Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983
81
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkt:
Heildartekjur bæjarsjóðs
áætlaðar 262,2 milljónir
HEILDARTEKJUR bæjarsjóðs
Hafnarfjarðar eru áætlaöar krónur
262.218.000. Sameiginlegar tekjur,
þ.e.a.s. skattgjaldstekjur, eru þar
alls 193.196.000 krónur, sem er um
61% hækkun frá sömu tekjuliðum
1982. Frá þessu er skýrt í fréttatil-
kynningu frá bæjarstjóranum í
Hafnarfirði um samþykkt fjárhagsá-
ætlunar, en hún var samþykkt á
fundi bæjarstjórnar 15. febrúar fyrir
yfirstandandi ár. Áætlunin var sam-
þykkt með 7 atkvæðum bæjarfull-
trúa en við lokaafgreiðslu sátu 4
bæjarfulltrúar hjá.
í fréttatilkynningunni segir:
Helsti tekjustofn bæjarsjóðs er
útsvör, en þau eru áætluð tæpar
104,1 millj. kr. Nauðsynlegt reynd-
ist að nýta að hluta lagaheimild til
að innheimta útsvör með álagi og
var útvarsálagning ákveðin
11,88%.
Tekjur af fasteignagjöldum eru
áætlaðar tæpar 31,1 millj. kr.
Veittur er í ár 15,8% afsláttur af
fasteignaskatti íbúðarhúsnæðis og
50% afsáttur af vatnsskatti og
holræsagjaldi. Auk þess verður
mörgum elli- og örorkulífeyrisþeg-
um veittur frekari afsláttur af
fasteignagjöldum.
Af öðrum tekjuliðum má nefna
framlag úr jöfnunarsjóði 22,5
millj. kr., afstöðugjöld 11,3 millj.
kr. og tekjur af framleiðslugjaldi
álversins í Straumsvík, sem eru
áætlaðar 12,2 millj. kr. Um hlut-
deild bæjarins af framleiðslu-
gjaldi ÍSAL gildir nú samningur
við iðnaðarraðuneytið frá 1976,
sem heimilar bæjarstjórn að
krefjast hækkunar á hlutdeild
bæjarins af gjaldi þessu. í lok árs-
ins 1978 var krafist endurskoðun-
ar til hækkunar á hlutdeild bæjar-
ins, en ríkissjóður hefur í engu
sinnt því, þrátt fyrir skýr ákvæði í
samningum um slíka endurskoð-
un.
Til ráðstöfunar eru einnig fram-
lög ríkissjóðs til sameiginlegra
framkvæmda ríkis og bæjarfélags
að fjárhæð 12,8 millj. kr. og áætl-
að er að taka að láni 8,3 millj. kr.
Útgjöld bæjarsjóðs eru flokkuð í
þrennt, til reksturs og gjaldfærðr-
ar fjárfestingar, til eignfærðrar
fjárfestingar og fjárráðstöfunar.
Þá er útgjöldum skipt eftir mála-
flokkum. f fjárhagsáætlun er
mestu fé ráðstafað til fjárfest-
ingar og reksturs við verklegar
framkvæmdir. Til þess málaflokks
er veitt 57,8 millj. kr., sem er
20,4% af heildarráðstöfunarfé
bæjarsjóðs. Til fræðslumála er
ráðstafað 49,8 millj. kr., sem er
17,6% af ráðstöfunarfé, og til fé-
lagsmála er veitt 48,8 millj. kr.,
eða 17,2% af ráðstöfunarfé. Af
öðrum málaflokkum má nefna, að
6,4% fara til æskulýðs- og íþrótta-
mála, 6,2% til reksturs bæjarins
og 5,6% af ráðstöfunarfé er veitt
til heilbrigðismála.
Við samanburð á því, sem ann-
arsvegar er varið til reksturs og
viðhaldsframkvæmda og hinsveg-
ar til nýframkvæmda og fjárfest-
ingar, kemur fram, að á árinu 1983
er áætlað að verja um 65% af
ráðstöfunarfé til reksturs bæjar-
ins og viðhaldsframkvæmda, en til
nýframkvæmda og fiárfestingar
verði varið um 35%. A árinu 1982
var um 32% ráðstafað til ný-
framkvæmda og fjárfestingar.
Hlutfallslega meiru fé er því varið
til nýframkvæmda í ár en á síð-
asta ári.
A vegum bæjarins er nú unnið
að eða í undirbúningi ýmsar fram-
kvæmdir. Nýlega var byrjað á
gatnagerð í nýju íbúðarhverfi,
sem rís við Setberg. Á næstunni
verður úthlutað í hverfinu 85 lóð-
um, aðallega fyrir einbýlishús. í
Norðurbæ er unnið að gatnagerð,
en þar var úthlutað lóðum fyrir
skemmstu. Einnig er áformuð
gatnagerð í iðnaðarhverfum.
Hafnarfjarðarbær hefur á und-
anförnum árum gert átak í mal-
bikun gatna og gangstéttargerð.
Nú hefur þeim áfanga verið náð að
götur í eldri íbúðarhverfum hafa
verið malbikaðar. Stefnt er að því
að götur í nýjum hverfum séu
maibikaðar fljótlega eftir að flutt
er í hverfin. í ár er áformað að
malbika Lækjarhvamm, Fjólu-
hvamm, Fagrahvamm, Háa-
hvamm og Hrauntungu. Einnig
verða malbikaðar götur í iðnað-
arhverfum. Þar verða Dalshraun,
Hjallahraun og Helluhraun mal-
bikaðar í ár. Þar með verður lokið
malbikun allra gatna í eldri iðnað-
arhverfi við Reykjavíkurveg. Til
gangstétta- og gangstígagerðar er
á þessu ári ráðstafað alls tæpum
6,5 millj. kr.
