Morgunblaðið - 17.06.1983, Page 8

Morgunblaðið - 17.06.1983, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1983 Jóhann Hjartar- son sigraði á KEA-mótinu Skák Margeir Pétursson SKÁKFÉLAG Akureyrar lauk vel heppnuAu starfi sínu í vetur með helgarskákmóti sem fram fór um hvítasunnuna. Kaupfélag Eyfirð- inga styrkti mótid meó myndar- legu framlagi og gerdi þaó skákfé- laginu kleift að bjóða nokkrum öfl- ugum Reykvíkingum til leiks og að hafa sjö peningaverðlaun á mót- inu, þau hæstu sjö þúsund krónur. Úrslit á mótinu urðu þau að Jó- hann Hjartarson, nýkominn úr stúdentsprófi, gerði sér lítið fyrir og sigraði sannfærandi, vinningi á undan næstu mönnum. Fyrir síð- ustu umferðina voru þeir Jóhann og Helgi Ólafsson jafnir og efstir, en þá vann Róbert Harðarson Helga óvænt og leiðin þar með greið í efsta sætið fyrir Jóhann. Urslit mótsins urðu þessi: 1. Jóhann Hjartarson, T.R., 6 v. af 7 mögulegum. 2. -5. Elvar Guðmundssn, T.R., Helgi Ólafsson, T.K., Dan Hansson, T.R., og Róbert Harðarson, T.R., allir með 5 v. 6.-9. Gylfi Þórhallsson, S.A., Jón Garðar Viðarsson, S.A., og Bragi Pálsson, S.A., 4'/2 v. 10.—13. Sævar Bjarnason, T.R., Smári Ólafsson, S.A., Sig- urjón Sigurbjörnsson, S.A., og Jakob Þór Kristjánsson, S.A., 4 v. 14,—17. Halldór Jónsson, S.A., Atli Benediktsson, S.A., Skúli Þór Magnússon, T.R., og Sveinn Pálsson, S.A., 3'/2 v. Þeir Valur Sæmundsson og Árni G. Hauksson, báðir í S.A., fengu bókaverðlaun fyrir bestan árangur unglinga. Þá hlaut Bragi Pálmason verðlaun fyrir að hafa náð bestum árangri skákmanna með minna en 1.900 stig. Slík verðlaun eru skemmti- legt nýmæli á íslenskum mótum, en mjög tíðkast erlendis að gefa hinum stigalægri kost á að tefla um sérstök verðlaun auk aðal- verðlaunanna. Valur Arnþórsson, kaupfé- lagsstjóri, sleit mótinu og af- henti verðlaunin. Hann kvað Kaupfélag Eyfirðinga reiðubúið til að styrkja skákfélagið þannig að halda mætti slíkt mót á hverju ári. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Elvar Guðmundsson Katalónsk byrjun I. d4 - RfG, 2. c4 - e6, 3. Rf3 — d5, 4. g3 — dxc4, 5. Bg2 — Bb4+. Öllu markvissara afbrigði er 5. - c5, 6. 0-0 - Rc6. 6. Bd2 — Be7, 7. Da4+ — Bd7, 8. Dxc4 — Bc6, 9. 0-0 — Re4?! Markmið svarts með þessum leik er væntanlega að styrkja stöðu sína á miðborðinu, en í reynd þjónar hann þveröfugum tilgangi, því í framhaldinu nær hvítur að losa sig við þennan Jón Hjartarson riddara og fá sterkt peðamið- borð. 10. Bf4 — 0-0. Framhaldið í skákinni Alburt, Bandaríkjunum, og Kovacevic, Júgóslavíu, á Ólympíumótinu í Luzern varð 10. — Rd7, 11. Re5! — Bd5, 12. Dc2 með mun betri stöðu á hvítt. 11. Dc2! - Rg5? Skárra var 11. — Rd7. 12. Bxg5 — Bxg5, 13. e4 — Bf6, 14. Rc3 — g6. 14. - Bxd4? 15. Hadl - e5,16. Rxe5 var mjög slæmt fyrir svart. 15. Hadl — RaG, 16. Hfel. Hvítur hefur náð yfirburða- stöðu. Svörtu biskuparnir á c6 og f6 berja höfðinu við stein þar sem hvíta peðamiðborðið er. 17. h4 — De7, 18. a3 — Hfd8, 19. d5! — Be8, 20. e5 20. — c6 Hræðilegur leikur, en svartur óttaðist 21. Rd4 með hótunum á skálínu biskupsins á g2. 