Morgunblaðið - 15.06.1983, Side 23

Morgunblaðið - 15.06.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983 23 ast við að „Bjössi í Berjaneskoti" stæði þar framarlega í flokki. Þegar tóm gafst hér í Reykja- vík, snerist hann til liðs við þann félagsskap sem honum þótti standa sér næst. Hann starfaði í Sjómannafélagi Reykjavíkur, en þegar við kynntumst vann hann fyrir Blindrafélagið. Hann mun hafa átt drjúgan þátt í fjárafla- starfsemi þess og stóð fyrir bygg- ingu stórhýsis þess við Hamrahlíð í Reykjavík. Síðan hætti hann störfum þar. Ekki munu allar vinnustundir hans þar hafa verið reiknaðar til kaupgreiðslna. Fyrir honum vakti jafnan að sjá góðan árangur af starfi sínu. Einmitt þessum þætti í hugar- fari og starfi Björns kynntist ég vel. Hann var fjölmörg ár gjald- keri Rangæingafélagins í Reykja- vík, tók við því starfi 1960 meðan ég var þar í stjórn. Og þar var ekki kastað til höndunum sem Björn tók við starfi. Hann skipulagði innheimtu félagsgjalda með því að fá allmarga sjálfboðaliða til sam- starfs, þannig að allir voru ánægð- ir, óvirkir félagar sem gjarnan vildu leggja sinn skerf til félags- ins, virkari félagsmenn sem sóttu aðalfund til að fylgjast með starf- semi félagsins, og við í stjórninni sem vildum afla fjár til að „eitt- hvað væri hægt að gera“ af því sem var á prjónunum. Og að sjálfsögðu átti Björn metið í söl- unni á þeim bókum sem félagið gaf út. Hann var svo í stjórn fé- lagsins með litlum hléum allt til aðalfundar 1982. Stundum þótti honum helst til margir félagsmenn vera áhugalitl- ir um málefni þess. Þá skrifaði hann í Gljúfrabúa, blað félagsins (nafnið var frá honum komið og hann hratt blaðinu af stað). Það voru eldheitar hvatningargreinar í anda ungmennafélaganna gömlu sem kveiktu glóð áhuga og fram- farahugar í æsku aldamótakyn- slóðarinnar. Þessum eldmóði hélt Björn fram undir það síðasta. Þegar ég leit til hans í bana- legunni, hafði hann nokkrar áhyggjur af því hvernig til tækist með félagið okkar, vonandi þó hið besta. Mér er minnisstæð ferð okkar nokkurra úr félaginu austur að Hamragörðum þegar Rangæinga- félagið var að hefja samvinnu við Skógræktarfélag Rangæinga um trjárækt þar og sumardvalarað- stöðu í bæjarhúsunum. í förinni voru meðal annarra Andrés Andr- ésson klæðskeri frá Hemlu og Björn Andrésson. Það var enginn öldungsbragur á körlunum þegar austur kom! En slíkum hughrifum kann ég ekki að lýsa með orðum. — Og alla tíð var Björn hrókur alls fagnaðar í ferðalögum og á samkomum félagsins. Hann mun hafa verið kominn um áttrætt þegar hann fótbrotnaði á hálku. Nokkrum mánuðum seinna var hann aftur farinn að dansa á fé- lagsskemmtun. Annar þáttur í starfi Björns fyrir Rangæingafélagið var við dálftinn skógarblett sem félagið hafði fyrir löngu helgað sér í Heiðmörk. Árum saman stóð hann fyrir hópferðum félagsmanna þangað, til að hirða blettinn og snyrta. Nú saknar gróður þar vin- ar i stað. Allan þennan áhuga kunnu menn að meta, og Björn var að makleikum gerður að heiðursfé- laga Rangæingafélagsins. — Sum- um þykir átthugafélaög tilgangs- lítil. En Birni var það ljóst að sá Hinn 28. maí sl. fór fram