Morgunblaðið - 17.04.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983
69
Bergljót Ingólfsdóttir tók saman
Christina
Onassis
Niarchos fyrrum
mágur og sfðar
eiginmaður Tinu.
Onassis bauð Mariu og manni
hennar, Meneghini, til siglingar á
snekkjunni.
Það fór ekki fram hjá Tinu
Onassis að Maria Callas hafði
mikil áhrif á eiginmann hennar,
enda áttu þau margt sameiginlegt,
höfðu t.d. bæði þurft að berjast
sjálf fyrir sínu. En Tina rækti
gestgjafahlutverkið með sóma.
Eiginmaður Mariu Callas leit út
fyrir að vera óhamingjusamur á
meðan á ferðinni stóð og söng-
konan var mjög taugaspennt. Þau
eyddu meiri og meiri tíma saman
Callas og Onassis, og það fór ekki
fram hjá nærstöddum að þau
drógust mjög hvort að öðru. Þegar
snekkjan kom aftur til Feneyja
fóru þau söngkonan og maður
hennar frá borði og einkaflugvél
Onassis flutti þau til síns heima, í
Mílanó.
Það leið ekki á löngu þar til
Onassis var kominn þangað á eftir
þeim, hann dvaldi hjá þeim í ein-
býlishúsi þeirra.
Nokkru síðar sáust þau tvö ein
saman á næturklúbb, Maria Call-
as og Onassis, og fréttamenn voru
ekki langt undan. Daginn eftir
birtust myndir af þeim skötu-
hjúum í öllum helstu dagblöðum
út um allan heim.
Á sama tíma gaf Maria Callas
út þá yfirlýsingu að hjónabandi
hennar og Meneghini væri lokið.
En hún staðhæfði samtímis að á
milli hennar og Onassis væri ekk-
ert annað en sönn vinátta. Eigin-
konunni, Tinu, var nú nóg boðið,
hún hélt í skyndi til Parísar með
börnin og fór til heimilis foreldra
sinna. Hún yfirgaf þar með
snekkjuna fyrir fullt og allt.
Strax næsta dag flaug Onassis
til Parísar og hélt til heimilis
tengdaforeldra sinna, þar sem
hann heimtaði að fá að tala við
konu sína. Það varð stormasamur
fjölskyldufundur, Onassis sár-
bændi konu sína um að koma til
sín aftur en hún þvertók fyrir það.
Seinna sagði Onassis frá því, að
hann væri þess fullviss, að ef at-
burður þessi í Mílanó hefði ekki
verið svo uppblásinn í fréttablöð-
um hefði hjónaband þeirra Tinu
haldist óbreytt.
Annað hjónaband
Tinu Onassis
Tina leitaði, sem fyrr, hjálpar
og huggunar hjá systur sinni og
fór nú með henni og mági sínum
til eyjarinnar Spetsopoula sem
var hans eign. Þangað var boðið
fleiri gestum og á meðal þeirra
var breskur maður af aðalsættum,
markgreifinn af Blandford. Þau
höfðu reyndar kynnst áður á skíð-
um í St. Moritz, Tina og Sonny
Blandford. Hann var nú nýfráskil-
inn, eins og hún. Niarchos-hjónin
buðu þeim síðar saman í París og
London. Onassis-hjónin skildu ár-
ið 1960 og veturinn eftir fór Tina
enn eina skíðaferðina til St. Mor-
itz og fékk nú til einkaafnota bú-
stað systur sinnar og mágs. í þetta
skipti varð hún fyrir því óhappi að
brotna enn einu sinni, nú var það
hnéskel sem var illa brotin. Það
tók því langan tíma fyrir hana að
ná sér og hún þurfti að halda
kyrru fyrir í langan tíma.
Margir vinir hennar heimsóttu
hana dyggilega á meðan á veikind-
unum stóð, á meðal þeirra var
Sonny Blandford, sem fór svo með
hana í ökuferðir og annað þegar
hún fór að jafna sig.
Þau sáust mikið saman og það
kom því ekki á óvart þegar þau
kunngerðu trúlofun sína. Þau voru
gefin saman í hjónaband í París í
októbermánuði árið 1963. Mágur
Tinu lét þeim eftir eyjuna Spetso-
poula og snekkjuna Creole til
brúðkaupsfararinnar. Við heim-
komuna beið markgreifans starf
hjá skipafélagi Niarchos í Mayfair
Tina og eiginmaður nr.