21. d6 — Df8, 22. h5 - Rb8, 23. hxg6 — hxg6, 24. Rg5 - Rd6, 25. f4 — Rb6, 26. Rce4. Svartur er gjörsamlega njörv- aður niður og hvítum veitist létt að ljúka skákinni með kóngs- sókn. 26. - Rd5, 27. Bf3 - Bh6, 28. Dh2 - Dg7, 29. Kf2 - Bxg5, 30. fxg5 — Bb7 og um leið féll svart- ur á tíma, en hann er hvort sem er varnarlaus gegn hvítu sókn- inni eftir 31. Rf6+ o.s.frv. Metsölublcu) á hverjum degi! Skólakór Kársnes- og Þinghólsskóla ásamt stjórnanda sínum, Þóninni Björnsdóttur. Nýr barnakór Tónlist Jón Ásgeirsson Það er ekki fjarri lagi að ávöxtun þeirrar innistæðu er dr. Heinz Edelstein lagði inn til menningarlegrar ávöxtunar með stofnun Barnamúsíkskólans, sé nú þessi árin að skila sér, vaxin til þeirrar stærðar að ótrúlegt má teljast. Bæði Tonica-do-að- ferðin, Carl Orff-aðferðin í notk- un slaghljóðfæra og sú viðbót er hingað hefur borist af kennslu- aðferðum Kodaly, er nú að skila sér í blómlegu starfi barnakóra. Það vill segja, að sú kennsluað- ferð er að meginþunga leggur áherslu á söng, blómstrar í starfi samsöngsflokka, því nú eru starfandi á íslandi fjölmarg- ir ágætir barnakórar, en fyrir svona 25 árum var varla hægt að tala um slík fyrirbæri, utan barnakór þann er Ingólfur Guð- brandsson hafði þá gert frægan og varð undirstaðan í Pólýfón- kórnum. Nú hafa íbúar í Kópavogi eignast sinn barnakór, Skólakór Kársnes- og Þinghólaskóla og er stjórnandi kórsins ungur og efnilegur tónlistarmaður, Þór- unn Björnsdóttir. Söngur barn- anna var mjög fallegur og er auðheyrt að Þórunn kann þá list að kenna börnum bæði fallega tónun og að syngja hreint. Bæði er, að mörg barnanna eru mjög ung og einnig erfitt um vik að þjálfa margumræddan stuðning þindarinnar hjá börnum, en ein- mitt það var nokkuð áberandi að vantaði, einkum í veikum söng, sem olli því að tónstaðan vildi raskast. Þetta er aðeins sagt sem ábending, því svo vel eru börnin þjálfuð í söng og túlkun, að með gætilegri viðbótarþjálfun ætti að vera hægt að ná þessu marki og þá er söngur kórsins óaðfinn- anlegur. Efnisskráin var að mestu ís- lenskir söngvar og meðal annars frumflutt lag eftir Þorkel Sigur- björnsson við kvæði eftir Þor- stein Valdimarsson, er ber nafn- ið fögnuður. Af öðrum söngvum má nefna fallegt lag eftir Gunn- ar R. Sveinsson, er hann kallar I nótt mig dreymdi, tvö sálmalög, Til þín Drottinn, er Þorkell Sig- urbjörnsson hefur samið við texta eftir Pál V.G. Kolka, bráð- fallegt lag og söngperluna Heyr himnasmiður, við texta eftir Kolbein Tumason. í heild voru tónleikarnir mjög góðir og sann arlega ástæða til að óska íbúum Kópavogs og Þórunni til ham- ingju með glæsilega frammi- stöðu barnanna. KAUPMANNAHÖFN: Fréttabréf úr Jónshúsi Jónshúsi, Kaupmannahöfn. 