Morgunblaðið - 15.06.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
19
TIA nir ATTP Reykiavík
ílAVlIVAU 1 Akureyri
skoðunarferð um bæinn m.a. með
viðkomu í hraðfrystihúsinu. Laust
upp úr hádegi er forsetinn vænt-
anlegur til Suðureyrar og verður
snætt í mötuneyti Fiskiðjunnar
Freyju, þar sem hreppsnefnd Suð-
ureyrarhrepps tekur á móti for-
setanum. Klukkan 14 verður opið
hús í barnaskólanum í boði
hreppsnefndar.
Forsetinn er væntanlegur til
fsafjarðar laust fyrir klukkan 16
föstudaginn 24. júní. Bæjarstjórn
ísafjarðar mun taka á móti for-
seta íslands í Faktorshúsinu i
Neðstakaupstað. Ekið verður að
Austurvelli þar sem forsetinn
mun ávarpa mannfjölda. Að lok-
inni samkomu á Austurvelli er
fyrirhugað að forsetinn aki um
bæinn og haldi síðan til Hnífsdals.
Undir kvöldið er fyrirhugað að
forsetinn skoði heilsugæslustöð-
ina á ísafirði.
Kvöldverður verður snæddur í
menntaskólanum í boði bæjar-
stjórnar og um kvöldið verður opið
hús í Menntaskóia ísafjarðar.
Laugardaginn 25. júni heldur for-
setinn að Hlíf, íbúðum aldraðra
við Torfunes. Klukkan 10 árdegis
er forsetinn væntanlegur til Súða-
víkur. Opið hús verður í félags-
heimilinu. Varðskip mun flytja
forsetann að Reykjanesi í Djúpi
þar sem hádegisverður verður
snæddu- í boði hreppsnefnda
Snæfjallahrepps, Nauteyrar-
hrepps, Reykjafjarðarhrepps og
Ögurhrepps. Síðdegis er forsetinn
væntanlegur til Vigur í boði hjón-
anna Sigríðar Salvarsdóttur og
Baidurs Bjarnasoi.ar. Klukkan
17.30 er forsetinn væntanlegur til
Bolungarvíkur og með heimsókn-
inni þangað lýkur för forseta ís-
lands til Barðastrandarsýslna og
ísafjarðarsýslna.
Eigendur Sæluhússins, AAalbjtfrg Árnadóttir og Júlíus Snorrason.
Nýtt veitingahús
Dalvík, 7. júní.
Laugardaginn 4. júní sl. var opnað nýtt veitingahús á Dalvík. Hingað til
hefur veitingarekstur farið fram í Víkurröst, en nú er svo komið að ekki
verður um slíkt að ræða þar nema
þarfnast orðið verulegra endurbóta.
Hið nýja veitingahús hefur |
fengið nafnið „Sæluhúsið" og er í
húsnæði Ýlis hf. við Hafnarbraut
á Dalvík þar sem áður var starf-
rækt saumastofa. Það eru sömu
eigendur að Sæluhúsinu og Ýli,
þau Júlíus Snorrason og Aðal-
björg Árnadóttir ásamt börnum
þeirra. Að sögn Júlíusar var eng-
inn rekstrargrundvöllur fyrir
saumastofu og hafði öll starfsemi
legið þar niðri í langan tíma. Til
að nýta húsnæðið var því ákveðið
að gera tiiraun með starfrækslu
veitingahúss.
Innréttingar eru hannaðar af
Davíð Haraldssyni en hann hefur
mikið fengist við teikningar og
skipulag á veitinga- og skemmti-
stöðum og má þar nefna Bautann
og Smiðjuna á Akureyri. Alls get-
ur húsið tekið 60—70 manns í sæti
og er reynt að skipta salnum í
tvennt með það í huga að sam-
ræma veitingasölu með og án
þjónustu í sal. Sótt hefur verið um
á stærri samkomum þar sem húsið
vínveitingaleyfi og eftir nokkra
umfjöllun hefur bæjarstjórn fall-
ist á að mæla með því að húsið fái
umbeðið leyfi í tengslum við mat-
sölu.
Öll aðstaða er einkar hugguleg
og skemmtileg og bera iðnaðar-
mönnum sem unnu verkið gott
vitni en fjöldi manns vann að
breytingu húsnæðisins og innrétt-
ingasmíð og tók verkið aðeins 1
mánuð. Yfirsmiður var Þórir
Pálsson á Dalvík.
