Morgunblaðið - 19.08.1983, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983 41
víninu (ég læt lesendur sjálfa um
að þýöa þessa setningu).
„Ég er mjög bjartsýnn á vin-
sældir ilmvatnsins," bætir hann
svo viö.
YSL er óhætt aö vera bjartsýnn,
því ilmvötn hans Y og Opium, sem
ætlað er konum, og Kouros, sem
er fyrir karla, hafa selst grimmt um
allan heim.
Hann er spuröur hve lengi ilm-
vatniö hafi veriö í framleiöslu.
„Þaö hefur tekiö um 3 ár aö
þróa ilmvatnið og hefur þaö tekið
sífelldum breytingum á þessum
tíma. Ég hef fylgst mjög náiö meö
því, eins og ööru, sem framleitt er
í mínu nafni,” segir hann svo.
YSL reynir aö lýsa ilmvatninu aö
ósk eins blaðamannsins. Segir
hann þaö bera rósailm og inn-
blásturinn að ilmvatninu sé annars
vegar fenginn frá bleikum rósum,
sem prýöa garöinn viö húsiö hans
í Marakesh í Marokkó og hins veg-
ar ást hans á París, sem hefur aliö
hann og nært í áratugi.
En ilmvatnsglasiö sjálft er eins
og skorinn demantur og pakkning-
in utan um glasiö er í rósrauöum
lit. Allt afar smekklegt.
Piern Bergé horfir é
aö tjaldabaki é
fyrstu tískusýningu
þeirra féiaga.
Karlmaöur bætist í hópinn, þaö
er hr. Robert Miller, sem er for-
stjóri ilmvatnsfyrirtæksisins sem
ber nafn Yves Saint Laurent.
Aödáendur og vinir YSL eru líka
alltaf aö koma aö boröinu og
kyssa hann og þrýsta hönd hans
um leiö og þeir óska honum til
hamingju. Sjálfur viröist Saint
Laurent fremur hlédrægur og
hljóölátur og lætur framkvæmda-
stjórann um aö tala.
Nú sýnir Catherine Deneuve á
sér fararsniö, greinilega oröin
þreytt á öllu umstanginu. Kona
greiðir henni leiö út úr mannþröng-
inni sem er í kringum hana.
Þaö var mikill glæsibragur yfir
þessum hádegisveröi og margt
fyrirfólk var þarna samankomiö og
svo auðitaö þeir, sem áttu aö
kynna hiö nýja ilmvatn á einn eöa
annan hátt. Viö frá islandi þekkt-
um ekki mörg andlit. Kona ein
vakti þó sérstaklega athygli okkar
vegna útlits. Var okkur sagt aö hún
væri þekktur dálkahöfundur í
Frakklandi. Þaö sem geröi þessa
konu frábrugöna hinum gestunum,
sem yfirleitt voru afar fágaöir í
klæöaburöi, var aö stóreflis nagl-
bítur hékk i keöju um háls hennar
yfir skræpóttum kjólnum og í eyr-
unum héngu miklir eyrnalokkar úr
semalíusteinum. Nokkuð frumleg
samsetning ekki satt? Óhætt var
aö segja aö konan væri hrópandi
andstæöa viö þá glæsimennsku,
formfegurð og jafnvægi sem ann-
ars ríkti í þessari garöveislu og er
einkennandi fyrir allt sem Yves
Saint Laurent stendur fyrir. En
hver er þessi Yves Saint Laurent?
Viö skulum rekja sögu hans stutt-
lega.
HVERNIG
HANN BYRJAÐI
I júlímánuöi 1960 haföi Yves
Saint Laurent komiö fram meö
sýningu hjá Dior-tískuhúsinu, sem
síöar kom í Ijós aö boöaöi meiri
breytingar en flestar aörar frá hans
hendi, en eigendur Dior-tískuhúss-
ins voru áhyggjufullir. Sýning Yves
var full af hugmyndum sem hann
haföi sótt til borgarstrætanna, eins
og svörtum leöurjökkum og rúllu-
kragapeysum. Saint Laurent talaöi
götumál í akademíu tískunnar.
Reiöin, sem hann vakti, varö til
þess aö fólk tók ekki eftir aö leö-
urjakkar hans og prjónaföt voru
eins fáguö og hugsanlegt var. Þaö
tók ekki eftir aö hann var aö gefa
fáguninni nýja, nútímalega
merkingu á sama hátt og Chanel
haföi gert fyrir aöra kynslóö. Mán-
uöi síöar var hann kvaddur í herinn
og þegar hann kom til baka var
staöa hans sem yfirmanns tísku-
sköpunarinnar hjá Dior ekki lengur
laus.
Marcel Boussac, eigandi Dior-
fyrirtækisins, bauö honum aö ferö-
ast um heiminn sem nokkurs kon-
ar almannatengslafuiltrúi fyrirtæk-
isins. Jacques Rouet, fram-
kvæmdastjóri Dior, stakk upp á aö
Boussac stofnaöi lítiö sérfyrirtæki
undir nafni Yves Saint Laurent, en
Boussac var á móti því.
