Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 69 Forstjórarnir eru hvattir tii aö ráöa ekki konur sem eiga kennara fyrir eiginmenn, ekki dætur háskólakennara ... og alls ekki hversdagslegar og óspennandi stúlkur. — BÓKSALA Blaðakonan fyrrverandi var vistuð í fangelsi þar sem hún er eini kvennlang- inn. í viðtali* við bandaríska Vesturlöndum. Embættis- blaðið The New York Times sagði Lazar Majmov, utanrík- isráðherra Júgóslavíu, að stjórnin væri hlynnt frjálsri blaðamennsku í þeim skiln- ingi, sem lagður er í það orð á mennirnir í Pecinci hafa hins vegar sýnt, að þeir eru full- færir um að sveigja lögin í þá átt, sem þeim best líkar. — PETER RISTIC BÓKSALA Draumadísir apanskra íarlmanna Oásjálegar, stuttar og málgefnar stúlkur, sem hafa áhuga á blaða- lestri eða eiga háskólagengna for- eldra, þurfa ekki að vcra að hafa fyrir því að sækja um starf hjá ein- um stærsta bókaverslanahringnum í Japan. Og það eru ekki bara þessir eiginleikar, sem leggja stein í götu japanskra stúlkna, heldur ótalmarg- ir aðrir. Kinokuniya-bókaverslanirnar japönsku setja forstjórum sínum strangar reglur um hvaða og hvers konar kvenfólk skuli ráðið til afgreiðslustarfa hjá fyrirtæk- inu og hefur því sett saman lista yfir 23 mjög óæskilega eiginleika hjá konunum. Listinn átti að vísu að vera leynilegur en nú hefur hann komist í hendurnar á jap- önskum kvenréttindakonum og þurfa þær þá ekki lengur vitnana við um kvenfyrirlitningu jap- anskra karla. í listanum eru forstjórarnir hvattir til að ráða ekki konur, sem eiga kennara fyrir eiginmenn, ekki dætur háskólakennara, ekki „útlendar konur, síst af öllu ef þær koma úr veitingaiðnaðinum" (þar er átt við fólk af kóreönskum ætt- um, sem er fjölmennt í þessari starfsgrein) og alls ekki hvers- dagslegar og óspennandi stúlkur. Listinn heldur áfram: „Lág- vaxnar stúlkur koma ekki til greina." Þannig er það líka með þær, sem nota gleraugu, „sveita- stúlkur" og stúlkur sem eru mál- skrafsmiklar eða voru í „dag- blaðaklúbbum í háskóla." Erfiðar heimilisaðstæður eru einnig nefndar til. Umsækjendur, sem styðja „framsækna" stjórnmálaflokka, á að spyrja eftir ástæðunni og sér- staklega eiga forstjórarnir að vara sig á þeim sem hafa afskipti af stjórnmálum eða trúmálum, „vegna þess, að sálfræðileg inn- ræting er þá ómöguleg". Einhver skringilegasti ókostur- inn er „aðdáun á tilfinningaríkum listamanni eins og van Gogh", en bannið við að ráða „lögkænar" stúlkur er vafalaust til að koma í veg fyrir að þær fari að skipta sér af launakjörunum. Japanskar kvenréttindakonur eru hvorki margar né vel skipu- lagðar en leynilistinn frá Kinok- uniya færði þeim heim sanninn um það, sem þær hafði lengi grun- að: að fallegar stúlkur en fáfróðar séu draumadísir japanskra karlm- anna. - ROBKRT WHYMANT SPIK Átinu lýkur með uppköstum Nútímafólk vill gera hvort tveggja í senn — ad borða vel og halda sér grönnu. Eðli málsins samkvæmt fer þetta þó ekki alltaf vel saman. Tals- verð brögð munu vera að því, að konur laumist inn á salerni eftir að hafa hesthúsað ríkulega máltíð, reki fingur ofan í kok og kasti öllu sam- an upp. Dr. Stephen Head læknir í Mansfield segir að þetta tiltæki kvennanna stafi beinlínis af mót- sögnum þeim, sem að framan grein- ir. Dr. Stephen Head hefur ritað grein í læknaritið „Heimilislækn- irinn", þar sem hann skýrir starfsbræðrum sínum svo frá, að ekki erft eignir nema fyrir lægi skjalfest erfðaskrá. Mál þetta var alveg óskylt heitrofi því, sem hér er frá sagt. Svo að vikið sé aftur að kvennahjónaböndunum er staðið að þeim á mjög svipaðan hátt og hjúskaparsáttmála karls og konu. Heimamundur er reiddur fram í föstu fé eða lausu og síðan er haldin giftingarathöfn. Unga konan er jafnan nefnd „brúður" löngu eftir að athöfnin er um garð gengin. - DEW