Morgunblaðið - 27.02.1983, Side 13

Morgunblaðið - 27.02.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 61 Ljósmjndari Þjódleikhússins. sem raunverulega vakir fyrir höf- undi. Hann tekur mið af því lífi sem lifað var í Aþenu á 5. öld fyrir Krist, þar sem mönnum kemur saman um að vagga lýðræðisins og réttarríkisins hafi staðið. Áður ríkti í Aþenu svipað ástand og ríkti hér á íslandi á söguöld áður en lög fóru að mótast, þar sem hefndarskyldan hvíldi á nánum ættingja. Eitt einkenni leikritsins er kór refsinorna, sem hafa það hlutverk i leiknum að hefna fyrir móðurvíg. Það er forn trú meðal frumstæðra þjóða að það sé svo helgur hlutur að gefa barni líf, að gegn því megi aldrei snúast. Refsinornirnar eru leifar þessarar fornu trúar. Síðar komu nýir guðir til Grikklands og settust að á Ólympstindi. Þeim fylgdu önnur viðhorf. Þar er það borgríkið sem myndar hina stjórnmálalegu einingu, en völd og áhrif erfast í karllegg. Þarna sjáum við baráttu kynj- anna í hnotskurn, i því sem við höfum oft á tíðum kallað frum- stæð þjóðfélög. Hins vegar er það niðurstaða leiksins að mati Æský- losar, að þjóðir eigi ekki að skella skuldinni á guðina. Niðurstaða hans er sú, að það geti ekkert ríki staðið, þar sem rétturinn er blind- aður af einum málstað. Pallas- Aþena, gyðja réttlætisins, stígur niður af Ólympstindi í leiknum, skipar kviðdóm og leggur sitt at- kvæði á vogarskálarnar til jafns við dauðlega menn. í þessum átök- um og þessari málsmeðferð má marka upphafið að lýðræðinu og réttinum. Hugmyndin er sú að borgararnir verði að koma sér saman um hann. Handbendi Apollons órestes, sem leikritið snýst um er handbendi Apollons, spáguðs- ins og guðs viskunnar, sem hefur karlasamfélagið undir sínum verndarvæng. Órestes er sýknaður af réttinum á þeim forsendum, að hann hafi ekki verið sjálfum sér ráðandi, þegar hann framdi móð- urvígið, heldur hafi hann gert það að skipan guðsins, fremur en að eigin frumkvæði. Hann hafi því ekki getað undan því skorast. Rétturinn reynir að ná fram sættum milli þessara tveggja póla, refsinornanna og Apollons, full- trúa hins forna mæðraveldis og Refsinornirnar og Órestes. fulltrúa karlasamfélagsins. Hann sýnir fram á, hvernig hvort um sig verður að láta af sínum gömlu hugmyndum, til þess að upp rísi nýtt lýðræðislegt réttarfarsríki. Kórinn gegnir þre- földu hlutverki Þríleikurinn er í bundnu máli og skiptist eignlega í tvo hluta hvað það snertir. Annars vegar er þri- leikurinn ortur að hluta til undir bragarhætti sem nefndur er jamb- iskur hexametri og stýfður, það er fimm öfugir tvíliðir og einn áhersluliður i lokin, þetta er leikmálið; hins vegar eru ýmsir bragarhættir í ljóðmálsköflunum. Kórinn, sem er eitt einkenni grískra harmleikja, gegnir þre- földu hlutverki í þeim. í fyrsta lagi er hann tengiliður við áheyr- endur. I öðru lagi tekur hann þátt í atburðum verksins og í þriðja lagi myndar hann sérhóp, sem set- ur fram spurningar og vegur og metur það sem gerist. í Óresteiu eru kórarnir þrír, einn úr hverjum leik þríleiksins. Úr fyrsta leik þríleiksins, Aga- memmon, er kórinn kór borgara í Argos. Úr öðrum leiknum, Sátta- fórninni, kór ambátta og úr Holl- vættum, þriðja leik þríleiksins, er það kór refsinorna, sem breytast í leikritinu úr refsinornum í holl- vætti eða hreinsast, sem er ein- mitt þau áhrif sem öll góð grísk leiklist á að hafa hjá