Morgunblaðið - 27.02.1983, Síða 34
82
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983
Vilt þú lækka
hitunarkostnaóinn?
Veldu þá EOS olíu-
fylltan rafmagnsofn
Með því að nota olíufylltan rafmagnsofn frá EOS
getur þú lækkað hitunarkostnaöinn. Rafelementiö í
ofninum hitar upp olíu, slekkur síöan á sér, en kveikir
á sér um leið og hitastig olíunnar lækkar. Olíufylltir
rafmagnsofnar hafa þann kost fram yfir venjulega
rafmagnsofna að þeir þurrka ekki loftiö meira en
vatnsofnar. EOS ofnar henta vel á heimili, vinnustaði,
og í sumarhúsið. Ath. engin hætta á frostskemmdum.
Lækkiö hitunarkostnaðinn með EOS olíufylltum
rafmagnsofnum.
EOS ofnar fást bæði frístandandi og til aö hengja á
vegg.
Söluumboð:
H.G. Guðjónsson,
Suðurveri s. 37637 — 82088.
Almenna varahlutasalan sf.,
Skeifan 17, sími 83240/41.
Straumlokur — Blikkarar — Viönám — Ljósarelay
— Flauturelay — Alternatorhlutir — Startarahlutir.
ALLT I BILINN
®naust h.f
Siðumúla 7-9, sími 82722.
• Séð yfir Epcot Center. Lengst til vinstri er kúlan risavaxna sem ber nafnið „Ceimskipið Jörð“. Kúla þessi er
full af sýningarsölum og ber þar margt fyrir augu gesta. Lengst til vinstri glittir í stöðuvatnið sem getið er um í
greininni, þar sem sjá má sýnishorn af menningu eða fyrirberum frá átta þjóðlöndum.
Epcot Center
Nýr Disney-undraheimur í Florida
Disney World í Flórída er frægt
fyrir margra hluta sakir, mikið
ævintýraland bæði fyrir unga og
aldna. Til þessa hefur það þó eink-
um verið sniðið að þörfum smá-
fólksins, þó svo að barnlaust fólk
fari þangað í stórum stíl og yfirgefi
staðinn ekki svikið. Nýjasta við-
bótin höfðar meira til hinna eldri
og er um mikið ævintýraland að
ræða. Það heitir Epcot Center og
má lýsa sem gífurlegri yfir- og
landsýn. Þar er saga heimsins rak-
in allt frá upphafi og langt fram í
tímann og er allt sériega raunveru-
legt. Epcot Center var einn af
stærstu draumum Walter Elias
Disneys, en hann kom honum ekki
í verk fyrir dauða sinn. En þeir
sem tóku við fyrirtækinu ýttu
draumnum af stað og nú, 16 árum
eftir dauða Disneys, er búið að
opna „sýninguna“.
Ævintýrið hefst þegar fæti er
stigið inn fyrir anddyrið. Það er
í risavaxinni kúlu sem kölluð er
„Geimskipið Jörð“. Geimskipið
er 18 hæða hátt og er fyrst geng-
ið eftir gangi þar sem samskipta
saga mannsins er rakin með
myndum og líkönum allt frá
þeim tímum er menn bjuggu í
hellum og uns þeir stigu inn í
geimskipin. Þarna má sjá Gut-
enberg í prentsmiðju sinni og
Alexander Graham Bell að finna
upp símann svo eitthvað sé
nefnt. Margir salir eru í „Geim-
skipinu", og er víða komið við
eins og búast má við. Einn salur-
inn tekur til dæmis fyrir „heim
hreyfingarinnar", og er það Gen-
eral Motors sem sér um sýning-
una. Salurinn er hjólbarðalaga
og má sjá sögulega viðburði eins
og uppgötvun hjólsins og fyrstu
umferðarflækjuna.
