Morgunblaðið - 17.06.1983, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1983
19
Skattskrá
Vesturlands-
umdæmis
Akranesi, 1. júní.
SKATTSKRÁ Vesturlandsumdaemis
fyrir árið 1982 hefur verið lögð fram.
Hæstu gjaldendur eru þcssir:
Einstaklingar:
1. Soffanías Cecelsson,
Grundarf., útg.m., 530.726,-
2. Sæmundur Sigmundsson,
Borgarnesi, bifr.stj., 503.145,-
3. Run61fur Hallfreðsson,
Akranesi, útgerðarm.,463.119,-
4. Stefán Sigurkarlsson,
Akranesi, apótekari, 322.030,-
5. Guðjón Guðmundsson,
Akranesi, læknir, 227.116,-
6. Bragi Níelsson,
Akranesi, læknir, 220.367,-
.7 .Guðmundur Árnason,
Akranesi, læknir, 210.083,-
8. Guðjón Bergþórsson,
Akranesi, skipstj., 204.749,-
9. John Fenger,
Akranesi, fjárm.stj., 195.880,-
10. Kristján Pétursson,
Akranesi, skipstj., 185.934,-
Fyrirtæki:
1. Kaupfélag Borgfirðinga,
Borgarnesi, 2.688.237,-
2. H.B. & co hf.,
Akranesi, 2.429.977,-
3. Hvalur hf.,
Hvalfirði, 1.892.112,-
4. Hraðfr.hús Ólafsvíkur,
Ólafsvík, 1.444.759,-
5. Þorgeir & Ellert hf.,
Akranesi, 1.212.282,-
JG
Skátar með
fjáröflun
BANDALAG íslenskra skáta hefur í
hyggju að fara á alheimsmót skáta
sem haldið verður í Kanada 4.—15.
júlí. Þeir verða í því tilefni með sölu-
tjöld í miðbænum á þjóðhátíðardag-
inn og einnig munu þau ganga um
borgina í fullum skrúða og selja ís-
lenska fánann. Einnig munu þau
vera með smámiðahappdrætti og
kostar hver miði 10 krónur.
Fyrrnefnt mót munu um 15.000
skátar víðsvegar að úr heiminum
sækja og eru þar af um 700 stúlk-
ur, en þetta er í fyrsta skipti sem
þeim er leyft að sækja samkundur
sem þessa.
Sýning á
sjónvarps-
tækni
RADÍÓSTOFAN hf. og japanska
fyrirtækið Hitachi Denshi hafa
síðustu daga kynnt sjón-
varpsmyndavélar og ýmis tengd
mælitæki fyrir íslenskum kvik-
myndagerðarmönnum og for-
svarsmönnum auglýsingastofa.
Er sýning þessi tengd áformum
sjónvarpsins um að hefja birt-
ingu auglýsinga á myndböndum
með haustinu.
Opið hús verður fyrir áhuga-
menn um sjónvarpstækni í
húsakynnum Ismyndar, Síðu-
múla 11, á morgun, laugar-
daginn 18. júní milli kl. 10 og
16.
SUMARTILBOÐ
Litstækkun á aðeins9kr
20x25cm
Þessistærð
Litmyndir samdægurs
Filman í framköllun fyrir kl. 11.
Myndirnar tilbúnar kl. 17.
Verið velkomin!
Ef þú lætur framkalla og kópiera 5 lit-
filmur (35mm 135-12, 24,36) hjá okkur á
tímabilinu 24. maí til 1. september 1983,
bjóðum við þér eina litstækkun 20x25 á
aðeins 9 kr., gegn framvísun 5 filmupoka
á þínu nafni til staðfestingar um viðskiptin.
LJOSMYNDAÞJÓNUSTAN HF.
LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI 85811