Morgunblaðið - 17.06.1983, Síða 1
56 SÍÐUR
135. tbl. 70. árg.
FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mótmæli í Varsjá í gærkvöldi eftir þrumuræðu páfa:
Tugir þúsunda gengu að aðal-
stöðvum kommúnistaflokksins
Varsjá, 16. júní. AP.
YFIR 50.000 manns gengu í kvöld að aðalstöðvum pólska kommún-
istaflokksins í Varsjá og hrópuðu hvatningarorð í garð Samstöðu.
Ganga þessi hófst aðeins fáum klukkustundum eftir að Jóhannes
Páll páfi II hafði flutt guðsþjónustu í Sánkti Jóhannesar-dómkirkj-
unni. Mótmælaganga þessi var ein nokkurra, sem efnt var til í
kjölfar ræðu páfa. Ekki kom til neinna átaka, en öflugur lögreglu-
vörður fylgdist átekta með fjöldanum.
í ræðu, sem páfi flutti í dóm-
kirkjunni til minningar um Stefan
Wyszinsky kardinála aðeins ör-
fáum stundum eftir að hann kom
til Póllands, gagnrýndi hann her-
lögin í landinu harkalega, svo og
áframhaldandi fangelsun þeirra
rúmlega 200 manna, sem hnepptir
voru í fjötra við setningu þeirra
fyrir hálfu öðru ári.
Páfi sagðist finna til samúðar
með „þeim, sem orðið hefðu að
bergja af hinum beiska bikar
vonbrigða, auðmýkingar og þján-
inga“. Yfirlýsing hans í garð yfir-
valda er einhver sú harðorðasta,
sem hann hefur látið frá sér fara
um málefni fanga.
Hundruð þúsunda manna fögn-
uðu páfa að lokinni guðsþjónust-
unni og mynduðu sigurmerki með
fingrunum. Veifaði fjöldinn stór-
um borðum, þar sem á var letrað
„Faðir Samstöðu" og hrópaði nafn
verkalýðssamtakanna. Lögregla
fylgdist með mannfjöldanum
átekta og handtók einn mann fyrir
það sem nefnt var „grunsamleg
hegðun".
hermanna með varðhunda sér við
hlið.
Lech Walesa fékk í morgun
fylgd óeinkennisklæddra lögreglu-
manna á leið sinni til vinnu í
skipasmíðastöðinni í Gdansk.
Sjálfur segir Walesa, að sér sé
haldið í stofufangelsi og reynt sé
með öllum tiltækum ráðum að
koma í veg fyrir að hann nái fundi
páfa. Yfirvöld segja gæsluna á
hinn bóginn vera af öryggisástæð-
um hans vegna.
„Við bíðum" mátti sjá á mörg-
um stórum borðum, sem strengdir
höfðu verið upp í miðborg Varsjár
í morgun. Pílagrimar höfðu lagt
miðborgina undir sig, en þrátt
fyrir mjög öfluga löggæslu var
andrúmsloftið ekki þrungið
spennu eins og svo oft þegar þess-
ar tvær andstæður, alþýðan og
hervaldið, hafa mæst á götum
borgarinnar. Fólk var létt í lund
og ljóst var, að margir binda þær
vonir við heimsókn páfa, að hon-
um takist að breyta ástandinu í
landinu til batnaðar.
Jóhannes Páll páfi II gengur hér við hlið pólsks hermanns við komuna til Varsjár í gærdag. Gífurlega mikill
viðbúnaður var á flugvellinum vegna komu hans. Símamynd AP.
Efast um stöðu Andropovs
þrátt fyrir forsetakjörið
Talið að hann sæti enn andstöðu innan stjórnmálaráðsins
Einróma samþykkt. Frá handauppréttingu í Æðsta ráðinu í gærmorgun er
Yuri Andropov, lengst t.h. í neðstu röð, var kjörinn forseti Sovétríkjanna.
Símamynd AP.
