Morgunblaðið - 19.08.1983, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983
39
ar á myndinni.“ Á myndinni sást
upp undir lifrina, en lifrargangurinn
greindist í margar greinar upp í
hana. Neðar var gallblaöran og
síöan gallgangurinn, sem opnast
ásamt brisgangi út í skeifugörnina.
„Þessir steinar hafa lokaö fyrir
gallrennsliö frá lifrinni og þess
vegna verður manneskjan gul.“
Kjartan náöi fjölda gallsteina úr
lifrarganginum meö sköfunni og
kvaö þetta vera eins og að ganga
á fjöru. Hann sagöi aöra röntg-
enmynd þurfa til þess aö ákveöa
hvort hann heföi náö öllu. Hann
nam gallblöðruna á brott, en hún
var full af steinum. Þegar Kjartan
haföi gengiö frá öllu í skuröinum,
tók Hilma aöra mynd. „Þetta var
mjög góö mynd hjá þér áðan,“
sagöi læknirinn. „Hvernig feröu
eiginlega aö þessu?“
Niöurstööur myndarinnar voru
sendar simleiöis upp á skuröstof-
una. Þá kom myndin litlu síöar. „Of
lítill kontrast," var niðurstaðan.
Skuggaefniö haföi ekki náö aö
renna niöur öll lifrargöngin og því
sáust þau ekki öll. Bætt var kontr-
ast niður í þau og önnur mynd tek-
in. Hún sýndi göngin öll, en dræmt
rennsli niður í skeifugörn. „Þetta er
krampi í vööva, en ekki steinn,“
ályktaði Kjartan. „Oft er erfitt aö
greina milli gallsteins og vööva-
samdráttar á röntgenmynd,. En
þaö er ekkert í göngunum í þetta
sinn.“
Á meðan verið var aö kanna lifr-
argöngin ræddi ég stuttlega viö
svæfingarhjúkrunarfræðinginn. Ég
spuröi hana m.a. hvernig sjúkl-
ingarnir væru svæföir og tjáöi hún
mér þaö, að þeim væri gefið lyf, er
nefndist pentothal í æö. Annars
nefndist svæfingin „leftanol og
pavulon svæfing". Leftanol væri
verkjalyf, en pavulon vöövaslak-
andi. Lyfin heföu einnig letjandi
áhrif á hjartað. Glaöloft (N20) væri
gefið í súrefninu til aö viöhalda
svæfingu, en einnig væri unnt aö
nota innöndunarlyfin fluothane og
efrane. Sjúklingarnir væru vaktir af
“leftanol og pavulon svæfingu”
meö því aö gefa þeim lyfið neo-
stigmin í æö, en þaö upphæfi áhrif
pavulons. Annars vöknuöu þeir
sjálfir, væri þeim ekki gefiö neo-
stigmin. „Stundum anda þeir einn-
ig sjálfir, ef ekki er slakaö á vööv-
um.“ Sjúklingarnir voru meö
eyrnahlífar. Hjúkrunarfræöingurinn
fylgdist reglulega meö hjartslætti
þeirra á hjartalínuriti, en slög hjart-
ans voru sýnd á skermi tækisins
auk þeirra rafbylgna, sem tækiö
mælir. Rafboö í hjartanu, sem fara
um ummyndaðan vöövavef frá
gáttum og niöur í hvolf, er unnt aö
nema meö rafskautum. Þaö má til
gamans geta þess, aö hjartað slær
sjálfstætt og væri fræðilega séö
unnt aö hafa þaö utan líkamans.
Svæfingarhjúkrunarfræöingurinn
fylgdist einnig meö andardrætti
sjúklingsins og kannaöi m.a. hvort
hann andaöi ekki frá sér. Þá tók
hún blóöþrýsting og sá um blóö-
gjöfina, auk annarrar gjafar í æö.
