Morgunblaðið - 19.08.1983, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 19.08.1983, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983 49 Nágrannarnir + Fyrir 22 árum voru þau ná- grannar, áttu heima í sama húsi í Austur-Berlín, tvenn ung ham- ingjusöm og nýgift hjón. Þau eru enn nágrannar, en nú er þaö Múrinn, sem er á milli þeirra. Samt sem áöur halda þau áfram aö hittast. Alla sunnudags- morgna klukkan 11 má sjá miö- aldra hjón í útsýnisturni í Vest- ur-Berlín og austan Múrsins, i götu sem enginn býr nú við, eru önnur hjón með hundinn sinn. Þau veifa hvert til annars og hrópa í von um aö vindurinn beri vinarorö á milli en stundum verða þau aö kveöjast í skynd- ingu. Þaö er þegar austur-þýska lögreglan kemur á vettvang en svona vinskapur er litinn óhýru auga í því landi, sem ber heitiö „lýðræöislega alþýðulýöveldið". Þannig hefur þetta gengiö í 22 ár. Allt frá þeim degi í ágúst áriö 1961 þegar hermenn lokuðu Austur-Berlín meö gaddavír og rússneskum skriðdrekum. Hjónin í Vestur-Berlín komust undan. Þau stukku út í frelsiö út á Bern- auer Strasse, en húsiö þeirra var í Austur-Berlín en gatan sjálf í Vestur-Berlín. Næsta sunnudag klukkan 11 árdegis munu þau hittast á ný. fclk í fréttum rSr „Ég hataði 007“ — segir George Lazenby, þriðji maðurinn sem hefur leikið James Bond + Fyrir 14 árum vaknaöi ástralski leikarinn George Lazenby upp viö þaö einn góöan veöurdag, aö hann var orðinn frægur maöur. Hann, sem áöur varö aö láta sér nægja aö auglýsa súkkulaöi í sjónvarpinu, var nú allt í einu orö- inn maöurinn, sem allir vildu bjóöa til sín. George Lazenby haföi nefni- lega þekkst þaö góöa boö aö leika James Bond, þegar hinn „rétti 007“, Sean Connery, forfall- aöist. Myndin, sem hér um ræöir, „f þjónustu hennar hátignar", þótti hins vegar vægast sagt mis- heppnuö. „Ég hataöi hlutverkiö og eftir aöeins þriggja daga töku vissi ég, aö þetta væri síöasta Bond- myndin, sem ég lóki í. Þaö fór líka þannig,“ segir Lazenby hlæjandi, en þaö er þó ekki alveg rétt hjá honum, því aö nú á dögunum kom hann einmitt fram í gervi James Bond á nýjan leik. Þaö geröist í sjónvarpinu og var tilefniö nýja Bond-myndin, „Octopussy“, sem Lazenby dró sundur og saman í háöi og geröi stólpagrín aö. Þótt Lazenby sé nú búinn aö jafna sig á ævintýrinu með James Bond viöurkennir hann þó, aö hann hafi átt veru- lega erfitt fyrst eftir aö myndin var sýnd. George Lazenby — gleymdist jafn fljótt og hann varö frægur. „Ég fékk ömurlega dóma og þaö er ekki hægt aö segja, aö tilboöin hafi hellst yfir mig á eftir. Áður en myndin var sýnd og viö frumsýninguna var óg stórt nafn, en svo vildi enginn viö mig kann- ast. Þaö var skelfilegt og þaö munaöi minnstu aö óg drykki mig frá húsi og heimili. Mór tókst þó aö komast á réttan kjöl aftur,“ segir George Lazenby. George Lazenby hefur meira en nóg aö gera nú. Hann hefur leikið í mörgum sjónvarpskvik- myndum og í þremur kvikmynd- um bara á þessu ári. Hann á tvö hús, eitt í Kaliforníu, þar sem hann býr meö konu sinni og þremur börnum, og annað í Sydney í Ástralíu, en þar eyöir hann sumarfríinu hjá foreldrum sínum. + Bobby Ewing í Dallas, eöa öllu heldur Patrick Duffy, eins og hann heitir réttu nafni er nú byrjaöur á aö leika í nýrri mynd. Heitir myndin „Wamp- ing“ og fer Patrick þar meö hlutverk jazzleikara sem læt- ur hverjum degi nægja sína þjáningu. „Ég er ákaflega ánægöur meö aö leika hlutverk, sem ei jafn ólíkt og þaö, sem ég fer meö í Dallas," segir Patrick. Sterk útimálning Eigum ódýra hvíta útimálningu í 19,4 lítra dósum. Verö kr. 58 lítrinn. Sala Varnarliðseigna Uppeldismálaþing Kl og HÍK Hið íslenska kennarafélag hvetur félagsmenn sína til aö sækja uppeldismálaþing KÍ og HÍK sem haldiö veröur aö Borgartúni 6 dagana 26. og 27. ágúst nk. Þingsetning veröur kl. 13.00 hinn 26. ágúst. Yfirskrift þingsins er: Grunnskóli/fram- haldsskóli: Samræmd heild eöa sundurleitir heimar? Skráning fer fram á skrifstofu HÍK (sími 31117) eöa skrifstofu KÍ ( sími 24070). Bladburöarfólk óskast! * Uthverfi Sogavegur 101—212

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.