Morgunblaðið - 17.04.1983, Blaðsíða 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Laus staöa
hjá
Reykjavíkurborg
• Reykjavíkurborg vill ráöa safnvörö til
Ásmundarsafns er sjái um daglega vörzlu og
rekstur safnsins. Góðrar málakunnáttu
ásamt þekkingu og áhuga á höggmyndalist
er krafizt. Starfskjör samkvæmt kjarasamn-
ingum.
Upplýsingar veitir garöyrkjustjóri í síma
18000.
Umsóknir skulu vera skriflegar og greina
m.a. frá menntun og starfsreynslu auk al-
mennra persónulegra upplýsinga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð
fyrir kl. 16.00 föstudaginn 22. apríl 1983.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Landspítalinn
Yfirsjúkraþjálfari óskast við endurhæf-
ingardeild Landspítalans til aðstoðar yfir-
sjúkraþjálfara Landspítalans.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
sendist stjórnarnefnd Ríkisspítala fyrir 9. maí
nk.
Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari Land-
sþítalans í síma 29000.
Hjúkrunarfræöingur óskast á kvenlækninga-
deild 21A.
Hjúkrunarfræöingar óskast til sumarafleys-
inga á skurðstofu Landspítalans.
Hjúkrunarfræöingur óskast til sumarafleys-
inga við sótthreinsunardeild að Tunguhálsi 2.
Hjúkrunarfræöingar óskast á Barnaspítala
Hringsins.
Fóstra óskast frá 1. júlí nk. á Barnaspítala
Hringsins.
Sjúkraliðar óskast til sumarafleysinga á
skurðstofu Landspítalans.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkr-
unarforstjóri Landspítalans í síma 29000.
Meinatæknar óskast á lungnarannsóknar-
stofu.
Upplýsingar veitir deildarmeinatæknir
lungnarannsóknarstofu í síma 29000.
Geðdeildir Ríkisspítala
Hjúkrunardeildarstjóri óskast viö geödeild
Landspítalans frá 1. júlí nk. eða eftir sam-
komulagi.
Hjúkrunarfræöingar óskast til sumarafleys-
inga á hinar ýmsu geðdeildir.
Sjúkraliöar óskast til sumarafleysinga.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkr-
unarforstjóri í síma 38160.
Ríkisspítalar
Reykjavík, 17. apríl 1983.
Saumakonur
Óskum eftir saumkonum til starfa allan dag-
inn, einnig konu í eldhús frá kl. 8 — 2.
Barnaheimili á staðnum.
Upplýsingar veröa veittar á saumastofu Hag-
kaups, Höfðabakka 9, mánudag og þriðju-
dag.
HAGKAUP
Húsgagnasmiðir
Húsgagnasmiðir
Óskum að ráða húsgagnasmiði og aðstoð-
armenn í verksmiðju okkar, aðeins stundvísir
og góðir verkmenn koma til greina.
1. Húsgagnasmiði í vélasal, vana vélavinnu.
2. Húsgagnasmiö í samsetningu.
3. Aðstoðarmenn í vélasal.
4. Aöstoöarmenn í samsetningu og lökkun.
Upplýsingar eftir kl. 6 í verksmiöjunni, ekki í
síma.
GT-húsgögn,
Smiðjuvegi 6.
Hreinn h.f.
Vantar röska menn strax í kertasteypu. Uppl.
gefur verkstjóri á staðnum ekki í síma.
Hreinn h.f.,
Barónsstígur 2.
Framkvæmdastjóri
Lítið útflutningsfyrirtæki óskar eftir að ráöa
framkvæmdastjóra. Verður að geta hafiö
störf sem allra fyrst.
Uppl. um menntun og fyrri störf sendist
augld. Mbl. merkt: „R — 160“.
Gjaldkeri —
bókhaldsþekking
Gjaldkeri með bókhaldsþekkingu óskast til
iðnfyrirtækis. Þarf að geta hafið störf 1. júlí.
