Morgunblaðið - 27.02.1983, Side 44

Morgunblaðið - 27.02.1983, Side 44
92 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 ást er ... ... að dreifa ekki vincll- ingaösku út um öll hús- Oögn. TM Rao U.S. Pit Off.-aD rtghts rwervad •1982 Loa Angetoe Tlmae Syndtcele Þegar tekið er mið af ætt minni og uppruna gæti einkunnin verið slak- ari, ekki rétt? Þú ættir að geta galdrað hana upp í hæstu fjöll! HÖGNI HREKKVÍSI ?ÖGP--. Meira frelsi í sjónvarpsmálum Geir R. Andersen skrifar: „Velvakandi. Þegar sjónvarpsmál eru til um- ræðu á opinberum vettvangi hér í landi, bregst það ekki: málið er orðið meiriháttar hitamál, áður langt líður, hvort sem það er í stuttri blaðagrein eða umræðum. En hvers vegna? Einfaldlega vegna þess, að Island er einangrað land, þrátt fyrir allt, og fátt eitt til skemmtunar og afþreyingar, það er öðrum nýtist, t.d. vegna legu sinnar (ferðalög að eigin geð- þótta), og ótruflaðs framtaks af hálfu hins opinbera, t.d. á valkost- um fjölbreyttra útvarps- og sjón- varpsstöðva. Opið prófkjör Þorgeir Axel Örlygsson stýri- maður skrifar: „Velvakandi. Ég er og hef alltaf verið óflokksbundinn, en hef fram að þessu fylgt Sjálfstæðisflokkn- um að málum, sem eina virki- lega lýðræðislega sinnaða stjórnmálaflokki landsins. Mig langar því til að lýsa án- ægju minni með að, að kjör- dæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesi skuli nú hafa ákveðið að viðhafa opið próf- kjör í Reykjaneskjördæmi, en falla ekki í sömu gryfju og þeir í Reykjavík að binda þátttök- una við flokksbundna. Fyrirkomulagið í Reykjavík fældi fjölda óflokksbundinna stuðningsmanna Sjálfstæðis- flokksins frá því að taka þátt í prófkjörinu þar og bar ekki vott um ýkja lýðræðislegan hugsunarhátt. Því er þannig farið með hundruð og jafnvel þúsundir kjósenda, að þeir vilja geta haft áhrif á það, hverjir veljast á framboðsiista flokksins, án þess að þurfa jafnframt að láta draga sig í dilka eða stimpla sig flokksbundna línumenn. Fólk vill hafa frelsi til að velja og það án nokkurra skilyrða. Það er þvi vel, að sjálfstæð- ismenn í Reykjaneskjördæmi skuli ekki hafa gleymt þeirri grundvallarhugsun sjálfstæð- isstefnunnar, sem er frelsi ein- staklingsins." Þeir íslendingar, er ekki geta eða vilja nýta sér það er til boða stendur á sviði skemmtunar eða afþreyingar gegn óhóflegu gjaldi, utan heimilisins, kjósa að nota sjónvarp og útvarp sér til skemmtunar, og þá með þeim hætti, sem þeir sjálfir vilja. Og þarna skiptast menn í tvo mjög aðskilda hópa. Annar hópur- inn, sem er margfalt stærri, senni- lega meirihluti þjóðarinnar, vill fá sjálfdæmi um það, hvað það horfir á í sjónvarpi t.d. og hafa val þar um. Hinn hópurinn, sem er fámenn- ur en hávær og aðgangsharður, vill fyrir engan mun leyfa meiri- hlutanum að ráða, og við það sit- ur! Meirihlutinn á enga málsvara, en minnihlutinn stendur saman sem einn maður. Því er það, að þegar einn og einn tekur sig út úr þessum þögla meirihluta, og lætur frá sér heyra, t.d. í lesendabréfi eða grein í blaði, en það virðist eini vettvangurinn, sem ennþá er til umráða (ekki virðast umboðsmenn meirihluta kjósenda á Alþingi uppnæmir fyrir óskum umbjóðenda sinna), — þá ætlar minnihlutinn að ær- ast, og teflir fram „særinga- mönnum" í fjölmiðlum, til „varn- ar“ landi og lýð, gegn frjálsu sjón- varpi. Alveg sérstaklega er vandað til vals á særingamönnum, ef Kefla- víkursjónvarp er til umræðu. Þá er gripið til þess, að rífa setningar úr samhengi við þann texta, sem varð tilefni til upphlaups og áköll- unar særingarmanna. Háð, ræsk- ingar og skyrpingar verða líka oft uppistaðan í röksemdafærslu sær- ingamanna minnihlutahópsins, sem að því frátöldu að banna frelsi í sjónvarpsmálum, vill setja svartan klút