Morgunblaðið - 15.06.1983, Page 1
56 SIÐUR
133. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
Prentsmiðja Morgunbladsins
Bretland:
Steel gefur í
skyn afsögn
London. 14. júní. AP.
DAVID STEEL, leiðtogi Frjálslynda flokksins breska, gaf í dag í
skyn, að hann hygðist segja af sér formennsku í flokknum. Ef af
verður er hann þriðji stjórnarandstöðuleiðtoginn, sem það gerir í
kjölfar kosningasigurs Margaret Thatchers og íhaldsflokksins.
„Ég er langt í frá ákveðinn í að
leiða flokkinn í einum kosningun-
um enn,“ sagði Steel, sem nú er
hálffimmtugur og einn alvinsæl-
asti stjórnmálamaður í Bretlandi.
Fyrir tveimur dögum lýsti
Michael Foot, leiðtogi Verká-
mannaflokksins, yfir, að hann ætl-
aði að segja af sér á þingi flokks-
ins í haust og í gær ákvað Roy
Jenkins, leiðtogi Jafnaðarmanna-
flokksins, að fara að dæmi hans.
Kom afsögn Jenkins nokkuð á
óvart.
Yfirlýsing Steels, þótt óljós sé,
hefur komið stjórnmálaskýrend-
um og öðrum mjög í opna skjöldu
og telja sumir hana aðeins brellu í
því baktjaldamakki, sem jafnan
fer fram innan flokkanna eftir
kosningar. Steel var helstur
hvatamaður að kosningabandalagi
frjálslyndra og jafnaðarmanna og
má vera ánægður með útkomuna
fyrir hönd síns flokks. í kosning-
unum 1979 fékk Frjálslyndi flokk-
urinn 11 menn kjörna en 17 nú á
móti sex þingmönnum samstarfs-
flokksins.
í viðtali við breska ríkisútvarpið
í dag sagðist Steel ekki ætla að
hrapa að neinu í þessu máli og
kvað afsögn sína geta oltið á því
hvort kosningabandalag frjáls-
lyndra og jafnaðarmanna ætti sér
lengri lífdaga auðið. Steel er sjálf-
ur mjög áfram um það og telur
það eina svar miðjumanna við
hægristefnu íhaldsflokksins og
vinstristefnu Verkamannaflokks-
David Steel, leiðtogi
Krjálslvndaflokksins.
Ítalía:
Kviknakin
í kosninga-
baráttunni
Trieste, 14. júní AP.
EINN frambjóðandi
kommúnistaflokksins í sveitar-
stjórnakosningunum í Trieste á
Ítalíu hefur nú tekið upp á þvf aö
kasta af sér klæðum í hvert sinn,
sem hann flytur fólkinu fagnað-
arboðskapinn, samflokks-
mönnum sínum til mikillar hrell-
ingar.
Frambjóðandinn, ungfrú
Dora Pezzilli, 36 ára gömul,
gengur undir nafninu „fatafell-
an“ í kosningabaráttunni, en
hún hefur getið sér mikið orð
sem ötull málsvari vændis-
kvenna. I viðtali við Rómar-
blaðið La Republica kvaðst hún
vilja með framferði sínu leggja
áherslu á „dapurlegt hlutskipti
áhugamanna um mannlega
nekt, sem sviptir hafa verið
frelsi sínu“ og einkum og sér í
lagi væri henni þó uppsigað við
að fólki væri bannað að stripl-
ast um allsnakið á baðströndum
og á almennum sundstöðum.
„Meðframbjóðendur hennar
eru heldur óhressir með þetta
uppátæki," var haft eftir for-
manni kommúnistaflokksins á
staðnum, en ungfrú Pezzilli hóf
kosningabaráttuna í síðustu
viku með þremur ræðilm, og var
að sjálfsögðu í evuklæðunum
einum þegar hún flutti þær.
Enn sprengt í Belfast
Sprengjusérfræðingar breska hersins í Belfast á Norður-frlandi virða
fyrir sér verksummerkin eftir tvær sprengingar, sem urðu I fyrrinótt í
einu helsta verslunarhverfl Belfastborgar. Miklar skemmdir urðu á
byggingunni, tveimur kvenfataverslunum, en manntjón ekkert. Hefur
IRA, írski lýðveldisherinn, nú þegar eignað sér verkið.
Páfi kemur til Póllands á morgun:
Chernenko
sýnist
traustur
í sessi
Moskvu, 14. júní. AP.
KONSTANTIN U. Chernenko flutti f
dag á fundi miðstjórnar sovéska
kommúnistaflokksins yfirgripsmikla
ræðu um kommúníska hugmynda-
fræði og þykir það benda til, að hann
sé fastari á fótunum innan flokksins
en talið var.
f ræðu sinni lýsti Chernenko yfir
stuðningi við Andropov og hvatti
síðan til, að kommúnísk hug-
myndafræði yrði einfölduð og
hreinsuð af allri villutrú. Sagði
hann, að Sovétmenn yrðu að auka
áróðurinn jafnt utanlands sem inn-
an til að vega upp á móti „móður-
sýkislegri" hatursherferð Banda-
ríkjastjórnar á hendur þeim. Eink-
um þó meðal sovésks æskulýðs og
gegn þeim „undirróðursöflum, sem
koma fram í sauðargæru trúarinn-
ar“.