I september 1961 varö Pierre
Bergé formlega hægri hönd Yves á
viöskiptasviöinu, þegar þeir Yves
opnuöu tveggja herbergja skrif-
stofu í La Boétie-götu, þar sem
þeir greiddu húsaleiguna af sparifé
sínu. Áöur en mánuöur var liöinn
höföu þeir fengiö fjármagn úr ólík-
legri átt, þar var á ferðinni banka-
stjóri frá Atlanta í Georgíu aö nafni
J. Mack Robinson, en hann haföi
viðskiptatengsl i Sviss. Suzanne
Luling, starfsmaöur hjá Dior og
stuöningsmaöur Saint Laurent,
haföi komið þeim í samband. I La
Boétie-götu höföu þrír stuðn-
ingsmenn Dior gengiö til liös viö
Yves, þau Victoire Thérond, sem
varö framkvæmdastjóri og sem sá
um viöskiptavini, Claude Licard,
sem varö yfirmaöur teiknistofu og
Gabrielle Buchaert, sem varö
blaðafulltrúi. Þá kom Cassandre,
snjallasti leturgeröarmaður Frakka
á þessari öld til skjalanna og
prýddi hæfileika Yves með því aö
beita hæfileikum sínum viö aö
forma nafniö Yves Saint Laurent
og YSL-stafina, sem áttu eftir aö
sjást í nær öllum heimshornum.
Gæfan var Saint Laurent hliö-
holl enn einu sinni. Tískuhúsinu
Manguin haföi nýlega veriö lokaö,
en þar voru fullbúnar vinnustofur
þar sem hægt var aö sníöa og
sauma módelin fyrir sýningu Yves
Saint Laurent, sem þá stóö fyrir
dyrum. Þaö var komiö fram yfir
miönætti 28. janúar 1962, þegar
hópur saumakvenna bar fötin inn í
húsiö viö Spontini-götu sem Saint
Laurent haföi tekiö á leigu. Nokkr-
um klukkustundum síöar hófst þar
fyrsta sýning þessa tilvonandi
tískukóngs í hans eigin nafni.
FYRSTA TÍSKU-
SÝNINGIN
Mánudaginn 29. janúar, morg-
uninn sem hann hélt fyrstu sýningu
sína í Spontini-götu, biöu allir
spenntir eftir útkomunni. París var
iöandi af sögusögnum og pískri:
„Þeir höföu ekki næga peninga
til aö Ijúka viö fatnaöinn ... “
„Hann réð ekki viö þetta einn ... “
„Pierre Bergé ætlar aö fara á ein-
hvern bar og hitta hr. Robinson,
tryggingamann frá Suöurríkjunum,
og fá meiri peninga ... “ Allir i
París sem máli skiptu komu í tísku-
hús Saint Laurent. Frú Lopez,
greifynja af París, dóttir hennar,
Anna prinsessa, hertogafrúin af
Wúrtemberg, eiginkona Daniels
Courtois og eiginkona Edmonds
de Rothschilds, baróns. Þær voru
allar þarna aö fagna Saint Laurent.
Þeir sem komu til aö kaupa fyrir
verslanir höföu búist viö aö hann
gæfi þeim nýja línu. Þaö haföi
hann gert áöur hjá Dior með „trap-
ezunni". Þaö sem atvinnumennirn-
ir skildu ekki var aö tíska Balenci-
agas var aö fjara út, tískuhúsið
Dior var aö verða leiöinlegt, Gi-
venchy haföi tekiö upp endurtekn-
ingastíl Balenciagas, Chanel var
hinn raunverulegi einvaldur í tísku-
heiminum, og Saint Laurent, sem
horföi á allt í gegnum stóru gler-
augun sin, vissi þaö betur en nokk-
ur annar.
Á mánudeginum er þessari
sögulegu sýningu lauk, fór allt á
ringulreiö í salnum. Saint Laurent
var ýtt fram fyrir tjöldin. Aödáend-
urnir réöust aö honum og hann
varö aö foröa sér inn í fataklefa.
Pierre Bergé stóö uppi á stól og
stjórnaöi umferöinni út úr salnum.
Eftir 18 mánaöa dvöl í eyöimörk
tískuheimsins var Saint Laurent
oröinn fjóröa afliö í þeim sama
heimi. Fyrst var Chanel, þá Bal-
enciaga, svo Dior, en næstu 20 ár-
in yröi það Saint Laurent. Hvers
vegna hefur þessi maöur haft
svona ótrúleg áhrif í tvo áratugi?
í fyrsta lagi sleppti hann öllum
aukaatriöum og leitaöi aftur til
grundvallarhugmynda tískunnar.