Tilboð sendist augl.deild Mbl. fyrir miöviku-
daginn 20. apríl merkt: „S — 159“.
PÁÐNINGAR oskar eítir
WONUSTAN <***=■■
Atvinnurekendur
Við höfum á skrá mikið af fólki til ýmissa*
sumarstarfa.
Einnig höfum við mikiö af hæfileikafólki í leit
að framtíðarstörfum.
Umsóknareyðublöð á skriístoíu okkar.
Umsóknir trúnaðarmál eí þess er óskað.
Ráðningarþjónustan
BÓKHALDSTÆKNI HF
Laugavegi 18 ÍOI Reykjavík
Deildarstjóri Úlíar Steindórsson
sími 25255.
Bókhald Uppgjpr Fjárhald Eignaumsýsla Rádningarþjónusta
Forstöðumaður
skóladagheimilis
é Akureyri
Auglýst er eftir fóstru, þroskaþjálfara, kenn-
ara eða starfskrafti með hliðstæða uppeld-
ismenntun til að gegna forstöðu skóladag-
heimilinu Brekkukoti frá 1. ágúst 1983.
Uppl. um starfið eru veittar á félagsmála-
stofnun Akureyrar, Strandgötu 19b, sími
25880, frá kl. 10 til 15 alla virka daga.
Skriflegar umsóknir þurfa að þerast fyrir 1.
júní 1983.
Dagvistarfulltrúi.
Óskum eftir að ráða
eftirtalið starfsfólk:
Verslunarstjóra í varahlutaverslun
í starf hjá kaupfélagi í nágrenni Reykjavíkur.
Góð verslunarmenntun eða reynsla í verslun-
arstörfum æskileg.
Bókasafnsfræðing
eða mann meö reynslu í hliöstæðum störfum
í hlutastarf við skipulagningu á bóka- og
skjalasafni fyrir teiknistofu.
Deildarstjóra í skódeild
Reynsla í verslunarstörfum æskileg.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá
starfsmannastjóra, er veitir nánari upplýs-
ingar.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
Tölvufræðingur
með margra ára reynslu óskar eftir auka-
starfi á kvöldin og um helgar, t.d. kerfissetn-
ingu, forritun eða ráögjöf. Er vanur bókhaldi.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 25. apríl merkt:
„Tölva — 161“.
Smekkleg
afgreiðslustúlka
óskast í tískufataverslun, framtíðarstarf.
Tilboð merkt: „Stundvís og geðgóð — 137“
sendist augl.deild Mbl. fyrir 22. apríl nk.
Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra í Stokkseyrarhreppi er
laus til umsóknar frá og með 1. júlí 1983.
Umsóknir um starfið ásamt uppl. um fyrri
störf þurfa að hafa borist oddvita Stokkseyr-
arhrepþs fyrir 26. apríl nk.
Upplýsingar um starfið veitir oddviti í síma
99-3267.
Oddviti Stokkseyrarhrepps.
Rafeindatæknir
Ungur íslenzkur rafeindatæknir, menntaður í
Bandaríkjunum með sérþjálfun og eins árs
reynslu í tölvuviðgerðum og forritun, óskar
eftir starfi á íslandi.
Þeir, sem áhuga hafa, sendi nafn, heimilis-
fang og uþplýsingar um starf í boði til af-
greiðslu Morgunblaðsins fyrir 21. þ.m. merkt:
„Tölvustarf 456“.
Óskum eftir að ráða
rafiðnaðarmann
Starfið felst m.a. i uppsetningum, viögerðum
og viðhaldi á tölvum og tölvubúnaði.
Nauðsynlegt er að viökomandi hafi staðgóða
þekkingu í rökrásum og rafeindatækni ásamt
enskukunnáttu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu og
þekkingu á tölvum almennt.
Skriflegar umsóknir er greini m.a. frá mennt-
un og fyrri störfum sendist ACO hf., fyrir 30.
apríl nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum svarað.
Laugaveg 168
Pósthólf 5480
125 Reykjavik
Simi 27333