Morgunblaðið - 28.09.1983, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.09.1983, Blaðsíða 11
I MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1983 51 Sýning Sigþrúðar Pálsdóttur I Verzlanahöllinni að Laugavegi 26 sýnir fram til 30. september ný- liði á akri myndlistarinnar, Sig- þrúður Pálsdóttir, 42 myndverk af ýmsri gerð. Listakonan hefur tek- ið sér nafnið „Sissú" og einhver aðili, er nefnir sig Bleikfríður og ég kann engin skil á, kynnir lista- konuna, svo sem stendur í sýn- ingarskrá. Listrýnirinn hefur aldrei komið á sýningu í þessum sal og veit eig- inlega ekki, hvort hér muni í framtíðinni verða regluleg starf- semi eða hér sé um að ræða ein- stakt tilfelli og stundarfyrirbæri. Hins vegar býður salurinn upp á nokkra möguleika sem sýningar- vettvangur, en gallinn er sá, að öll birtan kemur úr suðri og það þyk- ir ekki gott vegna sólarljóssins og ójafnrar birtu. Öll sýning Sigþrúðar Pálsdóttur ber vott um, að hér sé um nýgræð- ing að ræða og að hún eigi eftir að taka út mikinn þroska ef að líkum lætur. Sumar myndirnar eru næsta viðvaningslegar í útfærslu, en í öðrum bregður fyrir nokkrum átökum við lögmál myndflatarins. Sumar myndirnar eru með súr- realistísku yfirbragði, en önnur vísa til áhrifa frá nýbylgjunni, svo sem myndin „Ljónið og örnin" (1), sem er með öflugustu verkunum á sýningunni. Sigþrúður bregður á leik hugarflug síns í mynd sinni „Ástarballettinn" (4), en á í glímu við burðargrind málverksins í myndunum „Hringsnúningur" (Rotation) (36 og 40). Þannig kem- ur listakonan víða við og er ennþá óráðin um framtíðina og hvert stefna beri, sem er næsta eðlilegt á fyrstu sýningu. Allnokkrar smá- teikningar eru með á sýningunni og kunni ég vel við sumar fyrir fersklega útfærslu og einlæga tjáningu. í salnum hefur verið komið fyrir myrkraherbergi klætt tjöldum, er „grímustaðir" nefnast, — eins konar „environment", en ég varð fyrir litlum áhrifum þar inni, þótt grímurnar væru snotrar. Af þessari sýningu verður ekki mikið ráðið nema um hæfileika, sem eru í mótun. Ég hef vísvitandi notað nafnið Sigþrúður í ritsmíð þessari, vegna þess að mér finnst það öllu ris- meira nafn og fallegra en Sissú og auk þess magnaðara listamanns- nafn. Svo er einungis að óska lista- konunni góðs gengis í framtíðinni. Sýning Valgarðs Gunnarssonar Það er ekki oft sem það þykir sérstakt tilefni að rita um sýn- ingar á kaffihúsum borgarinnar, þótt þau séu sum hver af heims- menningarlegum toga svo sem Mokka á Skólavörðustíg. En það verður að viðurkenna, að sýningin á myndum Valgarðs Gunnarssonar er ein þeirra sýninga, sem ekki má láta ógetið, hvar svo sem hún væri sett upp. Valgarður verður að teljast með þeim ungu mönnum, sem mestar vonir eru tengdar við af þeim, er hafa lagt fyrir sig þreifingar í nýbylgjumálverkinu. Hinar litlu myndir hans á veggjum Mokka bera vott um mjög ríka „artist- íska“ kennd, hugarflug og mikla vinnugleði. Sumar þeirra eru jafn- vel áhrifaríkari hinum stóru myndum, er sjást eftir hann á samsýningum ungra myndlistar- manna. Áhrif fara aldrei eftir stærð, en stórar myndir eru mjög í tízku um þessar mundir. Litirnir í myndum Valgarðs eru oft mjög ferskir og upplifaðir, svo sem í myndunum „Jólasveinn" (7), „Litast um“ (15), „Flugvél um nótt“ (34) „OP“ (33) og „Lónið sem arabarnir drekka úr“ (36). I mynd- um Valgarðs bregður oft fyrir eró- tískum tilbrigðum, en gróf eru þau ekki heldur frekar mettuð yndis- þokka, er ætti allteins að hrífa gamlar siðprúðar dömur, — a.m.k. miðað við svo margt annað, er sést á léreftströngum nýbylgju- málaranna. Þetta er sýning, sem hrífur og gleður augað, því að hún er svo langt fyrir ofan það, sem menn sjá á veggjum kaffihúsa, en einmitt sú tegund myndlistar, er þar á að sjást sem oftast og vera sjálfsagð- ur hlutur. Listamanninum óska ég til hamingju með sýninguna og hvet sem flesta er fylgjast vilja með þróuninni í málverki dagsins í dag, að leggja leið sína á staðinn. Honda Prelude árg. 1981 Litur hvítur, ekinn 30 þús. km. Honda Civic Sport árg. 1983 Litur svartur. Verö 290 þús. Range Rover árg. 1976 Litur grásans. Ekinn 40 á vél. Verö 400 þús. Range Rover árg. 1982 Litur hvítur. Ekinn 23 þús. km. 4ra dyra. Verö 900 þús. Range Rover árg. 1979 Litur grænn. Ekinn 50 þús. km. Verö 500 þús. Benz 280 SE árg. 1977 Litur blásans. Bíll meö öllum aukahlutum, ný innfluttur. Verð 490 þús.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.