Morgunblaðið - 17.04.1983, Side 26

Morgunblaðið - 17.04.1983, Side 26
74 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983 Af kirkjulífi á Raufarhöfn Á Raufarhöfn er steinkirkja, sem reist var 1927 eftir teikn- ingu Guðjóns Samúelssonar, fallegt og veglegt guðshús. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að endurreisa gömlu kirkjuna sem hafði látið á sjá gegnum tíðina. Gekk sú endur- nýjun framar öllum vonum, enda framkvæmd með dyggum stuðningi þeirra rúmlega eitt hundrað heimila sem í sókn- inni eru, bæði með fjárfram- lögum og vinnu. Þegar siglt er inn í höfnina á staðnum blasir kirkjan við beint fram undan stefni skips- ins. Kirkjan hefur því löngum boðið sjómenn velkomna til Raufarhafnar. Sr. Guðmundur Örn Ragn- arsson er sóknarprestur á Raufarhöfn. Að hans sögn tel- ur söfnuðurinn u.þ.b. 500 manns. Almennar messur fara fram í kirkjunni annan hvern sunnudag, en barnamessur eru haldnar á hverjum sunnudegi Sr. Guðmundur Örn Ragnarsson BIBLIULESTUR vikuna 17.—23. apríl Sunnud. 17. apríl: Jóh. 10:11—16. a) V.ll: Jesús lagði líf sitt í sölurnar fyrir okkur. b) Hvaða „úlfar" reyna að tortíma lífi manna og láta þá lifa án Guðs? c) V.16 segir okkur, að Jesús vill einnig vera leiðtogi alls þess fjölda manna í heiminum, sem þekkir hann ekki ennþá. Mánud. 18. apríl: I. Mós. 21:1—14. Þegar tímar líða kemur í ljós, að Drottinn stendur við loforð sín. Barn fyrirheitisins fæðist. Þriðjud. 19. apríl: 1. Mós. 22.1—19. Guð reynir hlýðni Abrahams á mjög sérstakan hátt. Abraham sýnir skilyrðislausa hlýðni og kemst þá að raun um, að Guð hefur allt í hendi sér og fyrirætlun hans er til góðs eins. Miðvikud. 20. apríl: I. Mós. 23:1—20. Abraham fær grafreit fyrir Söru konu sína með sérstökum hætti. Fimmtud. 21. apríl: I. Mós. 24:1—28. Umhyggja Abrahams nær til hinstu stundar. Þjónninn sýnir algera trúmennsku — þótt húsbóndinn sé dauðvona! Og Drottinn reynist með í ferðinni. Föstud. 22. apríl: I. Mós. 24:29—67. Drottinn lætur ferðina ná tilgangi sínum. Handleiðsla Guðs nær m.a. til þess, að fsak fær konu. Laugard. 23. apríl: I. Mós. 25:21—34. Esaú sýnir frumburðarrétti sínum algera lítilsvirðingu og fyrirgerir honum þar með. Jakob á eftir að sjá eftir, að hafa eignast frumburðar- réttinn á þennan hátt. 2. sd. e. páska Er hann Kristur? „Ef þú ert Kristur ..." Þannig var Jesús spurður á hérvistardögum sínum. Og þessari spurningu varð aldrei svarað á einfaldan hátt þannig að enginn gæti efast eftir það. Þótt menn heyrðu boðskap hans, sæju eða reyndu á sjálfum sér kraftaverk hans, gátu þeir verið efins um, að hann væri Kristur. Jesús sagði verkin bera því vitni, hver hann væri. En margir komust hjá því að skilja vitnisburð þeirra sem vitnisburð um Krist. Það var aldrei og verður aldrei unnt að sýna svo óyggjandi fram á sannindi þess sem Jesús sagði um sjálfan sig, að allir hlytu að trúa því. Engar sannanir eru fyrir hendi — engar afdráttarlausar formúl- ur eða rökleiðslur. En hann sagðist vera eitt með Guði föður — sem sagt sonur Guðs, sannur Guð. Hann sagðist vera kominn í heiminn til þess að gefa mönnum eilíft líf, halda þeim í hendi sinni, svo að þeir glötuðust ekki. í tæplega 2000 ár hefur kristin kirkja starfað vegna þess, að menn hafa trúað orðum Jesú. Trúað því, að hann væri Kristur. Trúað því, að hann einn gæfi eilíft líf. Trúað því, að hann væri Guðssonur. Glötun er alls ekkert tískuorð á tölvuöld. Og þó er það baksvið fagnaðarerindisins, að til sé eilíf tilvera án Guðs, og Jesús eina von allra manna til þess að komast undan þeim afdrifum. Hann sagði það reyndar sjálfur í Jóhann- esarguðspj. 