Tíminn - 07.08.1965, Blaðsíða 16
3 héraðsmót 14.-15. ágúst
Laxarækt í
Vatnsholti
EJ-Reykjavík, föstudag.
Áhugi manna á laxveiðum
er alltaf að aukast. Undanfarið
hafa birzt ýmsar fréttir af laxa
eldi í ám og vötnum. Einn þeirra,
sem stendur í laxarækt nm þessar
mundir, er Stefán Jónsson, bóndi
á Vatnsholti í Staðarsveit á Snæ
fellsnesi.
Stefán lét seiði í tvö smá-
vötn skammt frá bænum, en þau
kallast Vatnsholtsvötn, fyrir
tveim árum síðan. Blaðið átti tal
við hann í dag, og sagði hann þá,
að seiðin væru orðin um 20 cm
Góð aðsókn að
Davíðshúsinu
ED-Akureyri, föstudag.
Síðastliðinn sunnudag var Dav
íðshús á Akureyri opnað fyrir al
menning og er opið tvo tíma á
hverjum degi. Aðsókn að húsinu
hefur verið ágæt. Allt er með
sömu ummerkjum í húsinu og
skáldið skildi við það.
Eins og menn rekur minni til
keypti Akureyrarbær bókasafn
Davíðs Stefánssonar að honum
látnum, svo og alla innanstokks
muni. Áhugamenn hófu þá fjár
söfnun til þess að kaupa einnig
Framhald á bls. 14.
Héraðsmót í
Skagafirði
Héraðsmót Framsóknar-
manna í Skagafirði verður hald
ið á Sauðárkróki sunnudaginn
22. ágúst n. k. Hin vinsæla
hljómsveit Gautar leika fyrlr
dansi. Dagskráin, sem verður
fjölbreytt að vanda, verður
auglýst síðar
að lengd og að þau fyrstu hefðu
farið út núna, en útlit væri fyrir,
að fleiri færu á þessu ári. Jafn
framt væri hugsanlegt, að ein
hver seiði hefðu farið út í fyrra.
Stefán sagði, að hann vonaðist
eftir laxi í vötnin næstu tvö ár-
in.
Laugaborg
Framsóknarfélögin á Akur
eyri og í Eyjafirði halda héraðs
mót að Laugaborg Iaugardag
inn 14. ágúst, og hefst það
kl. 9 síðdegis. Ræður flytja
alþingismennimir Halldór E.
Sigurðsson, Borgarnesi, og Ingv
ar Gíslason, Akureyri Skemmti
kraftar verða Savannatríóið og
Jóhann Konráðsson og Krist-
inn Þorsteinsson syngja með
undirleik Áskels Jónssonar.
Hljómsveitin Póló og Erla
leika og syngja fyrir dansi.
Dalvík
Framsóknarfélögin á Akur-
eyrl og Eyjafirði halda héraðs
mót á Dalvík sunnudaginn 15.
ágúst kl. 9 síðdegis. Ræður
flytja Halldór E Sigurðsson,
alhingismaður, og Hjörtur Eld
járn Þórarinsson. Tjöm.
HaUdór
Ingvar
Hjörtur
Bjami
Skemmtikraftar verða hinir
sömu og í Laugarborg. Hljóm
sveitin H. H. og Saga leika og
syngja fyrir dansi
Króksfjarðarnes
Framsóknarmenn í Austur-
Barðastrandarsýslu halda hér-
aðsmót sitt í Króksfjarðarnesi
Iaugardaginn 14. ágúst n. k.
og hefst það kl 9 síðdegis.
Ræður flytja Bjarai Guð-
björnsson, banka
stjóri, og Stein-
grímur Her-
mannsson,
kvæmdastjóri.
| Guðmundur Jóns-
son, óperusöngv-
|| ari, syngur. Stein
ar Guðmundsson
leikur fyrir dansi,
Steingrímur
I Ritstjóri sovézks tímarits skrifar um loftárásirnar á N-Víetnam
Hernaðaraðgerðir USA
beinast að allri ASIU
NTB—Washington, London, Nýja Dehli, Moskva, New York, föstud.
Gerald Ford, leiðtogi flokks Repúblikana á Bandaríkjaþingi, lét
svo umniælt í sjónvarpsviðtali - í kvöld, að Bandaríkjaþing ætti að
samþykkja að segja Norður-Víetnam stríð á hendur, ef Johnson for-
seti teldi sig hafa ástæður tll að gera það ekki.
Nguyen Hoa, aðalræðismaður
Norður-Víetnam í Indlandi, sagði
í dag, að stjórn sín myndi ekki
setjast að samningaborði um Víet-
nam þótt Bandaríkjametnn hættu
að varpa sprengjum á Norður-
Víetnam. Slíkt væri ekki nóg.
Hann kvað stjórn sina aðeins
sejnja á grundvelli Genfarsam-
komulagsins frá 1954. Hoa sagði
ennfremur, að sendinefndin frá
Ghana, sem nýlega heimsótti Norð
ur-Víetnam, hefði komið til þess
að styrkja samband ríkjanna, en
ekki haft neitt samband við frið
arnefnd þá, sem brezka samveldis-
ráðstefnan kaus til þess að vinna
að friði í Víetnam.
