Morgunblaðið - 27.02.1983, Síða 20

Morgunblaðið - 27.02.1983, Síða 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 ATVINNUMÁL Vændiskonur krefj- ast lengri vinnutíma BLAÐAMENNSKA Konan sem sætti sig ekki við spillinguna Flestir eiga sér þann draum að geta fækkað vinnustundun- um. 1‘essu er öfugt varið með vændiskonurnar í Ziirich. Þær vilja knýja fram lagabreytingu, sem gerir þeim kleyft að hefja störf kl. 5 síðdegis, en sam- kvæmt núverandi skipan raega þær ekkert aðhafast fyrr en kl. 8. Það var borgarráðið í Ziir- ich, sem setti þær reglur, að vændiskonur mættu ekki fara á stúfana fyrr en eftir kl. 20. Með þessu vildi borgarráðið bægja hættum frá áhrifa- gjörnu æskufólki. Vændis- konur segja hinsvegar afleið- ingarnar vera þær, að þær þurfi að deginum að þreyja þorrann og góuna inni á öldurhúsum, og geti það haft slæm áhrif á starfsorku þeirra og hæfni, þegar þær geta loks fengið að hefja störf. Þrjátíu og níu vændiskon- ur, sem starfa í Niederdorf í Zúrich, hafi nú farið þess á leit, að þær fái að starfa síð- degis í stað þess að vera neyddar til að stunda nætur- vinnu. Eins og er geta þær átt á hættu að hljóta allt að 10 þúsund króna sekt, ef þær eru staðnar að verki fyrir kl. 20. Konurnar segja að ýmsar breytingar á daglegu lífi fólks geri það að verkum, að þeim sé nauðsynlegt að hnika vinnutímanum dálítið til. Mikill fjöldi fólks hefur flutzt búferlum frá miðborg Zúrich út í úthverfin, þannig að þar er fátt um fína drætti að næt- urlagi. Aðrar forsendur hafa einn- ig breytzt að mati vændis- kvennanna. Til að mynda er ástæðulaust að gera sérstakar varúðarráðstafanir vegna barna, því að þau hafa stöð- ugt fyrir augum útstillingar klámmyndaverzlana og mikið er um klámkenndar kvik- myndir. Vændiskonurnar láta einn- ig að því liggja, að klám- kvikmyndirnar og fleira af því tagi hafi rýrt tekju- grundvöll þeirra. Þær tala einnig um samkeppni frá vissum „öflum í samfélaginu", sem þurfa ekki að lúta ströngum reglugerðum á sama hátt og starfandi vænd- iskonur. Með þessu rósamáli er átt við starfsólk á nudd- stofum og konur, er stunda vændi í hjáverkum, en að sögn fer þeim mjög fjölgandi. Dagblaðið Tages Anzeiger í Zúrich birti nýlega viðtal við vændiskonu eina, sem kvart- aði sáran yfir því, að stór hópur svokallaðra lausa- kvenna í starfinu hefðu gert mikið strandhögg á vettvang vændiskvenna, er störfuðu samkvæmt lögum og reglu- gerðum. Sagði hún að hér væri um að ræða jafnt giftar konur sem ógiftar, og væru þær nokkur þúsund talsins. Löggiltar vændiskonur, ef svo má að orði komast, eru um 200 talsins í Zúrich. En vændiskonurnar kvarta ekki einungis undan gríðar- legri samkeppni, heldur einn- ig yfir óréttlátri skattbyrði. Að þeirra sögn eru þeim áætl- aðar 100 þúsund krónur í mánaðartekjur og af því verða þær að greiða skatta og skyldur án tillits til þess, hverjar séu rauntekjur þeirra. — NORRIS WILLATT í október sl. var júgóslavn- eska blaöakonan Ranka Cicak handtekin og fangelsuð af þeirri ástæöu einni, að hún hafði flett ofan af spillingu í landinu, bæði meðal óbreyttra borgara og embættismanna. Cicak er nú svo illa á sig komin andlega í fangelsinu, að óttast er að hún kunni að svipta sig lífi. „Ég efast um að ég hafi þrek til að halda þetta út. Ég er komin út á ystu brún bæði andlega og líkamlega," sagði hún í bréfi, sem hún skrifaði til vinar síns, Branko Petrov- ski, sem berst fyrir að fá hana leysta úr haldi í fangelsinu í Sremska Mitrovica þar sem hún er eina konan meðal fanganna. Lögfræðingurinn hennar, Velimir Cvetic, sem vitjaði hennar þar fyrr í þess- um mánuði, varð svo skelfdur þegar hann komst að líðan Cicak og sjálfsmorðshugleið- ingum hennar, að hann hefur sent hæstarétti Belgrað- borgar bænarskjal þar sem hann biður um að hún verði tafarlaust látin laus. Ranka Cicak er 41 árs að aldri og eru aðfarirnar gegn henni á góðri leið með að verða eitt mest hneykslið í sögu í Júgóslavíu frá því kommúnistar komust þar til valda. Cicak var blaðamaður við króatíska blaðið Vjesnik í Belgrað og í hópi þeirra fáu en huguðu fréttamanna, sem á síðasta ári fóru að skrifa um spillinguna í landinu, sem gegnsýrir allt þjóðfélagið. Cicak beindi sjónum sínum að Pecinci, smábæ í Vojvodinia- héraði þar sem hún sjálf á lít- ið sumarhús. í Pecinci, skrif- aði hún, leika svínabændurnir sér að því að selja allt