Morgunblaðið - 17.06.1983, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1983
Sumarstarf hafið
í Árbæjarsafni
ÁRBÆJARSAFN hefur nú hafið sumarstarf.semi sína sem verdur med svip-
uðu sniði og undanfarin ár en um tíu þúsund gestir heimsækja safnið árlega.
SeyAisnrði, 16. júní.
í GÆR var háð merkilegt hlaup, sem hófst við sundlaugina hér á
Seyðisfirði, þaðan sem leið liggur yfír Fjarðarheiði, og endaði við félags-
heimilið V alaskjálf á Kgilsstöðum. Þátttakendur í hlaupi þessu voru
tveir kunnir bæjarbúar hér á Seyðisfírði, Jóhann Sveinbjörnsson, bæjar-
gjaldkeri, og Þorvaldur Jóhannsson, skólastjóri, báðir menn á fímm-
tugsaldri. Vegalengdin, sem hlaupin var, er um 26 kflómetra löng, þar af
níu kílómetra langar brekkur upp frá Seyðisfirði. Hlaupið hófst klukkan
sex, en þeir kappar luku því skömmu fyrir klukkan níu.
Nýlega gaf safnið út möppu með
fjórum Reykjavíkurteikningum,
þrívíddarmyndum sem Aage Niel-
sen-Edwin hefur gert eftir göml-
um Reykjavíkuruppdráttum.
Listamaðurinn Aage Nielsen-
Edwin er fæddur í Kaupmanna-
höfn 1898 og hefur verið búsettur
á íslandi frá 1946. Hann er
myndhöggvari en hefur auk þess
stundað kennslu. Aage Nielsen-
Edwin fékk hugmyndina að þrí-
víddarteikningunum þegar hann
vann að gerð líkans af Reykjavík
ásamt Eggerti Guðmundssyni
fyrir Reykjavíkursýninguna 1961.
Hver teikning er gerð eftir einu
Reykjavíkurkorti, hin fyrsta eftir
uppdrætti Rasmusar Lievogs frá
1786, árinu sem Reykjavík fékk
kaupstaðarréttindi. Onnur mynd-
in er gerð eftir korti Ohlsens og
Aanum frá 1801 og hin þriðja eftir
korti sem Frakkinn Victor Lottin
gerði 1836. Lottin var í leiðangri
Gaimard og er kortið prentað í
ferðabók hans. Fjórða myndin er
gerð eftir korti sem Benedikt
Gröndal teiknaði eftir mælingum
Sveins Sveinssonar 1876 og er
frummyndin í Árbæjarsafni.
í tilefni af útgáfu kortamöpp-
unnar verður sett upp sýning á
Reykjavíkurkortum. Á henni
verða nokkur gömul kort, m.a.
kort Benedikts Gröndal og Sveins
Sveinssonar frá 1876, kort sem
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi:
„Hinn 13. júní lauk árlegum vor-
leiðangri á rannsóknaskipinu
„Bjarna Sæmundssyni“ til athugana
á almennu ástandi sjávar, gróðri og
átu á íslenska hafsvæðinu. Athugan-
ir voru gerðar á 115 stöðum allt í
kringum landið, bæði á landgrunn-
inu sjálfu og utan þess.
Helstu niðurstöður, sem nú
liggja fyrir, eru þessar: Fyrir
Vesturlandi og Vestfjörðum var
hlýsjórinn í meðallagi heitur
(5—7°) og var mikill gróður í sjón-
um, nema á grunnslóð. Mikil áta
var einnig á þessu svæði, en
minnkaði er norðar dró.
Fyrir Norðurlandi gætti hlý-
sjávar ekki austan Húnaflóa þar
var sjór kaldur (1—2°) og seltulít-
ill. Er þetta eitt kaldasta vor í sjó
norðanlands síðastliðin 20 ár. í yf-
irborðslögum voru næringarefni
uppurin og gróður mjög lítill á
öllu svæðinu. Á vestanverðum
norðurlandsmiðum var sjór einnig
átusnauður, en þó var átumagn
heldur meira en í fyrravor. í kalda
Austur-íslandsstraumnum, djúpt
undan Norðausturlandi, var selta
Sveinn gerði 1887 og kort Knud
Ziemsens frá 1902. Auk þess verða
stækkanir af öðrum kortum og
ljósmyndir úr Reykjavík.
