Morgunblaðið - 17.04.1983, Side 16

Morgunblaðið - 17.04.1983, Side 16
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983 Hoffman, Durning og Lange f einu atriða myndarinnar Tootsie. 1 mynamni er Durning faðir Lange, Hoffman er istfanginn af Lange og Durning er skotinn í Hoffman, svo það horfir til hreinna vandræða. Takið eftir hve Hoffman er virkiiega dömulegur. Michael Dorsey er hæfi- leikaríkur leikari í New York, sem erfiðlega gengur að verða sér úti um hlut- verk. Hann er ýmist of gamall, of ungur, of stutt- ur, of stór eða of skapbráð- ur, fyrir þau hlutverk, sem hann sækir um. — Dorothy Michaels er nýja sjón- varpsstjarnan í sápuóper- unni „Southwest General". Síðan hún tók að leika í þáttunum, hefur áhorf- endafjöldinn rokið upp úr öllu valdi og hún fær þús- undir aðdáendabréfa á viku hverri. Michael Dors- ey og Dorothy Michaels eiga eitt sameiginlegt. Þau eru sama manneskj- an. Michael var orðinn leið- ur á að fá ekki hlutverk, svo hann notaði tækifærið, þegar hann frétti af því, að vantaði kvenmann til að leika í „Southwest Gener- alM, og ídæddi sig uppá eins og kona og fór í upptöku- próf. Það skipti engum tog- um, hann gerði langtíma samning við sjónvarpsstöð- ina. Þá fyrst byrja vand- ræðin. Michael verður ást- fanginn af konunni, sem fer með aðalhlutverkið í þáttunum, hann lendir í útistöðum við leikstjórann, sem kallar hann alltaf Tootsie, og eldri ekkjumað- ur og bóndi reynir við hann í konugervinu. Þannig er söguþráðurinn í bandarísku gamanmyndinni Tootsie, sem Stjörnubíó hefur sýn- ingar á um næstu helgi. Dustin Hoffman leikur Michael, Jessica Lange leikur stúlkuna, sem hann verður ástfanginn af, og Charles Durning leikur ekkjumanninn, sem verður skotinn í Michael. Leikstjóri er Sydney Pollack. Öll Högur voru þau útnefnd til síðustu Oskarsverðlauna, sem nýlega voru veitt í Los Angeles, en aðeins Jess- ica Lange hlaut góssið fyrir auka- Myndarlegur kvenmaður þessi hlutverkið í myndinni. Hún var útnefnd til annarra óskarsverð- launa, fyrir bestan leik í kvenhlut- verki í Frances, en það var Meryl Streep, sem hreppti þau verðlaun. Annars hlaut Tootsie 10 útnefn- ingar til óskarsins. — Hoffman — Dustin Hoffman á sér glæsi- legan leikferil að baki, þó hann nái aðeins yfir 15 ár af ævi hans. Hann er 45 ára gamall en var orð- inn 30 ára þegar hann lék stúdent- inn í The Graduate, myndinni, sem gerði hann frægan. Síðan hef- ur Hoffman leikið í fjölda mynda og er nú talinn með bestu og virt- ustu kvikmyndaleikurum vestan- hafs. Nægir að nefna hér nokkrar myndir, Midnight Cowboy, Little Big Man, Papillon, All the Presi- dent’s Men og Kramer vs. Kramer, en fyrir leik sinn í henni hlaut hann Óskarsverðlaunin. Tootsie er fyrsta myndin í þrjú ár sem hann leikur í frá því hann lék Kramer. En leiðin á toppinn var ekki greið fyrir Hoffman og á hann það sameiginlegt með Michael Dorsey. Hann var álitinn „erfiður í um- gengni" og var eitt sinn rekinn úr tíma í leiklist þegar hann var 20 Charles Durning og Hoffman. ára vegna þess að „ég öskraði á kennarann þegar hún fór að tala við mig í miðju atriði". Hann reifst við leikarann og leiklistar- kennarann, Lee Strasberg, fyrsta daginn, sem hann sótti tíma hjá honum, og loks hætti hann við allt saman. Hoffman, rétt eins og Dorsey í Tootsie, vann sem þjónn þegar hann hætti leiklistarnámi. Hann viðurkennir að hafa verið lélegur þjónn og hann var rekinn hvað eftir annað af minna þekkt- um matsölustöðum New York- borgar. En sem þjónn æfði hann sig í leiklistinni. Hoffman segir: „Ég talaði kannski með frönsk- um hreim til að æfa mig og til að blekkja fólk. Ég tala ekki frönsku. Stundum kom það fyrir að ég var hankaður á þessu og einhver spurði mig spurningar á frönsku. Þá varð ég að eyða því með því að segja honum að ég væri að reyna að læra frönsku og að ég vildi helst ekki tala önnur tungumál á meðan. Yfirleitt komst ég upp með þetta." Þegar Hoffman er spurður að því hvernig hann hafi undirbúið sig undir að leika kvenmann í Tootsie, segir hann: „List er þjófn- aður og í Dorothy blanda ég sam- an minningum frá móður minni og frá Polly Holliday (sjónvarpsleik- ari og mikill vinur Hoffmans). Og rétt áður en kvikmyndun á Tootsie hófst fór ég í Regency-kvikmynda- húsið í New York en þar var verið að sýna myndir gömlu leikkvenn- anna frá þriðja og fjórða áratugn- um. Og kvöld eftir kvöld fór ég í bíóið og horfði á Crawford eða Garbo og gleypti í mig hverja hreyfingu þeirra." Miðað við fyrri hlutverk Dustin Hoffmans bæði á sviði og í kvikmyndum virðist það leikur einn fyrir hann að leika kvenmann, og Dorothy Michaels gæti orðið eftirminnilegasta hlut- verk Hoffmans til þessa. — Pollack — Eftir að hafa leikstýrt og fram- leitt myndir í 17 ár, leikstýrir Syd- ney Pollack sjálfum sér í mynd sinni Tottsie en þar leikur hann umboðsmann og vin Dustin Hoff- mans. Það var Hoffman sjálfur sem lagði það til við Pollack að hann léki í myndinni og Pollack stóðst ekki freistinguna. Á sínum yngri árum ætlaði hann sér alltaf að verða leikari, og þegar hann lauk menntaskóla í Indiana, þar sem hann er fæddur, lá leið hans til New York í leiklistarskóla hjá Stanford Meisner. Það tók hann aðeins ár að verða aðstoðarkenn- ari Meisners við skólann og leið- beindi hann ungum leikaraefnum eins og James Caan. Pollack fékk lítið hlutverk í sjónvarpsþætti, sem John Frankenheimer leik- stýrði, og þegar Frankenheimer heyrði að hann hafði verið aðstoð- armaður Meisners, bað hann Poll- ack þegar um að þjálfa hina leik- arana í þáttunum. Þar með var leikaradraumurinn búinn hjá Pollack. Frankenheimer tók hann með sér til Hollywood árið 1960 til að þjálfa Burt Lancaster og Lancast- er varð svo hrifinn af Pollack að hann hvatti hann til að verða leik- stjóri og kom á fundi með honum og forstjóra risakvikmyndafyrir- tækis. Eftir fjögur ár við leik- stjórn í sjónvarpi, sem hann kall- ar „bestu þjálfun í heimi", gerði hann sína fyrstu mynd með Sid- ney Poitier og Anne Bancroft. „Mér þykir gaman að gera myndir í ætt við gömlu Hollywood- myndirnar," segir hann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.