Morgunblaðið - 15.06.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
21
Frá aðalfundi Bandalags kvenna í Reykjavík.
Frá Bandalagi kvenna:
Styðja tillögu um eflingu
heimilisfræðslu í skólum
AÐALFUNDUR Bandalags kvenna í Reykjavík, sem haldinn var í febrúar sl.
gerði eftirfarandi samþykkt, sem undirbúin var af uppeldis- og skólamála-
nefnd Bandalagsins:
1. Aðalfundurinn lýsir ánægju
sinni yfir „tillögu til þings-
ályktunar um eflingu heimilis-
fræði í grunnskólum" sem nú
liggur fyrir Alþingi, mál
131/1982. Jafnframt leyfir
fundurinn sér, að beina þeirri
áskorun til hæstvirtra alþingis-
manna, að þeir sýni málinu
þann áhuga, að afgreiða þings-
ályktunartillöguna jákvætt á
þessu þingi.
2. Aðalfundurinn þakkar „frum-
varp til laga um bann við
ofbeldiskvikmyndum sem lagt
hefur verið fram á 105. löggjaf-
arþingi 1982. Fundurinn telur
frumvarpið mjög tímabært en
vill jafnframt benda á, að eigi
lög um þetta efni, að hafa
eitthvert raungildi, þarf að
breyta eða fella niður setningu
í 2. málsgr. frumvarpsins, sem
er svohljóðandi: „Bannið tekur
ekki til kvikmynda þar sem
sýning ofbeldis telst eiga rétt á
sér vegna upplýsingagildis
kvikmyndarinnar eða vegna
listræns gildis hennar." Jafn-
framt þakkar fundurinn fram-
boð „frumvarp til laga um
breytingar á lögum nr. 52/1960
um vernd barna og ungmenna"
mál 144/1982.
3. Aðalfundurinn þakkar fræðslu-
yfirvöldum Reykjavíkurborgar
og Mjólkursamsölu Reykjavík-
ur, að hafin er sala á daglegum
nestispökkum í fjórum grunn-
skólum Reykjavíkur, og að
ákveðið hefur verið, að gefa öll-
um grunnskólum borgarinnar
kost á nestispökkum næsta
skólaár. Þessir nestispakkar
hafa mælst mjög vel fyrir af
öllum hlutaðeigendum — skóla-
stjórum — nemendum og að-
standendum þeirra. Jafnframt
beinir fundurinn því til
menntamálaráðuneytis og for-
ráðamanna framhaldsskóla, að
sem fyrst verði tekin upp sala á
nestispökkum í þeim fram-
haldsskólum borgarinnar, sem
hafa ekki sjálfir aðstöðu til
þess að framreiða hádegisverð-
arhressingu fyrir nemendur
sína.
Aukið öryggi barna
Tillaga barnagæslunefndar var
samþykkt:
1. Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík, beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til borgaryf-
irvalda, að beita öllum tiltekn-
um ráðum til að auka öryggi
barna í umferðinni, þ.á m. er
nauðsynlegt að auka kröfur til
ökumanna um hæfni til aksturs
og gera stórátak til þess að
draga úr umferðarhraða í íbúð-
arhverfum, t.d. með upphækk-
unum, auknum merkingum og
með því að lækka leyfilegan há-
markshraða. Fundurinn minnir
á að árið 1983 er norrænt um-
ferðar-öryggisár.
2. Aðalfundurinn beinir þeirri
áskorun til foreldra og forráða-
manna barna, að þeir hafi
frumkvæði um fræðslu barna
sinna í umferðinni, enda er
þeim málið skyldast. Jafnframt
skal bent á, að ekki er nóg að
krefjast alls af öðrum, svo sem
ökumönnum og skólum.
17. júni í Reykjavík:
Útihátíð í miðbænum
— kvöldskemmtun
í Laugardal
DAGSKRÁ 17. júní hátíöarhaldanna í Reykjavík að þessu sinni veröa meö
svipuöu sniöi og undanfarin ár nema hvaö nú hafa borgaryfirvöld faliö
Æskulýösráöi Reykjavíkur aö annast
framkvæmd og dagskrárgerö.
Fram að hádegi verður dagskrá-
in með hefðbundnum hætti en hún
hefst kl. 10.00 með því að Markús
Örn Antonsson leggur blómsveig
að leiði Jóns Sigurðssonar í
kirkjugarðinum við Suðurgötu.
Síðan kl. 10.40 hefst hátíðardag-
skrá við Austurvöll. Þar mun for-
maður Æskulýðsráðs Reykjavík-
ur, Kolbeinn H. Pálsson, setja há-
tíðina. Þá leggur forseti íslands
blómsveig frá íslensku þjóðinni að
minnisvarða Jóns Sigurðssonar og
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, flytur ávarp. Því
næst verður ávarp fjallkonunnar
og Karlakór Reykjavíkur syngur
og Lúðrasveitin Svanur leikur. •.
Klukkan 11.15 verður guðsþjón-
usta í Dómkirkjunni, sr. Valgeir
Ástráðsson predikar og dómkór-
inn syngur ásamt Sigríði Ellu
Magnúsdóttur.
Eftir hádegið verða hátíðar-
höldin í miðbæ Reykjavíkur og
hefjast þau kl. 14.00. Þar verður
boðið upp á ýmislegt og má til
dæmis nefna að á Melavelli munu
félagar úr Fornbílaklúbbi íslands
störf þjóöhátíöarnefndar og sjá um
standa fyrir akstursþrautakeppni.
