Morgunblaðið - 15.06.1983, Síða 15

Morgunblaðið - 15.06.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983 15 Indira Gandhi í Danmörku Indira Gandhi, forsætisráðherra Indlands var í opinberri heimsókn í Danmörku í vikunni. A meðalfylgjandi mynd má sjá hvar hún gluggar í indverskri útgáfu á ævintýrum H.C. Andersens, sem komu út 1947. Heimurinn á hægri leið út úr efnahagskreppunni — atvinnuleysi ekki talid minnka í ár Ba.seI og Wa.shington, 14. júní. AP. HELDUR virðist vera að birta til í horfum efnahags þjóða heimsins ef marka má fregnir frá Sviss. í ársskýrslu frá alþjóðlegum banka, sem sér um fjármagnsflutninga seðlabanka hinna ýmsu vestrænu rfkja sem aðild eiga að honum, segir að „hið versta sé nú afstaðið“. Bankinn varaði á hinn bóginn við því, að háir vextir í Bandaríkj- unum væru sá einstaki þattur í efnahagslífi heimsins, sem hvað erfiðast væri að yfirstíga á leið til betri efnahags. Aftur á móti sagði í ársskýrslunni, að ljóst væri, að verðbólga væri á undanhaldi í flestum stærstu iðnríkjum Vest- urlanda. Frá Washington bárust hins vegar þær fregnir í dag, að ekki væri von á því að atvinnuleysið í heiminum minnkaði neitt að ráði í ár. Er sú niðurstaða byggð á könn- unum á vegum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hins vegar telur sá er skýrsluna ritaði, Kanadamaðurinn Lloyd Kenward, að batahorfur megi sjá þegar til lengri tíma er litið. Skýringuna á atvinnuleysinu í heiminum segir Kenward vera í megindráttum fjórþætta. Fyrst beri að telja stórfellda fólksfjölg- un í heiminum, þá aukinn fjölda fólks á þeim aldri er stundar vinnu, þá stóraukinn fjölda þeirra, sem vilja vinna og loks síðast en ekki síst hlutfallslega fækkun at- vinnutækifæra. I skýrslu sinni, sem tekur til sjö af stærstu iðnríkjum Vesturlanda, segir, að á sjöunda áratugnum hafi atvinnuleysið að meðaltali verið 3,5% í þessum löndum en 8% á miðju ári í fyrra. Alls eru það 22 milljónir atvinnulausra. Stuttfréttir Karl og Díana til Kanada Lundúnum, 14. júní. AP. KARL Bretaprins og eiginkona hans, Diana, héldu í dag áleiöis í ferðalag til Kanada. Stendur ferð þeirra í 18 daga og munu þau því missa af eins árs afmæli sonar þeirra, Vilhjálms, sem verður eft- ir í Bretlandi. Hjónin voru sammála um það, að betra væri að skilja Vilhjálm eftir heima, auk þess sem hann væri enn svo ungur, að hann tæki ekkert eftir því þótt þau misstu af afmælis- veislunni hans. Carol Thatcher skrifar um kosninga- baráttu móður sinnar London, 14. júní. AP. FYRSTA bókin um kosningasig- ur Margaret Thatcher kemur á markað á fimmtudag, viku eftir að kosningar fóru fram í Bret- landi og höfundur hennar er Car- ol Thatcher, dóttir forsætisráð- herrans. Carol, sem er 29 ára gömul og starfar hjá dagblaðinu Daily Telegraph, kallar bók sína „Kosningadagbók: Með Margaret Thatcher í barátt- unni“. Handritið var sent til útgefendanna jafn óðum með- an á fjögurra vikna kosninga- baráttunni stóð eftir að Thatcher boðaði til kosn- inganna 9. maí síðastliðinn. Bókin fór í prentun síðastlið- inn laugardag og talsmaður út- gáfufyrirtækis Sidgwick og Jackson, sem gefa bókina út, segir að leigður hafi verið fjöldi flutningabifreiða til að bókin verði örugglega komin í allar bókabúðir á á Bretlandi á fimmtudag, 16. júní. Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: HULL/GOOLE: Jan .......... 27/6 Jan ............ 11/7 Jan .............25/7 ROTTERDAM: Jan ............ 28/6 Jan ............ 12/7 Jan ............ 26/7 ANTWERPEN: Jan ............ 29/6 Jan ............ 13/7 Jan ............ 27/7 HAMBORG: Jan ............ 16/6 Jan ............. 1/7 Jan ............ 15/7 Jan ............ 29/7 HELSINKI: Helgafell ...... 15/7 LARVIK: Hvassafell ..... 20/6 Hvassafell ...... 4/7 Hvassafell ..... 