„Kommúnistar eru sanntrúaðir
guðleysingjar en þeir vilja ekki
troða skoðunum sínum upp á nokk-
urn mann,“ sagði Chernenko. „Þeg-
ar við stöndum hins vegar frammi
fyrir staðreyndunum, undirróðri og
brotum á sósíalískum lögum, þá
breytum við eins og stjórnarskráin
býður okkur."
Chernenko hefur verið talinn
mesti andstæðingur Andropovs og
í vor þótti víst, að honum hefði ver-
ið ýtt til hliðar í forystu flokksins.
Ræða hans í dag bendir ekki til
þess en sumir stjórnmálaskýrend-
ur hallast að því, að hér hafi
Chernenko verið að syngja sinn
„svanasöng" sem ráðamaður í Sov-
étríkjunum samkvæmt samkomu-
lagi við Andropov og stuðnings-
menn hans. Chernenko hefur nú
eitt ár um sjötugt.
Áfengi bannað
í páfaheimsókn
Lech Walesa segist staðráðinn í að hitta páfa
Varsjá, 14. júní. AP.
STJÓRNVÖLD í Póllandi hafa
bannað áfengissölu í þeim átta hér-
uðum landsins, sem Jóhannes Páll
páfi mun fara um í heimsókn sinni
en hún hefst nk. fimmtudag. Er það
Líbanon:
Sögulegur samhugur á þingi
Bcirut, 14. júní AP.
LÍBANSKA þingið samþykkti í dag
nær einróma samkomulagið við ísra-
ela um brottflutning erlends herliðs
frá landinu. Þykir þessi samhugur
múhameðsmanna og kristinna
marka þáttaskil og gera stjórninni
eftirleikinn auðveldari.
Eftir tveggja daga umræðu á
þingi um samkomulagið var það
samþykkt með 65 atkvæðum gegn
tveimur en fjórir þingmenn sátu
hjá. „Líbanon er á framtíðarvegi,"
sagði Shafik Wazzan, forsætisráð-
herra, nokkru áður en trúbræður
hans tóku höndum saman við
kristna menn í stuðningi sínum
við samkomulagið og Amin Gema-
yel forseta.
„Eining þjóðarinnar er nú meiri
en nokkru sinni," sagði Saeb Sal-
am, fyrrum forsætisráðherra og
mestur áhrifamaður meðal mú-
hameðstrúarmanna í Líbanon, eft-
ir atkvæðagreiðsluna. „Öflugt og
frjálst Líbanon er betri trygging
fyrir öryggi Sýrlendinga en
ómáttugt ríki og sjálfu sér sund-
urlynt.“
Samþykkt þingsins gefur Gema-
yel forseta fullt umboð til að full-
gilda samkomulagið, en beðið
verður með framkvæmd þess í
trausti þess, að Sýrlendingar sjái
að sér og hverfi frá andstöðu við
það.
að sögn málgagna ríkisstjórnarinnar
liður í þeim öryggisráöstöfunum,
sem gripið hefur verið til vegna
heimsóknarinnar. Lech Walesa
kvaðst í dag vera staðráöinn í að
fara til fundar við páfa um helgina
þegar hann verður staddur í Czest-
ochowa.
í Varsjá, fyrsta viðkomustað
páfa, gekk áfengisbannið í gildi sl.
mánudag en á morgun mun það
ganga í gildi í Skierniewice og
verður við það miðað, að það komi
ávallt til framkvæmda nokkrum
dögum áður en páfi er væntanleg-
ur á hverjum stað. Dagblaðið
Rzeczpospolita, málgagn ríkis-
stjórnarinnar, sagði, að tilskipun-
in um áfengisbannið hefði verið
undirrituð í nafni Jaruzelskis
hershöfðingja.
„Ég er harðákveðinn í að fara til
Czestochowa um helgina," sagði
Lech Walesa í dag í viðtali við
fréttamann AP-fréttastofunnar
en neitaði hins vegar að tjá sig
Lech Walesa
Páll páfi
frekar um ferðina. Walesa fór
fyrir nokkru fram á leyfi frá
vinnu í skipasmíðastöðvunum í
Gdansk til að geta hitt páfa að
máli en var neitað um það. Var
neitunin þá aðeins munnleg og
segist Walesa enn bíða eftir skrif-
legri neitun við beiðninni.
Jan Litynski, félaga í „Kor“,
samtökum pólskra andófsmanna
og eins helsta ráðgjafa Samstöðu,
er nú leitað víða um Pólland.
Hafði hann fengið leyfi úr fang-
elsinu þar sem hann bíður dóms
fyrir undirróður gegn stjórnvöld-
um ásamt fjórum félögum sínum
en gaf sig ekki fram við fangelsis-
yfirvöld að leyfinu loknu.