Morgunblaðið - 17.06.1983, Síða 14

Morgunblaðið - 17.06.1983, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR17. JÚNÍ 1983 Tyrkland: Sprengjukast á markaðstorgi IxUnbul. 16. júnf. AP. TVEIR hryðjuverkamenn köstuðu haudsprengjum og skutu úr sjálf- virkum hríðskotabyssum á fólk á stóru markaðstorgi í Istanbul. Tveir menn létust og 25 særðust, þar af þrír alvarlega. Að sögn lögreglunnar féll annar hryðjuverkamannanna í bardaga við öryggisverði, sem voru staddir á markaðstorginu, en hinn komst undan. Þegar síðast fréttist höfðu engin sam- tök lýst sök á hendur sér og enginn vissi deili á tilræð- ismanninum, sem var skotinn. Þeir tveir, sem féllu fyrir hryðjuverkamönnunum, voru Kína: maður á sextugsaldri og 13 ára gamall gullsmíðalærlingur. Vitni segja, að mennirnir hafi haft vopnin í poka og byrjað á að kasta tveimur handsprengj- um að fólkinu þegar þeir komu á götuhorn í gamla hluta mark- aðarins, en við hann eru um 4.000 verslanir og búðarholur. Lögreglan telur, að annaðhv- ort eigi í hlut armenskir hryðju- verkamenn eða vinstrisinnar, sem hafi með morðunum viljað halda hátíðlegt, að 13 ár eru frá því í odda skarst með verka- mönnum og lögreglu í Istanbul. Þýlyndir þjóðvillingar sem drekka kóka kóla Peking, 16. júní AP. KÓKA kóla er óhollur drykkur, á okurverði og hreinasta sóun á er- lendum gjaldeyri, sagði nú nýlega í Leiðtoga- fundur E6E í Stuttgart Stuttgart, 16. júní. AP. LElÐTtKlAR ríkja Vestur-Evrópu komu til Stuttgart í dag, þar sem þriggja daga fundur þeirra um stefnumið Efnahagsbandalagsríkj- anna í efnahags- og stjórnmálum befst á morgun. Fundinn sækja auk Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýska- lands, sem er gestgjafi að þessu sinni, Margaret Thatcher, forsæt- isráðherra Bretlands, Francois Mitterand, Frakklandsforseti, Amintore Fanfani, forsætisráð- herra Ítalíu og leiðtogar sex ann- arra ríkja EBE. Enn eitt flug- ránið í Miami Miami, 16. júní. AP. FLUGVÉL frá Eastern Airlines með 84 farþega og II manna áhöfn inn- anhorðs var í fyrrinótt rænt á leið sinni frá Miami til Laguardia- flugvallar í New York og snúið til Kúbu. Vélin lenti í Mavana og sneri snemma í morgun áleiðis til Miami á ný. opinberu, kínversku tímariti, sem kallaði kókþambara þýlynda þjóð- villinga og jafnvel glæpamenn, þótt drykkurinn sé framleiddur í land- inu sjálfu. í Kína er grunnt á útlendinga- hatrinu og júníhefti timaritsins „Nýrra athugana" er gott dæmi um það. Þar segir, að kók- drykkjumenn hafi „látið þjóðar- stoltið lönd og leið, lotið í duftið fyrir kapítalískri úrkynjun og unnið hagsmunum þjóðarinnar gífurlegt ógagn í þeim tilgangi einum að fullnægja gróðafíkn út- lendra fjarmálaspekúlanta". „Af fúsum vilja gerast þeir þrælar útlendinganna. Það er ekki aðeins skammarlegt, heldur glæpsamlegt líka.Það er óþol- andi,“ sagði í tímaritsgreininni. Haft var eftir áreiðanlegum heimildum í Kína í dag, að tíma- ritið hafi ekki verið að túlka skoðanir stjórnvalda og að utan- ríkisráðuneytið sé „rasandi" yfir þessari árás á kókina. 