Morgunblaðið - 28.09.1983, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1983 49
Ráðstefna um launamál kvenna:
Samþykkir að efna til
þverpólitísks samstarfs
um launamál kvenna á vinnumarkaðnum
heimsþinginu um atómvopn og af-
vopnun benti norski biskupinn Per
Lönning ítrekað á að engin ástæða
væri til að einangra þetta tal við
atómvopnin ein, því ljóst væri að
önnur gjöreyðingarvopn, svo sem
sýkla-, geisla- og önnur slík
drápstæki, væru engu betri.
Þetta tal var kæft í ákafa tali
annarra, sem allt að því afhjúpuðu
sig þannig: ‘Skilurðu ekki maður,
það eru þær meðaldrægu sem við
viljum ekki fá í Evrópu vestan-
verða nú í haust. Það er málið.’
Auðvitað var þetta ekki sagt svo
berum orðum, en skildist vel samt.
Þingið samþykkti svo sína at-
óm-ályktun.
Það gladdi mig hve biskup
okkar kom öllum á óvart, þegar
hann — nýkominn heim af friðar-
þingi í Uppsölum — svaraði
spurningu fréttamanns útvarps-
ins, hvernig það ætti að geta tekist
að fá risaveldin til að leggja til
hliðar atómsprengjurnar á allra
næstu árum. „Við megum ekki
gleyma Heilögum anda," sagði
biskup, hann getur öllu til vegar
komið.
Og víst er um það, fengi hann að
ráða, gæti hann gjöreytt gjöreyð-
ingarvopnabúrunum. En Guð og
hans góði andi hefur gefið okkur
mönnum frjálsan vilja til að velja
hið góða eða hið vonda. Og þessi
risa-öfl takast á í heimi hér nú
sem aldrei fyrr. Okkur — hinum
kristnu — ber að leggjast á sveif
með afli hins góða, svo að það fái
sigrað. Hvernig má það verða? Jú,
með því að gera alla menn að
sönnum Jesú lærisveinum, sem
þekkja leyndardóminn í orðum
Ritningarinnar: „Ef vér játum
syndir vorar þá er hann trúr og
réttiátur, svo að hann fyrirgefur
oss syndirnar og hreinsar oss af
öllu ranglæti." (Jóh. 1:9) Ef vér ját-
um ... kapítalistar og kommúnist-
ar og aðrir syndugir menn ... Það
er málið. Þetta er lausnin, sem
fólgin er í nafni Jesú. Hún stendur
til boða, því enn er ‘dagur’ — enn
er tími fyrirgefningarinnar ekki
liðinn.
Við erum frjálsir menn og höf-
um frjálst val. ‘Veljið í dag, hverj-
um þér viljið þjóna ... ’ Þetta er
kristinn dómur, en hann er ekki
blauður, þvert á móti.
Atriði vil ég nefna í þessu at-
óm-tali, sem vert er að hugleiða:
Segjum að undrið gerðist, að
valdsmennirnir A&R yrðu ein-
huga um að hverfa frá þessu at-
óm-æði, hætta framleiðslunni og
losa sig við ‘lagerinn’. Hvernig
ætti að eyða honum með tryggi-
legum hætti? Það er víst ekkert
einfalt mál eða kann einhver á
það? Risaveldin gætu hætt og
jafnvel stórveldin líka. En hvað
með ‘smákóngana’ sem ráða yfir
olíuauði og hafa gert nær allt falt
í heimi hér með svartagulli sínu.
Hver tryggir það að einhverjir
Amin-ar eða geðsjúkir Gaddafi-ar
komist ekki yfir ‘par stykki’ af
þessum áhrifamiklu ‘hólkum’?
Hver færi þá með völd í heimi
hér? Ekki gufar þekkingin um at-
ómið og möguleika þess upp úr
mannheimi — eða hvað?
Spurning vaknar um það, hvort
þessi óeyðanlega þekking og gripir
hennar sé ekki fullt eins vel komin
í jafnvægisbúrum risanna eins og
hjá einhverjum smáskrítnum ætt-
arhöfðingjum. Víst erum við kom-
in með Móður Jörð í ógöngur. En,
ef ekki væri lengur um að velja
nema tvo vonda kosti, þá kysi ég
sjálfur fremur að farast fyrir leiftur-
sprengju, hvaða nafni sem hún
nefndist, heldur en kafna í ófrelsi
guðlauss stjórnkerfis.
En — „í þínu ljósi, ó Guð, sjáum
vér Ljós,“ þ.e. Ljós heimsins: JES-
ÚS. Og þar er ekki í kot vísað.
Tökum boði hans. ‘Kost þann hinn
besta kjós: Guðs Orð fær sýnt og
sannað, hvað sé þér leyft eða
bannað, það skai þitt leiðarljós’ (Ps.
7:3).
Læt hér staðar numið að sinni.
Hefi uppgötvað að jafnvel hið stóra
Mbl. á í vandræðum með langt mál.
Enn er ósagt frá nokkrum málum
hins mikla Alkirkjuþings, sem erindi
eiga í samfélag okkar einmitt nú. Ef
‘heitt haust’ (það er ekki friðsamleg-
ur tónninn í ‘veðurspámönnum frið-
arins’) á að koma eftir kalt sumar,
gott og vel, þá er eins gott að vera
viðbúinn öllu — og til í allt, eins og
sumir hressir hafa orðað það. (1.