Hoa sagði þó, að það hefði ver
ið við því að búast, að málefni
Víetnam hefðu verið rædd, er
Ghana.tnenirnir komu til Hanoi.
Utanríkisráðherra Ghana, Alex
Quaison-Sackey, sagði við kom-
una til Washimgton í dag, að boð-
skapur sá, sem hann ætlaði að
afhenda Johnson forseta, gæti
stuðlað að friði í Víetnam. Hann
sagði, að forseti Ghana, Nkrumah,
hefði falið sér að afhenda John-
son forseta skýrslu um árangur
viðræðna sendinefndar Ghana til
Norður.Víetnam á dögunum, en
Formaður þeirrar nefndar var Ar-
mah, sérlegur fulltrúi Nkrumah.
Quaison-Sackey snæddi hádegis
verð með Dean Rusk, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, strax eft
ir komuna til Washington. For-
mælandi Johnson forseta sagði,
IATA VILL AFNEMA FARÞEGASKRÁNINGU í MILLILANDAFLUGI:
Er skylda hér, en ekki á
hinum Norðurlöndunum/
EJ—Reykjavík, föstudag.
IATA, Alþjóðasamband flug-
félaga, er að hefja sérstaka ,,her
ferð“ í því skyni að fá ríkisstjóm
ir hinna ýmsu landa til þess að
fella úr gildi skyldu um að hafa
lista yfir farþega í flugvélum,
sem fara milli landa. Er ísland
f hópi umræddra ríkja, en öll
hin Norðurlöndin hafa afnumið
þessa skyldu.
Blaðið átti tal við Svein Sae-
mundsson hjá Flugfélagi íslands
í dag, og sagði hann, að skyldan
um farþegalista væri eiginlega
Þrándur í Götu fljótra og góðra
viðskipta. Hlytust af þessu tafir,
missír af vélum og meiri skrif-
finnska. Flugfélagið hefur reynt
að pressa mætingartímann niður,
en það verður alltaf ei'i .vsr bið,
sagði Sveinn.
í fréttatilkynningunni frá IATA
segir, að krafan um farþegalista
hafi ýmsa ókostí í för með sér.
Vegna þeirra verði farþegar að
mæta á flugvellinum óþarflega
snemma. Ef farþegi kemur á flug
völlinn þegar búið er að fullgera
listann, verður annað Uvort að
seinka flugtaki og gera nýjan
lista, eða ráðleggja farþeganum að
taka naestu flugferð, segir IATA.
LATA gerði samþykkt um það
árið 1960, að vinna að afnámí
þessarar skyldu, og hafa mörg
ríki afnumið farþegalistana þegar
fulltrúar frá IATA hafa rætt við
viðkomandi ríkisstjórnir um mál
ið. í dag hafa ríkisstjórnir 39
landa afnumið skylduna, þar á
meðal öll Norðurlöndin nema ís-
land, Austurríki, Belgía, Kanada,
Frakkland, Þýzkaland. Grikkland,
írland, Luxemborg, Holland,
Portugal, Spánn, Sviss, Bretland
og Bandaríkin.
IATA segir í lok tilkynningar
sinnar, að áfnám skyldunnar um
farþegalista geri flugfélögum
kleift að minnka mjög biðtíma
farþega og aðrar tafir.
að Johnson og Rusk hefðu rætt
væntanlega heimsókn Quaison-
Sackey í gærkvöldi. Rusk átti að
ræða við Johnson eftir viðræð-
urnar við Quaison-Sackey.
Stjórnmálamenn í Washington
telja, að aðalefni bréfs Nkrumah
sé áskorun til forsetans að láta
hætta sprengjuárásum á Norður-
Víetnam.
í kvöld ræddi Quaison-Sackey
við Johnson.
Miohael Stewart, utanríkisráð-
herra Bretlands, sagði á fundi
með indverskum blaðamönnum
í London í dag, að Bretar væra
reiðubúnir að kalla saman ráð-
stefnu um frið í Víetnam, ef Rúss
ar féllust á það. Bretar og Rússar
skiptust á um það að hafa forsæti
á Indókína-ráðstefnunni í Genf
á sínum tíma, og þar af leiðandi
yrðu þessar þjóðir að vinna að
því að kalla ráðstefnuna saman.
Stewart hélt því fram, að Sovét
ríkin væru í klípu vegna Víetnam-
málsins. Rússar vildu ekki, að
Kínverjar gætu sagt, að þeir
styddu Víetnam með hangandi
Framhald á bls. 14
Loftbelgur yfir
Egilsstöðum
ES-Egilsstöðum, MB-Reykjavík.
Um nónbil í dag sást loftbelgur
svífa yfir Egilsstaði og virtist hann
vera talsvert stór, þar sem sólin
glampaði á hann uppi í blámanum.
Belgurinn fór mjög hægt yfir og
telja sumir að hann hafi horfið
það snögglega, að hann muni
hafa eyðzt.
Undanfarið hefur verið rikj
andi eindregin norðanátt hérlend
is og er því talið að loftbelgur
þessi sé kominn alllangt að, senni
lega er hér um að ræða veðurat
hugunarbelg annað hvort frá
Thule í Grænlandi eða frá rússn
eskum veðurathugunarmönnum
norðtxr á heimskauptsísnum.
Kwesi Armah — Hvaða boð flytur
haiui t*S u-----“