í Stykkishólmi jarðarför þessarar vinkonu minnar að viðstöddu fjöl- menni. Séra Gísli Kolbeins jarð- söng og minntist hennar að verð- leikum. Hún lést hér á sjúkrahús- inu 22. maí eftir árs sjúkralegu, 81 árs að aldri. Magðalena var fædd 6. febr. 1902 að Syðri-Þverá í Vesturhópi. Þar var hún ekki lengi, því hún var tekin í fóstur að Harrastöðum í sömu sveit. Snemma vandist hún því að bjarga sér svo sem önnur ungmenni þeirra tíma. Þá var vinnan fyrir öllu og það þá helst að verða ekki öðrum til byrði. Hún fór ung suður til Reykjavíkur til að afla sér vinnu og þekkingar. Meðal annars lá þá leiðin að Korp- úlfsstöðum, en um þær mundir var reisn þeirra hin mesta, knúin fram af stórhug og fyrirhyggju okkar mesta athafnamanns, Thor Jensen. Oft minntist hún þeirra öndvegistíma. Þar kynntist hún manni sínum, Finni Sigurðssyni múrarameistara frá Stykkishólmi, sem hún síðar giftist og flutti með til Stykkishólms og þar stóð henn- er illa settur sem finnur ekki til tengsla við neinar sérstakar æsku- slóðir né fólkið þar, og að einmitt þarna er vettvangur átthagafé- laga: að styrkja gömul og góð kynni fólks sem annars hittist sjaldan eða aldrei og að skapa ný kynni. Slík starfsemi styrkir ræktarsemi og tryggð og eflir fé- lagsþroska. Þessa eiginleika átti Björn í ríkum mæli. Árni Böðvarsson Björn J. Andrésson, Leynimýri, fæddist þann 25. apríl 1896 og lést þann 5. júní sl. Með Birni er genginn enn einn af aldamótakynslóðinni, kynslóð sem lifði tímana tvenna, þeirri kynslóð sem byggði grunn að þeirri velmegun sem við nú búum að, þar sem vinnusemi, sparsemi og nægjusemi sátu í fyrirrúmi, eiginleikar sem eru of mörgum Is- lendingum fjarri nú. ar starfsvettvangur æ siðan. Magðalena og Finnur áttu hér eitt af skemmtilegustu heimilum í Hólminum þegar ég kom hingað fyrir rúmum 40 árum. Kom þar margt til og ekki síst glaðlyndi þeirra beggja. Finnur var sérstak- ur með að sjá broslegar hliðar lífs- ins og því komu margir á þeirra heimili. Ég átti þar marga stund með Finni þegar ég var að semja gamanvísur og leikþætti fyrir skemmtanir sem hér voru margar á þeim tíma. Öll félög héldu sínar árshátíðir og fyrir þær þurfti að semja dagskrá. Gamanvísur voru þá eins og ætíð nauðsynlegar til að koma fólki í gott skap. I þeim átti Finnur marga góða hugmynd og gott að leita til hans og er það saga út af fyrir sig. Oft gat Magðalena bætt við og leiðrétt. Hún kunni vel að meta alla gleði. Finnur var hér umfangsmikill bæði í starfi og félagsmálum og kona hans studdi hann með dáð- um. Þau settu virkilega svip á bæ- inn og öll mannamót sem þau komu á. Finnur var góður liðs- maður í Iðnaðarmannafélaginu, Það kom fljótt í ljós að Björn var mikill félagshyggjumaður og starfaði hann að ungmennafélags- málum heima í héraði. Hugsjónir og starf þeirrar ágætu hreyfingar áttu vel við lunderni hans og var hann brautryðjandi um mörg verkefni á vegum Ungmennafé- lagsins Eyfellings, Austur-Eyja- fjöllum. Þegar Björn flyst til Reykjavíkur gerist hann félagi í Rangæingafélaginu og gegndi þar mörgum trúnaðarstörfum um ára- bil en lengst af var hann gjaldkeri félagsins. í öllum félagsstörfum