2, Sonny Blandford.
Systurnar Tina og
Eugenie á skíðum
í St. Moritz.
í London, og heimili hjónanna var
á ættaróðalinu, í Blenheim-höll.
Tina fór þó fljótlega á fornar
slóðir til St. Moritz á skíði og til
Suður-Frakklands til að hitta þar
vini og taka þátt í samkvæmum.
Henni fannst lífið fulldauflegt í
höllinni en þar voru 185 herbergi.
Það kom svo í ljós að hjónabandið
var ekki sérlega vel heppnað, þau
fóru hvort sína leið þó að þau
væru í hjónabandi að nafninu til.
Þannig var komið í lífi Tinu
þegar systir hennar, Eugenie,
hringdi í öngum sínum og sagði að
eiginmaðurinn væri farinn frá
henni. Niarchos opinberaði stuttu
síðar trúlofun sína og ungrar
stúlku, Charlotte, dóttur Henry
Ford bílakóngs. Hún var 32 árum
yngri en hann.
Þegar Niarchos kom svo með
barnshafandi brúði sína ekki
löngu síðar til St. Moritz fullviss-
aði hann fyrri konu sína um að
ekki liði á löngu þar til hann væri
kominn aftur til hennar og barn-
anna, þetta væri aðeins tímabund-
ið ástand.
Það liðu fjórtán mánuðir og þá
var Niarchos búinn að fá skilnað
frá ungu konunni og kominn aftur
til fyrri konu og barna. Charlotte
Ford, reynslunni ríkari, sagðist nú
vita hvernig það væri að vera gift
grískum manni. Þau eignuðust
saman dótturina Elena.
Hver sorgaratburð-
urinn rekur annan
Ástamál Onassis-systkinanna
olli Tinu og fyrrum eiginmanni
hennar áhyggjum. Foreldrar ungu
stúlkunnar töldu ungan grískan
mann, Peter Goulandris, erfingja
mikilla auðæfa í skipastól, ákjós-
anlegan eiginmann fyrir hana og á
tímabili leit út fyrir að þeim yrði
að ósk sinni, en svo slitnaði upp úr
því sambandi.
Sonurinn Alexander tók saman
við fráskilda konu, Fiona Thyssen,
sem var 15 árum eldri en hann.
Hann var ákveðinn að ganga að
eiga hana en lét undan og hætti
við allt saman, vegna mótstöðu
foreldranna. Árið 1970 varð Tina
fyrir miklu áfalli þegar systir
hennar, Eugenie, lést skyndilega á
eyjunni Spetsopoula. Hjónin
höfðu átt í rifrildi vegna símtals
Niarchos við Charlotte Ford, við-
víkjandi dóttur þeirra, Elena.
Eugenie flúði til svefnherbergis
síns og tók of stóran skammt af
svefntöflum. Þegar ljóst var hvað
komið hafði fyrir og sent var eftir
lækni, var um seinan að bjarga
henni.
Áverkar, sem voru á líkama
hinnar látnu konu, voru raktir til
tilrauna eiginmannsins til að
vekja hana til lífsins. Málið var
rannsakað gaumgæfilega og það
tók dómarana langan tíma að
komast að þeirri niðurstöðu að
dauðann mætti rekja til svefnlyfj-
anna. Á meðan á þessum rann-
sóknum stóð mátti Niarchos ekki
fara úr landi.
Tina, bróðir hennar, George, og
móðir þeirra komu öll til eyjarinn-
ar strax eftir lát Eugenie. Niarch-
os virtist niðurbrotinn af harmi.
Tina tók tvö yngstu börn systur
sinnar með sér til að hugsa um
þau. Niarchos fór fljótlega eftir
lát konu sinnar að sjást í fylgd
ýmissa glæsikvenna. Það var líka
fljótlega farið að pískra um, að
þau væru farin að draga sig sam-
an Tina og fyrrverandi mágur
hennar. Skilnaður þeirra Tinu og
Sonny Blandford gekk í gegn með
hraði í maí árið 1971.