Eftir að hafa séð matseðil húss-
ins er ljóst að í Sæluhúsinu verður
um fjölbreytta rétti að ræða en
auk þess er hægt að fá sérrétti
pantaða. Matreiðslumaður er Jón
Kristjánsson frá Akureyri.
Til að fullkomna sæluna býður
Sæluhúsið svo upp á gistingu en
það hefur fengið heimavist Dal-
víkurskóla á leigu nú í sumar og
stendur því hverjum sem vill til
boða gisting í vistlegum herbergj-
um heimavistar. Fréturiurar
Strígaskor í
skemmtilegum
sumariítum
komniraftur. Verðkr. 299.-
Sími póstverslunar er 30980
Forseti íslands heim-
sækir Vestfirðina
FORSETI íslands, Vigdís Finnbogadóttir, heimsækir Barðastrandarsýslur
dagana 21. til 23. júní næstkomandi og ísafjarðarsýslur 23. til 26. júní. í för
með forseta verður Halldór Reynisson, forsetaritari, og kona hans.
Á hádegi þriðjudagsins 21. júni
tekur sýslumaður á móti forsetan-
um á sýslumörkum A-Barða-
strandarsýslu í Gilsfjarðarbotni.
Borðhald verður í Bjarkariundi í
boði sýslunefndar A-Barðastrand-
arsýsiu. Síðdegis er fyrirhugað að
heimsækja Þörungavinnsluna á
Reykhólum og síðan haldið til
Flateyjar. Klukkan 20 verður
borðhald í Flókalundi í boði sýslu-
nefndar V-Barðastrandarsýslu og
síðan opið hús fyrir Barðstrend-
inga.
Miðvikudaginn 22. júní er fyrir-
hugað að halda i Rauðasands-
hrepp. Forsetinn mun fara að
Látrum og út á bjargið ef vel viðr-
ar. Hádegisverður verður snæddur
í Fagrahvammi í boði Rauðsend-
inga. Klukkan 15 mun forsetinn
opna minjasafnið að Hnjóti. Síðan
verður haldið í Sauðlauksdal og
staldrað við Garðar frá Patreks-
firði, en skipinu var siglt fyrir
nokkrum árum í fjöru í Skápadal.
Undir kvöldið er forsetinn vænt-
anlegur til Patreksfjarðar og
verður snætt í félagsheimili Pat-
reksfjarðar í boði hreppsnefndar.
Opið hús verður í félagsheimilinu
um kvöldið.
Fimmtudaginn 23. júni er fyrir-
hugað að leggja upp til Tálkna-
fjarðar og verður opið hús í Múla-
kaffi. Um klukkan 11.30 er forset-
inn væntanlegur til Bíldudals og
verður hádegisverður snæddur í
félagsheimilinu Baldurshaga.
Opið hús verður í félagsheimilinu
og klukkan 15 heldur forsetinn
áleiðis til Hrafnseyrar. Sýslumað-
ur ísafjarðarsýslu ásamt sýslu-
nefnd mun taka á móti forsetan-
um á Dynjandisheiði. Klukkan 16
er forsetinn væntanlegur til
Hrafnseyrar og þar verður opið
hús í boði hreppsnefndar Auð-
kúluhrepps. Klukkan 18 er forset-
inn væntanlegur til Þingeyrar.
Kvöldverður verður snæddur í fé-
lagsheimilinu í boði sýslunefndar
V-ísafjarðarsýslu. Um kvöldið
verður opið hús í barnaskólanum í
boði hreppsnefnda Þingeyrar-
hrepps og Mýrahrepps.
Föstudaginn 24. júní er forset-
inn væntanlegur til Flateyrar
klukkan 9.30. Hreppsnefndir Flat-
eyrarhrepps og Mosvallahrepps
munu taka á móti forseta og
fylgdarliði í barnaskólanum. Þar
verður opið hús. Fyrirhuguð er
Látið Hörpu gefa tóninn
Grænn
♦♦ i» ðli
ofund
Gerðu nágrannan grænan
af öfund — málaöu húsiö meö
Hörpusilki
því nú er Hörpu-sumar