í Hljómskálagarðinum verða skát- w
ar með tjaldbúðar- og útistörf, í
Lækjargötu mun jazz-hljómsveit
skemmta og við útitaflið munu
stórmeistararnir Friðrik ólafsson
og Guðmundur Sigurjónsson tefla
skák.
Klukkan 15.20 hefst skrúðganga
frá Hlemmtorgi og verður gengið
að Arnarhóli þar sem barna- og
unglingaskemmtun hefst kl. 16.00.
Að lokinni skemmtun á Arnarhóli
verður á vegum leikhópsins „Svart
og sykurlaust" götuleikhús og
mun hópurinn fara um Lækjar-
götu, Lækjartorg og Austurstræti.
Um kvöldið verður síðan kvöld-
skemmtun í Laugardalshöll og
hefst hún kl. 20.45. Þar munu leik-
arar og starfsmenn flytja söng og
leikatriði um borgarlífið.
í miðbæ Reykjavíkur, nánar til
tekið í Lækjargötu og á Lækjar-
torgi, hefjast síðan kl. 21.30 dans-
leikir þar sem hljómsveitirnar
Galdrakarlar og Kikk koma fram.
Gert er ráð fyrir að skemmtun-
inni ljúki kl. 02.00 eftir miðnætti.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Takið eftirl
Honeybee Pollen S. blómatrævl- ■
ar, hin fullkomna fæóa Sölu-
staöur Elkjuvogur 26. síml
34106. Kem á vlnnustaöl ef
óskaö er.
Slguröur Ólafsson
Tónlist
Stúlka ekkl yngri en 17 ára
óskast í þjóölagatríó. þarf aö
geta sunglö. Svar sendlst augl.
delld Mbl. merkt: „Trió — 8710-,
fyrir 21. júni nk.
Citroen GSA Passas
'81 ekinn 13.400 km til sölu. Tll-
boð. Uppl. í síma 18771 eflir kl.
5.
2ja—3ja herbergja
ibúö óskast fyrlr starfsmann
okkar. Nánari upplýsingar í sima
16576 á skrifstofufima.
Samband isl. samvinnufélaga
Starfsmannahald.
þjónusta
Bílasprautun Garöars,
Skipholti 25
Bílasprautun og réttingar,
greiósluskilmálar símar 20988
og 19099, kvöld- og helgarsími
37177.
KFUM og KFUK,
Amtmannsstíg 2 B
Samkoma i kvöld kl. 20.30. Séra
Árni Bergur Sigurbjörnsson tal-
ar. Anntoril og Þröstur Eiríksson
sjá um tónlistarþátt.
Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
Miövikudaginn 15. júní kl. 20 er
sióasta skógræktarferöin i
Heiömörk í sumar. Frítt fyrir
þátttakendur. Fararstjóri:
Sveinn Ólafsson.
Feröafélag Islands.
17.—19. júní
Ferö í Þórsmörk
Nánari uppl. á skrifstofunni,
Laufásvegi 41, simi 24950.
Fartuglar.
íslendingar
Ferðist ódýrt og
áhyggjulaust.
Ferðist innanlands.
Kynnist eigin landi
6, 2 og 19 daga faröir. Brottfarlr
alla mánudaga frá 27. júní til 22.
ágúst.
Feröist meö Úlfari.
Úlfar Jacobsen Feröaskrifstofa.
Sími: 13491 og 13499.
Hörgshlíð
Samkoma i kvöld kl. 8.
ÚTIVISTARFERÐIR
Útivistarferöir
Helgin 16.—19. júni
1. Kl. 18. Skaftafell — Öræfi.
Gönguferöir. TJaldglsting.
2. Kl. 18. Öræfajökull.
3. Kl. 20. Þórsmörk. Gist í nýja
Utivistarskálanum Básum.
Gönguferöir. Uppl. og fars. á
skrlfst. Lækjarg. 6a, s. 14606.
Miövd. 15. júní
Kl. 20. Kvöldganga út í biáinn.
Verð 150 kr. Létt ferö fyrlr alla.
Fimmtud. 16. júnf
Kl. 20. Þjóóhátíöarganga á Esju.
(Heimkoma kl. 1 e.m.j. Verö 130
kr. frítt f. börn. Brottför frá BSl,
bensínsölu.
Jónsmessuferö: Viö Djúp og
Drangajökull. Fuglaparadísin
Æöey. Góö gisting i Dalbæ.
23.—26. júni. Sjáumst!
Útlvist.
FERDAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Helgarferóir 16.—19. júni
1. 16.—19. júní, kl. 20. Skaga-
fjöröur — Litla Vatnsskarö —
Laxárdalur — Sauóárkrókur —
Tindastól — út tyrir Skaga. Gist
i svefnpokaplássi á Húnavöllum
og Sauóárkróki.
2. 17,—19. júní, kl. 08. Þórs-
mörk. Gönguferöir um nágrenn-
iö. Fararstjórl: Siguröur Krist-
jánsson. Á laugardaginn veröur
etnt til gönguferöar inn á Emstr-
ur. Fararstjóri: Pétur Guö-
mundsson.
Farmiöasala og allar upplýsingar
á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Feröafélag Islands.
JUtjrrjim&Iiittfc
MetsöhHod á hverjum degi!
Höfóar til
.fólksí öllum
starfsgreinum!
Utihurðir
Hagstætt verð/góð gre/ðslukjör
Biðjið um myndalista ísíma 18430
Timburverzlunin Völundur hf. KLAPPARSTÍG 1 S . 18430 / SKEIFAN 1 9 S. 85244