áheyrendum. Leikgerðin í rauninni er Óresteia saka- málaleikrit þeirra tíma, það fjall- ar um glæpi og refsingu. Til þess að gera verkið aðgcngilegra, hef ég í þessari leikgerð gert dálitla uppstokkun á verkinu. í henni byrjum við satt að segja á síðasta leikritinu, þaðan berst leikurinn í réttarsalinn og öll sagan er rifjuð upp, eins og hún gekk fyrir sig í hinum leikritunum tveim, til þess að hægt sé að kveða upp dóm. Það er Órestes sem segir frá og reynir að skýra gerðir sínar. Þetta er ekki óalgeng tækni í sakamála- leikritum og velþekkt að draga fortíðina fram í dagsljósið með þessum hætti. Sagan, sem Æskýlos segir í þessum leikritum, er ekki einföld endurspeglun þess samfélags, sem hann lifði í, heldur er sagan goð- sögulegs efnis og tilheyrir hvað efni snertir Mýkenu-menning- arskeiðinu, sem var þúsund árum fyrr. En við erum ekki skyldug, né er ástæða til, að binda verkið í tíma og rúmi. Við uppsetninguna er tekið mið af aðferðum, sem Grikkir fundu upp og notuðu við uppsetningu sinna sviðsverka. Um fyrirmyndir að búningum og hreyfingum leit- um við til myndheims Grikkja, sem meðal annars hefur varðveist á leirkerum frá þessum tíma. En við vinnum líka meðvitað með ákveðin stílbrot, til þess að ljóst sé að þetta er ekki bara fjarlæg saga, heldur saga sem við getum sótt lærdóm í. Hvað er goðsaga og hver er veruleikinn í goðsögunni og eru ekki einhverjar goðsögur í veru- leikanum í kringum okkur? Heillað mig frá því í skóla Leikmátinn er að sumu leyti annar en við eigum að venjast. Hreyfingarnar eru ólíkar venju- legum raunsæisleik, sem algeng- astur er í sjónvarpi og kvikmynd- um. Dansar falla mjög vel að stil- færðum leikmáta verksins, grísk leikverk bjóða iðulega upp á það. Við höfum fengið finnska dansa- höfundinn Marjo Kuusela, til að vinna með okkur og semja dansa við verkið, en Kuusela hefur meðal annars samið ballet sem byggður er á skáldsögu Halldórs Laxness, Sölku Völku. Sigurjón Jóhannsson teiknar leikmyndina og Helga Björnsson búninganaren við unn- um þrjú saman áður að uppsetn- ingu Silkitrommunnar, svo og Árni Jón Baldvinsson, sem hefur lýsinguna á hendi. Tónlistina, sem skiptir miklu máli í leikritinu, semur Þorkell Sigurbjörnsson. Flytjendurnir eru nálega 30, auk aukaleikenda. Þetta er mjög krefj- andi verk fyrir þá, en að sama skapi spennandi, hlutverkin mörg margfræg. Alveg frá því ég var í skóla og byrjaði að læra til leiklistar, hefur þessi gríski menningarheimur höfðað sterkt til mín. Þarna er um stórbrotið verk að ræða og ekki spillir þýðingin, þar er á ferðinni maður sjaldgæfrar gáfu. Atburða- rásin og goðsagan að baki, hefur verið í baksýn í menningarlegri arfleifð hins vestræna heims og óneitanlega er það metnaðarmál að íslendingar eignist þar sem drýgstan hlut,“ sagði Sveinn Ein- arsson Þjóðleikhússtjóri að lok- um. HJ „Ef þú reynir að halda fugli í hendi þér, gerist það ekki nema hann deyi“ „ÁHUGI minn hefur stöðugt farið vaxandi á díalógnum, samræðun- um. Nú reyni ég að vinna með tengslin milli fólks, en áður beind- ist vinna mín fyrst og fremst að því að túlka tilfinningar og umhverfi." Sú sem svo mælir heitir Marjo Kuusela, kóreógrafer, sem sér um dansatriði í íslensku uppsetning- unni á Óresteiu. Hún er Finni og er þar í landi með sinn eigin dans- flokk, en hefur unnið víða við leikhús þar, nú síðast við Þjóöar- óperuna. Eitt af því sem ætti að tengja