Morgunblaðið - 15.06.1983, Side 3

Morgunblaðið - 15.06.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNl 1983 3 Norrænir þingmenn og ráðherrar funda Efnahagsmálanefnd Norðurlanda- ráðs sat allan daginn í gær á fundi í Alþingishúsinu, þar sem fjallað var um ýmis mál, m.a. mikla samstarfs- áætlun, sem ráðherranefndin er með í takinu. Fóru m.a. fram umræður um þróunarhjálp, um tölvutækni og áhrif hennar á atvinnulíf og ekki síst um leiðir til að brjótast út úr efnahags- kreppu þeirri sem er í löndunum. Komu á fundinn fulltrúar frá bygg- ingar- og tréiónaðarsamböndunum og gerðu grein fyrir sínum málum. Sátu fundinn um 20 þingmenn frá Norður- löndunum fimm. Fyrir íslands hönd sátu fundina alþingismennirnir Páll Pétursson og Pétur Sigurðsson, sem tóku við af aðalfulltrúunum sem orðn- ir eru ráðherrar. í gær og í dag komu til landsins ráðherrarnir sem hafa Norður- landaráð, en þeir eru Christian Christiansen frá Danmörku, As- björn Haugstvedt frá Noregi, Svante Lundkvist frá Svíþjóð, Gustav Björkstrand frá Finnlandi, en þeir munu ásamt samstarfsráð- herra Islands, Matthíasi Á. Mathie- sen, undirrita í kvöld breytingar á samstarfssamningnum vegna auk- innar aðildar Færeyinga, Græn- lendinga og Álandseyinga. í dag starfar hér forsætisnefndin á fundum í Alþingishúsinu, en í henni eiga sæti þingmennirnir Anker Jörgensen, fyrrv. forsætis- ráðherra frá Danmörku, Pár Sten- bach frá Finnlandi, Páll Pétursson frá íslandi, Odd With, forseti norska þingsins og Ulf Andersen frá Svíþjóð. Og í kvöld verður sam- eiginlegur fundur forsætisnefndar og samstarfsráðherranefndar. Breyttur menningar- sáttmáli Norðurlanda Á MÁNUDAG skrifuðu menntamála- ráðherrar Norðurlanda undir sam- komulag um breytingu á norræna menningarsáttmálanum frá 1971, og ganga breytingarnar í þá átt að rýma fyrir meiri þátttöku Færeyinga, Græn- lendinga og Álandseyinga í menn- ingarsamstarfinu í samræmi við bætta stöðu varðandi aðild þeirra í Norður- landaráði. Ragnhildur Helgadóttir, mennta- málaráðherra íslands, fór til Gautaborgar til að skrifa undir samkomulagið ásamt Mimi Stilling Jakobsen, menntamálaráðherra Dana, Gustav Björkstrand mennta- og vísindamálaráðherra Finna, Lars Roar Langslet, mennta- og vísindamálaráðherra Noregs, og menntamálaráðherra Svía, Lenu Hjelm-Wallen. Fór undirskriftin fram í Listasafni Gautaborgar síð- degis á mánudag. Menningarmálanefndin hefur margvísleg verkefni með höndum. Hún hefur nú umsjón með um 40 stofnunum og áætlunum og er fjár- hagsáætlun hennar um 113 milljón- ir danskra króna. Skrifstofurnar eru í Kaupmannahöfn. Ríkisstjórnin: „Ekki ástæða til að kveðja Al- þingi saman nú“ — Þykir þetta ekki skynsamleg afstaða, segir Ólafur G. Einarsson formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins „VIÐ HÖFUM ekki tekið endanlega afstöðu til þess hvenær þing eigi að koma saman en það er rétt, að við höfum skrifað stjórnarandstöðunni bréf þess efnis að ríkisstjórnin telji ekki ástæðu til þess að kveðja Alþingi saman nú,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra, en ríkis- stjórnin ákvað á fundi sínum í gær- morgun að Alþingi yrði ekki kvatt saman í sumar. Bréf ríkisstjórnarinnar til for- manna þingflokka stjórnarandstöð- unnar er svohljóðandi: „Með tilvís- un til bréfs yðar og annarra for- manna þingflokka stjórnarandstöð- unnar hefur ríkisstjórnin fjallað um tillögu yðar um að þing verði kvatt saman hið fyrsta. Að vand- lega athuguðu máli hefur ríkis- stjórnin á fundi sínum í dag komist að þeirri niðurstöðu, að ekki væri ástæða til að kveðja Alþingi saman nú, enda hefur verið gengið örugg- lega úr skugga um að útgefin bráðabirgðalög njóti meirihluta- stuðnings á Alþingi." „Við höfum ekki tekið afstöðu til hins, en að óbreyttu sé ég ekki ástæðu til að þing komi saman fyrr en á venju- legum tíma, 10. október. Hins vegar finnst mér of snemmt að segja nokkuð um það því þeir hlutir kunna að koma upp að það verði talið nauðsynlegt," sagði forsætis- ráðherra að lokum. Formenn þingflokka stjórnar- andstöðunnar komu saman til fund- ar í gær eftir að þeim barst bréf forsætisráðherra. Þeir lýstu allir yfir óánægju með afstöðu ríkis- stjórnarinnar og sögðu m.a. að þeim kæmi þessi niðurstaða sér- staklega á óvart þar sem meirihluti virtist meðal alþingismanna fyrir þinghaldi í sumar. Ólafur G. Ein- arsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, sagði í gær- kvöldi: „Mér þykir þetta ekki skyn- samleg afstaða hjá ríkisstjórninni. Það segi ég vegna þess að það kom fram að stjórnarandstaðan var reiðubúin til að semja um stutt þinghald í sumar til að afgreiða bráðabirgðalögin og kjósa í trúnað- arstöður. Ég hefði talið það heppi- legra að ljúka því, en ríkisstjórnin hefur valið þann kostinn að ætla haustið til umræðna um þessa laga- setningu alla, sem er töluvert um- ræðuefni og í það fer þá tíminn fram að áramótum spái ég, sem hefði verið betur nýttur í annað.“ Leiðrétting í FRÉTT Mbl. í gær af prestvígslu í Dómkirkjunni kom fram sá mis- skilningur, að sr. Andrés Ólafsson gegndi starfi kirkjuvarðar á Hólma- vík. Hið rétta er, að eftir að sr. Andrés lét af prestskap á Hólmavík hefur hann starfað sem kirkjuvörð- ur við Dómkirkjuna í Reykjavík og það var meðhjálparastarfið þar, sem sr. Þórir Stephensen tók af honum svo sr. Andrés gæti verið vígsluvottur við athöfnina. Þá sagði í frétt Mbl., að sr. Pétur Ingjaldsson væri sóknarprestur Húnvetninga, en hann er fyrrver- andi prófastur þeirra. Mbl. biðst velvirðingar á þessum mistökum. Afganski flóttamaðurinn M.A. Assil, sem er hér á landi í boði Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta við Háskóla íslands, gekk í gær á fund Geirs Hallgrímssonar utanríkisráðherra og tók ÓI.K.M. þessa mynd, er þeir ræddust við. Geir Hallgrímsson sagði í samtali við Mbl. eftir fundinn, að örlög afgönsku þjóðarinnar væru hörmuleg, og öðrum þjóðum víti til varnaðar að Ijá árásar- og ofbeldisöflum fangstað á sér. Það þýðir ekkert að æsa sig út af tómum Tópaspakka. Þú verður úara að sætta þig við að... ...sumir fósér —tvær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.