Þar sem verið er að reisa íbúð-
arhverfi norðan við safnið er nú
unnið að frágangi á mörkum
safnsvæðisins og hefur aðkoma að
safninu breyst. Nú er ekið frá
Höfðabakka og bílastæði við húsin
Líkn og Laugaveg 62, sem nýlega
var endurreist í safninu. Inngang-
ur í safnið er nú um neðri hæð
hússins og er áformað að þar verði
innréttuð gömul búð en vefstofa á
efri hæðinni. Viðgerðir standa nú
yfir á Dillonshúsinu og verður því
ekki hægt að bera þar fram veit-
ingar í sumar en Eimreiðar-
skemman notuð í þess stað.
Sú nýbreytni verður á í sumar
að Umhverfismálaráð Reykjavík-
ur og Árbæjarsafn efna til göngu-
ferða með leiðsögumanni um Ell-
iðaárdal og verður fyrsta gangan
19. júní nk. kl. 14.00. Gönguferð-
irnar hefjast við Árbæjarsafn en
markmiðið með þeim er að kynna
Elliðaárdalinn. Þá er í undirbún-
ingi bæklingur og kort af dalnum.
Safnið er opið alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl.
13.30—18.00 og er aðgangur
ókeypis fyrir börn undir 12 ára
aldri svo og aldraða, en kr. 20 fyrir
unglinga og kr. 40 fyrir fullorðna.
sjávar há og pólsjávar gætti ekki
eins og gerist á hafísárum. Að
venju var verulegt magn kaldsjáv-
arátu á þessum slóðum.
Fyrir Austurlandi var sjór einn-
ig kaldur yfir landgrunninu
(1—2°), gróðurlítill og áta undir
meðallagi. Djúpt undan Aust-
fjörðum gætti hlýsjávar að sunn-
an, og var það svæði bæði gróður-
og átumikið.
í hlýja sjónum við suðurströnd-
ina var hitastig um 8°. Þar var
mikill gróður austantil en minni
vestar. Áta var hins vegar mest á
Selvogsbanka, þar sem gróður var
mikill um miðjan maí.
1 heild sýna niðurstöður vorleið-
angurs 1983 tiltöluega gott ástand
í hlýja sjónum út af Suður- og
Vesturlandi. Lítið af hlýsjó hefur
borist inn á Norðurlandsmið. Þar
er mikill sjávarkuldi og lítið um
átu, og er þess ekki að vænta að
snögg breyting verði á þvl.
Eins og landsmenn hafa fundið
fyrir undanfarið, minna þessar
niðurstöður okkur vel á legu
landsins á mótum þeirra köldu og
heitu loft- og hafstrauma, sem
ætíð ráða miklu um hag lands-
manna."
Tildrög að hlaupi þessu voru
þau að nokkrir áhugasamir
trimmarar settu sér það takmark
um síðustu áramót, að enda gott
vetrarskokk með hlaupi til Egils-
staða. Kapparnir hafa undirbúið
hlaup þetta af kostgæfni í allan
vetur og æft reglulega tvisvar í
viku í misjafnri veðráttu, en látið
það lítið á sig fá, enda þekktari
fyrir annað en að gefast upp.
Þær reglur voru viðhafðar að
aldrei mætti stoppa, eða ganga og
yrðu menn því að kasta af sér
vatni á skokkhraða, ef til kæmi,
sem og til kom.
Svo skemmtilega vildi til að
nauðsynlega þurfti að koma bréfi
frá íþróttanefnd Seyðisfjarðar til
staðarvalsnefndar á Egilsstöðum
og þótti kjörið að nota ferðina,
þar sem tveir jafnábúðarmiklir og
trúverðugir embættismenn kaup-
staðarins áttu leið yfir til Egils-
staða. Þessum tveimur nefndum
hafði verið falið það verkefni á
sameiginlegum fundi bæjar-
stjórnar Seyðisfjarðar og hrepps-
nefndarinnar á Egilsstöðum að
kanna möguleika á að byggja upp
og standa að sameiginlegri skiða-
aðstöðu þessara tveggja byggðar-
laga.