Þennan mánudag fyrir 20 árum
sýndi hann í „grundvailaratriöum“
þaö sem hann er enn aö sýna:
Túniku, sportfatnaö, sem fengið
haföi hátískusvip. Föt meö mjúk-
um línum, þar sem tæknin er aldrei
áberandi en alltaf ekta. Föt sem
hægt er aö nota næstum enda-
laust. Tísku sem var og veröur
ævinlega fyrir þá sem eru ungir í
anda. Föt sem ekki bera konuna
ofurliöi. Liti sem eru blandaöir og
samdir af list sem minnir á Pic-
asso. Kímni og kæti. Fegurö og
yndi.
20 ÁRUIÝISÍÐAR
Bandarískur blaöamaöur segir
svo frá viötali er hann tók viö Saint
Laurent á síðastliönu ári, en þá
voru 20 ár liöin frá því hann hóf
rekstur eigin tískuhúss og 23 ár
liöin frá því hann byrjaöi aö stunda
þaö sem hann kailar „skáldlega
iöju“ sína, sem er aö hluta starf, aö
hluta þráhyggja, aö hluta list og aö
hluta upphafin sölumennska:
„Þegar viö komum aö hitta Yves
Saint Laurent var hann aö byrja aö
vinna aö næstu tískusýningu sinni.
Hann var eins og venjulega fullur
kvíða þrátt fyrir aö hann hafi hald-
iö 78 sýningar á þessum tveim ára-
tugum. Hann var búinn meö flestar
skissurnar og sum léreftssniöin
Hér heldur eftirlætissýn-
ingarstúlka YSL, Mounia,
é atóru glasi af hinu nýja
ilmvatni, Paría.
voru tilbúin, en Saint Laurent var
meö sviösskrekk.
„Ég er taugaóstyrkari núna en
ég var fyrir fyrstu sýninguna mína.
Eg er aö hætta öllu enn einu sinni.
Tuttugu ár — unglingsárin eru liöin
og þroskaárin aö hefjast. Mér líöur
eins og byrjanda,“ sagöi hann viö
blaðamanninn. „Þaö fer fyrir mér
eins og Próst,“ segir Saint Laurent
og er bæöi að kvarta og miklast.
„Starf mitt mun gleypa mig.“
Blaömaöurinn bað hann um að
segja sér hver væri kjarninn í starfi
hans.
„Maöur endurskapar sama hlut-
inn, en þaö er samt endursköpun,"
svaraöi hann, „maöur stillir streng
sinn þannig aö rétt nóta hljómi á
réttri stundu. Þaö felst í því aö ná
tökum á því sem er aö gerast innra
meö manni. Sú blanda er upphaf
sköpunarinnar í mínum huga.“
En hvaö hefur áhrif á sköpun-
argáfu hans?
„Konur, sannar konur, hafa
ómetanleg áhrif á sköpunargáfu
mína, eöa viö skulum segja aö
þáttur þeirra sé einstæöur.
Þáttur sýningarstúlknanna er þó
alveg sérstakur af því aö þær eru
allar fulltrúar fyrir mismunandi
kvengeröir og líkamar þeirra og
hreyfingar segja mér svo ótal
margt, stundum sé ég fyrir mér
kjól viö aö sjá hvernig sýningar-
stúlka handleikur efni.
Þær flíkur, sem mér þykja best-
ar af öllu sem ég hef gert, eru flíkur
sem ég tók aö láni frá karl-
mönnum: Blazerjakkinn, síðbuxna-
dragtin, bolurinn, dragtin í öllum
sínum myndum, tvíræönin vekur
áhuga minn. Þannig er lífiö núna.
Karlmenn klæöast á kvenlegri hátt
og konur klæöast eins og karlar.
Þau eru i sams konar fötum.“
Saint Laurent sagöist í þessu
viötali vilja eiga stórverslun, sem
seldi aöeins vörur sem hann og
aöstoöarmenn hans heföu hann-
aö. Þar ætti allt aö fást nema mat-
ur. Hann hefur aldrei haft áhuga á
mat.
Yves haföi heyrt að stórverslun-
in „Aux Trois Quartier” kynni aö
vera til sölu og orörómurinn haföi
gert hann spenntan, segir blaða-
maöurinn.
„Þaö gæfi mér styrk aö eiga eig-
in stórverslun," sagöi Yves, „og
þaö gæfi mér visst frelsi.“
— Hvaö myndir þú gera, setja
blóm í hnappagatiö og ganga um á
milli deilda,? spuröi blaöamaöur-
inn hann stríönislega.
„Nei, nei,“ sagöi hann, „ég væri
hiö mótandi afl. Svo myndi ég sjá
um sýningarnar.“
Eitt ár er liðið síðan Yves Saint
Laurent sagöi þessi orö og hver
veit nema aö þessi draumur hans
eigi eftir aö rætast, eins og svo
margir aörir sem hann hefur átt.