Morgunblaðið - 28.09.1983, Blaðsíða 1
Busavígsla 41
Bílar 42
Stúdentaleikhús 45
Bréf frá útiöndum 46/47
Myndlist 50/51
Siglingar 52/53
jrcgtnilitfoHfr
Midvikudagur 28. september
Hestar 55
Myndasögur 56
Fólk í fréttum 57
Dans/bíó/leikhús 58/59
Velvakandi 60/61
Fiskiðnaðarsýning 62
T oller ingar
Tolleringar fóru fram við
Menntaskólann í Heykjavík síö-
astliðinn fimmtudag, og þessar
skemmtilegu myndir voru tekn-
ar við það tækifæri. Tolleringar
eru gömul hefö við Menntaskól-
ann en upphaf þeirra er nokkuð
óljóst. Orðið „tollering" er
komið úr latínu og merkir að
lyfta upp, og hefur það nafn
ávallt verið á þessari vígsluat-
höfn og nýnemar teknir í tölu
lærðra skóla nemenda með því
að lyfta þeim upp í orðsins
fyllstu merkingu.
Fyrst er vitað um tolleringar á ár-
unum 1890—1890, og hafa þær verið
nokkuð árviss atburður frá upphafi.
Þó hefur komið fyrir að þær hafi
fallið niður, nemendur hafa stund-
um amast við þeim vegna smávægi-
legra óhappa sem einstaka sinnum
urðu við framkvæmd tolleringanna
og oftast þau að einhver kom óþægi-
lega niður. Þá reyndu skólayfirvöld
að taka þennan sið af er gagnfræða-
100 ára hefö
við Mennta-
skólann
í Reykjavík
deildin var felld niður við skólann,
þar sem nýnemar urðu þá tveim eða
þrem árum eldri og þyngra í þeim
pundið eftir því. Þetta tókst þó aldr-
ei.
Stúlka kom í fyrsta sinn í skólann
1904 og er ekki vitað hvort hún var
tolleruð eða ekki. En vitað er að það
var lengi vel viðkvæmt mál að toll-
era stúlkur, þar sem það þótti ekki
beint viðeigandi. Því var þó ekki
sleppt heldur gripið til þess ráðs að
tollera þær lítilsháttar innandyra.
En drengir voru tolleraðir úti á
túni. Skiptar skoðanir eru um hvort
vatnsaustur hafi komið við sögu
tolleringa eður ei, en samkvæmt
áreiðanlegum heimildum mun vatn
aðeins hafa komið óbeint við sögu,
og þá þannig að er eltingarleikur fór
fram við tolleringar, gat hann oft
endað með því að menn féllu í læk-
inn eða jafnvel Tjörnina. Hinsvegar
var vatnspóstur á lóð skólans og
kom það fyrir að menn voru póstað-
ir, eins og það var kallað, af félögum
sínum í refsingarskyni fyrir afglöp í
skólalífi. En tollering hefur alltaf
verið tollering.