18/7 Hvassafell ...... 1/8 GAUTABORG: Hvassafell ..... 21/6 Hvassafell ...... 5/7 Hvassafell ..... 19/7 Hvassafell ...... 2/8 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell ..... 22/6 Hvassafell ...... 6/7 Hvassafell ..... 20/7 Hvassafell ...... 3/8 SVENDBORG: Helgafell ...... 17/6 Hvassafell ..... 23/6 Dísarfell ...... 27/6 Hvassafell ...... 7/7 Helgafell ...... 19/7 ÁRHUS: Afganistan: Átök hers og lögreglu vegna herskráningar Nýju Dehlí, Indlandi, 14. júní. AP. Veður víða um heim Amsterdam 19 heiórikt Akureyri 9 skýjaó Aþena 26 skýjaó Barcelona 25 helórikt Bankok 36 heiðríkt Beirúl 28 heiórikt Berlin 18 skýjað BrUssel 22 heiórfkt Buenos Aires 11 rigning Chicago 32 heiórikt Dyflínni 15 heióríkt Feneyjar 25 heiðskirt Genf 23 heióskírt Helsinki 23 hoiöríkt Hong Kong 30 heióríkt Jóhannesarborg 12 rigning Kaíró vantar Kaupmannahöfn 20 skýjaó Las Palmas 27 mistur Lissabon 31 heióskírt London 18 heiðrikt Los Angeles 29 heiórfkt Madrid 31 heióskírt Malaga 23 mistur Mallorca 27 léttskýjað Mexíkóborg 30 heióskírt Miami 29 rigning Moskva 22 skýjaó New York 35 heióskirt Nýja Delhí 37 heióríkt Osló 20 heiórikt Parfs 21 skýjaö Peking 35 heirfkt Perth vantar Rio de Janeiro 30 skýjaó Róm 29 heióríkt Reykjavfk 9 skýjaó Róm 28 heióskírt San Francisco 28 skýjaó Stokkhólmur 24 heióríkt Sydney vantar Tel Aviv 29 heióríkt Tókýó 29 heióríkt Vancouver 20 skýjaó Vín 23 heiöskfrt TIL ATAKA kom á milli afganska hersins og lögreglu í Kabúl í síðustu viku þegar deilt var um hvort skrá bæri ungan pilt á götu úti i herinn. í lok deilunnar lágu nokkur lík fyrir utan skráningarstöðina, að því er haft var eftir vestrænum diplómat. Átök þessi urðu þann 6. júní sl. í Khair-Khana-hverfinu í borginni og hófust þegar lögreglumenn í skráningarstöð hersins stöðvuðu konu og pilt, sem leit út fyrir að vera yngri en 18 ára gamall. Kröfðust þeir þess, að pilturinn yrði skráður í herinn, en konan sagði hann ekki nógu gamlan. Orðaskakið magnaðist og skyndilega löðrungaði einn lög- reglumannanna konuna. Það mun hafa verið þá sem hermennirnir hófu afskipti af málinu og ætluðu að stilla til friðar. Tókst þá ekki betur til en svo að átök blossuðu upp á milli nokkurra hermanna og lögreglumanna. Var skotum hleypt af, en ekki er vitað hvor aðilinn átti upptökin. Mjög harkalega hefur verið gengið fram við skráningu nýliða í afganska herinn. Þegar innrás Sovétmanna var gerð fyrir hálfu fjórða ári taldi herinn 85.000 manns, en talið er að um 35.000 hermenn hafi ýmist flúið land eða gerst liðhlaupar. Franskir sósíalistar: Fylgistap í lykilhópum París, 13. júní. AP. RÍKISSTJÓRN sósíalista í Frakklandi virðist vera að tapa fótfestunni á meðal þeirra hópa, sem talið er að hafi ráðið úrslit- um í síðustu kosningum, og áttu stærstan þátt í stórsigri þeirra. Kemur þetta fram í skoðana- könnun á vegum dagblaðsihs Le Monde. Könnun þessi var fram- kvæmd á vegum Sofres-fyrir- tækisins og náði til 3000 manns, sem allir höfðu kosið sósíalista í síðustu kosningum. Könnunin leiddi í ljós, að vonbrigðin reyndust mest hjá ungu fólki, 42% hjá fólki á aldrinum 20—34 ára, og mið- aldra skrifstofumönnum 40%. Þá reyndust 40% allra kvenna, sem kusu Mitterrand síðast, óánægðar með störf hans. Helgafell ........ 17/6 Hvassafell ....... 23/6 Dísarfell ........ 27/6 Hvassafell ........ 7/7 Helgafell ........ 19/7 GLOUCESTER MASS.: Skaftafell ....... 21/6 Skaftafell ....... 19/7 Jökulfell ........ 28/7 HALIFAX, KANADA: Skaftafell ....... 23/6 Skaftafell ....... 21/7 ^SKIPADEIID SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101 Innihurðir Hagstætt verð/góð greiðslukjör Timburverzlunin Völundur hf. KLAPPARSTÍG 1 S. 18430 / SKEIFAN 19 S. 85244

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.