Morgunblaðið - 19.08.1983, Page 6

Morgunblaðið - 19.08.1983, Page 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983 „Það er búið að pípa á þig heillengi“ „Ætlarðu að biðja röntgen að koma?“ „Skemma geisl- arnir ekki filmurnar?66 „Þú getur lifað góðu lífi án gallblöðru“ „Maður má bara ekki gæða sér á Hólsíjalla- hangikjöti“ „Þess vegna verður manneskjan gul“ „Þetta var góð mynd hjá þér. Hvernig ferðu eiginlega að þessu?“ „En ekki svona blóðugar aðgerðir!“ „Of lítill kontrast“ viö Ásgeir, sem haföi beðiö Kjart- an fyrir sjúklinginn. „Skipulag læknastarfsins er í heild mjög frábrugöið því, sem tíökast á öör- um sjúkrahúsum landsins. Þaö eru nokkur ár frá því aö ríkiö keypti Landakot af systrun- um. Spítalinn er þó sjálfseignar- stofnun og læknarnir vinna hér sem e.k. atvinnurekendur, en ekki opinberir starfsmenn. Þetta er hliöstætt fyrirkomulaginu á banda- rískum einkasjúkrahúsum. Syst- urnar voru í miklum fjárhagserfiö- leikum og daggjöldin, sem þá tíök- uöust, dugöu engan veginn til rekstrarins. Nú er Landakotsspítali hins vegar á fjárlögum, en þaö gengur ávallt illa aö fá fjárveit- ingar. Enda þótt ríkiö hafi keypt spítalann fyrir nokkrum árum, var ákveöið aö starfsfyrirkomulag lækna yröi óbreytt. Viö vildum halda starfinu áfram eins og viö höföum gert.“ En hvernig er starfi lækna spít- alans háttaö? „Viö erum ekki fastráönir. Viö fáum greitt samkvæmt kauptaxta fyrir hvern sjúkling okkar. Sórhver sjúklingur er skrifaöur á ákveöinn lækni og hann og aöeins hann ber ábyrgö á sjúklingnum. Þetta þýöir m.a. aö sjúklingar geta valiö sér lækna. Þeir skrá sig á biölista læknisins. Fari hann í leyfi, tekur enginn annar læknir viö sjúkling- um af biölista hans. Þá erum viö einnig kauplausir þegar viö förum í frí. Viö fáum okkar sjúklinga og sjá- um um þá þar til þeir yfirgefa spít- alann. Þú sérð aö eölileg afleiöing þessa er sú, aö viö höldum sjúkl- ingum okkar ekki lengur á sjúkra- húsinu en þeir þurfa. Viö fáum greitt fyrir hvern sjúkling og því er þaö ekki hagkvæmt fyrir okkur aö láta þá dvelja lengur en nauösyn- legt er. Hagsmunlr ríkis og okkar fara því saman að þessu leyti. Sjúkrahúsiö er ódýrara í rekstri en önnur sjúkrahús landsins fyrir vik- iö.“ Siguröur Björnsson krabba- meinssérfræöingur kom. nú aö okkur og þurfti aö ræöa viö Kjart- an um sjúkling, sem haföi fengiö fjarlægt æxli úr ristli fyrir tveimur árum. Kjartan hafði nú tekiö bút úr þarmi, en horfur sjúklingsins voru góöar miðað viö aöstæöur. „Það skemmtilega viö þaö aö vera skurðlæknir er það, að svo oft er mögulegt að lagfæra kvillann. Sjúklingurinn fer heim heill heilsu. Horfur t.d. krabbameinssjúklinga eru einnig orönar gjörbreyttar frá því maöur var aö byrja. Nú er unnt aö gera góöa hluti í þeim efnum meö skuröaögerö og lyfjagjöf.“ Ég spuröi Kjartan nánar um vinnutilhögun lækna spítalans. „Já, við reynum aö hraöa sjúkl- j ingum í gegn eins og ég nefndi áöan. En þaö er mikilvægara, aö viö erum hvattir til aö vinna vel. Ástæöan er einfaldlega sú, aö vegna þess, aö sjúklingurinn getur valiö sér lækni hér, þá fæ ég enga sjúklinga nema ég leysi starf mitt vel af hendi. Þá sendi ég einnig þá sjúklinga mína, sem ekki þarf aö skera upp, til þeirra sérfræöinga, sem óg treysti best. Þessu fyrir- komulagi vildi ríkiö aö viö héldum viö kaup sjúkrahússins og viö vor- um einlæglega samþykkir því.