Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 26
74 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 _________________________£____________ ingana nema van der Lubbe. Trevor Roper bendir á að jafn- vel þótt hann hafi bruggað ríkinu launráð hafi brot hans ekki verið alvarlegra en Hitlers þegar hann gerði byltingartilraun 1923, en fyrir það sat hann aðeins nokkur ár í fangelsi. í rannsókn málsins var viður- kennt að Hollendingurinn hefði verið í þinghúsinu og reynt að kveikja í einhverju, en staðhæft að hann hefði ekki getað breitt eldinn út um bygginguna á nokkrum mínútum einn síns liðs. Hann hafi verið flæktur í vef lyga og sam- særis, sem hann hafi ekki haft nokkur tök á að átta sig á. Hann hafi vísvitandi verið valinn í hlut- verk blórabögguls, og lögreglan hafi lagt sig alla fram um sanna sekt hans. Nazistar þurftu hræðslu við kommúnista til að dáleiða þjóðina og fá hana til að sætta sig við að mannréttindi yrðu skert. ÁTYLLA Hitler var í forsæti minnihluta- stjórnar og hafði krafizt þing- kosninga til að treysta stöðu sína. Þrátt fyrir ógnarverk stuðnings- manna Hitlers virtist ólíklegt að flokkur hans fengi hreinan meiri- hluta, sem hann þurfti til að banna kommúnistaflokkinn. Síðan átti að tryggja tvo þriðju meiri- hluta á þingi til að afnema stjórn- arskránna og koma á einræði. Töluverður samgangur var milli nazista og kommúnista. Nazistar höfðu m.a. gert árás á aðalstöðvar kommúnistaflokksins og fullyrt er að nazistar hafi vitað að kommún- istar ráðgerðu ekki byltingu. Kommúnistum var einnig kunn- ugt um fyrirætlanir nazista og þeir höfðu jafnvel fagnað þjóðern- isjafnaðarstefnunni, þar sem hún sýndi dauðastríð „einokunar-kap- italisma". Samt þurftu nazistar að geta sagt að kommúnistar ráðgerðu uppreisn til að fá átyllu til að sölsa undir sig öll völd og komm- únistar vissu það. Báðir aðilar biðu eftir því að eitthvað gerðist, annað hvort sviðsett tilræði við Hitler eða eldsvoði. Kvöldið 27.febrúar voru þrír helztu leiðtogar nazista í Berlín — Van der Lubbe fyrir rétti: taldi sig vinna með stjórnleysingjum. Vinur hans Waschinski var SA-maður. Hvað sem kenningum Tobiasar líður virðist sú kenning hans sennileg að van der Lubbe hafi aldrei vitað að nazistar notuðu hann, en flestir sagnfræðingar eiga erfitt með að trúa því að naz- istar hafi ekki vitað að van der Lubbe ætlaði að kveikja í þinghús- inu. SJÓNARVOTTAR Eitt þeirra nýju gagna, sem fram hafa komið, er skýrsla kynd- ara sem vann í húsi Görings gegnt Hitler, Göring og Göbbels — en ekki á kosningafundum og það þótti einkennilegt. Eðlilegt var að andstæðingar nazista í heiminum teldu að eldsvoðinn hefði verið settur á svið og jafnvel margir nazistar töldu að svo væri. SKEIÐKLUKKA í bók sinni um sekt van der Lubbe hélt Dr. Fritz Tobias því fram að Hollendingurinn hefði seinna leikið það sem hann hefði haft fyrir stafni, kvöldið þegar þinghúsið brann, með því að hlaupa vítt og breitt um bygging- una í viðurvist sérfræðinga lög- reglunnar, sem fylgdust vandlega með honum búnir skeiðklukkum og skráðu hjá sér niðurstöðurnar. Hann sagði að þetta sýndi að Hol- lendingurinn hefði getað kveikt í byggingunni einn síns liðs. Tobias taldi sig sýna fram á að vitnisburður brunasérfræðinga Þjóðverja hefði verið rangur. Einn maður gæti kveikt í stórri bygg- ingu og slíkt hefði gerzt áður. Annað hvort hafi þýzku sérfræð- ingarnir verið kjánar eða hand- bendi ákæruvaldsins. Dimitrov hélt því fram að nazistar hlytu að hafa verið í vitorði með van der Lubbe, Göring sagði að kommún- istar hefðu verið í vitorði með honum. Hreinsað til í ríkisþinghúsinu eftir slökkvistarfið. þinghúsinu kvöldið sem þinghúsið brann til ösku. Hann hefur sagt frá því hvernig hann fylgdist með hópi „brennuvarga" svartstakka og brúnstakka safnast saman í húsi Görings áður en eldurinn kom upp og hvernig honum tókst síðar að bera kennsl á mennina. Annað nýtt vitni var lögreglu- maður, sem var aldrei kvaddur til að bera vitni í fyrstu réttar- höldunum af því að frásögn hans kom ekki heim og saman við hina opinberu útgáfu að van der Lubbe hefði verið einn að verki. Samkvæmt vitnisburði hans sá hann þegar hann kom á vettvang skömmu eftir að eldurinn sást fyrst hvernig eldtungurnar teygðu sig út úr hraðritaraherberginu í þingsalnum — stað sem van der Lubbe kom aldrei nálægt og gat því ekki hafa kveikt í. VIÐBRÖGÐ Hin ítarlega rannsókn fyrir fjórtán árum var til komin vegna málshöfðunar bróður van der Lubbe tveimur árum áður. Hún leiddi til þess að dómstóll í Vest- ur-Berlín hreinsaði Hollendinginn af ákærum þeim um landráð, sem leiddu til dauðadómsins yfir hon- um. í dómsúrskurðinum var viður- kennt að van der Lubbe hefði verið þátttakandi í andspyrnu gegn naz- istum, en dómstóllinn hikaði við að taka afstöðu til þess hvort hann hefði verið einn að verki. Þeirri kenningu var að lokum hafnað með sýknudómi þegar málarekstri bróður van der Lubbe lauk loks fyrir tveimur árum. Eitt af því sem sannfærði marga um að van der Lubbe væri sekur var hvernig leiðtogar naz- ista brugðust við fréttinni. At- hyglisvert var að Hitler, Göring og Göbbels virtust í raun og veru furðu lostnir út af brunanum, sem þeir voru taldir eiga sök á og hafa hagnýtt. Sefton Delmer segir t.d. á einum stað að hann hafi gengið með Hitl- er og Göbbels um brunarústirnar og það sem hann hafi heyrt og séð hafi sannfært sig um að þeir hafi verið undrandi og hneykslaðir og hafi þar af leiðandi ekki haft Kynning á kaffi "ZZszr*., BfLASÝNING sunnudag 27. feb. frá kl. 1-6 KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐUR LAN DSBRAUT 20. SÍMI 86633 Viö kynnum nú um helgina nýju 300 línuna frá BMW, sem ber þýskri þekkingu, nákvæmni og hugviti gott vitni. Komið og kynnist þessum frábæru bílum. Kynnum BMW-315, -316, -318i, -320i, - 323i, -518, og -520i fu |enn omnari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.