Morgunblaðið - 17.06.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 17.06.1983, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1983 Hækkanir á vöru og þjónustu: Á bilinu 7%—32% VERÐLAGSRÁÐ heimilaði nokkrar hækkanir á fundi sínum sl. miðviku- dag, en hækkanir þessar eru á bilinu 7% til 32%. Bæði er um að ræða hækkanir á vöru og þjónustu. Unnar kjötvörur hækka á bil- inu 15—22%, aðgöngumiðaverð kvikmyndahúsa hækkar um 25%, taxtar leigubíla hækka um 22% og taxtar Landvara, þ.e. vörubíla á langleiðum, hækka um 19%. Þá hækka fargjöld í innanlandsflugi um 7,5%, steypa hækkar á milli 5% og 7%, en missagt var í Mbl. í gær, að hækkun yrði á sementi. Þá hækkuðu vinnuvélataxtar um 32%. Sem dæmi um hækkanir á far- gjöldum í innanlandsflugi má nefna að flugfarið frá Reykjavík til Akureyrar og til baka hækkar úr 2.458 krónum í 2.640 krónur, en fargjald frá Reykjavík til ísa- fjarðar og til baka hækkar úr 2.296 krónum í 2.466. Af unnum kjötvörum má nefna vínarpylsur sem hækka úr 104,80 kílóið í 122,90 og er þar um 17,3% hækkun að ræða. „Ein með öllu“ hækkar úr 25 krónum í 30 krónur. Aðgöngumiði að kvikmyndahúsi hækkar úr 60 krónum í 75 krónur og startgjald leigubifreiða hækk- ar úr 58 krónum í 71 krónu. Loks má nefna dæmi um hækk- un á algengri steypu, S-200, en rúmmetrinn af henni kostaði fyrir hækkun 2.030 krónur, en eft- ir hækkunina kostar hann 2.149 og er þar um 6% hækkun að ræða. Þjóðhátíð í Reykjavík DAGSKRÁ 17. júní hátíðarhaldanna í Reykjavík að þessu sinni verður með svipuðu sniði og undanfarin ár nema hvað nú hafa borgaryfirvöld falið Æskulýðsráði Reykjavíkur að annast störf þjóðhátíðarnefndar og sjá um framkvæmd og dagskrárgerð. Fram að hádegi verður dagskrá- in með hefðbundnum hætti en hún hefst kl. 10.00 með því að Markús Örn Antonsson leggur blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Síðan kl. 10.40 hefst hátíðar- dagskrá við Austurvöll. Þar mun formaður Æskulýðsráðs Reykja- víkur, Kolbeinn H. Pálsson, setja hátíðina. Þá leggur forseti íslands blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, flytur ávarp. Því næst verður ávarp fjallkonunnar og Karlakór Reykjavíkur syngur og Lúðrasveitin Svanur leikur. Klukkan 11.15 verður guðsþjón- usta í Dómkirkjunni, sr. Valgeir Ástráðsson predikar og dómkór- inn syngur ásamt Sigríði Ellu Magnúsdóttur. 6 tonn af rækju Sigluflrði, 16. júní. í DAG kom inn til Siglufjardar bát- urinn Þorleifur frá Grímsey með 6 tonn af rækju eftir rúmlega tveggja sólarhringa úthald. Þá kom einnig inn færabátur með 6 tonn af þorski, sem hann veiddi við Kolbeinsey. Fréttaritari. Eftir hádegið verða hátíðar- höidin í miðbæ Reykjavíkur og hefjast þau kl. 14.00. Þar verður boðið upp á ýmislegt og má til dæmis nefna að á Melavelli munu félagar úr Fornbílaklúbbi íslands standa fyrir akstursþrautakeppni. í Hljómskálagarðinum verða skát- ar með tjaldbúðar- og útistörf, í Lækjargötu mun jazz-hljómsveit skemmta og við útitaflið munu stórmeistararnir Friðrik ólafsson og Guðmundur Sigurjónsson tefla skák. Klukkan 15.20 hefst skrúðganga frá Hlemmtorgi og verður gengið að Arnarhóli þar sem barna- og unglingaskemmtun hefst kl. 16.00. Að lokinni skemmtuninni á Arn- arhóli verður á vegum leikhópsins „Svart og sykurlaust" götuleikhús og mun hópurinn fara um Lækjar- götu, Lækjartorg og Austurstræti. Um kvöldið verður síðan kvöld- skemmtun í Laugardalshöll og hefst hún kl. 20.45. Þar munu leik- arar og starfsmenn flytja söng- og leikatriði um borgarlífið. í miðbæ Reykjavíkur, nánar til tekið í Lækjargötu og á Lækjar- torgi, hefjast síðan kl. 21.30 dans- leikir þar sem hljómsveitirnar Galdrakarlar og Kikk koma fram. Gert er ráð fyrir að skemmtun- inni ljúki kl. 02.00 eftir miðnætti. Tívolí Miklatún Morgunbla9ið/RAX Tívolí Miklatún var opnað í gærkvöldi og var strax mikil aðsókn og fjör. í dag verður tívolíið opið frá klukkan 13 til 24. Lóðaúthlutunin í Reykjavík: Tekjur borgarinnar 224 milljónir króna GERT ER RÁÐ fyrir að tekjur borgarinnar af lóðaúthlutunum þeim sem fara munu fram í júlímánuði n.k. muni nema tæpum 224 milljónum kr. en ef sótt hefði verið um allar lóðirnar sem auglýstar voru og þær þegnar hefðu tekjur borgarinnar numið tæpum 245 millj. kr. Alls var sótt um 910 lóðir en til ráðstöfunar voru 978 lóðir. Þetta kom fram hjá Davíð Oddssyni borgarstjóra í svari hans á borgarstjórnarfundi í gærkvöldi við fyrirspurnum frá borgar- fulltrúum Alþýðubandalagsins og Kvennaframboðs um lóðamál. Það kom ennfremur fram hjá borgarstjóra að um 120 raðhús hefðu borist 144 umsóknir. 