“ En hvernig er þessum málum háttaö á öörum sjúkrahúsum á landinu? „Ja, á ríkis- og borgarspítala er lítiö sem hvetur þig til aö hraöa sjúklingi í gegnum meðferð. Þar er í raun ekki svo veigamikiö hvort sjúklingur dvelst nokkrum dögum lengur eöa ekki. Þá er sjúklingur ekki skráöur á ákveðinn lækni, sem leiöir til þess, aö hann er skoöaöur af þeim lækni, sem gengur stofugang í þaö og þaö skiptið. Því er hætt viö, aö enginn ákveöinn læknir fylgist meö þér frá því þú kemur og þar til þú ferö. Ábyrgðin hvílir ekki á einum lækni. Þá er einnig hætt viö því, aö ákvaröanataka vefjist dálítiö meira fyrir þessum læknum þar sem þeir hafa e.t.v. ekki nægjanlega góöa yfirsýn yfir stööu þína. Annars má geta þess hér, aö aöalvandamál okkar er sjúkra- húsvist gamals fólks. Sjúkrahúsin þurfa aö annast roskna sjúklinga, sem í raun þurfa ekki aö dveljast á sjúkrahúsi. í tengslum viö Landa- kot er engin langlegudeild eins og hin sjúkrahúsin í Reykjavik hafa og skapar þaö mikiö vandamál fyrir okkur. Þaö gefur auga leiö hversu óheyrilega dýrt og misráöiö þaö er aö halda rándýru sjúkrarúmi fyrir hjúkrunarsjúklinga vegna skorts á vist- og hjúkrunarheimilum, 'sem yröu margfalt ódýrari í rekstri fyrir þjóðfólagiö.“ En hvernig er sjúklingum skipt milli Borgarspítalans, Landspítal- ans og Landakotsspítala? „Stóru sjúkrahúsin þrjú í Reykjavík skipta á milli sín bráöa- vöktum nokkurn veginn jafnt, en þar fyrir utan koma sjúklingar af biölistum hvers sjúkrahúss fyrir sig. Hér eru fimm skuröstofur. Ein skuröstofan er aöeins fyrir augnskuröi, en á Landakoti er í raun eina augndeiid landsins. Þó er vísir aö augndeild á Akureyri. Tvær skurðstofanna eru fyrir al- mennar skurölækningar, þá er sú fjóröa fyrir þvagfæraaögeröir og hin fimmta fyrir minniháttar að- geröir. Auk mín eru tveir almennir skurölæknar. Auk þess eru hér tveir þvagfæraskurölæknar og tveir beinaskurölæknar. Nú er ég einn því hinir almennu skurölækn- arnir eru í sumarleyfi, svo þaö er mikiö álag á mann um þessar mundir. Skurðstofurnar eru í notk- un alla daga vikunnar. Yfirleitt er skoriö upp á morgnana, svona frá hálfníu og fram yfir hádegi. Sumir skurölæknanna vinna auk þessa á stofu. Sjálfur hef ég ekki tíma til þess.“ Kjartan sagöi 15—20 mínútur líöa á milli aögeröa. Þaö færi eftir því, hversu hreinlegar aögeröirnar væru. „Ef þær eru miöur hreinleg- ar kann aö líöa lengri tími á milli þeirra. Og þá skreppur maöur gjarnan til sjúklinganna. Hver læknir hér hefur sinn lit, en litaöir pappírsstrimlar eru settir fyrir utan stofurnar og gefa til kynna að í ákveönu rúmi á þeirri stofu liggi sjúklingur, sem „tilheyrir“ ákveön- um lækni. Annars kemur maöur til sjúklinganna jafnt á virkum dögum sem helgum og veröa persónuleg tengsl milli sjúklings og læknis því mjög sterk og náin hér á spítalan- um.“ Ég hjó raunar eftir því, aö Kjartan nefndi þaö viö samstarfs- menn sína, aö hann heföi þurft aö skoöa sjúkling klukkan fjögur nótt- ina áöur, en grunur lék á því, aö hann væri meö sprunginn maga. Svo reyndist þó ekki vera. Nú var hringt og sagt aö skuröstofan væri tilbúin fyrir næsta uppskurö Kjartans, sem var viö gallsteinum. „Þaö er búið aö pípa á þig heillengi," sagöi einhver. Kjartan tók þá eftir því, aö hann hafði gleymt kalltæki sínu niöri á skurödeild. Viö fórum niöur á ný og aftur biöum viö Rax eftir því, aö kallaö yröi á okkur þar sem viö biöum í sótthreinsunarherberginu. Sjúklingurinn