Morgunblaðið - 15.06.1983, Page 32
Sími 44566
RAFLAGNIR
samvirki JS\/
lorijMiwMstfoíífr
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
.■ ....... ■■■■■' ■ ■ ■—
^/\skriftar-
síminn er 830 33
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga:
43 sveitarfélög
skorti tekjur
fyrir útgjöldum
— 83 fengu fólksfækkunarframlög
JÖFNUNARSJÓÐUR sveitarfélaga greiddi 43 sveitarfélögum 15,1 milljón
króna í aukaframlög um sl. áramót. Þar af hlutu fjögur meira en eina
milljón, fjögur milli hálfrar og heillrar milljónar, tólf milli þrjú og fimm
hundruð þúsund, tólf frá tvö til þrjú hundruð þúsund og ellefu undir eitt
hundrað þúsund. Aukaframlag úr Jöfnunarsjóði fá sveitarfélög, sem skortir
tekjur til greiðslu lögboðinna eða óhjákvæmilegra útgjalda vegna lágra skatt-
tekna.
Þá fengu 83 sveitarfélög fólks-
fækkunarframlög úr Jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga, en það er „allt
að meðalútsvari íbúa í landinu
margfaldað með íbúafækkunar-
tölu hlutaðeigandi sveitarfélags",
segir í nýútkomnu hefti Sveitar-
stjórnarmála.
Meðalútsvar á íbúa 1982 var kr.
5.780,-, en samtala íbúafækkunar í
viðkomandi sveitarfélögum var
578.
Lögbannsmálið:
Málskostnaðurinn
til starfsmannafélags
strætisvagnanna
SAMÞYKKT var á fundi borgarráðs
síðastliðinn Töstudag, að tillögu
borgarstjóra, að 30.000 króna máls-
kostnaður sem borgarsjóði var til-
dæmdur í lögbannsmáli verðlags-
stjóra og Verðlagsstofnunar gegn
Lengsta
svifflug
á íslandi
SETT VAR innanlandsmet í svif-
flugi á laugardag er Sigmundur
Andrésson flaug Astir-svifflugu
sinni frá Sandskeiði að Fossi á
Síðu, en það er um 190 kílómetra
vegalengd. Flugið tók sex stundir
og 23 mínútur.
Eldra innanlandsmetið í lang-
flugi var 172 kílómetrar og átti
það Þórður Hafliðason, sem
flaug frá Sandskeiði norður í
Vatnsdal árið 1967. Reyndar
flaug Sigmundur 180 kílómetra
frá Sandskeiði að Kirkjubæj-
arklaustri 1974, en það var ekki
viðurkennt sem innanlandsmet
þar eð það var ekki nógu mikið
lengra en met Þórðar.
Hugsanlega hefði Sigmundur
getað flogið lengra á laugardag,
því sökum ókunnugleika treysti
hann sér ekki að reyna flug yfir
hraun, sem er skammt austur af
Fossi.
í fluginu á laugardag fór
mestur hluti flugtímans í að
komast í nógu mikla hæð til að
komast á milli staða. Þannig var
Sigmundur á þriðju klukku-
stund yfir Sandskeiði áður en
óhætt var að leggja í hann. Þá
var hann lengi við erfið skilyrði
við Þríhyrning, Eyjafjallajökul
og yfir Þórsmörk meðan hann
var að komast í örugga hæð til
að láta sig renna austur fyrir
Mýrdalsjökul.
borgaryfirvöldum, gengi til Starfs-
mannafélags Strætisvagna Reykja-
víkur.
Var þessi tillaga Davíðs
Oddssonar borgarstjóra samþykkt
mótatkvæðalaust. „Ég taldi rétt
að starfsmenn strætisvagnanna,
sem reynst hafa ákaflega vel í
þessum átökum og sýnt hafa af
sér mikinn samstarfsvilja, njóti
góðs af þessari óvæntu fjárhæð,
sem ekki var gert ráð fyrir í fjár-
hagsáætlun," sagði Davíð
Oddsson, aðspurður um ástæður
þessarar tillögu.
„Ég er mjög ánægður með þessa
samþykkt fyrir hönd Starfs-
mannafélags Strætisvagna
Reykjavíkur," sagði Ársæll Bald-
vinsson, formaður félagsins í sam-
tali við Mbl. Sagði hann að þetta
fé yrði nýtt í tengslum við keppn-
isferð strætisvagnabílstjóra til
Kaupmannahafnar í sumar, en
þar verður keppt í góðakstri, en
um er að ræða árlega góðaksturs-
keppni strætisvagnabílstjóra á
Norðurlöndum.
„Ég við þakka borgarstjóra
fyrir þetta framlag, ég get ekkert
annað sagt,“ sagði Ársæll.
Höfnuöu
í 10. sæti
Hafsteinn Hauksson og Birgir
Viðar Halldórsson uröu í 10. sæti I
skoskri rallkeppni sem lauk í gær.