Unnið hefur verið að endur-
byggingu og breikkun Reykjavík-
urvegar frá Engidal og Arnar-
hrauni. f ár er áformað að vinna 2.
áfanga þessa verks, sem er frá-
gangur við gatnamót Reykja-
víkurvegar og Hjallahrauns.
Gerð hefur verið áætlun um að
koma öllu frárennsli frá bænum
út fyrir . hafnargarða. Síðasti
áfangi þessa verks er lögn safn-
lagnar meðfram Fjarðargötu, sem
lokið verður á þessu ári.
Þá er unnið að ýmsum fram-
kvæmdum við skólabyggingar.
Stærsta verkefnið er bygging 3.
áfanga Öldutúnsskóla, en fram-
kvæmdir þar byrjuðu síðastliðið
haust. Ennfremur verður haldið
áfram endurbótum á gömlu bygg-
ingunni við Flensborgarskóla, inn-
réttingu húsnæðis fyrir rafiðnað-
ardeild Iðnskólans og lokið verður
við íþróttahús Víðistaðaskóla, sem
tekið var í notkun í haust sem leið.
Ráðstafað er fé til húsnæðis fyrir
Tóníistarskólann og til lóðafrá-
gangs við Víðistaðaskóla og Flens-
borg.
í undirbúningi er bygging nýs
leikskóla við Suðurbraut, sem
áætlað er að tekinn verði í notkun
á hausti komanda. Þá er og áform-
að að hefja undirbúning að bygg-
ingu nýrrar dagvistarstofnunar.
Unnið er að undirbúningi við-
byggingar við Sólvang og bygg-
ingar fyrir heilsugæslu Hafnar-
fjarðar. Ef tilskilin leyfi heil-
brigðisráðuneytis fást, er áformað
að hefja framkvæmdir við Sól-
vang á þessu ári.
Ákveðið hefur verið að byggja
við Sundhöllina til að stækka og
bæta búningsklefa og böð kvenna.
í undirbúningi er einnig bygging
útisundlaugar í Suðurbæ.
Ýmsar fleiri framkvæmdir eru á
döfinni hjá Hafnarfjarðarbæ á
þessu ári og má þar til nefna inn-
réttingar á barnadeild í bókasafni,
framkvæmdir að fegrun bæjarins,
þátttöku í byggingu verkamanna-
bústaða, kaup á leiguíbúðum, úf-
bætur í vatnsbóli bæjarins í Kald-
árbotnum og undirbúningur að
byggingu sölu- og leiguíbúða fyrir
aldraða.
Þá má að lokum nefna stuðning
bæjarins við Rafveitu Hafnar-
fjarðar vegna stofnlagna og
rekstraraðstoð við Bæjarútgerð-
ina.
GULLNA LINAN FRA
MARANTZ DC-350
System 1 50-70 Wött.
Frá aldaöðli hafa menn reyntað búa
til hreint gull en enn hefur engum tekist
það. Hreint gull hefur aldrei verið til og
jafnvel besta gull er aðeins hreint að 99,98%
en 0,02% eru önnur efni. Samt sem áður
hafa menn talið gull vera tákn fullkomnunar
og lykil að auðæfum og velsæld.
Á þessari öld hafa verkfræðingar,
vísindamenn og tónlistarmenn leitast við
að uppfylla annarskonar draum: drauminn
um fullkomin hljómtæki. En 100% hreinn
hljómur hefur reynst vera jafn torfundinn
og 100% hreintgull.Tæknimenn MARANTZ
hafa þó að okkar mati komist nær tak-
markinu en gullgerðarmenn.
Cullna línan frá MARANTZ er svo
nærri fullkomnun að jafnvel besta tóneyra
greinir ekki mun. Aðeins tæknimenn
MARANTZ geta með réttu sagtað enn megi
bæta ögn um, en við látum okkur nægja
dóma tónlistarsnillinga og notenda um
heim allan.
Ressvegna höfum við hjá MARANTZ
ákveðið að gull skuli vera framtíðarlitur allra
tækja okkar. Rannig getur þú á augabragði
greint MARANTZ frá öðrum tækjum, sem
ekki hafa náð sömu fullkomnun.
MERKI UNGA FÓLKSINS
I tilefní ferminganna bjóöum viö
System 1 á vildarlyörum. tilboö
okkar samanstendur af:
• Magnara 2x25W RMS eða 2x35
W DIN. Þetta er hæfilegur
kraftur fyrir kröfuharða tón-
listarunnendur.
#Útvarpsmóttakari: FM-Stereo
og MW bylgjur.
Allt þetta kr. 5.000.-
Stgr. kr.
#Segulbandstæki: Dolby, Metal,
Fluor mælar.
#Plötuspilari: Hálfsjálfvirkur,
léttarmur, vökvalifta
#Skápur Sá flottasti i bænum
#Hátlarar 2x60 Wött 3 way
tryggja hljómgæði sem eru
einstök.
útogrestá6mán.
23.730-
SKIPHOLTI 19 SIMI 29800
mcc
l KFii?