Morgunblaðið - 17.04.1983, Page 46

Morgunblaðið - 17.04.1983, Page 46
94 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983 Knattspyrnuþjálfari er veikasti hlekkurinn í keðjunni milli stjórnar félagsins og leikmannanna; jafn auðvelt er að reka hann og að ráða — og það, að hann gerir sér grein fyrir því sjálfur, eykur aðeins álagið á honum. Þannig hljóða inngangsorð að grein sem fjallar um störf knattspyrnuþjálfara og allar þær þrautir sem því starfi fylgja. Þegar hinn 63 ára gamli Georg Gawliczek var lagður inn á sjúkrahús sl. ár vegna kransæðastíflu, lét hann eftirfarandi orð falla: „Manni er sómi að því að fórna heilsu sinni fyrir góðan málstað.“ Þessi góði málstaður var sá að koma Hertha Berlin aftur í 1. deildina í knattspyrnu. Guyla Lorant, sem lék með Ungverjum í heimsmeistara- keppninni á móti Vestur-Þjóðverjum í Bern 1954, leit sig og aðra þjálfara öðrum augum: „Við erum erkiflón knattspyrn- unnar, en jafnframt hæstlaunuðu flón í heimi.“ Laun Lorant komust á sínum tíma upp í 100.000.- kr. á mánuði hjá Ein- tracht Frankfurt. Árlega eða áður en keppni hefst í 1. deildinnirleggja blaðamenn og almenningur fram sömu spurn- inguna: „Hver verður fyrstur lát- inn fara ...?“ sannfærð um að fleiri en einn þjálfari, fyrir hin 18 félög í deildinni, verði rekinn frá störfum komandi keppnistímabil. Fyrir yfirstandandi keppnis- tímabil — sem er það 20. frá því deildin var stofnuð — höfðu þjálf- arar orðið 110 sinnum fórnarlömb vegna lélegs árangurs liðs og feng- ið að hirða pjönkur sínar og fara. Forsetann hjá Eintracht Frank- furt dreymdi um það í apríl í fyrra að ráða Branko Zebec sem þjálf- ara keppnistímabilið 1982/ 83, en stjórn féllst ekki á þann ráðahag þar sem hann krafðist 200.000,- kr. mánaðarlauna, en réð í staðinn Austurríkismanninn Helmut Sen- ekowitsch fyrir 100.000.- kr. á mánuði. Þrátt fyrir það stóðst fjár- hagsáætlun þeirra ekki, því eftir 5 leiki var Eintracht Frankfurt f neðsta sæti í deildinni með 2 stig og 45.000 færri áhorfendur en þeir höfðu búist við. Á. 78. starfsdegi sínum fékk Senekowitsch upp- sagnarbréfið. Branko Zebec var ráðinn í hans stað. Zebec féllst á 160.000.- kr. mán- aðarlaun og lagði niður kröfu sína um aukagreiðslu fyrir að halda Eintracht í deildinni, en allt kom fyrir ekki, lítill hagnaður hlaust af sparnaðaráformum stjórnarinnar verðasti þjálfari 1. deildarinnar þýsku, sagði eitt sinn: „Fyrst þeg- ar lélegt lið leikur vel eða gott lið leikur illa, þá er hægt að skella skuldinni á þjálfarann." Ástæður fyrir uppsögn þjálfar- anna í 1. deildinni geta verið margvíslegar. Árið 1972 varð Gyula Lorant að yfirgefa FC Köln þar sem hann hafði látið það eftir ser að standa upp af þjálfara- bekknum og hrópa til forseta fé- lagsins, sem sat í þéttsetinni áhorfendastúku: „Haltu þér svo saman, þú gamla feita svín.“ í Múnchen varð þessum skapbráða Ungverja á að kalla Paul Breitner „vitleysing" og ávíta aðra leik- menn harkalega, því þeir skyldu ekki ruglingslegar útskýringar hans á einhverri leikaðferð. „Ef þið ekki skilja Lorants taktik, þá þið heimskir," sagði hann. Leik- mönnunum fannst þetta fullmikið af því góða og leigðu sér á eigin kostnað völl, þar sem þeir gátu stundað æfingar, meðan Lorant gekk um einn og yfirgefinn á æf- ingavelli Bayern Múnchen. Þetta var árið 1978. Næsta ár á eftir fékk hann eina uppsögnina enn, hjá Schalke 04, en þaðan fór hann til Grikklands til að þjálfa