Morgunblaðið - 19.08.1983, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 19.08.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983 55 „Inntökupróf að haustiu Guðrún nýstúdent skrifar: „Ástæðan fyrir skrifum mínum hér og nú, er sú að ég tel fyllstu ástæðu til að samsinna orðum námskonu í Mbl. 16. ágúst, þar sem hún talar um inntökupróf í Háskóla íslands. Það er kunn staðreynd að stúdentsprófið gefur nú á dögum engin forréttindi i þjóðfélaginu, og ekki er nokkur maður í dag þekktur undir nafn- inu „Jón stúdent". Stúdentsprófið er því einungis grundvöllur fyrir áframhaldandi námi í sérgreinum. Framhaldsskólar landsins eru nú orðnir svo margir, að fólk er löngu búið að tapa tölunni á þeim og svo virðist sem fjölbrautaskóla- tískan ætli að tröllríða þessari smávöxnu og fámennu þjóð. Nú er ekki það krummaskuð né útsker á landinu talið kortleggjandi nema til staðar sé a.m.k. einn, ef ekki fleiri, fjölbrautaskólar á svæðinu. Skólana gista svo ráðvilltir og óráðnir unglingar, sem sifellt skipta um „svið og brautir", því alltaf virðast þeir lenda á „rangri hillu“. Gömlu, góðu menntastofnanirn- ar, sem ávallt hafa skilað afburða- námsmönnum, eiga í erfiðleikum með að koma sínum nemendum inn í almennilegar deildir i Há- skólanum, sem eru löngu orðnar yfirfullar af örvingluðum ung- mennum, sem slysuðust inn i tískufyrirbrigðin, fjölbrautaskól- ana. Háskóla íslands, þessum eina og yfirfulla, ber hiklaust að taka upp inntökupróf í öllum fögum, og skulu prófin vera samræmd og miðuð við meira en lágmarks- kunnáttu og meðalmennsku. Þannig gæfist öllum, sem á annað borð eiga erindi í háskóla, sama tækifæri á að sýna að þeir væru framtíðarnámi og -starfi vaxnir, og öðrum sleppt út í atvinnulífið. Þessi tilhögun kæmi bæði í veg fyrir skattsvik háskólanema og að þjóðfélagið yrði ofmenntað. Jafn- framt yrði hæfum námsmönnum tryggð atvinna i samræmi við kunnáttu, að námi loknu. Einhver kann að telja þetta ómannúðlegar ráðstafanir og jafnvel skref aftur á bak i jafn- réttismálum, en þetta er eina haldbæra lausnin á þeim vanda- málum sem blasa við bæði Há- skóla íslands og atvinnulifi þjóð- arinnar. Inntökupróf að hausti nú þeg- ar.“ þetta blessaða hundahaldsmál. Ég hef búið í Svíþjóð í þrjú ár, en eins og kunnugt er, eru hundar orðnir mikið vandamál þar. Þegar ég kom þangað var ég í fyrstu mjög hlynnt því að hundar væru leyfðir og taldi gott fyrir börnin að alast upp í návist þeirra. Verður ekki annað sagt en að sú skoðun hafi fljótlega breyst til hins gagn- stæða. í Svíþjóð, sem annars staðar þar sem hundahald er leyft, er hunda- eigendum gert að hafa hunda sína í bandi. En mikill misbrestur er þar á og getur lögreglan á engan hátt annað öllum þeim hundum sem ganga lausir. Gengur það jafnvel svo langt að hundar gera þarfir sínar í sandkassa barna og annars staðar á leiksvæðum fyrir börn. Það er ekki gott þegar barn- ið manns leikur sér úti í sand- kassa, mokar upp hundaskít og leikur sér í sandi sem er hland- blautur eftir hunda. Því eigend- urnir gættu þess lftið hvar hundar þeirra gerðu þarfir sínar. Þetta er vandamál sem við ís- lendingar megum allt eins búast við, ef hundahald verður leyft i meira mæli en nú er. Hafa verið margir umræðuþættir í sænska sjónvarpinu um hundavandamálið og eiga menn við því enga lausn. Hitt er svo aftur á móti staðreynd að hægt er að rekja margar kveis- ur sem börn fá og öndunarfæra- sjúkdóma, sem eru mjög algengir þar i landi, til heimilishunda. Væri því ráðlegt fyrir íslendinga að hugsa sig tvisvar um, áður en þeir biðja um aukið hundahald í þéttbýli. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Siðaðir menn bera virðingu fyrir skoðunum hvers annars. Rétt væri: ... bera virðingu hver fyrir skoðunum annars. Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! „Herra Trausti, mér er kalt!“ Lesandi sendi Velvakanda eftirfarandi línur: Fyrir nokkrum dögum skrapp ég í smáferð inn í óbyggðir með Hinriki ívarssyni í Merkinesi í Höfnum. Stanslaus rign- ing skyggði á þá ánægju, sem vænst hafði verið af ferðinni, en hana bar upp á áttugasta og fjórða afmælisdag Hinriks. Skeyttu ferðalangar skapi sínu á Veðurstofunni og ekki hvað síst Trausta veðurfræðingi, sem einmitt hafði verið við völd í veðurfréttum sjónvarpsins næstu kvöld á undan. En allt var þetta í góðu. Hinrik í Merkinesi hefur löngum getað kastað fram stöku og eftirfarandi þremur vísum gaukaði hann að samferðamönnum sínum í tilefni veðurfarsins: Rigningin er að ríða á slig rekka landsins og kvenfólk allt. Hástöfum því ég hrópa á þig: Herra Trausti, mér er kalt. Regnfötum klæddur rölti ég um, raunar líka þegar ég sef í vaðstígvélum og vettlingum. Verri tíð aldrei lifað hef. Á þig set ég allt mitt traust óðum líður að hausti. Hrópa ég til þín hárri raust: Hættu að pissa Trausti. Hress á morgnana Þreyttur á kvöldin Eigum geysilega gott úrval af góö um, sterkum og fallegum furu rúmum. Greiösluskilmálar í 6—8 mánuði. HAGSÝNN VELUR ÞAÐ BESTA HDS6AGNAHÖLLIN 1 BfLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK « 91-81199 og 81410 ALLTAF Á LAUGARDÖGUM Ógnir undirdjúpanna Kafbátar risaveldanna meö samtals 6.700 kjarnaodda sveima um undirdjúpin og feröir þeirra eru svo leynilegar, aö þeir svara ekki skeytum. Fræðandi grein um hrikalegar staöreyndir. Flóabardagi 1244 Hér segir frá því í greinaflokknum um Þórö kakala, þegar þeir mætast Sturla og Þóröur í einu sjóorrustu íslandssögunnar. Komnir af Keltum ekki síður en norskum skerkóngum, segir Þorvaldur Friöriksson fornleifafræöingur, en hann hefur rannsakaö sérstaklega keltn- esk áhrif á islandi. Vönduð og menningarleg helgarlesning AUGlÝSJNGASTOfA KRISTINAR HF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.