Morgunblaðið - 17.06.1983, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚNf 1983
Sjómannadagur
á Seyðisfirði
SevAisfirði, 8. júní.
SJOMANNADAGURINN var há
tíAlega haldinn hér á Seyðisfirði að
venju. Á laugardag fór fram kapp-
róóur og þyrla Landhelgisgæslunn-
ar sýndi hjörgun úr sjávarháska.
Sunnudagurinn hófst síðan
með hópsiglingu báta og togara
um Seyðisfjörð kl. 9. Að henni
lokinni var skrúðganga til kirkju,
þar sem messað var.
Eftir hádegi var dagskrá á
íþróttavellinum, þar sem brugðið
var á glens. Fram fór hindrun-
arhlaup þar sem karlmennirnir
þurftu að skríða í gegnum síldar-
tunnu, kafreka sextommu nagla
og fara síðan sömu leið til baka.
Kvenfólkið fékk þó að stökkva yf-
ir tunnurnar. Einnig var farið í
reiptog og endað á knattspyrnu-
leik milli áhafna togaranna.
Á eftir var kaffisamsæti í fé-
lagsheimilinu Herðubreið og við
það tækifæri voru heiðraðir 3
aldnir sjómenn, þeir Björn Ás-
geirsson, Hávarður Helgason og
Sigurjón Pálsson.
Um kvöldið var svo stiginn
dans fram eftir nóttu.
Fréttaritari.
Vestmannaeyjar:
Sjómannadagurinn
tvíheilög hátíð
Vcstmannaeyjum, 7. júní.
AÐ VANDA var mikið um dýrðir á
hátíðisdegi sjómanna um helgina.
Sjómannadagurinn er tvíheilagur
hér í Eyjum og svo hefur verið I
mörg ár íjiessari stærstu verstöð
landsins. Á laugardaginn voru há-
tíðarhöld með hefðbundnu sniði í
Friðarhöfn. Keppt var í kappróðri,
koddaslag og stakkasundi. Var
þátttaka mikil og fjöldi fólks
fyigdist með átökunum þrátt fyrir
leiðinlegt veður, kalsarigningu.
Hátíðarhöldin á sjálfan sjó-
mannadaginn hófust kl. 13 með
því að hátíðin var sett við Sam-
komuhúsið og síðan var skrúð-
ganga að Landakirkju og þar
messaði séra Kjartan örn Sigur-
björnsosn. Eins og jafnan áður á
sjómannadaginn var Landa-
kirkja þéttsetin. Að lokinni
messu var hefðbundin minn-
ingarathöfn við minnisvarðann
um drukknaða og hrapaða fyrir
framan kirkjuna, og eins og und-
anfarin 30 ár sá Einar J. Gísla-
son um þá athöfn.
Síðdegis var útihátíð á Stakka-
gerðistúni í blíðskaparveðri.
Lúðrasveit lék, frú Ingveldur
Gísladóttir flutti hátíðarræðu
Sveit piparsveina sem fékk bestan tíma karlasveita.
Sævar Brynjólfsson skipstjóri á skuttogaranum Breka
VE 61 ásamt eiginkonu sinni, Ingibjörgu Hafliðadóttur.
Breki var með mesta aflaverðmæti togskipa á síðasta
ári, aflaði fyrir 25 milljónir.
Einar Ólafsson skipstjóri i Kap II VE og eiginkona
hans, Viktoría Ágústsdóttir, með Ingólfsstöngina, sem
árlega er veitt fyrir mesta aflaverðmæti báta sem stund-
að hafa blandaðan veiðiskap. Aflaverðmæti hjá Kap
nam 9,1 milljón.
Gísli Einarsson skipstjóri á Björg VE ásamt eiginkonu
sinni, Björgu Guðjónsdóttur. Björg VE var með mest
aflaverðmæti togbáta undir 200 tonnum að stærð, fisk-
aði fyrir 3,6 milljónir.
Hörður Jónsson skipstjóri á Heimaey VE 1 ásamt eig-
inkonu sinni, Sjöfn Guðjónsdóttur, með víkingaskipið
sem fylgir sæmdarheitinu „Aflakóngur Vestmanna-
eyja“ en Höröur aflaði alls 1106 á vertíðinni. Nú í ár eru
liðin rétt 30 ár frá því þessi veglegu verðlaun voru fyrst
veitt.
Sauðárkrókur:
Gagnfræðaskólanum slitið
Gagnfræðaskólanum á Sauðár-
króki var slitið Tóstudaginn 20. maí
sl. Ails voru 130 nemendur í skólan-
um í vetur. Kennarar voru 16 auk
skólastjóra, þar af 4 stundakennar-
ar. Skólastarf var með svipuðum
hætti og fyrri ár. Nýjung var að nem-
endur skólans fengu svokallaða
vinnudaga og unnu að verkefninu
„Auðlindir Skagafjarðar" undir leið-
sögn kennara. Að lokum var sýning
á úrvinnslu nemendanna fyrir bæj-
arbúa. I'ótti þeim, sem sáu, vel hafa
tekist. Nemendur 9. bekkjar fengu
starfskynningarviku um miðjan vet-
ur og féll sú starfsemi í góðan jarð-
veg hjá þeim eins og fyrra ár, sem
var upphafsár þessa þáttar í skóla-
starfinu.