424 hefðu sótt um 338 einbýlishúsalóð- ir sem verða byggingarhæfar í ár, 160 hefðu sótt um 260 lóðir sem tilbúnar verða 1984 og 182 um- sóknir hefðu borist um lóðir sem tilbúnar verða árið 1985. Einn liður fyrirspurnarinnar fjallaði um það hvaða reglur yrðu lagðar til grundvallar þegar út- hlutað yrði 9 einbýlishúsalóðum á Ártúnsholti en um þær lóðir sóttu 83 einstaklingar. Borgarstjóri svaraði því til að í því efni yrði farið að mati borgarráðs og borg- arstjórnar og yrðu menn að bera ábyrgð á þeirri ákvörðun sem um það yrði tekin. Benti Davíð á að árin 1974 og 1978 hefði aldrei orðið ágreiningur um lóðaúthlutanir til einstaklinga, þrátt fyrir tal vinstri manna um að þá hefði ríkt spilling í lóðaúthlutunum. Nefndi Davíð það og að síðan hann tók við starfi borgarstjóra hefði hann rætt við um 1100 borgarbúa sem til hans hefðu komið í viðtal en af þessum 1100 hefðu aðeins þrír látið þess getið að þeir ætluðu að sækja um byggingarlóð. Þeir hefðu ekki nefnt það til þess að óska eftir sérstakri fyrirgreiðslu heldur til þess að ræða um skipulagsmál á byggingarsvæðum borgarinnar, enda þyrfti ekkert punktakerfi eða spillingu þegar lóðaframboð svar- aði eftirspurn en nú hefði það í fyrsta skipti tekist. í umræðunni sem á eftir fór gagnrýndu vinstri menn í borgarstjórn Grafarvogs- skipulagið og sögðu að það hefði beðið skipbrot. Þeim málflutningi vísuðu sjálfstæðismenn á bug. Akureyri — Kaupmannahöfn Fyrsta beina flug Flugleiða milli Akureyrar og Kaupmannahafnar var í gær og tók ljósm. Mbl., Gunn- ar Berg, þessa mynd, er farþegar fóru um borð í þotuna á Akureyr- arflugvelli í gær, en að sögn Sæ- mundar Guðvinssonar hjá Flug- leiðum voru þeir um 60 talsins. Þotan fór frá Keílavík til Kaup- mannahafnar í gærmorgun og síð- an frá Kaupmannahöfn til Akur- eyrar, þar sem hún lenti um fimmleytið í gær. Um klukkustund síðan hélt hún aftur til Kaup- mannahafnar og var svo væntan- leg aftur til Keflavíkur í nótt. Tvær aðrar slíkar ferðir milli Ak- ureyrar og Kaupmannahafnar verða í sumar; fyrstu fimmtudag- ana í júli og ágúst. Valgeir Björnsson fyrrv. hafnarstjóri látinn VALGEIR Björnsson fyrrverandi hafnarstjóri lézt á Landspítalanum aðfaranótt 16. júní sl. Valgeir var fæddur 9. september 1894 á Dverga- stcini, Seyðisfirði. Foreldrar hans voru séra Björn Þorláksson og Björg Einarsdóttir. Valgeir varð stúdent árið 1913, lauk prófi í forspjallsvísindum frá háskólanum í Kaupmannahöfn 1914, prófi í byggingaverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1921. Aðstoðarverkfræðingur var hann hjá Jóni Þorlákssyni 1921—22 við undirbúning Flóaáveitunnar. Þá starfaði hann einnig að ýmsum vega- og samgöngumálum. Bæjar- verkfræðingur og lóðaskrárritari í Reykjavík var hann 1924—43 og gerði áætlanir og hafði umsjón með byggingu ýmissa mannvirkja borgarinnar, m.a. hafði hann yfir- umsjón með byggingu Hitaveitu Reykjavíkur og vann að skipulagi borgarinnar. Hafnarstjóri í Reykjavík varð Valgeir 1944 og gegndi því starfi til 1965. Á þessum árum undirbjó Valgeir og hafði umsjón með rekstri, nýbyggingum og hagnýt- ingu Reykjavíkurhafnar, þá var öll vesturhöfnin dýpkuð, bryggjur og athafnasvæði við Grandann og Örfirisey byggð og Ingólfsgarður lengdur, svo fátt eitt sé nefnt. Þá sá Valgeir einnig um undirbúning og útboð á 1. áfanga Sundahafnar. Valgeir gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum, auk þess átti hann sæti í fjölmörgum nefndum og ráðum. Valgeir kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Evu, árið 1923. Þau eignuðust fjögur börn, sem öll eru á lífi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.