Morgunblaðið - 15.06.1983, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ1983
Falklandseyjar:
Ársafmæl-
is sigurs
Bretanna
minnst
SUnley, Falklandseyjum, 14. júní. AP.
RÉTTU iri eftir að sigur Breta í
deilunni um Falklandseyjar varð
Ijós má enn sjá ýmis ummerki átak-
anna á eyjunum. Uppbyggingin eftir
átökin gengur hiegt og íbúarnir
verða enn að sætta sig við 4.000
manna varðlið Breta á eyjunum.
Framtíð eyjanna er einnig umvafin
spurningamerkjum á alla vegu.
íbúar eyjanna héldu daginn í
dag hátíðlegan til að minnast
þess, að ár er nú liðið frá því átök-
unum lauk. Frelsisdagsins, eins
og ákveðið hefur verið að nefna
14. júní framvegis, var þó aðeins
minnst á látlausan hátt með guðs-
þjónustu. Upphaflega átti að af-
hjúpa minnisvarða um sigurinn í
dag, en hann er enn ekki kominn
til eyjanna og verður sú athöfn
því að bíða betri tíma.
Tveir hand-
teknir á slóð
Mitterrands
Ajacio, Korsíku, 14. júní. AP.
LOKADAGUR heimsóknar Mitterr-
ands, Frakklandsforseta, til Korsíku
er í dag. Forsetinn heimsótti í morg-
un samyrkjubú á eynni. Lögreglan
handtók í gær 26 ára gamlan mann,
sem þótti grunsamiegur, þar sem
hann fylgdist með heiðursfylgd for-
setans. Reyndist hann vera með
býssu á sér auk þess að vera með-
limur í þjóðernishreyfingu Korsíku-
búa.
Fyrr í gærkvöldi handtók lög-
reglan annan mann eftir að riffill
hafði fundist í farangursgeymslu
bifeiðar hans við öryggisleit. Bíl
hans var lagt við fyrirhugaða
akstursleið forsetans. Maðurinn,
sem er Parísarbúi, var færður til
yfirheyrslu. M
■ ■■ '
\V/
ERLENT,
AP.
Læknislyf við herpes. Dr. Peter Sutton, sem í fyrradag greindi frá því að
hann hefði fundið lyf, sem læknaði kynsjúkdóminn herpes, sést hér á
tali við einn samstarfsmanna sinna, dr. Bryan Griffiths, í rannsókna-
stöðinni í Porton Down í Englandi. Sutton heldur á hylki með þessu
undralyfi, sem kemur eins og sending af himni ofan fyrir milljónir
herpes-sjúklinga um allan heim.
Sængaði Olov Palme
hjá Shirley MacLaine?
Samkvæmt lýsingum í nýútkom-
inni bók leikkonunnar heims-
þekktu, Shirley MacLaine, þykir
flest benda til þess að hún hafi
staðið í ástarsambandi við Olov
Palme, forsætisráðherra Svía.
Palme er ekki nafngreindur í bók-
inni, aðalsögupersónan heitir
Garry, en allar upplýsingar í bók-
inni þykja benda til þess, að við
hann sé átt.
Þegar bókin kom fyrst út þóttu
nokkrir aðrir koma heim og sam-
an við lýsinguna, sem gefin var á
aðalpersónu hennar. Var hún sögð
stærsta ástin í lífi leikonunnar,
leiðtogi jafnaðarmanna i landi
sínu, þekktur á alþjóðavettvangi
og frá vestrænu landi.
Þeir, sem helstir þóttu koma til
greina umfram Palme, voru David
Owen, Michael Foot og Dennis
Healey frá Bretlandi.auk Andrew
Peacock frá Ástralíu. Nafn Foot
þótti aðallega koma til greina
vegna þess að hann á afmæli
sama dag og aðalsögupersónan í
bókinni.
1 bók MacLaine eru stuðst við
allar tilvitnanir og samtöl beint
úr raunveruleikanum, svo og lík-
amlegt atgervi aðalpersónunnar.
Hins vegar er andliti hans ekki
nákvæmlega lýst til þess að erfið-
ara sé um vik við að upplýsa hver
aðalsögupersónan er. Aftur á
móti er frá því skýrt, að stjórn-
málamaður þessi hafi verið
kvæntur og átt í erfiðleikum í
hjónabandi.
