Morgunblaðið - 28.09.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.09.1983, Blaðsíða 2
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1983 Benz 190 E í reynsluakstri Mjög góðir aksturseiginleikar — Frágangur til fyrirmyndar — Rými með því mesta sem gerist í bfl í þessum stærðarflokki — Mætti vera eilítið kraftmeiri Bílar Sighvatur Blöndahl Mikið var rætt og ritað um þá ákvörðun Daimler-Benz á sínum tíma, að hefja hönnun og fram- leiðslu á „litlum“ Benz, eftir að fyrirtæki hafði verið þekkt um ára- tugaskeið fyrir framleiðslu á milli- stórum og stórum vönduðum bíl- um. Margir spáðu því, að menn myndu snúa bakinu við Benz, þeg- ar framleiðsla væri hafin. Gerhard Prinz, aðalforstjóri Daimler-Benz, sagði hins vegar að það væri firra að tala um að Benz tæki skref niður á við með framleiðslu Mercedes Benz 190 eins og nýi bíllinn var nefndur. „Hví skyidum við ekki geta framleitt lítinn bíl í sama gæðaflokki og hina?“ spurði forstjórinn. Það kom reyndar á daginn, að viðtökur almennings og sérfræðinga voru almennt mjög góðar og í dag hefur Daimler-Benz ekki undan að framleiða. Á dögun- um gafst mér tækifæri til að reynsluaka Mercedes Benz 190 E og niðurstaðan af þeim akstri er sú, að á ferðinni sé mjög skemmti- legur, vandaður bíll. ÍJTLIT Hvað útlit snertir hefur Mercedes Benz 190 hið klassíska Benz-yfirbragð. Eins og einn maður orðaði það: Bíllinn er eins og stór Benz, sem hefur hlaupið í þvotti. Persónulega finnst mér lína bílsins vera skemmtileg. Hann samsvarar sér mjög vel og hefur sportlegt yfirbragð . Ef lit- ið er á framenda bílsins hefur hann tiltölulega stór aðalljós, eins og maður á að venjast hjá Benz, en stöðu- og stefnuljósin eru í jaðrinum. Benz 190 er síðan með hefðbundið grill og ofan á því stendur þríarma merkið kunna. Við samanburð við stærri gerðir af Benz er það afturhlut- inn, sem helzt er frábrugðinn. Hann er að vísu með hefðbundn- um Benz-ljósum, en lína til hlið- anna er mun afrúnaðri. Benz 190 er með klassíska hjólkoppa. DYR Benz 190 E er fjögurra dyra og vakti það sérstaka athygli mína hversu vel og skemmtilega hurð- irnar féllu að stöfum, auk þess að vera mjög léttar í meðhöndl- un. Framdyr bílsins eru tiltölu- lega stórar á bíl í þessum stærð- arflokki og er því gott að fara um þær fyrir stóra menn. Aft- urdyr bílsins eru af venjulegri stærð og er skikkanlegt að nota þær. SÆTI OG RÝMI Þegar sezt er inn í Benz 190 E verður þess strax vart, að rými er óvenjulega mikið og gott frammi í. Það á sérstaklega við um fótarými og hliðarrými. Loftrými er ágætt í bílum án sól- lúgu, en mætti vera meira í þeim með lúgunni. Það er í raun með ólíkindum hversu mikið fóta- rými er í bíl af þessari stærð. Það má reyndar segja það um rými aftur í, að það er óvenju- mikið í bíl af þessari stærðar- gráðu, þótt ekki sé það jafn ríku- legt og frammi í. Um sætin er það að segja að þau eru vönduð. Framsætin veita mjög góðan bak- og hliðarstuðning, auk þess að vera fremur stíf, sem ég per- sónulega er mjög hrifinn af. Á þeim eru hefðbundnir stilli- möguleikar, þe. hægt er að færa sætin fram og aftur á sleða og breyta halla baksins. Sætin eru klædd þægilegu tauáklæði, en auk þess er hægt að sérpanta bílinn með leðuráklæði. Eins og svo oft hefur verið ítrekað hér á síðunni, verður að hafa hefð- bundinn fyrirvara á gæðum sæta. Þar ræður líkamsbygging hvers og eins mjög miklu. Það fer hins vegar ekkert á milli mála, að vel hefur verið til vand- að þegar sætin í Benz 190 E voru hönnuð og framleidd. Um aft- ursætið er það að segja að um bekk er að ræða, sem er með út- felldri