fyrir augu fólks, sem neitar að gangast við vandamála- gamni, sem þykir því betra sjón- varpsefni, eftir því sem norðar dregur í Evrópu. Það kom því ekkert á óvart, að lesendabréfi, sem birtist í dálkum Velvakanda Mbl. og var um „frelsi í sjónvarpsmálum", væri svarað í Þjóðviljanum stuttu seinna, und- irritað „áb“, sem útleggst „rit- stjóri". Þar leggur „áb“ Þjóðviljans nokkuð út af þeim orðum í lesendabréfi, sem segja, að frelsi til að njóta góðrar sjónvarps- dagskrár frá Sovétríkjunum sé þó æskilegra en sitja uppi með það ógnvekjandi ofbeldis- og klám- Geir R. Andersen myndasafn, sem íslenska sjón- varpið býður upp á. í framhaldi af þessu og öðru, sem höfundur lesendabréfs í Vel- vakanda telur til gildis fyrir frjálst sjónvarp, t.d. því að leyfa Keflavíkursjónvarpið aftur fyrir alla landsmenn — ásamt því sov- éska — sem nú sést hér á landi, veltir „áb“ því fyrir sér, hvers vegna gagnrýni sé svo yfirþyrm- andi á kvikmyndum „litla frænda", sem hann nefnir svo, þ.e. myndefni frá Skandinövum, en flestu hælt í hástert, ef myndefni er frá „stóra bróður“, eins og hann nefnir Bandaríkin. Tekur „áb“ tvær myndir úr vest- urheimi sem dæmi, báðar svokall- aðar „vandamálamyndir", aðra um kynvilltan mann, hina um ein- stæða móður, voru báðar sýndar í sjónvarpinu nýlega. — „Myndirn- ar voru ekki (leturbr. „áb“) sænsk- ar, ekki danskar. Þær voru því ekki þessar „hundleiðinlegu, öm- urlegu og seigdrepandi" skandi- navísku vandamálamyndir, sem hver eftir öðrum étur upp fordóma gegn — hvort sem þær eru betur eða verr gerðar. Hommamyndin var kanadísk, og einstæða móðirin var bandarísk. Og þá er allt í lagi,“ segir „áb“ í Þjóðviljanum. Ef þessar myndir hefðu verið um danskan kennara eða þá ein- stæða móður, sem vildi á færi- bandið hjá Volvo, „þá“ segir „áb“ „hefðum við getað gengið að því vísu, að eftir hefðu fylgt í löngum bunum skammaskrif um þessa dönsku homma og sænsku leið- indakerlingar, sem ekki koma okkur neitt við.“ Þetta er alveg rétt hjá „áb“. Og hvers vegna? Einfaldlega vegna „Við dauðans dyr“: Gæti huggað marga og sefað ótta annarra Stella Sigurðardóttir skrifar: „Velvakandi! Ég hef tvisvar séð hina athygl- isverðu mynd, Við dauðans dyr, sem nú er sýnd í Bíóbæ í Kópa- vogi, og bent mörgum vinum mín- um á að sjá hana. Allir hafa þeir verið mér þakklátir eftir að hafa séð myndina. Efni myndarinnar á erindi til allra og ekki hvað síst lækna og hjúkrunarfólks, sem svo oft standa við hlið sjúklinga sinna við dauðans dyr. Ég er þess full- viss, að það gæti oft hjálpað þeim undir slíkum kringumstæðum að hafa séð myndina. Kvikmyndin „Við dauðans dyr“ er sannsöguleg og byggð á rann- sóknum og reynslu tveggja lækna varðandi fólk, sem líffræðilega var úrskurðað látið, en tókst þó að lífga við. Hvorugur þessara lækna trúði á líf eftir dauðann, en skoð- un þeirra breyttist við nákvæmar rannsóknir og reynslu í starfi. Ævar R. Kvaran talar í bíóinu, áður en sýningar hefjast, og út- skýrir eins og hans var von frá- bærlega vel efni og tilurð myndar- innar. Á hann þakkir skilið fyrir það. Það eina sem öruggt er í lífi okkar er dauðinn, og hjá allflest- um okkar mannanna börnum vek- ur hann að sjálfsögðu spurningar og hjá sumum kvíða. Gæti þessi mynd því bæði huggað margan og sefað ótta annarra. Langar mig til að koma því á framfæri til þess góða fólks sem er að hlúa að og starfa í þágu þeirra sem bágt eiga, t.d. aldraðra og sjúkra, hvort það vildi ekki taka til athugunar að reyna að gera þeim, sem kynnu að hafa áhuga, mögulegt að sjá myndina, t.d. með hópferðum. Auðvelt er að koma hjólastólum við í bíóinu. Ég þakka bíóstjóranum fyrir að hafa boðið okkur upp á þessa frá- bæru mynd.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.