Tíminn - 07.08.1965, Síða 13
LAUGARDAGUR 7. ágúst 1965
ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR
13
aay
.
IpæppIP
'i\ ■ í -■=. '■
-■ '■ . '■ 'ú !■' - , v,,t ■: V'!*
pitS;Psa
WtSk
Ellert Schram afsalar sér
stöðu fyrirliða
Líklegt, að Ríkharður taki við
fyrirliðastöðunni í landsliðinu
Alf—Reykjavík, föstudag. — Ellert Schram mun
ekki gegna fyrirliðastöðu í íslenzka landsliðinu, er
mætir írum n.k. mánudagskvöld. Landsliðsnefnd
hafði falið Ellert fyrirliðahlutverkið, en í viðtali,
sem ég átti við Ellert í dag, sagði hann: „Eg hef
ákveðið að afsala mér fyrirliðastöðunni, og mun
síðar í dag tilkynna formanni landsliðsnefndar, Sæ
mundi Gíslasyni, um þá ákvörðun mína'.
Ellert kvað ástæðuna fyrir
þessari ákvörðun sinni vera legt, að hann gegndi fyrirliða
þá, að hann teldi ekki heppi-
stöðu, meðan annar leikmað
ur væri skipaður þjálfari liðs
ins og ætti að gefa því leið-
beiningar fyrir leik. Hér mun
vera átt við Ríkharð Jónsson,
sem landsliðsnefnd hefur
s'kipað landsliðsþjálfara, eins
og skýrt var frá hér á síðunni
í gær.
„Eg vona að menn misskilji
ekki þessa ákvörðun mína.
Hún stafar ekki af óánægju
Myndin hér aS ofan er frá því, þegar Gísli Halidórsson, forseti (SÍ, afhendir Geir Hallgrímssyni
borgarstjóra, guilmerki ÍSÍ. Viðstaddir eru Þorvarður Árnason, Sveinn Björnsson, Hermann Guðmunds
son og Guðjón Einarsson. (Ljósmst. Þóris)
Sæmdir gulflmerki ÍSf
Ellert — afsalar sér fyrirliða-
stöðunni.
eða öðrum annarlegum ástæð
um. Eg tel einfaldlega, að ef
leikmaður er beðinn um að
annast undirbúning leiks, þá
eigi hann að fá að stjórna,
bæði innan sem utan vallar“.
Að öðru leyti sagði Ellert,
að leikurinn legðist vel í sig
og hann væri staðráðinn 1 að
gera sitt bezta.
Óvenjulegt mál-
Hér er um óvenjulegt mál
að ræða, enda heíur það ekki
Ivíkharður
stöðunni?
tekur hann við
skeð áður, að leikmaður af-
sali sér fyrirliðastöðu í lands-
liði. E.t.v. á þessi ákvörðun
Ellerts eftir að vekja ein-
hvern úlfaþyt, en þegar á allt
er litið, er ekki hægt að áfell-
ast hann fyrir að taka þetta
skref. Þvert á móti er þessi á-
kvörðun skynsamleg, því að
bezt fer á því, að þeim leik-
manni, sem falið er að leið-
beina liðinu fyrir leik og
Framhald á bls. 14
5. landsleikur-
inn gegn frum
írar hafa þrívegis farið meö sigur af hólmi.
Síðasti leikur varS jafnMli.
Hinn 22. júlí sl. var Gu3-
laugur Gíslason, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, sæmdur gull
merki ÍSÍ, sem framkvæmda-
stjórnin hafði samþykkt að
veita honum fyrir mikinn og
góðan stuðning við íþróttasam
tökin í Vestmannaeyjum.
Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ
afhenti Guðlaugi gullmerkið í
hófi, sem íþróttabandalaig Vest
mantnaeyja hélt í tilefni af
heiðursviðurkenningunni í Hót
el HB í Vestmannaeyjum.
Þá var Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri í Reykjavík, sæmd
ur gullmerki ÍSÍ, sem fram-
kvæmdastjórn ÍSf hafði sam-
þykkt að veita honum fyrir
mikinn og góðan stuðning við
íþróttasamtökin í Reykjavík.
Alf—Reykjavík, föstudag.
Landsleikurinn í knatt-
sPyrnu gegn írum n.k. mánu-
dagskvöld verður 41. lands-
leikur íslands og fimmti leik-
urinn gegn írum. í þau fjögur
skipti, sem við höfum mætt
írum, höfum við oftast farið
halloka, því þrisvar sinnum
hafa írar unnið, en einum
leik lyktaði með jafntefli-
Þessi mynd er frá leik Islands og írlands í Dublin 1962. írarnir sæk ja að ísienzka markinu, en Helgi Dan.,
lengst til hægri og Sveinn Jónsson er fyrir miðju.
hefur varið. Árni Njálsson sést
Fyrsti landsleikur íslands og
írlands fór fram á Laugardals
vellinum í Reykjavík 1958. frska
liðið var eingöngu skipað áhuga
mönnum og sigraði 3:2. Næsti leik
ur fór fram í Dublin tveimur
árum síðar og þá vann írska áhuga
mannaliðið með 2:1.
í þriðja sinn mætti fsland fr-
Iandi 1962 í svokallaðri Evrópu-
keppni landsliða og tefldu írar
þá fram atvinnumannaliði. Leik
urinn fór fram í Dublin og unnu
írar með 4:2. Síðar sama ár mætt
ust löndin aftur í síðari umferð
þessarar sömu keppni og skildu
liðin þá jöfn, 1 mark gegn 1.
Eins og fyrr segir, hefur ísland
leikið 40 landsleiki í knattspyrnu.
Ekki hefur gengið of vel í þess
um leikjum, því „tap-leikirnir“
eru í miklum meirihluta. Aðeins
7 leikir hafa unnizt, 2 orðið jafn
tefli, en 31 leikur tapazt.
Engu skal spáð um úrslit leiks
ins á mánudagskvöld. frarnir tefla
fram sterku liði. íslenzku leik-
mennirnir eru flestir leikreynd
ir og munu áreiðanlega veita
þeim þarða keppni. Aldursforseti
ísl. liðsins er Ríkharður Jónsson,
sem mun leika sinn 33. landsleik,
en yngsti leikmaður Þess er Ey-
leifur Hafsteinsson, 18 ára gam-
all. Eyleifur leikur sinn 5. lands
leik á mánudagskvöld.
Fólki skal bent á, að leikurinn
hefst kl. 20, og er því ráðlagt
að tryggja sér miða í tíma. - „r
sala aðgöngumiða er við Útvegs
bankann og þar er jafnframt hægt
að kaupa leikskrá, sem samtök
íþróttafréttamanna gefa út í sam-
bandi við leikinn.