hana okkur íslendingum nánari böndum en annars væri, er að hún hefur samið ballett eftir tveimur íslenskum skáldverkum, skáldverki Halldórs Laxness, Sölku Völku og smásögunni Tófuskinnið eftir Guðmund G. Hagalín. Morgunblaðið hafði tal af Marjo Kuusela þegar tæki- færi gafst. „Ég lærði leikstjórn í leiklist- arskóla og þaðan iá leiðin beint yfir í dansinn, sem hefur alltaf verið mitt aðaláhugamál, það var bara ekki kostur á neinum skóla sem kenndi „kóreógrafíu". Ég dansaði í eitt ár með flokki, meðan á náminu stóð, en það var fyrst og fremst gert til að afla peninga, hugur minn stóð alltaf til þess að semja, að færa at- burðarás og tilfinningar í bún- ing hreyfinga og tjá þær með þvi móti. Mér hefur oft verið boðið að leikstýra leikritum, en það hefur aldrei freistað mín hingað til, þar til nú að áhuginn fyrir því er að vakna.“ „Ég elskaði bókina strax og ég las hana og samdi eftir henni ballet fyrir minn flokk," segir hún aðspurð um tildrögin að því að hún samdi ballet eftir Sölku Völku. „Sagan er full af goðsögn- um, eins og um hinn frumstæða mann og hina frumstæðu konu, hinn fullkomna mann og hina glötuðu konu. Það er maður sem bendir mér á ýmislegt í bókm- enntum sem hann telur að ég myndi ef til vill hafa áhuga á og Marjo Kuusela geta notað. Þannig komst ég til dæmis í kynni við söguna Tóf- uskinnið, en mottó þeirrar bókar eins og ég skildi hana er: Ef þú reynir að halda fugli í hendi þér, ferist það ekki nema hann deyi. Ig hef líka samið ballet eftir einu verka Tchekovs, sem gerist á geðsjúkrahúsi. Þar er mikil saga á bak við, en það sem ég geri í balletinum er að gera sam- anburð á annars vegar hælinu og hins vegar þjóðfélaginu og það geri ég með því að skerpa and- stæðurnar stöðugt og setja spurningarmerki við þær, jafn- framt því sem ég vinsa það úr MorgunhlaAia Krislján E. Kinarsson. sem skiptir minna máli, svo að kjarni verksins verði sem skýr- astur.“ Hvað um uppsetninguna á óresteiu? „í óresteiu eru engin stór dansatriði. Mitt hlutverk í upp- setningunni er að stílfæra það sem persónur leikritsins eiga að koma á framfæri, á eins einfald- an hátt og kostur er, helst í einni hreyfingu. Þetta er eins og topp- urinn á píramída, þú vinnur þig inn að kjarnanum, þar til merkingin er sameinuð í einni hreyfingu. Þetta er tímafrekt og erfitt verk og til þess hef ég því miður ekki eins mikinn tíma og ég vildi. Það, að þessi háttur er hafður á úrvinnslu verksins kemur að nokkru til vegna grískrar leikhefðar, ' sem var miklu stílfærðari en okkar og því á þetta vel við. Ég hef kunnað vel við að vinna með leikurunum hér og það hef- ur vakið athygli mína að radd- beiting þeirra eru miklu betri en gerist og gengur í Finnlandi. Skýringarinnar hlýtur annað hvort að vera að leita í hefðinni eða að menntun leikara hér á landi er með öðrum hætti en í Finnlandi. Leikararnir eru ákaf- lega duglegir og þeir leggja sig alla fram, þrátt fyrir það að þarna er oft um erfiðar hreyf- ingar að ræða, sem þeir hafa ekki kynnst áður,“ sa"*1 'ýj ' Kuusela að lokum. Sumarbústaðaeigendur, verktakar, bændur, útgerðarmenn, vélaleigur og aðrir sem þurfa að flytja vatn eða annan vökva. Eigum fyrirliggjandi: FASA Brunndælur 1%“ 1%“ 250LM 380LM Dælur r 220V # 24V • 12V VÉLA VERSLUN Hvaleyrarbraut 3 Hafnarfirði sími 54315. meginþorra þjóóarinnar daglega!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.