að átta ríkisstofnunum sömu svínin og njóta við það góðrar að- stoðar opinberra embætt- ismanna, sem síðan deila gíf- urlegum ágóðanum með bændunum. Ranka Cicak var handtekin í október og leidd fyrir rétt í desember, sökuð um „fjand- samlegan áróður", sem var augljós tilraun til að þakka niður í henni og öðrum blaða- mönnum. Hún var dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi eftir tveggja daga réttarhöld. Að undanskildum þremur smáfréttum um réttarhöldin og dóminn lét ritstjóri blaðs- ins, sem Cicak vann við, Mir- inko Gruic, ekkert birta um málið fyrr en seint í síðasta mánuði og síðan ekki söguna meir. Önnur blöð í Belgrað hafa hins vegar tekið mál Ranka Cicak upp á sína arma. Það snýst nefnilega ekki aðeins um frjálsa blaðamennsku heldur einnig um annað mik- ilvægt mál í Júgóslavíu, sem er valdníðsla einstakra emb- ættismanna og vísvitandi virðingarleysi fyrir sam- þykktum alríkisstjórnarinn- ar. GIFTINGAR —MgM—— Klerkunum líst misvel á kvennahjónaböndin Rómversk-kaþólskur prestur í Kenya neitaði fyrir skömmu að veita sóknarbarni sínu, Agöthu Kerybo að nafni, heilagt sakra- menti. Hann bar því við, að sér hefði borizt til eyrna orðrómur um, að hún hefði gengið að eiga konu samkvæmt siðvenjum ættflokks þeirra beggja. Konurnar eru af ættkvísl Kisii í Vestur-Kenya. Kvennahjóna- bönd, fjölkvæni og aðrar afrískar siðvenjur hafa orsakað deildar meiningar innan kristinna safn- aða í áífunni. Er mikill ágrein- ingur um, hvort kirkjan eigi að umbera og láta viðgangast alda- gamlar siðvenjur Afríkumanna. Sumir prestar hafa haldið því blákalt fram, að gildismati og siðvenjum Evrópumanna hafi um of verið þröngvað upp á Afríkumenn, þótt hvorttveggja sé algerlega framandi þeirra eig- in menningu. Þeir prestar sem þannig hugsa eru þó greinilega enn í minnihluta. Kaþólskur trúboði hefur sagt eftirfarandi: — Jóhannes Páll páfi hefur alveg rétt fyrir sér, þegar hann segir: — „Afríku- menn, verið sjálfum ykkur trú- ir.“ En þetta eru orðin tóm. Þeg- ar Afríkumenn ætla að fara eftir þeim, komast þeir að raun um, að það mega þeir ekki. Að mínu mati reynir núverandi páfi að steypa allt í sama mót og í Evr- ópu. Útbreiðsla kristinnar trúar í Afríku hefur síðustu árin verið meiri en í nokkrum öðrum heimshluta samkvæmt alfræði- orðabók kristninnar, sem unnin var í Nairobí í Kenya, en gefin út af Oxford University Press á síð- asta ári. Fjölmennasta kirkjudeildin í Afríku er rómversk kaþólska kirkjan, en til hennar teljast 66 milljónir manna í álfunni. Alls eru 164 milljónir Afríkumanna kristinnar trúar. Ýmsar fornar hefðir og dyggð- ir Afríkumanna eiga ekki upp á pallborðið hjá kristnum trúar- leiðtogum og hafa árekstrar orð- ið af þeim sökum. Einn sá harð- vítugasti átti sér stað í Kisii ekki alls fyrir löngu, en það er land- búnaðarhérað á milli Viktoríu- vatns og hins frjósama fjall- lendis í Kenya. Fyrir um það bil ári höfðaði Peris Nyakerario skaðabótamál á hendur Agöthu Kerubo fyrir rétti. Sú fyrrnefnda fór fram á að hin greiddi sér um 20 þúsund krónur fyrir brot á hjúskapar- sáttmála, sem þær höfðu gert með sér samkvæmt siðvenjum ættflokks þeirra. Peris Nyaker- ario kveðst hafa látið af störfum sem kennari til að geta gengið í hjónaband, en segir að „makinn" hafi varpað sér á dyr, eftir að kaþólskur prestur vildi ekki veita henni heilagt sakramenti. Frú Kerubo staðfestir að presturinn hafi neitað sér um heilagt sakra- menti vegna ávænings um að hún hefði gengið kvennahjónaband. Kisii-menn eiga það sammerkt með Zulu-mönnum í sunnan- verðri Afríku að leyfa kvennahjónabönd við sérstakar aðstæður. Hafi kona reynzt ófrjó í hjónabandi eða enga syni eign- azt má hún ganga að eiga konu á barneignaraldri. Eiginkona velur síðan einhvern karlmann úr frændliði eiginmanns eigin- manns síns og skal sá hafa líkamlegt samneyti við „brúð- ina“. Beri þau mök tilætlaðan ár- angur eru börnin talin afkvæmi hinna barnlausu hjóna en ekki kynforeldra sinna samkvæmt lögum ættkvíslarinnar. Tilgang- urinn er sá, að koma í heiminn sveinbarni, sem getur erft land, búpening og annað er hjónin munu láta eftir sig, en lög ætt- kvíslarinnar kveða svo á, að kon- ur og stúlkur geti ekki erft eign- ir. Fyrir rétti lagði héraðsdómari þunga áherzlu á, að samkvæmt lögum Kisii-manna gætu konur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.