Hér má sjá þá félaga kampakáta að
rallakstrinum loknum, en sigurveg-
arar í rallinu urðu þeir Blomquist og
Cederberg. Þeir Hafsteinn og Birgir
unnu til verðlauna í rallinu, en þeir
urðu fyrstir nýliða. Einnig urðu þeir
fremstir ökumanna sem gera sjálfir
út bíla sína. Þessi mynd var tekin af
þeim félögum eftir verðlaunaaf-
hendinguna í gærkvöldi.
Ljóam. RAX.
Á myndinni má sjá hvernig itíflggirtar við Sultartanga
hefur brostið vegna vatnavaxta f Þjórsá að undanfornu. Frá
þessu var greint í frétt Morgunblaðsins f gær og þar kom
fram að búast má við að hluti framkvæmdanna við Sultar-
tanga tefjist um allt að 10 daga vegna þessa.
Áhrif minnkandi þorskafla:
Borgarlæknir:
Eftirlit
með eitur-
úðun hert
Borgarlæknisembættið
hefur farið þess á leit við
lögregluna að eftirlit með úð-
un garða í vor verði hert,
samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá
Heimi Bjarnasyni, aðstoðar-
borgarlækni, í gær. Þá segir
Heimir, að fólk eigi að at-
huga vandlega hvort þeir
sem bjóði úðun garða hafi til
þess tilskilin leyfi, sem lög-
reglustjóraembættið gefur út
að fenginni umsögn eitur-
efnanefndar.
Þorkell Jóhannesson, formaður
eiturefnanefndar, segir í samtali
við Morgunblaðið, að algengasta
eitrið hér á landi, Parathion, sé í
x-flokki, en til þess flokks eitur-
efna eru gerðar strangastar kröf-
ur um notkun. Efnið valdi lömun
og dauða og heyrst hafi að kettir
og páfagaukar hafi orðið fyrir
barðinu á því þegar eitrað hefur
verið. Eitrið þrotni hins vegar
fljótt niður og eyðist.
Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar, segir, að allt
of mikið sé um eiturúðanir og iðu-
lega í tilfellum þar sem þeirra sé
ekki þörf. Maðkurinn sé ein aðal-
fæða fuglanna og unga, þegar þeir
eru nýskriðnir úr eggjum, og geti
úðun því haft skaðleg áhrif á þá.
Þá kemur fram, að Reykjavíkur-
borg hefur mikið dregið úr eitur-
úðun í sínum görðum.
Sjá viðtöl á bls. 18.
Milljarði minni
útflutningstekjur
HEILDARTEKJUR útgerðarinnar minnka um 514 milljónir króna á árinu ef
miðað er við aflann eins og hann var fyrstu fjóra mánuði ársins og gert ráð
fyrir sama afla og var síðustu átta mánuði ársins 1982. Kristján Ragnarsson,
formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að þetta þýddi í raun versnandi afkomu útgerðarinnar, sem
næmi 300 milljónum króna, ef aflahlutirnir sem útgerðinni sparast vegna
þessa væru dregnir frá. Útflutningsteknatap þjóðarbúsins yrði á hinn bóginn
nær einum milljarði króna.
Þessar tölur eru byggðar á ný- I 9. júní um áhrif aflaminnkunar á
legri úttekt Þjóðhagsstofnunar frá I árinu 1983. í þessari úttekt Þjóð-
Símamynd/Gunnlaugur Ragnarsson
hagsstofnunar er gert ráð fyrir að
aflinn síðari hluta ársins verði
svipaður og hann var 1982. Gert er
ráð fyrir að afli bátanna minnki
um 13% og sóknin um 3% að með-
altali eða um 10,3% á sóknarein-
ingu. Gert er ráð fyrir að togara-
aflinn minnki iítillega en vegna
fjölgunar skipa og úthaldsaukn-
ingar minnki meðalafli á úthalds-
dag um 5% að meðaltali. Ef þróun-
in verður á hinn bóginn lík því sem
| var á tímabilinu janúar-apríl í ár
í yrði aflaminnkunin líklega 14% en
það þýddi tæplega 15% halla bát-
anna; 7% halla minni togaranna
1 og rúmlega 18% halla stærri tog-
aranna.
Sjávarútvegsráðherra hefur
ákveðið að þorskveiðar verði ekki
takmarkaðar frekar en ákveðið var
í upphafi ársins. Hámarksafli
þessa árs verður því miðaður við
350 þúsund lestir, en ekki 300 þús-
und eins og Hafrannsóknastofnun
lagði til í síðustu viku. í fréttatil-
kynningu ráðuneytisins segir m.a.
að með tilliti til stöðu þjóðarbúsins
og afkomu útgerðar og fyrirtækja í
sjávarútvegi, sé ekki unnt að
takmarka þorskveiðar enn frekar.