„Ég skal segja ykkur við hvern
er átt í bókinni," sagði MacLaine
á blaðamannafundi í Dallas í Tex-
as við útkomu bókarinnar. Tugir
blaðamanna biðu í ofvæni eftir
því að geta skýrt lesendum sinum
frá sannleikanum, en urðu að
sætta sig við eftirfarandi svar:
„Það er ekki Margaret Thatcher."
Af frásögn í málgagni danska
jafnaðarmannaflokksins, Aktuelt,
má ráða, að blaðið og aðrir fjöl-
miðlar á Norðurlöndum telja sig
vissa i sinni sök, er þeir nefna
nafn Olov Palme í þessu tilliti.
Hann kom fram í þættinum
Kvállsöppet með MacLaine 1977
og hálfu öðru ári síðar kom hún í
heimsókn til Svíþjóðar svo lítið
bar á. Skömmu eftir það sást til
þeirra tveggja í Tívolí-garðinum í
Kaupmannahöfn.
Til þess að styrkja grun manna
enn frekar hefur Palme ekkert
Flexibo
hillusamstæðan er framleidd úr valinni massífri furu og
lökkuð með sýruhertu lakki.
Hillusamstæðan er hentug fyrir heimilið eöa sumarbústaö-
inn. Seld í einingum, auðveld og fjölbreytileg uppsetning.
RlRUHÚS ÍÐ HF.
SUÐURLANDSBRAUT30
105 REYKJAVfK • S: 86605
Mafían hrellir kardinála í Palermo:
Enginn sótti messuna
í fangelsiskapellunni
— þjóðvardliðar syrgðir í annarri borg á Sikiley
Palermo og Monreale, Sikiley, 14. juni. AP.
YFIRMENN Mafíunnar á Sikiley, sem um árabil hafa skellt skollaeyrum við
herferð Salvatore Pappalardo kardinála gegn henni, létu í dag til skarar
skríða gegn honum og það á hans eigin yfirráðasvæði, nefnilega innan veggja
fangelsiskapellu einnar.
Er hann kom til Ucciardone-
fangelsisins í Palermo til að halda
þar reglubundna guðsþjónustu
sást hvorki tangur né tetur af
föngunum, sem venjulega hafa
sótt guðsþjónustur hans vel.
Höfðu forvígismenn Mafíunnar
búið svo um hnútana, að enginn
glæponanna sótti athöfnina.
Kardinálinn dokaði við í klukku-
stund, en hélt að því búnu á brott
er ljóst var, að enginn kæmi til að
hlýða á boðskap hans.
Fjölmiðlar á Ítalíu hafa brugð-
ist ókvæða við þessum aðgerðum
Mafíunnar og talið þau argasta
guðlast. Þá segist lögreglan í Pal-
ermo fylgjast mjög náið með ferð-
um kardinálans af ótta við að hon-
um kunni að verða sýnt banatil-
ræði.
Kardinálinn hefur hins vegar
haldið sínu striki, án þess að
minnast nokkru sinni á atvikið í
fangelsiskapellunni. Hefur hann
við hvert tækifæri, sem gefist hef-
ur, hvatt almenning til að stemma
stigu við uppgangi þessara glæpa-
samtaka.
Þriggja daga sorg hófst í dag í
bænum Monreale á Sikiley til þess
að minnast þriggja þjóðvarðliða,
sem létu lífið á átökum við útsend-
ara Mafíunnar um helgina. Þús-
undir verkamanna á Sikiley mót-
mæltu þessum morðum með því að
mæta ekki til vinnu í nokkrar
klukkustundir í dag. Meira en 50
manns hafa fallið á Sikiley í ár í
átökum, sem rekja má til Mafí-
unnar. Hefur bæði verið um að
ræða átök yfirvalda og hennar
Olov Palme, forsætisráðherra
Svía.
viljað láta hafa eftir sér um inni-
hald bókarinnar, en hinir bresku
kollegar hans hafa allir staðhæft,
að þeir hafi ekkert átt saman við
Shirley MacLaine að sælda.
Shirley MacLaine, leikkonan
heimsfræga.
A meðan menn velta því fyrir
sér hvort bókin snúist að miklu
leyti um Palme eða einhvern ann-
an selst hún eins og heitar lumm-
ur.
NOXYDE
gúmmíteygjanleg
samfelld húð
fyrir málmþök.
• Er vatnsheld.
• Inniheldur cinkromat og hindrar
ryðmyndun.
• Ódýr lausn fyrir vandamálaþök.
LAUSN ER ENDIST ÓTRÚLEGA
S. Sigurðsson hf.
Hafnarfirði, símar 50538 og 54535.