Grunnskólaprófi luku 40 nem-
endur. Þar og á öðrum bekkjar-
prófum náðist margur góður
árangurinn og hlutu nemendur
umbun fyrir í formi bókaverð-
launa frá skólanum eða öðrum að-
ilum. Rotary-klúbbur Sauðár-
króks hefur alla tíð frá stofnun
veitt bókaverðlun til skólans
handa nemendum sem skarað
hafa fram úr á einhverju sviði og
svo var einnig að þessu sinni. Út-
gerðarfélag Skagfirðinga minnist
árlega nemenda í skipstjórnar-
fræðum með bókagjöf fyrir bestan
árangur í þeim greinum.
Skólastjóri Gagnfræðaskólans á
Sauðárkróki er Friðrik Margeirs-
son.
Barnaskóla Sauðárkróks var
slitið 10. maí sl. Nemendur í vetur
voru 296 í 14 bekkjardeildum.
Á skólaárinu varð sú breyting
að kennsla 6. bekkjar — tólf ára
barna — fór fram í skólahúsi
Gagnfræðaskólans, einnig var þar
öll handavinnukennsla og kennsla
í eðlisfræði 5. og 6. bekkjar.
Vegna færslu 6. bekkjar var ein
kennslustofa í gamla skólahúsinu
tekin undir bókasafn og jafnframt
sköpuð þar vinnuaðstaða fyrir
kennara. Að öðru leyti var skóla-
starf með sama sniði og undanfar-
in ár. Þó varð nokkur aukning á
heimilisfræðikennslu og einnig
var á vegum skólans kennd
sænska ásamt með dönsku í 5.
bekk. Eins og undanfarin ár fóru
11 ára nemendur haustferð um
söguslóðir í héraðinu og 12 ára
nemendur í vorferð til Suðurlands.
Íþróttahátíð var haldin í desem-
ber og skólaskemmtun í mars, en
þar tóku allir nemendur skólans
til hendi með einum eða öðrum
hætti. í tengslum við skemmtun-
ina var gefið út skólablaðið
„Skólatrair, sem nemendur 6.
bekkjar önnuðust. Þeir sáu og um
eina síðu í héraðsblaðinu Feyki.
Þá tóku nemendur þátt í íþrótta-
og skákmótum og náðu þar ágæt-
um árangri.
Margir gestir komu í skólann
færandi hendi. Gideon-félagar
gáfu 10 ára nemendum Nýja testa-
mentið, Kiwanis-menn komu í
skammdeginu og færðu kennurum
og nemendum endurskinsmerki.
Lögreglumenn önnuðust umferð-
arfræðslu og eldvarnaeftirlits-
menn skýrðu notkun reykskynjara
og slökkvitækja. Þá hélt Jónas
Ingimundarson, píanóleikari tón-
listarkynningu fyrir grunnskólan-
emendur og á vordögum komu
gestir frá grunnskóla Siglufjarðar
og sungu og léku á hljóðfæri.
Á sl. ári var minnst 100 ára
reglulegs skólastarfs á Sauðár-
króki og 15. ágúst var þess minnst
að 100 ár voru liðin frá fæðingu
Jóns Þ. Björnssonar, fyrrum
skólastjóra. Af því tilefni var skól-
anum gefin brjóstmynd af Jóni og
gerðu það gamlir nemendur hans
og velunnarar. Fleiri gjafir bárust
skólanum og m.a. tilkynnti forseti
bæjarstjórnar Sauðárkróks að
bærinn hyggðist færa skólanum
veglega gjöf. Starfandi kennarar
við Barnaskóla Sauðárkróks voru
21 í heilum eða hlutastöðum. Yfir-
kennari er Guðríður Aadnegard,
en skólastjóri er Björn Björnsson.
Af því sem hér hefur verið sagt
má sjá, að starfsemi skólanna er
fjölskrúðug og sennilega marg-
þættari en fólk gerir sér almennt
grein fyrir. Áður hefur verið sagt í
Mbl. frá starfsemi Tónlistarskól-
ans og Fjölbrautaskólans á Sauð-
árkróki. KÁRI.
Alvarlegar
afleiðing-
ar þurrka í
Mozambique
Maputo, Mozambique, 16. júní. AP.
GÍFURLEGIR þurrkar í Suður-
Afríku í tvö ár hafa haft þær af-
leiðingar að Mozambique hefur
aldrei orðið jafn illa úti í náttúru-
hörmungum, að því er segir í til-
kynningu frá Aranda Da Silva,
viðskiptaráðherra landsins.
Da Silva sagði að átta héruð
af tíu í landinu hefðu orðið illa
úti í þurrkunum og í sex þeirra
hefði framleiðsla fallið niður í
70 til 80 af hundraði. Talið er
að 1,3 milljónir tonna af korni
hafa eyðilagst, að því er segir í
tilkynningu ráðuneytisins.
Metsolubku) á hverjum degi!