verði jafn um allt landið. En — því miður — sá áfangi sem
nú hefur náðst er einfaldlega það besta sem hægt var að ná við
núverandi aðstæður. Við treystum Ólafi manna best til að halda
áfram á þeirri braut að jafna kosningaréttinn á milli kjördæma.
Framangreind atriði, svo og önnur störf ólafs G. Einarssonar fyrir
þjóðina, Reyknesinga og Sjálfstæðisflokkinn, leggjum við óhikað í dóm
þinn, kjósandi góður. Við erum þess fullvissir að þú, og flokksbræður
þínir tryggja Ólafi G. Einarssyni öruggt sæti á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins við næstu Alþingiskosningar.
STUÐNINGSMENN
Skrifstofa okkar er að Skeiðarási 3, Garðabæ (húsi Rafboða hf.) sími 54555,
og um helgina verður hún opin á sama tíma og kjörstaðir, kl. 13—19 á
laugardag og kl. 10—20 á sunnudag.