var roskin kona. Hún haföi komiö á bráöavaktina þremur dögum áöur og þjáöist af verkjum og hita. Sónartæki hafði gefiö til kynna, að hún væri meö galisteina, en Landakot er eina sjúkrahúsiö, sem hefur þaö rann- sóknartæki til almennra rann- sókna, en á fæöingardeild Land- spitalans er einnig slíkt tækl. Kjart- an skar stóran skurö rétt fyrir neö- an rifbeinin. Nú var honum til aö- stoöar Helgi Jóhannsson læknir, en annars voru hjúkrunarfræö- ingarnir þeir sömu og viö fyrri aö- geröina, nema hvaö þeir höföu skipt dálítiö um hlutverk. Stúlkan, sem aðstoöaöi Kjartan viö móöur- lífsskuröinn, sá nú um aö aöstoöa starfssystur sína, sem haföi tekiö viö fyrra hlutverki hennar. Á skurðstofunni stóð nú fyrir- feröarmikiö tæki á hjólum og kom í Ijós, aö þaö var röntgentæki. Taka átti röntgenmynd er komist haföi veriö aö djúpu gallgöngun- um. Þegar komið var að þeim, sagöi Kjartan viö einn hjúkrunar- fræöinginn: „Ætlaröu aö biöja röntgen aö koma.“ Síöan sneri hann sér aö okkur og sagöi: „Þá er aö fá mynd. Bíöið þiö nú bara í horninu á meðan viö komum röntgentækinu fyrir. Síöan fara flestir út, er myndin er tekin, vegna geislanna. Skemma geislarnir ekki filmurnar? Þaö er öruggara að fara meö þær fram.“ Viö Rax smeygö- um okkur út, en Kjartan, svæf- ingarhjúkrunarfræðingurinn og Hilma Magnúsdóttir röntgenhjúkr- unarfræðingur uröu eftir hjá sjúkl- ingnum. Þaö hjúkrunarfólk, sem var grænklætt fékk sótthreinsaða klúta yfir hendurnar á meöan þaö beiö. „Þaö er nú venjulegra á sjúkrahúsunum, aö maöur þurfi ekki aö fara fram á meöan á myndatöku stendur,“ sagöi Soffía deildarstjóri. „Þá er skermur til varnar geislum inni á sjálfri skuröstofunni, sem hægt er aö bregöa sér á bak viö. En svona veröum við aö gera þetta hór.“ Aö lítilli stundu liðinni var okkur hleypt aftur inn. Röntgenmyndin var framkölluö annars staöar í húsinu og send upp á skuröstof- una. Á henni mátti glöggt sjá steina í lifrargöngunum. Skugga- efni (kontrast) haföi veriö sprautaö þangaö niöur og komu steinarnir fram sem skuggar á myndinni. Kjartan geröi grein fyrir henni og verö ég aö segja þaö, aö þetta var í fyrsta sinn, sem ég sá eitthvaö út úr röntgenmynd. Soffía deildarstjóri aöstoöaöi viö þennan uppskurð og spuröi mig eitthvað á þá leið, hvort gall- blaöran heföi verið tekin. Ég tók þessu sem hálfgeröu gríni og kom þannig hrapallega upp um þekk- ingarskort minn. Ég kvaö Kjartan ætla aö skilja eitthvaö eftir af henni, en þá svaraöi Soffía því til, aö þaö mundi hann ekki gera. Mér varö hverft viö og beiö eftir nánari útskýringum. „Þú getur lifað góöu lífi án gallblöörunnar. Þaö er nú líklegast. Maöur má bara ekki gæöa sér á feitum mat eins og t.d. Hólsfjallahangikjöti." Mér varð hugsaö til móöur minnar, sem fædd er þar og uppalin. Einhvern veginn gat ég ekki ímyndaö mér hana án gallblööru! „Komdu og fylgstu meö,“ sagöi Kjartan og ég þokaöi mér eins nærri honum og ég þoröi. „Þetta er lifrargangurinn og nú séröu hvaö gerist." Kjartan fór meö nokkurs konar sköfu niöur í lifrar- ganginn og brátt kom gallsteinn í Ijós. „Kolsvartir gallsteinar," bætti Kjartan viö. „Sjáiö þiö þarna hin- um megin,“ sagöi hann og benti á röntgenmyndina, sem hengd haföi veriö á skerm í stofunni. „Þetta hvíta er galltréö og þarna fyrir neö- an eru stórir svartir blettir, gall- steinarnir. Þá sjást einnig tangirn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.