PAOK Saloniki. í einum leik þar fékk hann hjartaslag og lést í maí 1981. Gyula Lorant náði að verða rek- inn hjá sex félögum á átta árum, sem er met hjá þjálfara í deild- inni. En það gekk víðar á ýmsu. Leik Dortmund og Hamburger SV í Bundesligunni er lokið, en Júgóslavinn Zebec (þáverandi þjálfari HSV) sefur enn á bekknum meðan leikmenn hans skipta um föt. jafn skynsamur og Willy Mult- haup; hann átt eftir eitt samn- ingstímbil hjá Borussia Dortmund þegar þeir árið 1966 unnu Evrópu- keppnina, en þá bað hann um lausn frá störfum. „Ég get alla- vega ekki náð lengra með þetta félag,“ sagði hann. Borussia Dort- mund leysti Multhaup frá störfum og leitaði að nýjum þjálfara, en þá varð fyrirliðanum Wolfgang Paul á orði: „Það er alveg sama hvern við fáum í þjálfarasætið — og hvort hann hefur vit á knatt- spyrnu eða ekki. Komið bara með einhvern; við gerum hann fræg- an.“ Þetta var í fyrsta skiptið sem einhver leyfði sér opinberlega að varpa fram þeirri spurningu hvort lið þyrfti í rauninni á þjálfara að halda. Rudi Assauer, sem fram- kvæmdastjóri og tæknilegur ráðgjafi kom Werder Bremen og Schalke 04 aftur í 1. deildina 1981 og 1982, lagði svipaða skoðun fram: „Hver sem er og hefur áhuga á knattspyrnu og kann jafnframt að telja upp að þremur, getur þjálfað vestur-þýska lands- liðið.“ Max Merkel Snúum okkur aftur að þjálfar- anum Max Merkel. Hann er fædd- ur í Vín og ólst upp í austurrískri knattspyrnu, en varð frægur fyrir þjálfarastörf sín í V-Þýskalandi og er enn þann dag í dag, 63 ára að aldri, talinn einn hæfasti og litrík- asti knattspyrnuþjálfarinn. Ekki eru þó allir jafn sáttir við hann frekar en marga aðra sem eru í sviðsljósinu. Stjórnendum félaga er lítt um hann gefið því hann er stöðugt að gagnrýna þá og leik- mönnum finnst hann helst til gamaldags í vinnubrögðum eða eins og segir í greininni, „þremur skrefum frá nútímanum". Auk þess þykir hann oft niðurlægja leikmenn — bæði sem þjálfari og í dálkum sínum í þýska blaðinu „Bild“ sem fjallar um knatt- spyrnu. Sagt er að Max Merkel hafi ætíð hafið þjálfarastarf sitt hjá nýju félagi með því að skipa leik- mönnum að snúa höfðinu til hægri, síðan til vinstri og áfram til skiptis, þar til einn þeirra vog- Knattspyrnuþjálfarar fórna heilsu sinni fyrir málstaðinn enda greiðir félagið kr. 260.000.- í þjálfaralaun, því Senekowitsch er enn á launum, en það hefði þurft að greiða Zebec 200.000.- kr. hefði hann verið ráðinn í upphafi. „Haltu þér saman ...“ Þjálfara hjá Eintracht Frank- furt má eiginlega líkja við geim- fara á Cape Kennedy. Þó er á þeim sá munur að hinn síðarnefndi kemur sjálfviljugur til brottfar- arstarfsins. Zebec er 10. þjálfarinn hjtEintracht frá 1976. Það var í Frankfurt am Main sem knatt- spyrnukennarinn Dettmar Cram- er var rekinn, sömu örlög hlaut Dietrich Weise, sem árið 1981 gerði v-þýska unglingalandsliðið að Evrópumeistara og heims- meistara . Þá er ótalinn Gyula Lorant sem hlaut uppsögn þrátt fyrir 22 leiki í röð án taps. Ef stjórnin og áhangendur eru óánægðir með liðið, er skuldinni jafnan skellt þa þjálfarann, sama hvaða áhrif hann hefur haft á velgengni liðsins. Austurrikismað- urinn Max Merkel, einn athyglis- Uppsögnin kom á jólakvöld Herbert Widmayer var fyrsta fórnarlambið meðal þjálfaranna. Hann náði 9 leikdögum árið 1963 áður en FC Núrnberg sleit sam- vinnu við hann; 4 tapleikir var meira en atvinnurekendur hans gátu þolað. í andstöðu