Morgunblaðið - 17.06.1983, Síða 31

Morgunblaðið - 17.06.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ 1983 31 Jón Páll Sigmarsson: „Hef aldrei verið sterkari“ —stefni að því að lyfta 1000 kg Kraftlyftíngamaðurinn Jón Páll Sigmarsson setti um síöustu helgi nýtt Evrópumet í réttstöðulyftu í flokki 23 ára og yngri. Á sama móti varö Jón Noróurlandameistari. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jón nær góðum árangri á erlendri grund. Jón hefur æft mjög vel í vetur og hefur sett markiö hátt í íþróttagrein sinni. Mbl. spjallaöi viö kappann og innti hann eftir því hvaó væri framundan af mótum og hvert væri takmark hans á árinu. — Eg hef aldrei veriö í betri æf- ingu en einmitt nú og jafnframt hef ég aldrei veriö sterkari. Enda hef ég æft óhemju vel að undanförnu þrátt fyrir að aöstæðurnar séu slæmar. Ég var eftir atvikum ánægöur meö árangur minn á Noröurlandameistaramótinu á Zico kominn til Ítalíu Zico kom til Udine á Ítalíu í gær og voru múgur og margmenni sem fögnuöu honum viö komuna. Hann sagöi viö komuna aö hann ætlaöi aö fara til Sviss um helg- ina og horfa á landsleik sem Brasílía á aö leika þar og síöan ætlar hann aó dvelja í viku í Flór- ens og slappa af áöur en æfingar byrja á fullu. „Ég er staóráöinn ( því aö endurgjalda þá vinsemd sem mér hefur veriö sýnd hér í dag og ég vonast til aö vió verðum Ítalíu- meistarar næsta ár,“ sagöi Zico. En italir eru ekki af baki dottnir viö aö leita sér aö snillingum frá Brasilíu, þrátt fyrir aö búiö er aö setja bann viö kaupum á nýjum erlendum leikmönnum þar í landi. Roma er á höttunum eftir Socrates og á hann aö taka viö af Falcao, en útséö er um aö samningar náist milli hans og Roma. Einnig hefur heyrst aö Roma hafi augastaö á hinum frábæra miövallarleikmanni Toniho Cerezo, en ekkert er enn komið á hreint hver þaö verður sem tekur viö af Falcao. dögunum. En þaö er ekkert laun- ungarmál aö ég ætlaöi mér aö gera betur. Ég lyfti 950 kg saman- lagt en takmarkið var 965 kg. Það geröi útslagiö aö þegar ég var aö lyfta 367,5 kg í hnébeygjunni þá missti ég jafnvægið, datt framfyrir mig og því varö lyftan ógild. Ég hef verið aö fara upp meö 370 kg í hnébeygjunni og tekið 330 kg þrisvar í röð í hnébeygju á æfing- um og á því aö geta fariö upp meö þessa þyngd léttilega. En þaö mistókst því miður. Bekkpressan er líka aö koma hjá mér. Þar er ég í framför. Ég er staðráöinn í því að bæta árangur minn og takmarkið er að nálgast 1000 kg sem mest. Auðvitað væri stórkostlegt aö lyfta rúmlega þaö og aö því er að sjálfsögöu stefnt. Framundan er íslandsmeistara- mót í kraftlyftingum, en þar sem ég var svo óheppinn aö snúa mig illa á ökkla þá er óvíst hvort ég verö vel undir þaö mót búinn og hvort ég get keppt. En í haust þá er heimsmeistara- mót í Gautaborg og líka Norður- landameistaramót hér á landi. Þá verö ég aö vera í góðri æfingu Þar gefast góð tækifæri á aö sýna hvaö í manni býr. Þá voru meö mér á Noröurlandameistaramótinu efnilegir og sterkir kraftlyftinga- menn, þeir Hjalti Árnason, Höröur Magnússon og Torfi Ólafsson, sem er aðeins 18 ára gamall. Þeir eiga allir eftir aö spjara sig á mótunum sem eru framundan. Þaö sýndi frammistaöa þeirra í Noregi, sagöi Evrópumethafinn sterki. — M • Jón Páll Sigmarsson, kraftlyftingamaöur, hafur aldrai varió sterkari en núna aö eigin sögn. Hann setur markió hátt og stefnir aó því að lyfta meira en 1000 kg samanlagt í hnébeygju, bekkpressu og rétt- stööulyftu. Ujósm. Morgunblaðið/Ólafur K.M. GULLNA STRONDIN býður þér í 10 ára afmælisveislu Útsýnar í Lignano Þú átt dýrölega daga í vændum í Lignano. Hér hjálpast allt aö til aö gera sumarleyfiö yndislegt: gistiaöstaöa og þjónusta í sérflokki, friösælt fag- urt umhverfi, allt svo hreint og baöaó í blómum, frábært loftslag, hrein gullin ströndin í fárra skrefa fjarlægó, fjöldi ódýrra veitingastaöa meö Ijúffengan mat og vín, úrval verzlana meó glæsilegan varning, hvíld eöa Brottfarardagar: Og veröiö — þaö er alveg 21/6, 12/7, 26/7, 2/8, 9/8, 16/8, 23/8, einstakt — eða allt frá kr. 3Ö/8. - _ 2 eöa 3 vikur. | f »280b™ G«n8í27/5'm. skemmtun og Ijúft líf viö hvers manns hæfi.___________________ Stórkostlegar kynnisferðir undir leiösögn þaulkunnugra fararstjóra Út- sýnar til Feneyja, Flórens, Rómar eöa ógleymanleg þriggja landa sýn: Júgóslavía, Austurríki og ítölsku Alparnir. Þetta er sérhönnuð sumarleyfisparadís handa þér. Við tókum nokkra farþega tali 1. júní og spuröum: „Hvað finnst þér um sumarleyfið hér?“ „Lignano er stórkostlegur staður sem mætir kröf- um jafnvel vandlátustu viðskiptavina. Allt um- hverfið og aöstaðan vekur ánægju og vellíðan. Viö getum ekki sett út á neitt.“ Jónína Benediktsdóttir og Stefán E. Matthíasson, Spóahólum 20, Reykjavík. „Lignano er dýrðlegur staöur fyrir þá sem vilja hvíla sig en einnig njóta lífsins. Snyrtimennska er einstök, svo og öll þjónusta, annars hefðum við ekki komið hingaö aftur." Ragna Pálsdóttir og Kjartan Bjarnason, Gnoóarvogi 56, Reykjavík. REYKJAVIK: Austurstræti 17. Símar: 26611. 20100. 27209. AKUREYRI: Hafnarstræti 98. Sími: 22911. Sendum öll bestu kveðjur úr þessari sumarparadís. „Lignano býöur upp á allt sem öll fjölskyldan kýs og óskar sér og öll þjónusta og fararstjórn er frábær. Þess vegna erum viö komin hingað aftur." Birgir Örn Birgis og fjölskylda, Dalalandí 10, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.