I öðrum sal er „heimur
orkunnar" tekinn fyrir og er það
einn ævintýralegasti hluti Epc-
ot. Er um rúmlega hektara stór-
an sal að ræða og er glerþak yfir
öllu saman. Þar er stillt upp for-
sögulegum tímum og sjá má
ótrúlega raunverulegar risaeðlur
í hörkuáflogum og regluleg eld-
gos eiga sér einnig stað með til-
heyrandi brennisteinsþef. Eld-
varpið dælir úr sér „hrauni" sem
auðvitað er ekki hraun heldur
meinlaus eftirlíking. Þá eru það
ekki óendanlegir kraftar úr iðr-
um jarðar sem spýta hrauninu
fram, heldur sams konar vél og
dælir hundamat í dósir.
Fleira má nefna, til dæmis
salinn sem ber nafnið „Landið"
og má þar sjá nokkurs konar
gróðursögu jarðarinnar. Var
mikið í sal þennan lagt eins og
aðra á Epcot og þykir hann heill-
andi.
Annar salur heitir „Ferðalag
til hugmyndaflugsins", og hefur
hann til þessa vakið mestu at-
hyglina og hrifninguna. Þar ráða
tölvur ríkjum og gestir Epcot
geta til dæmis leikið í eigin
myndsegulbandskvikmyndum,
samið eigin tónverk á tölvu-
hljómgervla og málað eigin
listaverk með lasergeislum svo
eitthvað sé nefnt. Fylgdarmaður
gesta er „Dreamfinder" og drek-
inn hans Figment. Dreamfinder
þessi er sagður eldri en þekking-
in en yngri en morgundöggin.
Eins og fram hefur komið er
sannarlega margt að sjá og
skoða í Epcot Center, en einu
skal bætt við. Um lítið stöðuvatn
er að ræða og sigla gestir Epcot
hringinn á bátum. Allt í kring
um vatnið hafa verið reistar
smækkaðar útgáfur af fyrirbær-
um frá átta þjóðum. Þar má sjá
hof maya-indíána frá Mexíkó,
Eiffel-turninn og götulíf frá
París, Tiananmen-torgið og Hof
hins himneska friðar í Peking,
dæmigert enskt smáþorp, brot af
Klettafjöllunum í Kanada við
hliðina á októberhátíðarhöldum
í smáþorpi í Bæjaralandi, svo
eitthvað sé nefnt.
Mikið hefur verið lagt í Epcot
Center til þess að gera það sem
glæsilegast og raunverulegast.
Til dæmis má geta þess að flytja
þurfti 54 milljón tonn af jarð-
vegi til að koma byggingunum
fyrir eða til notkunar í sýningar-
atriðum. 16.000 tonn af stáli
voru notuð og tugþúsundir tonna
af timbri komu einnig við sögu.
12.500 tré hafa verið gróðursett,
10.000 runnar og rúmlega 1,5
miiljón fet af filmum var skotið
i 30 löndum í kvikmynda- og
myndsegulbandasýningar Epcot.
Mörgum þykir Epcot Center
glæfralegt fyrirtæki, en segja
má að það sé síðasta von Disn-
ey-fyrirtækisins. Það hefur stað-
ið höllum fæti síðustu árin.
Kvikmyndaframleiðsla hefur
skilað litlu síðan „Mary Popp-
ins“ sló í gegn árið 1964 og verð-
bólga ásamt stöðnun hefur dreg-
ið úr aðsókn í hin „Disney-lönd-
in,“ „Disney-land“ og „Magic
Kingdom". Disney-menn reikna
með því að Epcot laði að 9 millj-
ón gesti fyrsta árið og hafa þeir
á prjónunum að bjóða „pakka-
ferðir" sem fela í sér tvo daga í
Epcot og tvo daga í Magic
Kingdom, sem er í nágrenninu.
Epcot er spáð velgengni, því
skoðanakönnun hefur leitt í ljós
að 75 prósent ferðamanna til
Flórída líta ekki við Disney
World. 80 prósent þeirra hafa þó
sagt að miðstöð á borð við Epcot
vekti forvitni þeirra. Svo virðist
því sem Disney-veldið muni
halda velli enn um sinn.
Byggt á Time o.fi.
• Gestir á Epcot Center sigla eftir mjóum bátaskurði í sýningarsalnum
sem ber heitið „Landið".
• Fyrri tima lögregluþjónn til-
búinn í slaginn.