Morgunblaðið - 27.02.1983, Side 46

Morgunblaðið - 27.02.1983, Side 46
94 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 Fræg knattspyrnufélög Fyrri hluti Meistaratitlinum fagnað eftir síöasta deildarleikinn árið 1967, en þá gerði Man. Utd. jafntefli, 0—0, við Stoke. Það er sjálfur Matt Busby sem lyftir verölaununum hátt á loft. Leikmennirnir eru taldir frá vinstri: Denis Law, Nobby Stiles, Bobby Charlton, George Best, David Heart, Bill Foulkes, David Sadler, Tonny Dunne, Paddy Crerand og Alex Stepney. Árið eftir varð þetta lið Evrópumeistari í knattspyrnu. Matt Busby var staóráóinn í því að gera Man. United að stórveldi og það tókst Busby sem geröi okkur aö einni heild." f rúm þrjú ár varö United að leika heimaleiki sína á Maine Road hjá Manchester City. Þrátt fyrir þaö varö félagið númer tvö í deildar- keppninni í þrjú ár í röö, auk þess sigraöi það Blackpool 4—2 í úr- slitaleik i „FA-keppninni“, sem er einn af merkustu viöburöum á Wembleyleikvanginum. Á fjóröa keppnistímabili Matt Busby hafnaði United í fjóröa sæti í deildinni, þá á heimavelli sínum, Old Trafford, en virðingin og að- dáunin sem menn báru fyrir þess- um stórkostlega framkvæmda- stjóra, sem átti aö baki glæstan fer- il með Manchester City og Liver- pool FC og haföi einnig veriö þjálf- ari skoska landsliðsins, var tak- markalaus. Bæði Tottenham og Manchester City reyndu að fá hann til sín, einnig bauö ítalska knatt- spyrnusambandið honum stööu landsliösþjálfara gegn háum launa- greiöslum. En slík tilboð freistuöu ekki Matt Busby. Metnaöur hans var sá að skapa besta knattspyrnu- félag í heimi sem byggt væri á vin- áttu, heiðarleik og samheldni, ein- hvern tíma skyldi gleöi og heiður fylgja því aö leika fyrir Manchester United. Matt Busby réð Jimmy Murphy sem aöstoöarmann sinn. Á stríös- árunum haföi hann gegnt herþjón- ustu í Austurlöndum, verið í 8. herdeildinni í Noröur-Afríku og í flóttamannabúöum í ítalska bænum Bari. „Það var i Bari sem ég hitti Matt Busby,“ sagöi Jimmy Murphy eitt sinn, „hann baö mig aö koma til Old Trafford til að líta eftir ungu leikmönnunum; þaö gerði ég áriö 1946.“ Börnin hans Busby Frá upphafi var Matt Busby staö- ráöinn í því aö „búa til“ 1. deildar- leikmenn félagsins. Hann og Jimmy Murphy ásamt fjórum til fimm „njósnurum“ ferðuðust fleiri þús- undir kílómetra til aö fylgjast meö leikjum skóla og fyrirtækja í þeirri von aö þeir fyndu einhverja snjalla unga menn sem gætu átt framtíð fyrir sér í Manchester United. Þó aö Busby heföi ekki marga Hinn frægi leikmaöur Duncan Edwards skrifar undir samning við Man. Utd. Duncan Edwards var afburöaknattspyrnumaöur. Hann lóst 16 dögum eftir flugslysiö hræöilega í MUnchen 1958. Manchester United er ekki einungis knattspyrnufélag, það er fyrirtæki sem fólk um allan heim dáir og dýrkar fyrir leik sinn og leíkmenn, sigra þess og sorgir — og ekki hvaö síst fyrir Matt Busby, sem á hvað mestan þátt í vinsældum knattspyrnunnar og heima- lands hennar. Þaö er engum blööum um það aö fletta Matt Busby á heíðurinn að hinum geysi- miklu vinsældum félagsins ... Old Trafford, heimavöllur Manch. United, var lagöur í rúst af Þjóöverj- um í seinni heimsstyrjöldinni eöa nánar tiltekið í mars 1941, og héldu þá flestir leikmanna félagsins