14:6. Hann sagðist deyja og rísa upp til þess að ávinna öðrum mönnum sátt við þann Guð, sem við rísum gegn í eigingirni okkar. En þú ert jafn nær og áður. Þú getur hafnað Jesú þrátt fyrir vitnisburð annarra og orð hans sjálfs. Þú getur treyst honum og þegið eilífa lífið sem hann vill gefa. Hver er Jesús þér? Hvað viltu að kirkj- an geri fyrir þig? Við höldum áfram að leita svara vid því hvers fólk vænti af kirkj- unni. í dag birtum við ykkur nokk- ur svör frá ýmsum, sem við höfum hitt á undanförnum dögum. * Ég var ekki kirkjurækin, kirkj- an höfðaði ekki til mín, ég vænti eiginlega einskis af henni. En í vetur gengur elzta barnið mitt tii spurninga og þess vegna fer ég með því til guðsþjónustu á hverj- um sunnudegi eftir ósk prestsins. Ég var boðin innilega velkomin og hef fundið í vetur hvað það er gott að fara reglulega í kirkju. Nei, samt finn ég ekki að kirkjan sé mér samfélag. Það, sem ég vænti af kirkjunni núna, er eig- inlega það að hún haldi áfram að sýna mér hve mikils má vænta af henni ef við viljum taka þátt í því að gera hana að samfélagi okkar. ★ Ég vænti þess að hún hvetji mig til að biðja. Ég hef þurft að mæta ýmsum erfiðleikum í lífinu þótt ég sé ungur og líf mitt virðist ekki flókið. I þessum erfiðleikum hef ég fundið hvað bænin er mik- ils megnug. ★ Mér finnst við sífellt verða ópersónulegri í daglegum sam- skiptum. Eg held að svo mörg okkar sækist í rauninni eftir meiri manneskjulegri hlýju, mér liggur við að segja meiri afskipta- semi í kristilegum kærleika. Það er þetta, sem ég vænti að kirkjan kenni okkur, að vera opnari, af- skiptasamari og kærleiksríkari hvert við annað. ★ Ég óttast ófriðinn í veröldinni, ég treysti kirkjunni bezt til að berjast fyrir friði. ★ Eg hef vænzt mikils af kirkj- unni og fengið mikið. Ég er í bibl- íuleshópi og bænahópi í kirkjunni og ég er smátt og smátt að læra að rækta kærleikann í sjálfri mér og sýna hann án þess að óttast höfnun. Ég vænti þess að kirkjan haldi áfram að kenna mér að lifa lífi mínu eftir orði Drottins. yfir vetrarmánuðina. Þar hafa fermingarbörn verið þátttak- endur undanfarin ár. í vetur hafa bænastundir verið í kirkjunni á föstudagskvöldum kl. 20. Vel þjálfaður kirkjukór er starfandi á Raufarhöfn og hef- ur svo verið frá upphafi, enda gott söngfólk þar og kórnum ætíð verið stjórnað af úrvals fólki. Kórinn hefur æft upp söngdagskrá á hverju ári og farið í söngferðalög, m.a. kom- ið fram í útvarpi. Stjórnandi kórsins nú er Stephan Yates, en hann er jafnframt skóla- stjóri Tónlistarskóla N-Þing- eyjarsýslu. Formaður kórsins er Svava Stefánsdóttir, en hún hefur getið sér gott orð sem sópransöngkona og sungið ein- söng víða við góðar undirtekt- ir. Undirleikari hjá Svövu hef- ur verið Stephan Yates. Við umsjónarmenn þessarar síðu sendum fermingarbörnum og öðrum í sókn Raufarhafn- arkirkju kveðjur og óskum þeim Guðs blessunar. Þá gekk Jesús út þanninn, þyrni og purpurann bar. Sagði: Sjáið þér manninn, sjálfur dómarinn þar. Gyðingar gáfu svar: Burt með bann, svo þeir segja. Sá skal á krossi deyja. Ósk þeirra ein sú var. 3 Orð og afsökun gilti engin í þessum stað, heiftin svo hugann fyllti. Hjartað var forblindað. Síðast þeir sögðu það: Ljóslega lífsstraffs krefði lögmálið, því hann hefði gjört sigguðs syni að. 5 Þá ég heyri, minn herra, hversu þú kvalinn vart, gjörvöll villgleðin þverra. Galztu mín næsta hart, því ég braut mikið og margt. En þá mér guðspjöll greina glöggt þitt sakleysið hreina, hjartað fær huggun snart. 12 Meðan lífs æð er í mér heit, eg skal þig, drottinn, prísa, af hjartans grunni íhverjum reit heiður þíns nafns auglýsa. Feginn vil ég í heimi hér hlýða og fylgja í öllu þér. Lát mér þína liðsemd vísa. 8 Ó, synd, ó, syndin arga, hvað illt kemur afþér. Ó, hversu meinsemd marga má drottinn líða hér, þitt gjald allt þetta er. Blindað hold þig ei þekkti, þegar þín flærð mig blekkti. Jesús miskunni mér. 9 En með því út var Ieiddur alsærður lausnarinn, gjörðist mér vegur greiddur íguðs náðarríki inn og eilíft líf annað sinn. Blóðskuld og bölvan mína burt tók guðs sonar pína. Dýrð sé þér, drottinn minn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.