Hlaupið gekk vel og þegar til
Egilsstaða kom, tók formaður
hreppsnefndar Egilsstaða, Sveinn
Þórarinsson, á móti köppunum,
meðtók bréfið góða og bauð þá
velkomna. Var þeim síöan boðið
að baðast og leggjast í heita
potta, sem eru við sundlaugina en
að lokum bauð hreppsnefndin til
kvöldverðar í Valaskjálf.
Þeir félgar voru hressir að
hlaupinu loknu, en sögðu þó að
brekkurnar upp af Seyðisfirði upp
á háheiðina hefðu verið erfiðar.
Einnig hefði það tekið verulega í
að hlaupa niður i móti héraðs-
megin. Fylgdar- og aðstoðarmenn
þeirra Jóhanns og Þorvaldar og
þeir, sem sáu um að öllum reglum
væri framfylgt, voru þeir Svavar
Sigurðsson bankastjóri og Kjart-
an Aðalsteinsson apótekari. Þess
má að lokum geta að reiknimeist-
arar telja að hlaup þetta jafngildi
40 kílómetra hlaupi á jafnsléttu.
Fréttaritari.
Forseti
Islands
til Noregs
FORSETI íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, mun verða í Noregi dagana
28. júlí til 3. ágúst næstkomandi, en
hún verður gestur á árlegri hátíð
sem haldin er á Stiklastöðum, sam-
kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk
á skrifstofu forseta íslands í gær.
Ekki er um að ræða opinbera
heimsókn, heldur mun forsetinn
verða sérstakur gestur hátíðar-
innar, en nefna má að Noregskon-
ungur hefur nokkrum sinnum ver-
ið gestur Stiklastaðahátíðarinnar.
Auk þess að taka þátt í hátíðinni
,mun forsetinn koma við í Þránd-
heimi og vera viðstödd ólafsdag-
ana þar í borg, en það eru menn-
ingardagar.
Föstudaginn 29. júlí verður for-
setinn í bænum Verdal og sunnu-
daginn 31. júlí fer forsetinn í sigl-
ingu um Þrándheimsfjörð.
Hlíðaskóli:
Lyftan sett
upp í sumar
BÚIÐ ER að framkvæma þær breyt-
ingar í Hlíðaskóla sem nauðsynlegar
eru til að koma þar fyrir lyftu fyrir
fatlaða nemendur skólans, sem þeg-
ar hefur verið pöntuö eins og fram
hefur komið hér í blaðinu áður.
Að sögn skólastjóra Hlíðaskóla
er vonast til að lyftan komi fljót-
lega til landsins, þannig að upp-
setningu hennar verði örugglega
lokið fyrir skólasetningu í haust.
Allt er tilbúið í skólanum fyrir
uppsetningu lyftunnar, en sjálf
uppsetning hennar tekur ekki
nema tvo daga eftir að hún er
komin á staðinn.
Ljóam. Mbt: Ól.K.M.
Bátasýning í Elliðavogi
Snarfari, félag sportbátaeigenda, heldur bátasýningu í Elliðavogi á
morgun, laugardag, og á sunnudaginn, frá klukkan 10 til 22 báða
dagana. Sýningargestum verður boðið upp á reynslusiglingar á sýn-
ingarbátum, ef þvf verður við komið, og ennfremur verða Snarfaramenn
með skemmtisiglingar á eigin bátum fyrir þá sem þess óska, að sigla
um sundin blá og út í Viðey.
Vesturbræður syngja við guðsþjónustu
VESTUR-ÍSLENSKI karlakórinn, Vesturbræður, frá Seattle í Banda-
ríkjunum, sem nú er í íslandsheimsókn, mun syngja í guðsþjónustu í
Bessastaðakirkju næstkomandi sunnudag klukkan 11 fyrir hádegi. Þá
mun og prédika séra Eric Sigmar.
Hafrannsóknastofnun:
Eitt kaldasta vor í
norðanlands í 20
FrétUtilkynning frá Hafrannsóknastofnun.
sjó