Morgunblaðið - 28.09.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.09.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1983 55 íslendingar stóðu sig vei á öllum vígstöðvum og gildir þar einu hvort átt er við keppendur eða áhorfendur í stúkunni eða bjórkránni. Hér sést Erling Sigurðsson fánaberi og „prímusmótor" þeirra sem á horfðu ásamt fleiri íslendingum. Má þar kenna Þorstein Aðalsteinsson, Þröst Karlsson, Ólaf Hilmarsson og rétt glittir í augun á Þóri hrossaflutningamanni yfir hvíta kvenmannshúfu. Evrópumeistari í samanlögðu á fjórgangshesti var Walter Feldmann á Magn- úsi frá Grensland, þýskfæddum stóðhesti. En hann sigraði einnig í hlýðniæf- ingum. Mikla athygli vakti liturinn á hesti Feldmanns, sótrauður með Ijós- gult fax og tagl og gengu þær sögur milli manna að þetta væri ekki raunveru- legur litur heldur væri hjálpað upp á sakirnar með háralit. slitum um 6. til 10. sæti en þar voru þeir Eyjólfur og Lárus í eld- línunni ásamt Johannes Hoyos, Austurríki, sem keppti á stóðhest- inum Gáska frá Gullberastöðum og Eve Barmettler, Sviss, sem keppti á svissnesk-fæddri hryssu sem kallast Mengloed (nafnið e.t.v. ekki rétt með farið en þannig var það ritað í skrána). Eyjólfur og Jóhannes deildu með sér 6. sæt- inu en sú svissneska hélt sínu 8. sæti og Lárus vann sig upp í 9. sæti, en það er sjálfsagt rétt að taka það fram að Preben Troels- Smith, Danmörku, mætti ekki í úrslitin. Og þá var komið að þýsku stór- löxunum í töltinu en þeir voru fjórir og sá fimmti var Hollend- ingurinn Joris van Grinsven á Rauðdreka. Walter Feldmann mætti ekki í úrslitakeppnina og var talað um að það hafi hann gert í mótmælaskyni við ósanngjarna dóma í fjórgangi en ekki skal full- yrt um hvort það sé rétt. Hans Georg Gundlach hélt uppteknum hætti og skaut Andreas Trappe enn á ný aftur fyrir sig og kom það engum á óvart. Daniela Stein vann sig upp úr 5. sæti í 3. og Joris van Grinsven hélt 4. sætinu. Norskur sigur í víðavangshlaupi Nú í fyrsta skipti í langan tíma tóku íslendingar þátt í víða- vangshlaupinu en síðast gerðu þeir það í Sviss 1972 en eftir þá keppni töldu menn að þetta væri ekki við hæfi gæðinga þar sem keppnin var og hefur verið ávallt síðan mjög erfið fyrir bæði mann og hest og þó sér í lagi fyrir hest- inn. En þar sem nú var farið að keppa sérstaklega í samanlögðu á fjórgangshestum þótti ekki stætt á öðru en að vera með í þeirri keppni og þar af leiðandi ekki komist hjá þátttöku í víðavangs- hlaupinu. Og það var OIil sem fékk það hlutverk að verja heiður ís- lendinga í víðavangshlaupinu. Ekki var gott að gera sér grein fyrir hvaða möguleika hún átti þar sem lítið var vitað um styrk- leika annarra þátttakenda. Töldu ýmsir að sigurmöguleikar væru allnokkrir og kom það í ljós eftir á að slíkt var ekki ómögulegt. Keppnin var hnífjöfn en Olil lenti í 5. sæti og munaði aðeins tæpum fjórum stigum á henni og sigur- vegaranum sem var Heidi Nilsen, Noregi, en hún keppti á hryssunni Heru frá Kirkjubæ. Var þetta jafnframt eini EM-titillinn sem ekki féll í skaut íslendingum eða Þjóðverjum en eins og fram kem- ur í fyrirsögn þá hirtu þessar þjóðir alla aðra EM-titla og sýnir það best að þessar þjóðir bera höf- uð og herðar yfir aðrar þátttöku- þjóðir innan FEIF sem eru félaga- samtök eigenda íslenska hestsins í Evrópu. í þessum tveim greinum sem nú hafa birst hefur verið rakinn gangur mála í keppninni sjálfri en í þeirri næstu verður fjallað um mótið í heild, framkvæmd, aðstöð- una á mótinu og að síðustu vanga- veltur um stöðu okkar á Evrópu- mótum framtíðarinnar. Þeir Snorri Ólafsson og Benedikt Garðarsson sáu um að dæma fyrir íslands hönd og var það skoðun flestra að aldrei hafi íslenskum dómurum tekist jafn vel upp á F.vrópumótum og nú. Hann kom, sá og sigraði. Hans George Gundlach, Evrópu- meistari í fjórgangi og tölti, á Skolla sem er þýskfæddur en eigi að síður mjög góður. Fór þarna saman frábær reiðmennska, framúrskarandi hestur og árangur af margra mánaða þjálfun. Bridge Arnór Ragnarsson Stórmót á Selfossi Fyrsta stórmót keppnistíma- bilsins, Floridanamótið, verður haldið á Selfossi 15. október nk. og verður spilað í Selfossbíói. Þetta er í fjórða sinn sem Bridgefélag Selfoss gengst fyrir móti sem þessu, en það er haldið í minningu Einars Þorfinnsson- ar sem var heiðursfélagi BS. Fyrirhugað er að mótið verði með svipuðu sniði og undanfarin ár, tölvugefinn barometer, og er átefnt að því að 40 pör taki þátt í mótinu. Heildarverðlaun verða 25.000 krónur sem skiptast þannig: 1. verðlaun kr. 12.000, önnur verðlaun kr. 8.000 og þriðju verðlaun 5.000 krónur. Þátttökugjald verður 800 krónur fyrir parið og verður spilað um silfurstig. Eins og áður sagði verður spil- að í Selfossbíói og hefst keppnin kl. 10 og áætlað að spilamennsku ljúki kl. 23. Margir af sterkustu spilurum landsins hafa tekið þátt í móti þessu undanfarin ár og verður það vonandi einnig nú. Fá þá sunnlenzkir spilarar tækifæri á að etja kappi við okkar beztu spilara á heimavelli. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borizt fyrir 10. október nk. í síma 1653 (Erlingur) eða 1758 (Garðar) eða 2390 (Garðar). Loks má geta þess að verð- launagripir Einars heitins verða til sýnis á mótinu, en hann ánafnaði Bridgefélagi Selfoss alla verðlaunagripi sína. Bridgefélag Kópavogs Fimmtudaginn 22. sept. var háð eins kvölds tvímennings- keppni með þátttöku 12 para. Úrslit urðu þessi: Haukur Hannesson — Guðrún Hinriksdóttir 196 Aðalsteinn Jörgensen — Ægir Magnússon 188 Björn Halldórsson — Hrólfur Hjaltason 182 Sigurður Sigurjónsson — Júlíus Snorrason 177 Meðalskor 165 stig. Fimmtudaginn 29. sept. hefst aðaltvímenningskeppni BK og verður keppnin fjögur spila- kvöld. Keppnisstjóri er Her- mann Lárusson og hefjast spila- kvöld kl. 20.00 stundvíslega. Spilað er í Þinghóli við Hamra- borg. Spilarar eru hvattir til að mæta og taka þátt í spennandi keppni. Bridgefélag Akraness Starfsemi félagsins hófst fimmtudaginn 22. sept. sl. með eins kvölds tvímenningi og urðu úrslit þessi: Pálmi Sveinsson — Þóroddur Guðmundsson 185 Guðmundur Sigurjónsson — Skúli Ketilsson 185 Ingi Steinar — Þorgeir Jósefsson 172 Hörður Jóhannesson — Kjartan Guðmundsson 168 Alfreð Viktorsson — Jón Alfreðsson 166 Fimmtudaginn 29. september hefst tveggja kvölda einmenn- ingur sem jafnframt er firma- keppni félagsins. Mætið vel og stundvíslega. Ný mót á vegum Bridgesambandsins íslandsmót í kvennaflokki og blönduðum flokki (þar sem karl og kona spila saman) verur hald- ið á Hótel Heklu dagana 21.—23. október nk. Keppnisform hefir enn ekki verið ákveðið en það fer eftir fjölda þátttakenda. Upplýsingar um mótin og þátttökutilkynn- ingar er að fá á skrifstofu Bridgesambands íslands í síma 18350. Opið verður allan daginn þessa viku. Bikarkeppni sveita Búið er að draga í undanúrslit bikarkeppni BSf en þar spila eft- irtaldar sveitir saman: Sveit Karls Sigurhjartarsonar gegn sveit Gests Jónssonar, Sveit ólafs Lárussonar gegn sveit Runólfs Pálssonar eða sveit Sævars Þorbjörnssonar. Undanúrslit og úrslit verða spiluð í Hreyfilshúsinu 8. og 9. október nk. Sambandsþing BSÍ Bridgesambandsþing verður haldið 28. október nk. á Hótel Loftleiðum. Það verður nánar auglýst síðar. Arkitektafélagið um skipulag Skúlagötu: Fljótræðisákvarð- anir ber að forðast ALMENNIJR félagsfundur haldinn þriðjudaginn 20. september 1983 í Arkitektafélagi íslands lýsir yfir stuðningi sínum við þau áform borg- aryfirvaída að skipulag við Skúla- götu verði tekið til gagngerðrar endurskoðunar, en vinnubrögð, sem viðhöfð hafa verið í sambandi við ákvarðanatöku hingað til óviðunandi frá faglegu sjónarmiði. Fundurinn telur, að áður en endanlegar ákvarðanir verði tekn- ar, sé óhjákvæmilegt að kannaðir verði vandlega allir þættir máls- ins. Bent er á sjónarmið þau sem koma fram í gildandi aðalskipu- lagi um aðlögun byggðar að lands- lagi og nálægri byggð sem enn standa í fullu gildi. Þá er ekki síð- ur mikilvægt, að húsagerðir full- nægi þeim gæðakröfum sem gera verður nú til íbúðarhúsnæðis. Þá telur fundurinn að fljótræð- isákvarðanir um nýtingarhlutfall beri að forðast og að sýna þurfi fram á að unnt sé að ganga svo frá holræsamálum og vörnum gegn óhóflegum hávaða frá umferð að samræmist heilbrigðiskröfum. Það er álit fundarins, að kanna beri varðveislugildi húsa og endurnotkunarmöguleika. Vakin er athygli á því, að á svæðinu eru byggingar sem tengjast atvinnu- sögu þjóðarinnar. Fundurinn leggur ríka áherslu á að vinna að skipulagi fari þannig fram að borgarbúar eigi þess kost að fylgjast með framvindu mála á hverjum tíma og sérstakt sam- band verði haft við íbúa neðan Hverfisgötu. Skoðun fundarins er, að áður en frekar er aðhafst í málinu, sé rétt að kanna hvort æskilegt er að boða til opinnar samkeppni á veg- um Arkitektafélags íslands um deiliskipulag á svæðinu. Fundur- inn felur stjórn félagsins að kanna möguleika á slíku og bjóða fram aðstoð félagsins í því sambandi. I r rréttatilkynninfOi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.