24. maí. ÞÁ ER fréttaritari fluttur úr sveit í borg, en heldur þó áfram að senda smápistla um ýmislegt það, sem ger- ist í næsta nágrenni. Fyrst skal talin samkoma fyrir eldra fólkið hér í Höfn, sem haldin var í félagsheimil- inu eftir messu í St. Paulskirkju á hvítasunnudag. Ungt fólk hringdi í eldri meðlimi íslendingafélagsins til að bjóða þeim til samkomunnar og reyndust þeir vera 110 talsins. Þótt ekki kæmu nærri allir var glatt á hjalla og sungin ættjarðarlög við undirleik Guðmundar Eiríkssonar frá Selfossi, sem hér er við tónlist- arnám. Þá fluttu ávörp síra Jónas Gíslason, sem staddur var í borg- inni, en hann var fyrsti sendiráðs- presturinn hér, og síra Ágúst Sig- urðsson, sem stjórnaði samkomunni. Að kvöldi hvítasunnudags var umræðufundur í félagsheimilinu, þar sem Guðmundur Steinsson leikritaskáld svaraði spurningum viðstaddra og sagði frá leikritum sínum. Hann hefur dvalið í fræði- mannsíbúðinni í Jónshúsi undan- farna 3 mánuði og verið viðstadd- ur frumsýningar á leikriti sínu Stundarfriði í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Auk þess hefur leik- ritið verið sýnt í Braunschweig í Þýzkalandi, og hefur, auk sjón- varpssendinga, einnig verið sýnt í Seattle í Bandaríkjunum í sam- bandi við Scandinavia today á sl. hausti, og var flutningurinn þar ekki hefðbundinn, en áhorfendur geysimargir. — Hér í Kaup- mannahöfn ber Stundarfriður þýðingarnafnið „En stakket frist", en þýðendur eru Kristín Bjarna- dóttir og Viggo Kjær Petersen. í Stokkhólmi heitir leikritið „En stilla stund“ og í Braunschweig „Keine Zeit, keine Zeit“. óhikað má telja útbreiðslu Stundarfriðar fágæta og móttökurnar mjög góð- ar, og að þetta vinsæla og athygl- isverða leikrit Guðmundar Steins- sonar sé hin bezta landkynning og höfundi til verðugs hróss. — Upp- setning verksins á Grábræðrasenu Konunglega leikhússins er leik- listarviðburður, sem hér er tekið eftir. Á annan í hvítasunnu voru 5 ís- lenzk börn fermd og eitt skírt í Vástre Skrávlinge-kirkju í Malmö og var það hátíðleg guðsþjónusta með þátttöku 165 Islendinga í Malmö og nágrenni. Organisti var Einar Sveinbjörnsson konsert- meistari, 10 manna kirkjukór söng, en íslenzki presturinn í Höfn þjónar einnig hinum samheldna hópi íslendinga yfir á Svíþjóð- arströnd. Er þar starfandi öflugt félag, ÍMON (íslendingafélagið í Malmö og nágrenni), en formaður þess er Georg Franklínsson og var veizla eftir fermingarathöfnina í nýlega opnuðu félagsheimili ÍM- ON við Lugnangötu 43. Félagsheimili íslendinga í Kaupmannahöfn er á 1. hæð í Jónshúsi og er opið þar í sumar frá kl. 14 og fram á kvöld nema á mánudögum. Hefur verið margt um manninn þar undanfarið. Safn Jóns Sigurðssonar er á 3. hæð og er opið virka daga frá kl. 13 til 15, og einnig eftir samkomulagi við umsjónarmann þess, síra Ágúst Sigurðsson. í safninu er saga Jóns forseta rakin í myndum og minn- Úr sýningu Konunglega lelkhússins á Stundarfriði. ingum bóka og bréfa og er það mjög áhugavert, enda koma þar margir, einkum ferðamenn á sumrin. Þá er bókasafn íslendinga í Kaupmannahöfn til húsa á þriðju hæð og er það opið á sunnu- dögum frá 16—18 nema yfir blá sumarið. í Jónshúsi er einnig skrifstofa íslenzku félaganna í Höfn. G.L.Ásg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.