til herþjónustu. Það var ekki fyrr en fjórum árum síöar eöa í febrúar 1945 sem forseti félagsins, James Gibson, boðaði til stjórnarfundar til aö skýra frá samtali sem hann haföi átt viö Matt Busby viövíkjandi fram- kvæmdastjórastarfi hjá félaginu. James Gibson dró ekki dul á aö- dáun sína á Matt Busby: „Hann er heiöarlegur og aölaöandi maöur — fullur af hugmyndum" enda tók þaö hann aðeins örfáar mínútur aö full- vissa stjórnina um aö Busby væri betri en nokkur annar til aö þjóna félaginu aö afloknu striöi. Busby sem þá var liðsforingi í hernum, var ráöinn til fimm ára í október 1945 — til félags sem var fjárvana, án leikvangs og án leikmanna. Félagiö var skuldum vafiö, Old Trafford var ónothæfur; áhorfenda- pallarnir vor ónýtir svo og völlurinn sjálfur og leikmennirnir varla komn- ir heim af vígvellinum. Þessum rúst- um tókst Busby að breyta í höll. Stríðið tók sinn toll af leik- mönnum Manch. United og þegar Busby hóf æfingar gat hann taliö fyrrverandi 1. deildarleikmenn á fingrum annarrar handar; Johnny Cary, Stan Pearson, Jack Rowley, Allenby Chilton og Charlie Mitten. Auk þeirra komu aftur fjórir úr yngri flokkum: Markvörðurinn Jack Cropton, Henry Cockburn, John Aston og Johnny Morris. Flestir framkvæmdastjórar knattspyrnufé- laganna settu fyrrverandi 1. deildar leikmenn sína til hliöar, en Busby ákvaö aö halda sínum og lét þá gjarnan skipta um hlutverk á vellin- um, t.d. lét hann framherjana Johnny Carey og John Aston spila stööu vinstri og hægri bakherja. Honum tókst svo vel upp aö allir þessir leikmenn komust í landsliöið breska. Matt Busby keypti aöeins einn leikmann þ.e. skoska landsliös- framherjann Jimmy Delaney, sem Celtic Glasgow var fúst til aö selja vegna þess hve gamall hann væri oröinn og aö líklega myndi hann aldrei veröa góöur af meiöslum sín- um á öxlinni. Aö kaupa leikmann er líkt og aö spila í happdrætti — en kaupin á Delaney voru síður en svo mistök: „Eitt af mínum bestu,“ sagöi Busby seinna og þar sýndi hann aö hann var maöur til aö draga réttar álykt- anir. Þrjú stór liö Það er stundum sagt, aö Matt Busby hafi haft þrjú stór liö á 24 ára ferli sínum sem framkvæmdastjóri Manchester United; þaö fyrsta erföi hann, mótaöi sjálfur annaö og þriðja keypti hann. Ekki eru menn á eitt sáttir um þá fullyrðingu því Jack Crompton segir að þaö sé óréttlátt aö halda því fram að Matt Busby hafi erft fyrsta liðiö: „Viö leikmennirnir þekktumst naumast þegar viö komum aftur til félagsins eftir stríöiö. Það var Matt „njósnara" á sínum snærum haföi hann í rauninni ekki not fyrir þá alla því hann naut svo mikillar velvildar hvarvetna í Bretlandi og ekki síst meðal fjölmargra skólastjóra, sem hringdu rakleitt til Busby þegar þeir komust á snoöir um að einhver nemandinn bjó yfir knattspyrnu- leikni. Margir voru komnir á þá skoöun að United væri kaþólskt félag og aö klerkar landsins væru helstu „njósnarar" þess. En Jimmy Murphy átti svar viö því: „Þaö sem okkur skipti máli var hvort dreng- irnir væru góöir knattspyrnumenn Martin Buchan fyrirliöi Manchester United um árabil verður að sætta sig við að verma varamannabekkinn hjá liðinu um þessar mundir. En Martin hefur verið einn af traustustu leikmönnum liösins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.