WILKINS PÓLLAND Tómahljóð í kommakassanum Kommúnistaflokkurinn í Póllandi er í fjárþröng um þessar mundir. jafnvel gall- harðir flokksmenn virðast hreint ekki á því, að hann sé heppileg fjárfesting. Miðstjórn Kommúnista- flokksins sendir frá sér ritið Flokkslíf á tveggja vikna fresti. I»ar hefur nýlega komið fram, að margir einstakir flokksfélagar og jafnvel sam- tök á vegum Kommúnista- flokksins í verksmiðjum og á skrifstofum hafi neitað að greiða tilskilin gjöld. Flokkurinn hefur fyrir bragðið orðið að seilast langt til að ná endum saman; t.d. er ekki leng- ur boðið upp á kaffi á fundum Miðstjórnarinnar, heldur verða stjórnarmenn að gera sér að góðu að dreypa á lapþunnu te- vatni. í fjáröflunarskyni hefur flokkurinn gefið út dagatal fyrir árið 1983 með nektar- myndum. Allt hefur þó komið fyrir ekki. Hann er enn á hvín- andi kúpunni samkvæmt því sem kemur fram í greininni í Flokkslífi, en hún þykir í hæsta máta óvenjuleg. Blaðið segir, að vanskil flokksmanna hafi verið ger- samlega ófyrirsjáanleg. Ástæð- an sé greinilega hinar miklu kauphækkanir sem pólskir verkamenn hlutu á árinu 1982, en flokksgjöld hækka að jafn- aði í réttu hlutfalli við hækk- andi launagreiðslur. En meinið er, að vöruverð hækkaði langt umfram allar launahækkanir, og jafnt flokksfélagar sem aðr- ir hafa þurft að herða sultaról- ina. „Þegar flokksritari tilkynnir félögum að flokksgjöld eigi að hækka, stynja þeir og kvarta: — Af hverju erum við látnir borga svona mikið," segir í Flokkslífinu. Blaðið álasar flokksfélögum fyrir að rækja ekki skyldur sínar sem þeim beri og minnir þá á hina gömlu góðu daga, þegar “einlægir kommúnistar" létu hreyfing- unni í té miklu stærri híut af tekjum sínum. „En nú er í flokknum ný kynslóð manna, sem hefur allt önnur viðhorf," segir blaðið í umvöndunartón. Hvarvetna ber á vanþakklæti, jafnvel á meðal þeirr, sem hvað mestra forrétt- inda njóta.“ En blaðið sleppti að nefna eina ástæðuna sem liggur að baki hinni miklu tekjurýrnun hjá pólska kommúnsitaflokkn- um, nefnilega að félagsmönn- um hefur fækkað verulega hin síðustu ár. Frá stofnun Sam- stöðu í ágúst 1980 og fram til ársloka 1982 gengu nálega 780.000 manns úr flokknum, og lætur nærri að félagatalan hafi þar með lækkað um 25%. — DAN FISHER. fleiri af sjúklingum þeirra en þá gruni kasti upp af ásettu ráði eftir matarveislur. Þeir vilji ekki móðga gestgjafa sína né valda ástvinum sínum áhyggjum með því að borða lítið, en kæri sig ekk- ert um að melta allan þennan mat og hlaða utan á sig spiki. Dr. Head segir, að nútímalifn- aðarhættir geri það iðulega að verkum, að margir fitni um öf. Börn séu látin snæða álíka mikinn morgunverð og tíðkaðist fyrir 20 árum. Þá fóru hinsvegar flest börn fótgangandi í skólann, en nú er þeim oft ekið að heiman og upp að skóladyrum. í greininni segir ennfremur, að skyndileg velmegun hafi valdið því að fólk borði oftar á veit- ingastöðum en áður. Mörg veit- ingahúsin leggi litla áherzlu á gæði matarins og næringargildi, en einblíni á magnið og stæri sig af því, hversu stórar steikur þau hafi á boðstólum. Sérfræðingar hafa reiknað út daglega matarþörf fólks. Þar er einkum reynt að sjá til þess að enginn þjáist af næringarskorti, en sannleikurinn er sá, að þessir útreikningar gera ráð fyrir stærri matarskammti en mörgum verður gott af, að því er dr. Stephen Head segir í grein sinni. Þvi er brugðið á ráð hinna fornu Rómverja, sem skiluðu matnum upp úr sér aftur, þegar þeir höfðu etið fylli sína. Tilgangurinn er að vísu ekki alveg sá sami. Rómverjarnir gerðu þetta til að geta borðað meira, en nú- tímafólkið til að losna við ístru, lærapúða og undirhöku, sem yfir- leitt eru óhjákvæmilegir fylgifisk- ar ofneyzlu á næringarríkum mat.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.