Morgunblaðið - 17.04.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.04.1983, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983 „Satt að segja get ég ekki hugsað mér annað starf en að mála, — fyrir mér er allt annað tímasóun. “ 50 mataræði og svo fóru þau heldur illa í mig af því að þá gekk ég með stelpuna okkar. Það rættist úr fyrir okkur skömmu síðar og þá voru hrísgrjónin úr sögunni. Síð- asta árið fékk ég svo styrk úr hol- lenskum listasjóði og gat lifað fínu lífi. En hvernig er fjárhagurinn núna — er hægt að lifa á því að mála? Eg get ekki hugsað mér annað starf — Nei, biddu fyrir þér — a.m.k. er það alveg útilokað meðan mað- ur er ungur og óþekktur. Þeir sem komnir eru til ára sinna og eru orðnir þekktir, hafa möguleika á einhverjum tekjum, en það verða aldrei neinar tekjur að ráði held ég. Hvers vegna ertu þá að mála — er það hugsjón eða árátta? Jóhanna Kristín hugsar sig um: — Satt að segja get ég ekki hugs- að mér annað starf en að mála, — fyrir mér er allt annað hrein tíma- sóun. Það er tímasóun að vinna fyrir peningum, að mínu áliti. En nú segja sumir að það sé tímasóun að mála? — Það er einkennilegt verð- mætamat — en skýringin gæti verið sú, að þeir finni lífsfyllingu í einhverju öðru. Ég hef aldrei fundið lífsfyllingu í öðru, svo ég skil ekki þetta sjónarmið. Umræðurnar snúast að tækni í myndlist og ívar leggur orð í belg. Hann er skúlptúrlistamaður en neyðist til að vinna venjulega vinnu, peninganna vegna. Þau Jó- hanna Kristín eru að byggja rúmgóða viðbyggingu við húsið sitt þar sem þau ætla að starfa að listgreinum sínum. Og bygg- ingarstarfsemin kostar peninga. Ég spyr ívar hvernig honum gangi að markaðssetja skúlptúr- inn. — Ég hef aldrei reynt að mark- aðssetja neitt af mínum verkum og ennþá hefur engum dottið í hug að falast eftir þeim, segir ívar. — En ég tók einu sinni þátt í sam- sýningu sem var niður á Torgi og þá var einu verkinu mínu stolið. Þetta var skúlptúrverk af kýli og hefur líklega aðsetur í einhverjum húsagarði núna. Þetta er það eina sem ég hef „selt“. — Annars eru það ákveðin forréttindi líka að selja ekki neitt — ef maður lifði á því að framleiða og selja skúlptúr er hætt við að framíeiðslusjón- armiðið myndi íþyngja manni og maður yrði eins og iðnaðarmaður við þetta. Ég hef lengi haft til- hneigingu til aö mála í svörtu Jóhanna Kristín útskýrir fyrir mér hvernig það er ekki sama, strigi og strigi. — Ég lærði tals- vert í að búa til striga í Amster- dam, segir hún. — Ég var svo heppin að hafa góðan leiðbeinanda í þessu fagi, að búa til nothæfan striga fyrir málverk. Þessi strigi sem fæst hér í búðum er alveg steindauður — það er ekki hægt að hafa hann með í myndunum og verður alltaf að mála yfir hann. Striginn sem ég bý til er hins veg- ar svo lifandi að hann má koma fram í myndina hvar sem er og gefur henni líf ekkert síður en lit- irnir. Það er erfitt að fá efni til að undirbúa svona striga hér á landi en ég er ákveðin í að gera meira af honum þegar er ég kemst yfir þessi efni, því þessi venjulegi strigi er raunverulega ónothæfur. Ertu íslendingur þegar þú mál- ar eða er þjóðernið kannski ekki svo ríkt í þér? Jóhanna Kristín hugsar sig um: — Ég held ég sé fyrst og fremst kona þegar ég mála — þetta er ekki merkilegt svar en ég get ekki svarað þessu öðruvísi. — Sumum finnst ég nota mikið svart í mynd- unum mínum, — kannski það lýsi vetrinum hérna. Ég hef yfirleitt eytt sumrinu í vinnu en málað á veturna — nú ætla ég að mála í sumar og þá verða litirnir e.t.v. bjartari. Það gæti verið að árstíð- irnar spili svoleiðis inn í mál- verkið. Annars hef ég lengi haft til- hneigingu til að mála með svörtu. Þegar ég var í Myndlistarskólan- um var Bragi Ásgeirsson að leggja út af þessu og segja að ég hlyti að vera svartsýn — en nú hefur hann tekið annan pól í hæðina. Hann leit inn á Gullströndina á sínum tíma þar sem ég var með verk og þá sagðist hann hafa frétt að hjá Japönum táknaði svart gleði og hamingju, en hvítt angist og dauða. — Sumir finna sig um tvítugt — aðrir finna sig aldrei, þetta sagði Jóhann Kristín í einhverju samhengi, sem ég hef gleymt, hvernig var, en ég er að velta því fyrir mér á leiðinni niður á blað. Hverjir eru sælli, þeir sem finna sig um tvítugt eða hinir sem finna sig aldrei? — bó. Ljósmyndir: Kristján Einarsson Viðtal: Bragi Óskarsson ARGUS Flestir eru sammála um fegurð múrsteinshleðslunnar. En aukakostnaðurinn er ekki aðeins fyrir augað. Ending múrsteina er óumdeilanleg og viðhaldið er mjög lítið. Múrsteininn þarf jú ekki að mála, hvorki eftir þrjú ár né 30 ár. Aldrei. Engin tvö S.G. hús eru eins. Til þess eru valmöguleikarnir of margir. Og svo er sérhvert hús lagað að óskum kaupandans. Hann setur sinn svip á húsið. Einingahús eru svo sannarlega ekki öll eins. Hringdu í síma 99-2277og við sendum þér allar upplýsingar strax. SG EINIIMGAHÚS HF Eyrarvegi 37,800 Selfoss Símar: 99-2276,99-2277,99-2278.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.