„Friður sé með yður og föður-
landi mínu, Póllandi," sagði páfi
við komuna til Varsjár um kl. 16
að íslenskum tíma í dag eftir
þriggja klukkustunda flug frá
Róm. Gífurlegar öryggisráðstaf-
anir voru við komu hans til Varsj-
ár og hvarvetna á flugvellinum
mátti sjá langar raðir lögreglu- og
Líbanon:
Skotárás
kostaði
16 lífíð
Trípólf, 16. júní.
VOPNAÐIR menn á bifreið urðu
í morgun 16 manns að bana og
særðu 7 er þeir hófu skyndilega
skothríð fyrir utan veitingahús
og verslanir við strandlengjuna í
hafnarborginni Trípólí, að því er
lögreglan sagði.
Fregnum af atvikinu bar
ekki saman. í útvarpsstöðinni
„Rödd Líbanon" sagði, að 18
manns hefðu látist og 20 særst
í skotárásinni.
Heimildum bar hins vegar
saman um, að árásarmennirnir
hefðu flúið af vettvangi í skjóli
kúlnahríðar.
Moskvu, 16. júní. AP.
YURI Andropov var í morgun kjör-
inn forseti Sovétríkjanna á fundi
Æösta ráðsins, sjö mánuðum eftir að
hann var gerður að aðalritara
kommúnistafiokksins. Andropov er
níundi forsetinn í sögu Sovétríkj-
anna.
Það var Konstantin Chernenkö,
til þessa álitinn harðasti andstæð-
ingur Andropovs, sem stakk upp á
nafni hans. Var hann einróma
kjörinn með handauppréttingu
hinna 1500 fulltrúa Æðsta ráðs-
ins.
„Ég lít á það traust, sem mér
hefur verið sýnt með þessu kjöri,
sem traustsyfirlýsingu við komm-
únistaflokkinn," sagði Andropov í
ræðu er hann þakkaði stuðning-
inn. „Leyfið mér að fullvissa ykk-
ur um, að ég mun leggja mig allan
fram í nafni reynslu minnar og
kunnáttu við að réttlæta þann
heiður, sem mér hefur verið sýnd-
ur.“
Eftir hið formlega kjör flutti
Andrei Gromyko, utanríkisráð-
herra, ávarp, þar sem hann gagn-
rýndi stefnu Bandaríkjanna í
utanríkismálum harðlega. Hann
sagði einnig, að Sovétríkin hefðu
fullan hug á að bæta samskiptin
við Bandaríkjamenn því án sam-
vinnu þeirra yrði varanlegum friði
ekki komið á í heiminum.
Andropov er nú eftir sjö mánuði
sem aðalritari kommúnistaflokks-
ins ótvírætt orðinn valdamesti
maður Sovétríkjanna. Til saman-
burðar má geta þess, að það tók
forvera hans, Leonid I. Brezhnev,
13 ár að komast í sömu aðstöðu.
Brezhnev varð aðalritari komm-
únistaflokksins í október 1964, en
ekki forseti fyrr en 1977, er hann
hann tók við af Nikolai Podgorny.
Þrátt fyrir forsetakjörið í morg-
un er enn talið, að Andropov mæti
nokkurri andstöðu á meðal hinna
11 meðlima stjórnmálaráðsins.
Fækkað hefur í ráðinu sökum
dauðsfalla, en talið var að ein-
hverjir nýir, og þá stuðningsmenn
Andropovs, tækju sæti í því eftir
miðstjórnarfund, sem lauk í gær.
Svo varð hins vegar ekki. Er það
talið merki þess, að þrátt fyrir allt
sé staða Andropov ekki eins sterk
og ætla mætti. Fáar breytingar,
sem orð er á gerandi, áttu sér stað
á miðstjórnarfundinum. Tveimur
mönnum, þeim N. Sjelokov og S.
Medunov, var vikið úr starfi. Þá
var Nikolai Romanov var tekinn
inn í stjórnmálanefnd miðstjórn-
arinnar.