miðju, sem eykur þægindi farþega. Auk þess finnst mér formun sætanna vera góð. Það fer mjög vel um tvo fullorðna aftur í, en hins vegar væri farið að þrengja verulega að þeim þriðja á langkeyrslu. Táknrænn Bens-framendi. Mercedes Benz Gerð: Mercedes Benz 190 E. Framleiðandi: Daimler-Benz. Framleiðsluland: Vestur- Þýzkaland. Innflytjandi: Ræsir hf. Afgreiðslufrestur: 3 mánuðir. Verð: 700.000. Þyngd: 1.100 kg. Lengd: 4.420 mm. Breidd: 1.678 mm. Hæð: 1.383 mm. Hjólhaf: 2.665 mm. Vél: 4 strokka, 122 hestafla, 1.997 m3 benzínvél. Fjöðrun: Sjálfstæð fjöðrun á hverju hjóli. Bremsur: Aflbremsur að framan og aftan diskar. Stýri: Aflstýri. Benzíntankur: 55 lítrar. Eyðsla: 10—11 lítrar í blönd- uðum akstri. Hámarkshraði: 195 km/kl.st. Beygjuradíus: 10,6 metrar. MÆLABORÐ Mælaborðið er klassískt Benz-mælaborð, sem hefur sinn sjarma. Það er skemmtilega hannað, þannig að mjög hönd- uglegt er að ná til allra stjórn- tækja. í miðju borðinu er tiltölu- lega stór hraðamælir, sem er með hámarkshraða 220. Hægra megin við hann er snúnings- hraðamælir, en inn í hann er felld kvarzklukka. Vinstra meg- in við hraðamælinn eru þrír mælar í einum hring, þ.e. benz- ínmælir, hitamælir og „econ- omy-mælir“. Mjög þægilegt er að lesa af öllum þessum mælum. Undir mælunum þremur eru síð- an sérstök ljós fyrir aðalljós, handbremsu og hleðslu bílsins. Aðalljósarofinn er á vinstri væng borösins vel innan seil- ingar. Vinstra megin í stýris- hjólinu er síðan einn rofi fyrir stefnuljós og þurrkur. Að ósekju hefði mátt hafa þá tvo og hafa stefnuljósin sér. Stjórntæki miðstöðvarinnar eru síðan á hefðbundnum stað milli sæt- anna. Miðstöðin sjálf virkar ein- staklega vel. Undir stjórntækj- um miðstöðvarinnar er síðan steríótæki. Rúðuupphalarar eru rafdrifnir og eru stjórntæki þeirra í panel í kringum gír- skiptinguna. VÉL, SKIPTING OG PEDALAR Benzinn, sem ég reynsluók var sjálfskiptur og er skiptingunni haganlega komið fyrir milli sæt- anna. Bíllinn er knúinn fjögurra strokka, 122 hestafla, 1.997 rúmsentimetra benzínvél, sem virkar ágætlega. Persónulega hefði ég viljað hafa hann eilítið öflugri í sjálfskipta bílnum, en Benz 190 er að sjálfsögðu fáan- legur beinskiptur. Skiptingin er mjög þýð og skiptir sér skemmtilega. Um pedalana er það að segja að þeim er vel fyrir komið og engin hætta er á því að stíga á tvo þeirra samtímis. Mér fannst bremsurnar koma sér- staklega vel út. AKSTURSEIGINLEIKAR Það þarf í sjálfu sér ekki að hafa mörg orð um aksturseigin- leika Benz 190 E. Þeir eru sér- staklega góðir. Á það bæði við á steyptum vegum, þegar hratt er ekið, og úti á holóttum malar- vegum. Bíllinn er hæfilega stífur og liggur hreint ótrúlega vel af þetta litlum bíl að vera. Ekki er neitt tiltökumál að aka honum gríðarhratt, bæði á steyptum vegum og úti á malarvegum. Hann leggst ekkert niður í horn- in, þegar honum er ekið hratt inn í beygjur og svarar sérstak- lega skemmtilega, enda fjöðrun- in góð. Bíllinn er með vökvastýri og er mjög þægilegur í meðför- um innanbæjar. NIÐURSTAÐA Niðurstaðan af þessum reynsluakstri er sú, að Benz hafi tekizt mjög bærilega upp í hönn- un á þessum „litla" bíl, sem er þó ekki svo lítill. Allur frágangur er til fyrirmyndar. Hann hefur mjög góða aksturseiginleika. Mætti vera eilítið kraftmeiri fyrir minn smekk. Rými er með því mesta, sem þekkist í bíl af þessari stærð og verulega vel fer um fjóra fullorðna á langferðum. Hefðbundið Benz-mslaborð. Undir stýri er Oddgeir Bárðarson, hinn síungi sölustjóri Ræsis. Benz 190 E er knúinn 122 hestafla vél.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.