hjá Rangæingafélaginu komu hans góðu eiginleikar vel i ljós. Hann skynjaði vel gildi samvinnu og samheldni og með samstilltu átaki má gera margt sem fáum er aftur á móti ofvaxið. Björn vann félaginu af mikilli ósérhlífni og lagði mikið upp úr þvi, að náið persónulegt samband myndaðist milli félagsmanna og taldi aldrei eftir sér sporin fyrir félagið. Eng- Sjálfstæðisfélaginu, hreppsnefnd og um skeið oddviti hennar. Þau eignuðust tvo drengi sem einnig hafa unnið Hólminum sitt gagn og þeirra niðjar. Magðalena tók mikinn þátt i störfum kvenfélagsins og sá oft um ýmsa þætti þess félags. Davíð Stefánsson segir í einu sinna snilldarkvæða: „Hún fer að engu óð, er öllum mönnum góð og vinnur verk sin hljóð." Þessi orð inn var ötulli við að virkja fólk til samstarfs fyrir félagið ef á þurfti að halda og lét hann aldrei sitt eftir liggja meðan heilsa og kraft- ar leyfðu. I heiðurs- og þakkar- skyni hafði hann verið kjörinn heiðursfélagi Rangæingafélagsins fyrir nokkrum árum. Björn bjó yf- ir mikilli átthagatryggð og Rang- æingafélagið átti hug hans allan. Starfið fyrir það var honum lífs- fylling. Þegar félagið fékk aðstöðu í Hamragörðum, vann hann ötul- lega að því að endurreisa gömlu húsin og dytta að bænum. Hann vissi sem var, að þessi aðstaða tengdi burtflutta Rangæinga hér- aði sínu. í dag, hinn 15. júní 1983, kveðj- um við félaga okkar og vin Björn J. Andrésson, f.h. Rangæingafé- lagsins er honum þökkuð öll störf og drengskapur við félagið fyrr og síðar. Við vottum öllum aðstandend- um innilega samúð. Dóra Ingvarsdóttir, formaður geta allir sem kynntust þessari ágætu konu tekið undir, svo sann- arlega hvar sem hún fór, lagði hún gott til allra máia, enda átti hún góða vini sem vel kunnu að meta hana. Þeim fækkar óðum sem ég átti samleið með fyrstu ár mín í Stykkishólmi og gerðu þau svo viðburðarík og ánægjuleg. Þeim heimilum fækkar sem maður heimsækir. Þetta er gangur dags- ins í dag. En minningarnar lifa. Það verður seint sem ég gleymi Magðalenu og Finni og þeirra velgjörðum, seint sem ég gleymi þeirra viðmóti og glaðværð sem ósjálfrátt dró mig að heimili þeirra og mörg voru sporin þang- að. Því er þökkin efst í huga mér nú þegar ég kveð góða vinkonu. Finn- ur var farinn á undan. Hann lést árið 1972. Það varð Magðalenu þungt áfall enda, voru þau svo ein- staklega samrýnd hjón. Það var mitt lán að eiga þessi indælu hjón að vinum. Og nú þeg- ar ég rita þessi minningarorð eru mér efst í huga kærar minningar og um leið og ég enn á ný endurtek þakklæti mitt, bið ég vinkonu minni allrar farsældar á nýjum vettvangi, þar sem ég veit að hún hefir átt að fagna vini í varpa og endurnýja þau bönd sem brustu í bili. Guð blessi minningu þessara góðu vina minna og mætu hjóna. Arni Helgason Minning: Magðalena Hinriks- dóttir Stgkkishólmi SUMARTILBOÐ A MYNDAVELUM FRA Kostaboð á Disknum, Kodamatic- og EK-línunni. Vió fognum einum mynd- rœnasta tíma arsins með eítir- minnilegu sumartilboði: Fram til 15. júli veitum við 30-60% aíslatt aí eítirtöldum KODAK myndavelum HANS PETERSEN HF UMBOÐSMENN UM LAND ALLT.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.