Á sama tíma tilkynnti Christina
að hún hygðist ganga í hjónaband
með manni, sem foreldrarnir
höfðu ekki einu sinni heyrt nefnd-
an. Sá útvaldi var bandarískur
kaupsýslumaður, Josep Bolker að
nafni, 47 ára gamall og átti fjögur
börn á unglingsaldri. Christina
var tvítug að aldri. Og áður en
tókst að telja stúlkunni hughvarf
rauk hún til og giftist manninum.
Þetta varð foreldrunum mikið
áfall og Onassis lét breyta erfða-
skrá sinni í flýti, en hjónabandið
entist stutt. En um mitt sumar
árið 1971 var Tina sjálf komin í
giftingarhugleiðingar. Þau voru
ákveðin, eftir góðan umhugsun-
artíma, að ganga í hjónaband,
Tina og Niarchos. Þessi ákvörðun
varð börnum Tinu mikið áfall,
enda alin upp við að líta á Niarch-
os sem keppinaut föður þeirra
þrátt fyrir fjölskyldutengslin. Al-
exander var þessu svo mótfallinn
að hann talaði ekki við móður sína
eftir það. Hann bar alla tíð þá ósk
í brjósti að foreldrar hans tækju
saman aftur. Tina og Stavros Ni-
archos voru gefin saman í hjóna-
band í október árið 1971, móðir
Tinu var eini ættinginn sem
viðstaddur var. Þennan sama vet-
ur varð Tina fyrir enn einu óhapp-
inu á skíðum er hún handleggs-
brotnaði. Þau hjónin voru ekki
mikið í sviðsljósinu næstu árin.
Þeim, sem þekktu Tinu frá fyrri
tíð, fannst hún ekki lík sjálfri sér.
Sumir héldu því jafnvel fram, að
hún væri ákaflega óhamingjusöm.
í janúarmánuði árið 1973 slas-
aðist Alexander Onassis lífs-
hættulega í flugslysi. Foreldrar
hans vöktu við sjúkrabeðinn en
hann komst aldrei til meðvitundar
og lést 27 klst. eftir slysið. Lang-
þráðar sættir móður við son sinn
tókust því ekki. Onassis taldi flug-
slysið hafa orðið af völdum
skemmdarverks á vélinni, hann
var bugaður maður eftir missi
sonar síns eins og móðirin. Christ-
ina reyndi að koma í stað bróður
síns og læra um rekstur fyrir-
tækja föður síns, en nú var
skammt stórra högga á milli. Ath-
ina Livanos Onassis Niarchos lést
skyndilega á heimili sínu í París
árið 1974. Dauða hennar bar að
svo óvænt að dóttirin fór fram á
nákvæma rannsókn á dánarorsök.
Þar kom þó ekkert fram sem benti
til að um neitt óeðlilegt væri að
ræða.
Onassis lifði árinu lengur, hann
andaðist fyrri hluta árs 1975,
sjúkur maður og óhamingjusamur
síðustu æviárin.
Eftir lifir dóttir þeirra Tinu og
Ari Onassis, Christina, erfingi
mikilla auðæfa.
Hún á þrjú hjónabönd að baki
og litla hamingju, eignir hennar
eru miklar, heill floti af skipum
auk annars.
Það er því óhætt að segja um
grísku Onassis-fjölskylduna, að
það er sitt hvað auður og auðna.
Bergljót Ingólfsdóttir
tók saman.
J__/esið af
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
w KAUPMENN- VERSLUNARSTJORAR
AVEXTIR
IKUKKAR
Bananar Del Monte — Appelsínur Jaffa — Appelsínur Marokkó
— Blóðappelsínur Marokkó — Klementínur Jaffa Topas — Epli
rauó USA — Epli rauð Svarti svanurinn — Epli frönsk Golden —
Epli frönsk Granny Smith — Sítrónur grískar — Sítrónur Jaffa
— Grapefruit Jaffa — Grapefruit Honduras — Pomelos Jaffa —
Vínber græn S-Afríka — Vínber blá S-Afríka — Vínber græn
Chile — Vínber blá Chile — Melónur S-Afríka — Perur ítalskar
— Avocado — Ananas — Kókoshnetur — Ferskar döölur.
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, sími 85300