við stjórnmálamenn t.d. sem fá það hlutverk að stjórna og fá yfirleit til þess ákveðinn tíma, er þjálfari brottrækur hve- nær sem er allan ársins hring, og þar er engin miskunn sýnd. Erich Riedel, forseti 1860 Múnchen, sendi þjálfara félagsins bréf á sjálft jólakvöldið þar sem hann tilkynnti honum að búið væri að leysa hann frá störfum. Falleg jólakveðja það. Branko Zebec var ekki kominn heim af spítalanum eftir magauppskurð þegar hann móttók bréf frá VfB Stuttgart þar sem honum var tjáð að hann skyldi leita sér að starfi annars staðar. E.t.v. má líkja þjálfara við loft- fimleikamann sem sýnir án örygg- isnets; allt er svo hverfult og óör- uggt, sama hvað hann leggur hart að sér. Max Merkel var rekinn frá tveimur félögum, sem hann hafði nýlokið við að gera að vestur- þýskum meisturum. Merkel er þekktur fyrir að tala áður en hann hugsar — og jafnvel lævís að eðl- isfari. Þegar hann var hjá 1860 Múnchen sagði hann um Petar Radenkovic, hinn vinsæla júgó- slavneska markmann: „Áður fyrr reið hann asna; nú keyrir hann um á Mercedes Benz — og það á hann mér að þakka.“ Svona gálgahúmor átti ekki upp á pallborðið hjá Rad- enkovic og meðan aðrir skemmtu sér yfir þessari, þrátt fyrir allt meinlausu, setningu, hóf Radenko- vic þegar í stað að vinna að því að Merkel yrði rekinn. Málinu lyktaði með atkvæðagreiðslu sem Merkel tapaði með 14 gegn 3. Þjálfun og þjáningar FC Núrnberg vann 1. deildar keppnina árið 1968 undir þjálfara- stjórn Max Merkel; og hlaut hann viðurnefnið „Der Meister-mach- er“. Næsta keppnistímabil á eftir féll Núrnberg niður — án Merkel, sem hafði löngu áður verið beðinn um að fara. Merkel gat þó ekki skotið sér undan ábyrgðinni á lé- legum árangri liðsins; hann hafði lagt svo hart að leikmönnunum, þar á meðal Johnny Hansen, sem var nýgræðingur í atvinnumanna- liði, að hann var nærri búinn að gera út af við þá. „Þetta var ekki þjálfun heldur hinar mestu þján- ingar," sagði Johnny Hansen. Max Merkel hélt viðurnefni sínu og hlaut eitt til viðbótar þ.e.a.s. „þrælahaldarinn". En hver er ástæðan fyrir því að Max Merkel beitti leikmenn sína svo mikilli höriu að þeir voru hver af öðrum frá leik skv. læknisráði? Ástæðan gæti verið taugaspenna — því kröfurnar sem gerðar voru til hans og liðsins voru miklar og svo vitundin um að sérhver leikur FC Núrnberg yrði erfiður því allir lögðu mikið kapp á að sigra meist- arana. Max Merkel hefði átt að vera aði sér að spyrja hann um tilgang- inn með þessari æfingu. Þá hló Merkel hrossahlátri og svaraði: „Ef einhver spyr ykkur hvort þið kunnið að leika knatt- spyrnu, þá skuluð þið gera þessa æfingu." Allt frá því að Max Merkel kom fyrst til V-Þýskalands hefur hann haft dálæti á Múnchen, enda gaf hann það í skyn þegar hann var að þjálfa Schalke 04 í Gelsenkirchen: „Það fallegasta við Schalke er akbrautin til Múnchen." Daginn eftir var hann rekinn frá Schalke. Hann dró enga dul á að hann lang- aði til að verða þjálfari hjá Bay- ern Múnchen og notaði hvert tæk- ifæri til að koma sér í mjúkinn hjá leikmönnunum og lofaði þá óspart um leið og hann rakkaði þjálfar- ana, Udo Lattek og Dettmar Cramer, niður, án tillits til þess góða árangurs sem þeir höfðu náð með Bayern Múnchen. „Með þeim snjöllu leikmönnum sem Bayern Múnchen hefur yfir að ráða er hægt að þjálfa liðið bréflega — og jafnframt að tryggja liðinu meistaratitil Evr- A

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.