„Er þetta ekki í fyrsta skipti sem
þiö hafiö verið inni á skuröstofu?"
spuröi Kjartan, er hann sem
snöggvast leit upp frá sjúklingi sín-
um. Jú, þaö var rétt. Ég haföi þó
kíkt ofan í maga á sjúklingi. „En
ekki svona blóöugar aögeröir,"
sagöi þá Kjartan og kímdi.
Um tveimur klukkustundum frá
upphafi aögerðarinnar var henni
lokiö. Sett haföi veriö slanga niður
í lifrarganginn, sem lá út á kviöinn.
„Eftir fjóra daga tökum við aöra
röntgenmynd til þess aö ganga úr
skugga um, aö enginn steinn hafi
veriö skilinn eftir. Og þá er kontr-
ast sprautaö um slönguna þangaö
niöur. Þetta er e.k. öryggisventill,"
sagöi Kjartan. Þá var tengdur poki
viö lifrargöngin. „I þennan poka
kemur svolítiö gall og blóö,“ sagöi
læknirinn. Skuröurinn var saumaö-
ur saman meö tvelmur þráöum.
Búiö var aö binda lykkju á enda
hvors þeirra. Kjartan saumaöi
helming skurðarins meö öörum
þeirra þannig aö lykkjan var utan á
kviö sjúklingsins. Síðan saumaði
hann þaö sem á vantaöi meö hin-
um þræöinum. „Álagiö veröur of
mikiö, ef einn spotti er notaður.
Hann getur einfaldlega slitnaö, er
viö reynum aö draga hann úr
skuröinum síðar.“
Viö Rax fórum fram og Rax setti
sig í stellingar til aö ná mynd af
lækninum án skurðbúnings. Við
tókum í hönd hans og þökkuðum
fyrir okkur. Hvorki hann né annaö
starfsfólk skurödeildarinnar mátti
vera aö þvi aö standa í sérstakri
þakkar- og kveöjuathöfn og fyrr en
varöi vorum viö því komnir upp í
búningsherbergi Landakotsspít-
ala. Viö höföum dvalist fimm
klukkustundir á sjúkrahúsinu
þennan morgun, þar af um fjórar á
skurðstofunni.
Þaö er undarlegt aö sitja viö
tölvu og skrifa frásögn af heim-
sókn okkar á Landakotsspítala og
hlusta á segulbandsupptöku af
stórum uppskurðum, sem maður
hefur sjálfur verið vitni aö. Og sú
hugsun leitar á mann, aö ábyrgö
hinna ýmsu stétta þjóöfélagsins sé
mismikil. Sérhvern dag er skurö-
stofan orrustuvöllur, þar sem bar-
ist er viö þaö, aö bjarga mannslíf-
um eöa auðvelda líf sjúklinga. Sér-
hvern dag er ábyrgö starfsfólk
hennar jafnmikil. Smávægileg mis-
tök gætu oröiö dýrkeypt. En sú
hlýja og sá skilningur, sem okkur
frá Morgunblaöinu var sýnd á
skurödeild Landakotsspítala, er til
vitnis um þaö, aö sú ábyrgö er þar,
eins og á öörum sjúkrahúsum
landsins, öxluö meö glöðum huga.
— ing. joh.
Sjálfboðaliða vantar
i byggingarvinnu og málningarvinnu. Hringiö í síma 21240.
Samtök um kvennaathvarf
Heildsölubirgöir:
Agnar Ludvigsson hf.
Nýlendugötu 21,
sími 12134.
VÉIADEILD SAMBAHDSINS
BIFREIÐAR Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
ISUZU
TROOPER
Þægindi og búnaður vönduðustu
fólksbifreiða. Seigla og aksturs-
eiginleikar sterkustu jeppa
Allra óskir uppfylltar og engu þarf
við að bæta hvort heldur á
þjóðvegi eða í þéttbýli.
□ Verð frá kr. 583.000,-
(Gengi 02.08.’83)