Pét. 3:1)
f hinni gömlu (1841) Viðeyjar-
biblíu ömmu minnar les ég í Jer.
6:15: „Þeir lækna sár míns fólks
með hægu móti (gjöra lítið úr þeim),
segjandi: friður, friður! og þó er
einginn friður.“ (Þetta er nokkuð
breytt í nýrri þýðingum.) í friðar-
umræðunni á heimsþinginu var
vakin sérstök athygli á þessum
orðum. Ástæða þótti til.
10. sept. 1983
RÁÐSTEFNA Sambands Alþýðu-
flokkskvenna um launamál kvenna
á vinnumarkaöinum var haldin í Fé-
lagsheimilinu á Seltjarnarnesi laug-
ardaginn 24. september sl. Stóð ráð-
stefnan frá kl. 9.00 til kl. 17.00.
Ellefu erindi voru flutt og pall-
borðsumræður voru eftir hádegi,
HAUSTMÓT Taflfélags Reykjavík-
ur 1983 hófst sl. sunnudag, og var
teflt í húsakynnum félagsins að
Grensásvegi 44—46.
í aðalkeppninni verður þátttak-
endum skipt í flokka með hliðsjón
af Eló-skákstigum, sem Skáksam-
bandið lét reikna í júlí sl. Tefldar
verða ellefu umferðir í öilum
flokkum. í efri flokkunum verða
tólf keppendur, sem tefla einfalda
umferð allir við alla, en í neðsta
flokki verður teflt eftir Monrad-
kerfi.
Umferðir verða þrisvar í viku, á
sunnudögum kl. 14 og á miðviku-
dögum og föstudögum kl. 19.30.
Biðskákadagar verða inn á milli.
Keppni í flokki 14 ára og yngri á
haustmótinu hefst á laugardag, 1.
október. Tefldar níu umferðir eftir
Monrad-kerfi, umhugsunartími 40
mínútur á skák. Keppnin tekur
þrjá laugardaga, þrjár umferðir í
senn. Bókaverðlaun verða fyrir
a.m.k. fimm efstu sæti.
Haustmótið er jafnframt meist-
aramót Taflfélags Reykjavíkur og
hlýtur sigurvegari í efsta flokki
titilinn „Skákmeistari Taflfélags
Reykjavíkur 1983". Björn Þor-
steinsson hefur oftast orðið skák-
meistari Taflfélags Reykjavíkur,
alls fimm sinnum, en Gunnar
auk fyrirspurna utan úr sal, segir
í fréttatilkynningu frá Sambandi
Alþýðuflokkskvenna. Þátt í ráð-
stefnunni tóku 170 manns, úr öll-
um stjórnmálaflokkum, auk full-
trúa fjölmargra launþegasam-
taka. Ráðstefnan samþykkti eftir-
farandi ályktun:
Ráðstefna Sambands Alþýðu-
Gunnarsson hefur fjórum sinnum
borið sigur úr býtum. Núverandi
skákmeistari Taflfélags Reykja-
víkur er Karl Þorsteins.
flokkskvenna, haldin 24. septem-
ber 1983, fordæmir harðlega það
launamisrétti sem ríkir á vinnu-
markaðinum.
Ráðstefnan samþykkir að efna
til þverpólitísks samstarfs um
launamál kvenna á vinnumarkað-
inum. Samþykkir ráðstefnan að
boðað verði til fundar kvenna úr
öllum stjórnmálaflokkum, þar
sem leitað verður samstöðu
kvenna í launþegahreyfingunni og
öðrum áhugaaðilum um launa-
jafnrétti kynjanna, sem skipuleggi
síðan aðgerðir sem leiði til úrbóta
og uppræti launamisréttið.
Undir þessa ályktun rituðu: Jó-
hanna Sigurðardóttir, Björg Ein-
arsdóttir, Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir, Guðrún Ágústsdótt-
ir, Gerður Steinþórsdóttir, Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir, Ragna
Bergmann og Jóhanna Friðriks-
dóttir.
Þessar stöllur efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Reykjavíkurdeild Rauða
krossins og söfnuðu 160 krónum. Þær heita Sigurgyða Þrastardóttir, Agnes
Erna Stefánsdóttir og íris Stefánsdóttir.
Haustmót Taflfé-
lags Reykjavíkur
Eldavélar
prosent
afsláttur
Magninnkaup hátt á annað
hundrað eldavéla frá
Electrolux gera okkur kleift
að bjóða nýjar og fullkomnar
heimiliseldavélar með
30% afslætti.
Dæmi:
Eldavél með klukkuborði, kjöthita-
mæli, fjórum suðuhellum
(2 hraðsuðu), ofni með barnalæsingu,
grilli og grillmótor, hitahólfi og
stillanlegum sökkli.
Stadgreiðsluverð: kr. 14.280.-
Eldavél með blástursofni:
Staðgreiðsluverð: kr. 15.190.-
Eldavél með rafeindastýrðu klukku-
borði:
Staðgreiðsluverð: kr. 16.900.-