1 Kína er kóka kóla framleitt í tveimur verksmiðjum með einkaleyfi frá Bandaríkjunum. „Nýjar athuganir", sem kemur út annan hvern mánuð og er málgagn kínversku rithöfunda- samtakanna, flytur fjölbreytt efni um listir og bókmenntir. í því birtist fyrir skömmu grein þar sem sagði, öfugt við opinber- ar yfirlýsingar, að diskótónlist væri alls ekkert klámfengin heldur bara hin besta skemmtun. Kúbumenn reiðu- búnir til samninga — segir varaforseti Kúbu um samskiptin við Bandaríkjamenn llavana, 16. júní. AP. CARLOS RAFAEL Rodriguez, varaforseti Kúbu, segir að samskipti Bandaríkjanna og Kúbu hafi ekki verið verri í 23 ár og ógn hernað- aríhlutunar gegn þjóð hans sé yfirvofandi. Rodriguez, sem er sjötugur að aldri og þriðji æðsti maður á eftir Fidel Castro, bætti því hins vegar við að Kúbumenn væru reiðubnir til að semja við stjórn Ronalds Reagan, en sagði Reagan og stjórn hans hafa hótað hernaðaríhlutun á Kúbu. Rodriguez sagði Þessar hót- anir hafa orðið til þess, að Kúbumenn hafi orðið að tvö- falda varnarmátt sinn á síð- ustu tveimur árum og mynda 500.000 manna „þrautþjálfað og vel útbúið" landgöngulið. Þetta kom fram á fundi með bandarískum fréttamönnum og útgefendum og fullyrti varaforsetinn að stjórnvöld á Kúbu vildu bætt samskipti við Bandaríkin, en möguleikinn á því að Bandaríkin beiti hern- aðarmætti gegn Kúbu hafi aldrei verið meiri en nú. Símamynd AP. Páfi í Póllandi Myndin hér að ofan er tekin þegar Jóhannes Páll páfi II kom til Varsjár í upphafi átta daga heimsóknar sinnar til fóðurlandsins. SúkkulaÖi- fræði slá öðrum við San Franeisco, 15. júní. LEYNDARDÓMAR kakóbaunar- innar lokkuðu átta hundruð nem- endur til að sækja um námskeið sem boðið var upp á í grasafræði- deild Berkeley-háskóla í Kalif- orníu á þessari önn. Ástæðan er án efa sú, að í staðinn fyrir að nota hefðbundið fræðilegt heiti á námskeiðið, kynnti Dr. John West, prófessor í þessum fræðum, námskeiðið undir hinum einfalda og gómsæta titli: Súkkulaði. Því miður gátu ekki komist fleiri en 35 nemendur í rann- sóknarstofu Dr. West, þannig að 765 nemendur urðu að láta sér nægja fyrirlestra í öðrum fræðum á þessari önn. Nám- skeið þetta var einnig takmark- að við líffræðinemendur á síð- asta ári, þannig að hringurinn þrengdist skjótt. Það tók Dr. West hálft ár að fá aðra fulltrúa í deildinni til að leggja blessun sína yfir nám- skeiðið, sem fól í sér að farið var jafnt í virðulega sögu súkkulaðisins og smökkun. Á lokaprófinu var spurt erf- iðra sagnfræðilegra spurninga og farið var út í vísindaleg at- riði, en eins og súkkulaðiunn- endum einum er lagið gekk bekknum vel. Einn nemandi með hæstu einkunn þyngdist um tæp fjögur kíló. Aðeins 3% Pólverja styðja kommúnista París, 16. júní. AP. UM 60% Pólverja eru þeirrar skoðunar að Sovétríkin hafi stað- ið að baki árásinni á Jóhannes Pál páfa á sínum tíma. Kemur þetta fram í leynilegri skoðana- könnun, sem fram fór á vegum franska vikuritsins Paris Match 2. maí til 8. júní sl. og birt var í dag. Náði hún til 600 Pólverja og er þriðja skoðanakönnunin, sem blaðið hefur látið fram fara í Pól- landi, síðan lýst var yfir herlög- um í landinu 13. desember 1981. í skoðanakönnuninni kemur fram, að aðeins 3% pólsku þjóðarinnar styðja kommúnista flokkinn í landinu en aftur á móti styðja 76% Samstöðu, samtök hinna óháðu verkalýðs- félaga. Hins vegar líta aðeins 6% á Lech Walesa sem björg- unarmann þjóðarinnar og Vojciech Jaruzelski hlaut einn- ig stuðning 6% aðspurðra við sömu spurningu. Aftur á móti lögðu 28% traust sitt á páfa í þessu skyni. Skoðanakönnunin leiddi í ljós áframhaldandi óvinsældir Sovétríkjanna og kommúnism- inn reyndist hafa langminnst fylgi á meðal aðspurðra, eða 3%. Aftur á móti sögðust 37% vilja stjórn kristilegra demó- krata og 29% vildu láta frjáls- lyndan flokk taka við stjórn- artaumunum. Fyrirliggjandi í birgðastöð STANGA' KORAR M.S.58. Sívalur • • • ••• • • Sexkantaður Þvermál 5.00 mm - 100.00 mm Þvermál 11.00 mm - 50.00 mm SINDRA STALHF Borgartúni 31 sími 27222

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.